Morgunblaðið - 21.01.2003, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR
46 A ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
UMF. Einherji
knattspyrnudeild
Auglýsir eftir spilandi þjálfara fyrir mfl. Karla, 3. deild sumarið 2003.
Félagið hefur ekki tekið þátt í 3. deild síðastliðin 3 ár en hefur mikinn
áhuga og áhugasaman hóp til að bæta úr því.
Áhugasamir hafi samband við Björn Heiðar í síma 899 5748
(bjorn@vopnafjardarhreppur.is)
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
HM í Portúgal
Ísland - Ástralía 55:15
Viseu, Portúgal, lokakeppni HM, B-riðill,
mánudaginn 20. janúar 2003.
Gangur leiksins: 10:0, 11:1, 12:2, 16:3, 17:4,
21:5, 23:6, 29:6, 30:7, 35:8, 36:9, 39:10, 43:11,
45:13, 53:14, 55:15.
Mörk Íslands: Guðjón Valur Sigurðsson 14,
Heiðmar Felixsson 10, Róbert Sigfússon 5,
Patrekur Jóhannesson 4/2, Sigfús Sigurðs-
son 4, Einar Örn Jónsson 4, Dagur Sigurðs-
son 3, Sigurður Bjarnason 3, Aron Krist-
jánsson 3, Gústaf Bjarnason 3, Rúnar
Sigtryggsson 1, Ólafur Stefánsson 1/1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson
13/1, Ronald Eradze 13/1 (þar af 4 aftur til
mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Ástralíu: Sasa Sestic 7, Taip Ramad-
ani 3, Russell Garnett 2, Stefan Bader 2,
Zlatan Ivankovic 1.
Varin skot: 4 skot.
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Tugomir Anusic og Thomas Boj-
sen, Bandaríkjunum.
Áhorfendur: Fáein hundruð í hæsta lagi.
B-riðill, aðrir leikir
Þýskaland – Katar............................... 40:17
Stefan Kretzschmar 7/2, Heiko Grimm 6
Mark Dragunski 5 - Abdullah Al Saat 3,
Mahfoud Boumaraf 3.
Portúgal – Grænland...........................34:19
Filipe Cruz 7, Eduardo Coelho 6, Ricardo
Costa 5, Rui Rocha 4, Victor Tchikoulaev 4,
Carlos Resende 3, Rui Silva 3, David Tav-
ares 1, Luís Gomes 1 - Jakob Larsen 8,
Hans P. Motzfeld 4, Hans Knudsen 2, Pet-
er Sikemsen 2, Rasmus Larsen 2, Niels
Poulsen 1.
Staðan:
Ísland 1 1 0 0 55:15 2
Þýskaland 1 1 0 0 40:17 2
Portúgal 1 1 0 0 34:19 2
Grænland 1 0 0 1 19:34 0
Katar 1 0 0 1 17:40 0
Ástralía 1 0 0 1 15:55 0
Leikir í dag:
Ástralía - Þýskaland............................. 14.15
Ísland - Grænland ..................................... 17
Katar - Portúgal ........................................ 19
A-riðill
Túnis – Kúveit.......................................29:20
Júgóslavía – Pólland ............................24:20
Spánn – Marokkó .................................23:18
Staðan:
Túnis 1 1 0 0 29:20 2
Spánn 1 1 0 0 23:18 2
Júgóslavía 1 1 0 0 24:20 2
Pólland 1 0 0 1 20:24 0
Marokkó 1 0 0 1 18:23 0
Kúveit 1 0 0 1 20:29 0
Leikir í dag:
Kúveit - Júgóslavía............................... 15.30
Marokkó - Túnis ................................... 18.30
Pólland - Spánn..................................... 20.30
C-riðill
Rússland – Ungverjaland ................... 31:30
Króatía – Argentína.............................29:30
Frakkland – Sádi-Arabía ....................30:23
P.Cazal 7, D. Narcisse 5, A. Colic 4,
C.Kempe 3, J. Fernandez 2, B.Gille 2, G.
Anquetil 2, D. Dinart 1, C. Burdet 1, F.
Houlet 1, J. Richardson 1, J. Abati 1 - A.Al
Serai 6, H.Al Akhwa 6, B. Al Harbi 5, A. Hi-
lal 2, A.Al Sehat 2, Shakhor 1, Bedhy 1.
