Morgunblaðið - 18.01.2003, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert ákafur/áköf og
ástríðufull/ur og hrífur
aðra með þér. Gættu þess
að láta skapið ekki verða
þér fjötur um fót.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Nú er lag til þess að njóta
samverustundar með öðr-
um, svo sem vinum, einkum
þeim sem hafa ólíkan bak-
grunn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er líklegt að þú komir
til með að eyða fjármunum í
munaðarvörur í dag, það er
í lagi svo lengi sem þú hefur
efni á því.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Reyndu að fullnægja fróð-
leiksþörf þinni á sem fjöl-
breyttastan máta.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Sköpunarþrá þín er mikil og
þú færð margar hugmyndir.
Svo gæti farið að ein þeirra
yrði notuð.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Nú er lag til að koma hug-
myndum þínum á framfæri.
Ekki slaka á í kynningu á
þeim málum sem þú berð
fyrir brjósti.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú verður að bregðast við
óvæntum fréttum með still-
ingu og hugsa þitt mál
vandlega áður en þú
ákveður til hvaða aðgerða
þú grípur. Þá farnast þér
best.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur í hyggju að gera ít-
arlegar breytingar á heimili
þínu og ekki er loku fyrir
það skotið að slíkt geti átt
sér stað á vinnustaðnum
líka.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þér leiðist verkefni sem
hófst fyrir löngu, en það
eina rétta er að bretta upp
ermarnar og takast á við
það af einurð og festu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú skalt ekki bera óöryggi
þitt á torg, heldur líta í eigin
barm og finna út af hverju
það stafar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sköpunarþráin ólgar innra
með þér og þú verður að
finna þér tóm til þess að
leyfa henni að njóta sín.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þér finnst þú eiga gott skilið
fyrir verk þín. Farðu eftir
eigin sannfæringu og ótt-
astu ekki því heilladísirnar
vaka yfir þér.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Hlustaðu á ráðgjöf annarra
því jafnvel þótt þú vitir bet-
ur er alltaf gott að fá álit
annarra.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
MINNI INGÓLFS
Lýsti sól
stjörnu stól,
stirndi á Ránar klæði.
Skemmti sér
vor um ver,
vindur lék í næði.
Heilög sjón:
hló við Frón.
Himinn, jörð og flæði
fluttu landsins föður heillakvæði.
Himinfjöll,
földuð mjöll,
fránu gulli brunnu.
„Fram til sjár,“
silungsár
sungu, meðan runnu.
Blóm á grund,
glöð í lund,
gull og silki spunnu,
meðan fuglar kváðu allt, sem kunnu.
- - -
Matthías Jochumsson
100 ÁRA afmæli.Mánudaginn 20.
janúar verður 100 ára Þór-
hildur Þorsteinsdóttir,
fyrrv. prófastsfrú á Breiða-
bólstað í Fljótshlíð. Af því
tilefni tekur hún á móti ætt-
ingjum og vinum sunnudag-
inn 19. janúar kl. 15 e.h. á
Grandhóteli við Sigtún í
Reykjavík. Hún dvelur nú
hjá dóttur sinni og tengda-
syni í Álftamýri 25, Rvík.
Motiv-Mynd – Jón Svavarsson
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 27. desember 2002 í
Hafnarfjarðarkirkju, af sr.
Þórhalli Heimissyni, þau
Heiða Björg Gústafsdóttir
og Sigurjón Geir Gunnars-
son. Þau búa í Danmörku.
Svipmyndir – Fríður
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 20. júlí 2002 í Lága-
fellskirkju af sr. Jóni Þor-
steinssyni þau Eva Aasted
og Ragnar K. Sigurbjörns-
son. Heimili þeirra er í Gull-
engi 29, Reykjavík.
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4
4. Rxe4 Bf5 5. Rg3 Bg6 6.
h4 h6 7. Rf3 Rf6 8. Re5 Bh7
9. Bd3 Bxd3 10. Dxd3 e6 11.
Be3 Da5+ 12. Bd2
Bb4 13. c3 Be7 14. f4
Rbd7 15. 0-0 Hd8 16.
Rc4 Da6 17. f5 e5 18.
Hae1 0-0 19. Rxe5
Dxa2
Staðan kom upp á
Rilton Cup sem lauk
fyrir skömmu í
Stokkhólmi. Hannes
Hlífar Stefánsson
(2.566) hafði hvítt
gegn fyrrum aðstoð-
armanni Ivansjúks,
alþjóðlega meistar-
anum Emil Her-
mannsson (2.387). 20. Rg6!
Tryggir hvítum yfirburðar-
tafl. 20. ...fxg6 21. Hxe7
Rd5 22. Hee1 b5 23. Ha1
Dc4 24. Dxc4 bxc4 25.
Hxa7 Re7 26. fxg6 Hxf1+
27. Rxf1 Rxg6 28. h5 Rgf8
29. Re3 Rb6 30. Hc7 og
svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Á GÓÐUM degi vinnast sjö
tíglar í NS, en þá þurfa
reyndar tveir litir að brotna
3-2. Spilið er frá 10. umferð
Reykjavíkurmótsins:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ Á7
♥ ÁK632
♦ 10743
♣Á5
Suður
♠ K63
♥ D74
♦ ÁKD2
♣982
Allir vita að 3-2 legan er
algeng (68%), en þegar tveir
litir þurfa að brotna jafnt
minnka vinningslíkurnar
niður í um það bil 46%. Og
það er alls ekki verjandi að
segja alslemmu upp á þau
býti. Í reynd brotnaði tígull-
inn 3-2, en hjartað var 4-1.
