Morgunblaðið - 21.01.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.01.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 19. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 mbl.is Ráðalausir í Keflavík Frumraun Siguringa hjá Leik- félagi Keflavíkur 19 Demantar og danskjólar Golden Globe-verðlaunahátíðin haldin í Los Angeles Fólk 52 Milli steins og sleggju Aukin grimmd einkennir átök skæruliða í Nepal 16 ÁRANGUR stúlkna var marktækt betri en árangur pilta í samræmdu prófunum í íslensku sem nemendur í 4. og 7. bekk tóku á nýliðnu hausti. Árangur var svip- aður hjá báðum kynjum í stærðfræði. Meðaleinkunnir í báðum greinum í 4. bekk voru hæstar í Nesskóla í Fjarða- byggð en í grunnskóla Reyð- arfjarðar í 7. bekk. Á lands- vísu var meðaleinkunn í 4. bekk 6,6 í íslensku og 7,1 í stærðfræði. Enginn munur er á frammistöðu kynjanna í 4. bekk í stærðfræði en stúlk- urnar eru marktækt hærri en piltarnir þegar litið er á einkunnir í íslensku. Í 7. bekk var meðal- einkunn á landsvísu 7,0 í ís- lensku og 7,6 í stærðfræði. Meðaleinkunnir í íslensku og stærðfræði reynast lægstar á Suðurnesjum en hæstar í ná- grenni Reykjavíkur og á Norðurlandi eystra. Vest- firðingar eru einnig hæstir í stærðfræði. Meðaleinkunn stráka er 4,9 í stærðfræði en 5,1 hjá stelpum. Í íslensku er mun meiri munur á kynj- unum. Rúm 19% pilta voru með háa einkunn í íslensku en 29% stúlkna. Stúlkur betri í íslensku  Hæstu/11 YFIRMENN vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna og fulltrúar Íraksstjórnar luku í gær tveggja sólarhringa viðræðum með sam- komulagi um áætlun í tíu liðum um það hvernig gera megi störf vopnaeftirlitsmanna SÞ í Írak skilvirkari og gæti hugsanlega auð- veldað leitina að svörum við því hvað varð um þúsundir efna- og sýklavopna sem Írakar hafa verið taldir ráða yfir. Írakar gáfu líka eftir í gær í öðru atriði sem tengist vopnaeftirlitinu, er þeir féllust á að hvetja íraska vísindamenn sem starfað hafa að vopnaáætlunum stjórnvalda til að mæta í yfirheyrslur hjá vopnaeftirlitsmönn- um. Fulltrúar Íraksstjórnar hétu því enn fremur að leita betur í eigin vopnabirgðum að fleiri sprengjuoddum sem gerðir eru til að bera efnavopn, en samtals 16 slíkir fundust á tveimur stöðum í Írak á síðustu dögum. Brezk stjórnvöld tilkynntu í gær að 26.000 manna landgöngulið – fjórðungur fastaland- hers Bretlands – yrði flutt til Persaflóasvæð- isins til að vera til taks ef ákveðið yrði að beita hervaldi í Írak. Brezki utanríkisráð- herrann Jack Straw lagði áherzlu á að tíminn væri að hlaupa frá Írökum að uppfylla skil- yrði ályktana SÞ og Colin Powell, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, tók í sama streng í ávarpi á fundi öryggisráðs SÞ í gær. Reuters Brezkir landgönguliðar við æfingar um borð í tundurspillinum HMS Cardiff. Írakar heita betra samstarfi Bretar senda aukið herlið til Persaflóa Sameinuðu þjóðunum, Bagdad. AP. TÖLVUEIGENDUR ættu að hugsa sig um tvisvar áður en þeir kasta burt eða selja gömlu tölvuna eða öllu heldur harða disk- inn. Á honum getur verið hafsjór af alls kyns upplýsingum og jafnvel þótt þeir hafi talið sig vera búna að eyða þeim. Tveir námsmenn í tölvunarfræðum við Tækniháskólann í Massachusetts könnuðu þetta nýlega og keyptu þá 158 notaða, harða diska. 