Morgunblaðið - 21.01.2003, Blaðsíða 37
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 37
Fyrir heimsmeistaramótið
í Herning
Við bjóðum eftirfarandi:
Bílaleigubílar á ótrúlega hagstæðu verði.
Hafið samband í síma 456 3745 eða á heimasíðu okkar fylkir.is
Fylkir • Bílaleiga ehf. ferðaskrifstofa.
www.fylkir.is
Á mótssvæði
•Húsbíla og hjólhýsi, 2ja til 7 manna.
• Höfum tryggt stæði fyrir húsbíla og hjólhýsin
á besta stað mótssvæðis.
Í Herning
•Hótelherbergi fyrir einstaklinga og fjölskyldur.
Í nágrenni við Herning
• Sumarhús af öllum stærðum og gerðum.
•Bjóðum auk þess úrval sumarhúsa fyrir hópa
sem vilja vera saman í götu eða hverfi.
Reiðfatnaður
Náttúrulegur lífsstíll
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
VEISLAN mikla verður vafalaust
lengi í minnum höfð og án efa sú
fjölmennasta sem haldin hefur
verið hér á landi í þessum dúr.
Hinn stórvinsæli landbúnaðarráð-
herra og skemmtikraftur Guðni
Ágústsson mætti á staðinn og
klippti á borða sem tákn þess að
starfsemi í Ármótum sé hafin með
formlegum hætti. Guðni var glað-
reifur vel þegar hann mætti alltof
seint á staðinn enda kom hann
beint af fundi kjördæmisráðs
Framsóknarflokksins þar sem
hann hlaut 97% atkvæða í fyrsta
sætið í Suðurkjördæmi hjá flokkn-
um. Sagði Guðni að einn stuðn-
ingsmanna sinna hefði þó bent sér
á að á fundinn hafi vantað eina
tuttugu fulltrúa og ef þeir hefðu
mætt hefði hann líklega fengið ein
105% í fyrsta sætið. Fór Guðni að
venju mikinn í ræðu sinni og róm-
aði mjög þá uppbyggingu sem þeir
félagar Hafliði Halldórsson og
Dan Robert Ewert aðaleigandi
hefðu staðið að í Ármótum. En að
sjálfsögðu sló ráðherra einnig á
létta strengi og kunngjörði lýðnum
meðal annars að skráð væri í bæk-
ur hjá Lykla-Pétri ill meðferð
hans í æsku á hænunum á Brúna-
stöðum. Má því af orðum hans
ætla að hann verði fyrir einhverj-
um töfum þegar sú stund rennur
upp að hann æski fararleyfis gegn-
um Gullna hliðið en vísast vefst
það ekki fyrir ráðherranum að tala
Pétur til svo hann hljóti vísa vist
innan hliðsins.
Á fimmta þúsund
í góðri veislu
Hafliði Halldórsson kvaðst
hreint himinlifandi yfir þeim við-
tökum sem þetta boð þeirra félaga
hlaut og taldi að þarna hefðu kom-
ið vel á fimmta þúsund manns.
Fyrir fram hafði hann reiknað með
að allt að 2.500 manns myndu
sækja Ármót heim en í gestabók
sem lá frammi hefðu 2.800 manns
ritað nöfn sín. Bókin lá frammi til
klukkan að verða sjö um kvöldið
en eftir þann tíma hefði komið um-
talsverður fjöldi og svo væri vitað
að mjög margir hefðu ekki ritað
nöfn sín í bókina. Af þessum sök-
um varð að gera ráðstafnir til að
sækja meiri drykkjarföng til höf-
uðborgarinnar svo allir fengju eitt-
hvað eins og til stóð. Taldi Hafliði
þetta aldeilis góða byrjun á starf-
semi Ármóta.