Staðan:
Frakkland 1 1 0 0 30:23 2
Rússland 1 1 0 0 31:30 2
Argentína 1 1 0 0 30:29 2
Ungverjaland 1 0 0 1 30:31 0
Króatía 1 0 0 1 29:30 0
Sádi-Arabía 1 0 0 1 23:30 0
Leikir í dag:
Alsír - Rússland ......................................... 15
Sádi-Arabía - Króatía................................ 18
Ungverjaland - Frakkland ....................... 20
D-riðill
Alsír – Brasilía......................................22:22
Svíþjóð – Egyptaland...........................29:23
Johan Petterson 7, Stefan Lövgren 7/2,
Martin Frändesjö 6, Martin Boquist 3,
Magnus Wislander 2, Ola Lindgren 2 -
Hussein Zaky 12/2, Saber Belal 5/1, Sherif
Hegazy 2, Marwan Elsaid 2.
Danmörk – Slóvenía.............................33:24
Lars Krogh Jeppesen 5, Christian Hjerm-
ind 5/3, Lars Christiansen 4, Michael V.
Knudsen 4, Claus Flensborg 3, Joachim
Boldsen 3, Claus M. Jakobsen 2, Klavs
Bruun Jørgensen 2, Torsten Laen 2, Lars
Jørgensen 1, Lasse Boesen 1, Søren Stry-
ger 1 - Ivan Simonovic 7/3, Renato Vugr-
inec 6, Uros Zorman 3, Zoran Lubej 3,
Roman Pugartnik 3, Matjaz Brumen 1,
Andrej Kastelic 1/1.
Staðan:
Danmörk 1 1 0 0 33:24 2
Svíþjóð 1 1 0 0 29:23 2
Brasilía 1 0 1 0 22:22 1
Alsír 1 0 1 0 22:22 1
Egyptaland 1 0 0 1 23:29 0
Slóvenía 1 0 0 1 24:33 0
Leikir í dag:
Egyptaland - Alsír................................ 15.30
Slóvenía - Svíþjóð ................................. 18.30
Brasilía - Danmörk............................... 20.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna
Grindavík - ÍR .......................................92:95
Gangur leiksins: 6:6, 17:11, 20:16, 26:23,
42:29, 42:36, 49:42, 56:47, 59:52, 66:64,
72:76, 81:81, 82:87, 90:91, 92:95.
Stig Grindavíkur: Denise Shelton 56, Sól-
veig Gunnlaugsdóttir 13, María A. Guð-
mundsdóttir 8, Stefanía Ásmundsdóttir 8,
Erna Magnúsdóttir 4, Petrúnella Skúla-
dóttir 3.
Fráköst: 23 í vörn - 9 í sókn.
Stig: ÍS: Meadow Overstreet 26, Alda Leif
Jónsdóttir 24, Svandís Sigurðardóttir 12,
Cecilia Larson 12, Hafdís Helgadóttir 11,
Jófríður Halldórsdóttir 7, Steinunn Jóns-
dóttir 2.
Fráköst: í vörn – í sókn.
Dómarar: Einar Einarsson og Þröstur Ást-
þórsson.
Áhorfendur: Um 50.
Þau dugðu ekki stigin 56 hjá Denise
Shelton fyrir Grindavík því það voru gest-
irnir úr ÍS sem stóðu uppi sem sigurvegari.
Botnliðið mætti vel stemmt til leiks en
heimastúlkur voru ákveðnar að sigra líka
og höfðu undirtökin í fyrsta leikhluta. Strax
í byrjun annars leikhluta fékk Alda Leif
Jónsdóttir í ÍS sína þriðju villu og fór af
velli. Gestirnir náðu að komast yfir í lok
fjórða leikhluta og virtust ætla að stela
sigrinum en tvær þriggja stiga körfur í röð
hjá Denise Shelton komu heimastúlkum
aftur yfir en aftur komust gestirnir yfir.