Sem þýðir að sex hjörtu tap-
ast. Fimm pör af 16 reyndu
þann samning, 8 pör létu
geim duga, en 3 pör komust í
besta samninginn – sex
tígla.
Gylfi Baldursson og Her-
mann Friðriksson sögðu
þannig:
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 hjarta Pass 2 tíglar
Pass 3 tíglar Pass 3 hjörtu
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass 4 spaðar Pass 6 tíglar
Pass Pass Pass
Feðgarnir Hjalti Elíasson
og Eiríkur Hjaltason náðu
líka sex tíglum og er sagn-
röð þeirra á svipuðum nót-
um:
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 hjarta Pass 2 tíglar
Pass 3 tíglar Pass 3 hjörtu
Pass 3 spaðar Pass 4 tíglar
Pass 5 lauf Pass 6 tíglar
Pass Pass Pass
Hlynur Garðarsson og
Kjartan Ásmundsson fundu
einnig tígulslemmuna.
Fyrstu sagnirnar eru
nokkurn veginn sjálfgefnar,
það er að segja, opnun á
hjarta, tveir og þrír tíglar.
Síðan tekur suður undir
hjartað. Þá er sú hætta til
staðar að norður taki völdin
og spyrji um lykilspil og
stýri spilinu í sex hjörtu.
Hér kemur betur út að
sleppa ásaspurningunni og
gefa suðri færi á að stinga
upp á tígulslemmu.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
80 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 18.
janúar, er áttræður Hjálm-
týr Jónsson, fyrrverandi
símaverkstjóri. Í tilefni
þessa mun hann og eigin-
kona hans, Kristín Guð-
mundsdóttir, taka á móti
gestum í Golfskálanum í
Leiru á afmælisdaginn kl.
15–17.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Subaru-sveitin
Reykjavíkurmeistari
Subaru-sveitin varð Reykja-
víkurmeistari í sveitakeppni árið
2003 en mótinu lauk sl. miðvikudags-
kvöld.
Þrjár sveitir áttu möguleika á titl-
inum fyrir síðustu umferð. Subaru-
sveitin var með besta stöðu en 2 og 4
stig voru í næstu sveitir, þ.e. sveit
Guðmundar Sv. Hermannssonar og
Orkuveitu Reykjavíkur.
Reykjavíkurmeistar 2003 eru Jón
Baldursson, Þorlákur Jónsson, Aðal-
steinn Jörgensen, Sverrir Ármanns-
son og Ragnar Hermannsson.
Lokastaðan í mótinu:
Subaru-sveitin 289
Guðmundur Sv. Hermannsson 286
Orkuveita Reykjavíkur 286
Jónas P. Erlingsson 259,5
Skeljungur 259
Tíminn og vatnið 246
Íslenskir aðalverktakar 227
Þrír frakkar 221
Gylfi Baldursson 216
Strengur 214
Guðmundur Baldursson 197
Málning 194
ESJA 191
Félagsþjónustan 164
Denna 146
Þessar sveitir eiga keppnisrétt í
undankeppni Íslandsmótsins.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
á öllum vörum verslunarinnar
ATH aðeins á
laugardag kl. 12-18
og sunnudag kl. 13-17
Allt fyrir börnin, m .a.:
Barnarúm •Kerrur • Bílstólar • Matarstólar
Baðborð • Allskonar smávörur.
Fatnaður:
Nike, Confetti, OshKosh.
Stærðir fyrir 0-8 ára. Staf
ræ
na
hu
gm
yn
da
sm
ið
ja
n/
27
55
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Tillaga kjörnefndar um skipan framboðslista í
Reykjavíkurkjördæmunum
3. Ávarp formanns Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, Davíðs
Oddssonar.
Aðalfundur
Varðar - Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík verður haldinn laugardaginn
25. janúar 2003 kl. 13.15
í Sunnusal Hótels Sögu
Hugo Þórisson
sálfræðingur
Wilhelm Norðfjörð
sálfræðingur
Nýtt námskeið að hefjast
Upplýsingar og skráning í
s: 562 1132 og 562 6632
eftir kl. 16 og um helgar
Á námskeiðinu verður
m.a. fjallað um:
• Þroska barna, sjálfsmynd
og samskipti.
• Vandamál sem geta komið upp
í samskiptum innan
fjölskyldunnar.
• Aðferð til þess að kenna
börnum að taka ábyrgð.
• Hvernig hægt er að tala við börn
og tryggja að þau vilji hlusta.
• Aðferðir til þess að kenna
börnum tillitsemi og sjálfsaga.
• Aðferðir til að komast út úr
samskiptum þar sem eru
sigurvegarar og taparar.
• Hugmyndir um hvernig er hægt
að hafa jákvæð áhrif á gildismat
barna.
www.samskipti.org