Rekstur Ármóta mun ekki ein-
vörðungu snúast um hesta því
ferðaþjónusta verður einnig ríkur
þáttur í starfseminni. Af þeirri
miklu endurbyggingu sem lokið er
við er fyrst að nefna hesthúsið sem
eru reyndar tvö. Segir Hafliði að í
þeim báðum ættu að rúmast í
kringum 100 fullorðin hross en ef
hluti af hýstum hrossum sé ung-
viði, megi gera ráð fyrir að hægt
verði að koma fyrir 140 til 150
hrossum.
Tíu fermetrar á hest
Það vakti að sjálfsögðu athygli
hversu rúmar stíurnar voru en í
stóra hesthúsinu eru tveggja hesta
stíunar 20 fermetrar að flatarmáli
og eins hesta stíurnar 10 fermetr-
ar. Til samanburðar má geta þess
að lágmarksstærð samkvæmt ný-
legri reglugerð um aðbúnað hrossa
þarf lágmark 3 fermetra á hross í
stíum. Fóðurgangurinn eftir miðju
húsinu er um 3,6 metrar á breidd
og auk þess eru gangar milli stí-
anna og útveggjar sem eru 1,20
metrar á breidd. Stíurnar eru
steyptar í ríflega metra hæð með
járngrindum ofan á upp í tveggja
metra hæð á þremur hliðum. Jöt-
urnar eru einnig steyptar. Oft hef-
ur það verið notaður sem mæli-
kvarði á stærð stía að tveir hestar
geti legið samtímis en þarna væri
það sá kvarði að tveir eða jafnvel
þrír hestar getu velt sér samtímis.
Já, það er ekki verið að spara
plássið í hesthúsinu í Ármótum.
Allar eru stíurnar vélmokaðar og
spænir og hálmur notaður til und-
irburðar. Þá vekur einnig athygli
að stíurnar eru mjög grunnar,
mun grynnri en almennt gerist í
safnstíuhúsum.
Góð lýsing með gaslömpum
Veggir og stíur eru málaðar í
guldröppuðum hlýlegum lit og lýs-
ing afar þægileg. Engir flúorsent
lampar sjást þarna heldur er um
að ræða 250 watta gaslampa og
sagði Hafliði þá dýra í innkaupum
en líftími peranna væri mikill og
kæmu þeir að líkindum betur út
þegar til lengri tíma er litið.
Við annan enda hesthússsins er
stór fóðurgeymsla þar sem einnig
eru geymdir spænir. Þessi bygg-
ing er nýbyggð en við hinn endann
er gamla hlaðan en þar er vinnu-
aðstaða við tamningar og þjálfun
auk þess sem geymdir eru þar
hálmbaggar og -rúllur. Utandyra
eru svo stór viðrunargerði og
hringgerði til hringteymingar og
þessháttar.
Eftir er að byggja glerhýsi sem
verður sambyggt kránni sem er í
úthýsi frá hesthúsinu. Verður það
380 fermetrar að stærð en þar
munu ferðamenn geta setið og
snætt grillaðan mat og horft á
reiðsýningar þar sem starfsmenn
staðarins munu sýna íslenska gæð-
inga í allri sinni dýrð.
Íbúðarhúsið hefur einnig verið
endurbyggt og stækkað um eina
250 fermetra og er nú alls um 600
fermetrar. Mun það hýsa starfs-
fólk staðarins og einnig verður þar
gistirými fyrir ferðaþjónustuna
sem þarna verður rekin.
Alls er jörðin 460 hektarar að
stærð og hefur Hafliði skipulagt
allt haglendið þannig að einn eða
mjög fáir menn geti sótt fjölda
hrossa án vandkvæða á stuttum
tíma. Öll landareignin hefur verið
girt með rafmagni og í hvert hólf
hefur verið leitt vatn í sérstök ein-
angruð brynningartæki sem eiga
að þola allt niður í 40 gráða frost.
Vatnsleysi ætti því ekki að hrjá
hrossin í Ármótum þótt vel frysti á
auða jörð.