Heimastúlkur jöfnuðu síðan í blá lokin með
þriggja stiga körfu og framlenging stað-
reynd. Þrátt fyrir að Denise Shelton skor-
aði öll ellefu stig heimastúlkna í framleng-
ingu dugði það ekki því gestirnir höfðu
betur 95:92. „Það var boðið upp á sókn-
arleik í dag. Denise Shelton hitti rosalega
þrátt fyrir að Svandís Sigurðardóttir spil-
aði frábæra vörn á hana allan leikinn. Þetta
er náttúrulega upp á líf og dauða hjá okkur
og við ætlum að halda okkur í deildinni,“
sagði Ívar Ásgrímsson, þjálfari ÍS.
Garðar Vignisson skrifar.
KR - Haukar ..........................................63:60
Staðan:
Keflavík 12 12 0 966:603 24
Grindavík 13 7 6 917:954 14
KR 13 6 7 774:836 12
Njarðvík 12 5 7 783:845 10
Haukar 13 5 8 755:849 10
ÍS 13 3 10 747:855 6
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Toronto - Orlando............................... 93:101
Seattle - Dallas ..................................... 85:81
TENNIS
Opna ástralska meistaramótið
16-manna úrslit:
El Aynaoui (18), Marokkó, vann Lleyton
Hewitt (1), Ástralíu, 6:7, 7:6, 7:6, 6:4.
Andy Roddick (9), Bandar., vann M. Yo-
uzhny (25), Rússlandi, 6:7, 3:6, 7:5, 6:3, 6:2.
Rainer Schüttler (31), Þýskal., vann James
Blake (23), Bandar., 6:3, 6:4, 1:6, 6:3.
David Nalbandian (10), Argentínu, vann
Roger Federer (6), Sviss, 6:4, 3:6, 6:1, 1:6,
6:3.
16-kvenna úrslit:
Serena Williams (1), Bandar., vann Eleni
Daniilidou (18), Grikklandi, 6:4, 6:1.
Meghann Shaughnessy (25), Bandar., vann
Elena Bovina (20), Rússlandi, 5:7, 6:2, 6:4.
Anastasia Myskina (8), Rússlandi, vann
Chanda Rubin (10) Bandar., 4:6, 6:4, 6:1.
Kim Clijsters (4), Belgíu, vann Amanda Co-
etzer (19), S.Afríku 6:3, 6:1.
Þorrablót Vals
Þorrablót Vals verður haldið í félagsheim-
ilinu á Hlíðarenda laugardaginn
25. janúar kl.19.
FÉLAGSLÍF
Rúnar Kristinsson, landsliðsfyr-irliði í knattspyrnu, var í gær
valinn í lið vikunnar af belgíska
dagblaðinu Het
Nieuwsblad. Hann
fékk hæstu ein-
kunn, 4, og var út-
nefndur maður
leiksins í leik Lokeren gegn Genk í
fyrrakvöld en Rúnar skoraði þá
fjórða markið í góðum sigri Loker-
en, 4:1. Dagblaðið Het Laaste
Nieuws valdi hann einnig mann
leiksins, sem og sjónvarpsstöðin
Canal+, sem sýndi leikinn beint.
„Rúnar skapaði hvað eftir annað
góð marktækifæri og kórónaði leik
sinn með því að skora á síðustu
mínútunni,“ sagði Het Nieuwsblad
um frammistöðu Rúnars. Sjálfur
vildi Rúnar lítið gera úr sínum
þætti í samtali við blaðið. „Það er
ekki erfitt að spila vel þegar liðs-
heildin er góð,“ sagði Rúnar og
sagði jafnframt að Marel Baldvins-
son fengi væntanlega tækifæri í
næsta leik liðsins og hann ætti eftir
að koma meiri krafti inn í lið
Lokeren. Rúnar fékk gult spjald í
leiknum gegn Genk og verður í
banni gegn Germinal Beerschot
um næstu helgi.
Áhorfendur í Lokeren voru sér-
lega ánægðir með mark Rúnars
vegna þess að í hvert sinn sem
Lokeren vinnur þriggja marka sig-
ur býður bjórfyrirtækið Jupiler
stuðningsmönnum liðsins ókeypis
veigar í klukkutíma að leik loknum.
Rúnar sá því til þess að allir fóru
heim með bros á vör á sunnudags-
kvöldið.