129 þeirra reyndust í lagi og í ljós kom, að aðeins á 12 diskum hafði allt verið þurrkað samviskusamlega út. Hinir geymdu mismikið af upplýsingum og við 28 diska hafði ekkert verið átt, að sögn BBC. Á diskunum mátti lesa margt um fjármál fyrri eigenda. Þar var m.a. að finna sjúkraskrár og lista með 5.000 kreditkortanúmerum. Talsmaður fyrirtækis, sem sérhæfir sig í að endurheimta upplýsingar af harða disk- inum, segir, að ýmis fyrirtæki hafi lent í miklum hremmingum af þessum sökum. Passið upp á hörðu diskana YFIRVÖLD í Canberra, höfuðborg Ástralíu, hafa varað íbúana við því að skógareldarnir, sem ollu miklu tjóni í nokkrum úthverfum um helgina, gætu borizt undan vindi inn í norðurjaðar borgarinnar í dag, þrátt fyrir þrotlausa baráttu slökkviliðs við eldinn. Fáliðuðu slökkviliði Canberra hefur borizt liðsauki frá öðrum helztu borgum landsins en eldurinn er mjög erfiður viðureignar vegna mikilla þurrka og hitabylgju. Lofthitinn fór í gær í 37 gráður á Celsíus. Þegar eldurinn barst í byggð um helgina brunnu 402 hús. Íslendingurinn Bjarni Leifsson, sem búið hefur um árabil í Canberra og á þar konu og fjögur börn, var einn þeirra sem missti hús sitt fyrirvaralaust í eldsvoðanum. Reuters Canberra enn í hættu Roðinn af skógareldunum lýsir upp him- ininn yfir áströlsku höfuðborginni. Tjónið í Canberra er mikið, eins og hér má sjá á brunarústum húsa í Chapman-úthverfinu.  Misstu allt sitt/14 AFFÖLL húsbréfa minnka með hverjum deg- inum sem líður og hafa lækkað um 10 prósentu- stig frá því þau voru mest síðastliðið vor. Þá voru þau um 12%, en í gær voru þau komin niður í um 2%. Lækkunina má meðal annars rekja til stóraukinnar eftirspurnar erlendra fjárfesta. Húsbréf að hámarksfjárhæð, 8 milljónir króna til 40 ára, var um 6,99 milljóna króna virði í mars 2002 en nú fást 7,82 milljónir króna fyrir bréfið. Því er bréfið um 830 þúsundum króna verðmætara en síðastliðið vor. Sverrir Kristinsson hjá Eignamiðlun segir að lækkun affalla hafi mjög jákvæð áhrif á fast- eignamarkaðinn, sem fari vel af stað í ársbyrjun og sé líflegur. Hann segir meginregluna í fast- eignaviðskiptum vera þá að seljandi beri afföllin. Nú fái hann meira fyrir bréfin og kaupendur njóti sömu skilmála og áður, svo lækkunin treysti markaðinn enn frekar. Lækkunin hafi þó ekki haft áhrif á verðlag, því það hafi verið nokk- uð stöðugt síðustu mánuði, sem styrki mark- aðinn. Guðrún Árnadóttir formaður Félags fast- anförnu, en talið er að þær hafi numið um 35–40 milljörðum á síðasta ári, að meðtöldum fram- virkum samningum. Áður voru þær hverfandi. Sérfræðingar fjármálafyrirtækja eru á einu máli um að ástæður þessa aukna áhuga séu háir vextir hér á landi, gott lánshæfismat ríkissjóðs og traust umhverfi efnahagslífsins. Snorri Jakobsson sérfræðingur hjá Kaup- þingi segir aðspurður að þessa lækkun á afföll- um megi að hluta til rekja til aukinnar eftir- spurnar erlendis frá. „Já, tvímælalaust. Áhugi erlendra fjárfesta hefur farið sívaxandi að und- anförnu; innlendra fjárfesta reyndar líka. Þá hafa vaxtalækkanir undanfarinna mánaða haft sitt að segja,“ segir hann. Að sögn Snorra má gera ráð fyrir að afföll húsbréfa haldi áfram að minnka. „Þau hafa farið minnkandi dag frá degi að undanförnu og það má gera ráð fyrir að þau hverfi jafnvel alveg á næstunni, að því gefnu að ekki verði miklar breytingar á vaxtastigi,“ segir hann, „þetta er spurning um framboð og eftirspurn, eins og á flestum mörkuðum.“ eignasala er sama sinnis og segir lægri afföll hafa góð áhrif á markaðinn, sem sé líflegur og í góðu jafnvægi. Lægri afföll kunni að hafa þau áhrif að fasteignaviðskipti verði enn líflegri. Jafet S. Ólafsson fram- kvæmdastjóri Verðbréfa- stofunnar segir að afföll húsbréfa hafi lækkað hraðar en menn hafi búist við og lækkunin sé í sam- ræmi við vaxtaþróun á markaðnum, sem sér- staklega megi sjá á milli- bankamarkaði. Hann segir almennt jákvætt að sem minnst afföll séu af húsbréfum. Gera má ráð fyrir að afföllin hverfi Fjárfestingar útlendinga í íslenskum ríkis- skuldabréfum hafa farið mjög vaxandi að und- Afföll á húsbréfum minnka dag frá degi                    Stórauknar fjárfestingar útlendinga í íslenskum ríkisskuldabréfum ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.