Þá segir Hafliði að grafnir hafi
verið og hreinsaðir 40 km af
skurðum. Við beitarhólfin eru afar
vönduð og glæsileg hlið hvítmáluð
og væri hver bóndi fullsæmdur af
slíku hliði á sína heimreið. Hliðið
við heimreiðina að bænum er mun
veglegra og fer ekki milli mála
þegar ekið er í gegnum það að þar
búi stórhuga menn.
Starfsemin á Ármótum er að
stórum hluta hestamennska. Þar
verða tamningar og þjálfun í ein-
hverjum mæli. Þá segir Hafliði að
stefnt verði að því að vera þarna
með eina 25 til 30 góðhesta fyrir
þá ferðamenn sem þarna munu
njóta þjónustu. Þá verður stunduð
þarna metnaðarfull hrossarækt.
Margháttuð veiðimennska
Hvað ferðaþjónustunni viðkem-
ur mun verða boðið upp á veiði í
ríkum mæli, bæði skot- og stanga-
veiði í sinni víðustu mynd en Haf-
liði sjálfur er mikil veiðikló og
komast fáir með tærnar þar sem
hann er með hælana í þeim efnum.
Sagði hann að einnig væru uppi
áform um sjóstangaveiði við Vest-
mannaeyjar. Þá yrði farið með
ferðamennina í ferðir um athygl-
isverða staði eins og Vatnajökul og
Landmannalaugar svo eitthvað sé
nú nefnt.
Þá upplýsti Hafliði að ennfemur
yrði hestamönnum boðið upp á
beit fyrir reiðhesta sína sumar og
haust. Þarna gætu menn leigt sér
hólf og starfsmenn Ármóta sæju
um að líta eftir þeim en eigendur
myndu sjálfir sjá um smölun enda
fyrirkomulagið þannig eins og áð-
ur sagði að ekki tæki nema örfáar
mínútur að koma hrossum í að-
hald.
Kostnaðurinn við þessa upp-
byggingu er kominn hátt í 300
miljónir króna að sögn Hafliða og
er gert ráð fyrir að leggja 100
milljónir til viðbótar í þetta. Meðal
þess sem er farvatninu er bygging
reiðhallar.
Hafliði sagði að jöfn áhersla yrði
lögð á íslenska ferðamenn sem þá
útlendu og væri sú aðstaða sem
þarna er verið að byggja upp
ákjósanleg fyrir starfsmannahópa.
Móttaka ferðamenn hæfist seinni
partinn á árinu og kvaðst hann
mjög bjartsýnn á þarna yrði rekin
hestamiðstöð og ferðaþjónusta í
hæsta gæðaflokki og að staður
verði vinsæll. Næsta mál á dag-
skrá væri að setjast yfir kaffibolla
með fulltrúum ferðaskrifstofa, sem
hefðu nú þegar sýnt þessari að-
stöðu mikinn áhuga, og sjá hvort
ekki sé hægt að gera góða samn-
inga.
Vegleg uppbygging á Ármótum í Rangárvallasýslu
Hestamiðstöð og ferðaþjón-
usta í hæsta gæðaflokki
Mikið var um dýrðir á stórbýlinu Ármótum
í Rangárvallasýslu á laugardag, þar sem
staðið hefur yfir mikil uppbygging und-
anfarin tvö ár. Var boðið til mikillar veislu
vegna formlegrar opnunar og taldi stað-
arhaldarinn, Hafliði Halldórsson, að á milli
fjögur og fimm þúsund manns hefðu mætt í
hófið, en öllum landsmönnum var boðið og
þeirra á meðal var Valdimar Kristinsson
sem leist vel á eitt glæsilegasta hesthús
landsins og væntir mikils af þeirri starfsemi
sem þarna verður rekin.
Morgunblaðið/Vakri
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra klippti á vígsluborðann með góðri aðstoð Hafliða
Halldórssonar til vinstri og Dan Róbert Ewerts. Sigurbjörn Bárðarson fylgist grannt með.
Morgunblaðið/Vakri
Krá staðarins er í útbyggingu úr hesthúsinu, viðarklædd í hólf og gólf og með hraungrjóti undir
gleri næst sjálfum barnum.