Rúnar Kristinsson
Rúnar
maður
leiksins
Kristján
Bernburg
skrifar frá
Belgíu
ÍSLENSKU knattspyrnumönn-
unum í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu fjölgaði um einn í gær
en þá skrif-
aði Jóhannes
Karl Guð-
jónsson und-
ir samning
við Aston
Villa. Félag
Jóhannesar á
Spáni, Real
Betis, og
Aston Villa
komust að
sam-
komulagi um
lánssamning
og gildir hann til loka tímabilsins í
vor.
Jóhannes Karl leikur líklega sinn
fyrsta leik í búningi Aston Villa
annað kvöld en þá leikur varalið fé-
lagsins við Sheffield Wednesday og
ef allt gengur að óskum er mögu-
leiki á að hann spreyti sig í fyrsta
sinn í úrvalsdeildinni hinn 28. þessa
mánaðar – þá sækir Aston Villa lið
Middlesbrough heim, eina liðið sem
hefur ekki tapað leik á heimavelli í
úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.
Jóhannes
skrifaði
undir hjá
Aston Villa
Jóhannes Karl
YOUNES El Aynaoui, 31 árs gam-
all Marokkóbúi, kom verulega á
óvart í gær með því að sigra
heimamanninn og sigurstrangleg-
asta keppandann, Lleyton Hewitt,
í 16 manna úrslitum ástralska
meistaramótsins í tennis sem nú
stendur yfir í Melbourne. El Ayna-
oui, sem er númer 18 á styrk-
leikalista mótsins, fór hamförum á
móti Hewitt og skoraði beint úr
33 uppgjöfum í leiknum. Boltinn
mældist á allt að 211 kílómetra
hraða í uppgjöfum Marokkóbúans.
„Ég vona að ég sé ekki búinn
með allan minn kraft, það eru
fleiri leikir framundan. Ég fékk
ótrúlega góðar viðtökur, miðað
við að ég var að spila gegn Lley-
ton í Ástralíu,“ sagði El Aynaoui,
en áhorfendur í Melbourne risu úr
sætum og hylltu hann þrátt fyrir
að hann hefði slegið þeirra björt-
ustu von út úr mótinu. Úrslit í
leiknum, sem stóð í hálfan fjórða
klukkutíma, urðu 6:7, 7:6, 7:6, 6:4.
El Aynaoui gefur 100 dollara, 8
þúsund krónur, til góðgerðastarfa
í heimalandi sínu fyrir hverja
uppgjöf sem hann skorar úr. Með
því að tryggja sér sæti í átta
manna úrslitunum eru fjármál
hans í mótinu í öruggri höfn þrátt
fyrir þessa gjafmildi. Þetta er að-
eins í þriðja skiptið á níu ára ferli
sem atvinnumaður sem El Aynao-
ui kemst í átta manna úrslit á
stórmóti.
Serena Williams frá Bandaríkj-
unum, sem er sigurstranglegust í
kvennaflokki, vann auðveldan sig-
ur á Eleni Daniilidou frá Grikk-
landi, 6:4 og 6:1, og mætir löndu
sinni, Meghann Shaughnessy, í
átta kvenna úrslitum mótsins.
Reuters
Younes El Aynaoui í leiknum gegn Lleyton Hewitt.
El Aynaoui lék
Hewitt grátt
EINAR Karl Hjartarson, Ís-
landsmeistari í hástökki, fer
vel af stað á nýju ári. Hann
stökk 2,16 metra á há-
skólamóti í Houston á sunnu-
daginn og varð fyrstur. Þetta
er aðeins tveimur sentimetr-
um frá hans besta á sl. ári, en
þá átti hann í þrálátum
meiðslum. Einar átti síðan
þrjár góðar tilraunir við 2,20
en lánaðist ekki að komast yfir
þá hæð að þessu sinni.
Íslandsmet Einars er 2,28.
Hann stefnir ótrauður á að ná
lágmarki fyrir bandaríska há-
skólameistaramótið innanhúss
en það er 2,25. Hann skipti um
háskóla í haust ognýtur því
leiðsagnar annars þjálfara en í
fyrravetur þegar Einar náði
sér aldrei á strik.
Einar keppti á öðru móti á
sama stað á laugardaginn og
tókst þá aðeins að fara yfir
2,01.
Einar
Karl
byrjar vel