Morgunblaðið - 21.01.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.01.2003, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÞRÁTT fyrir að heildartíðnikransæðastíflutilfellameðal 25–74 ára íslenskrakarla hafi lækkað um 49% síðustu tvo áratugina og dánartíðni lækkað um 63% deyja enn um 140 á ári vegna hennar og um 380 einstak- lingar greinast árlega með krans- æðastíflu yngri en 75 ára. Þeim farnast mun betur sem komast und- ir læknishendur á fyrsta klukkutím- anum en um helmingur þeirra, sem ekki komast í meðferð strax, deyr áður en þeir komast á spítala. Hjartavernd hefur nýverið gefið út bæklinginn Kransæðastífla; fyrstu viðbrögð skipta höfuðmáli. Þar er lýst áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma, einkennum krans- æðastíflu, viðbrögðum við brjóst- verk, rannsóknum og meðferð. Gunnar Sigurðsson, prófessor og formaður Hjartaverndar, segir bæklinginn þann fimmta í röð fræðslubæklinga Hjartaverndar. Ritnefnd skipuðu hjartalæknarnir Davíð O. Arnar, Karl Andersen og Guðmundur Þorgeirsson ásamt Ástrósu Sverrisdóttur, fræðslufull- trúa Hjartaverndar. Fræðsla nauðsynleg „Dánartíðni þeirra sem fá krans- æðastíflu og ná ekki að komast á sjúkrahús hefur lítið breyst undan- farin ár. Þess vegna er nauðsynlegt að fræða almenning um helstu ein- kenni sem bent geta til kransæða- stíflu og hver fyrstu viðbrögð eiga að vera þegar menn verða vitni að getur gefið lyf eða meðferð stuðtæki eru horfur þei fengið hafa hjartsláttar mun betri,“ segir Karl ennf Hjartalæknarnir bend verkur í brjóstholi geti s ýmsu öðru en kransæðas vélinda, stoðkerfi eða lun standi þeir stutt t.d. í for verkjar sem stendur í nok úndur er sjaldnast að vegna kransæðasjúkdóms sem bent geta til krans standa því yfirleitt lengur, dæmis við andlega eða l áreynslu. Algengast er að fá kransæðasjúkdóm hafi áhættuþætti. Þeir geta ver aður blóðþrýstingur, sy reykingar, hækkaðar bló ættarsaga um kransæðasjú Bráðatilvik á nýja mó Davíð segir að með brjóstverkjamóttökunnar þangað öllum bráðum hja um. „Um leið og sjúkling inn úr dyrunum tökum vi línurit sem gefur okkur mi upplýsingar um ástand hja er oft unnt að sjá hvort æð slíkum tilfellum,“ segir Gunnar. Hann segir kransæðastíflu eina al- gengustu dánarorsök meðal ís- lenskra karlmanna, um fjórðungur allra dánartilfella sé vegna hennar næst á eftir samanlögðum fjölda krabbameinstilfella. „Margir ungir karlar og konur deyja án þess að komast á sjúkrahús og við þurfum að reyna að minnka þann hóp. Ým- islegt hefur verið gert, m.a. með fræðslu sjúkraflutningamanna og betri tækjabúnaði neyðarbíla, bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi og í fyrra var komið upp svonefndri brjóstverkjamóttöku á Landspítala við Hringbraut sem sérhæfir sig í meðferð bráðra hjartasjúkdóma,“ segir Gunnar. Yfirlæknir hennar er Davíð O. Arnar sem ásamt Gunnari og Karli Andersen ræða nánar um fyrstu viðbrögð við brjóstverk sem getur hugsanlega verið einkenni hjartasjúkdóms. „Einkenni sem benda til krans- æðastíflu eða blóðþurrðar í hjarta er verkur fyrir miðju brjósti og hann leiðir oft upp í háls, kjálka, vinstri handlegg, niður í kviðarhol eða í bakið milli herðablaða,“ segir Karl og segir dæmigerðan hjarta- verk standa í nokkrar mínútur, allt frá einni en yfirleitt í fimm eða jafn- vel tíu mínútur. Standi verkurinn lengur bendir það til kransæða- stíflu. Hann segir hins vegar mjög mismunandi hvar hver og einn fær verk en það sem gerist er að taugar sem flytja heilanum sársaukaboð frá hjartanu staðsetji ekki verkinn nákvæmlega og þar af leiðandi finna sjúklingar fyrir verk t.d. í handlegg þó að ekkert ami að handleggnum, hann finnist bara þarna en stafi af sjúkdómi í hjartanu. Það sem gerist í hjartanu er að æðar hafa þrengst og flytja ekki nægilegt blóð til allra svæða hjartans og þá komi fram verkur. Þrengsli myndast hægt „Kransæðaþrengsli gerast á löngum tíma og menn geta verið einkennalausir þar til allt í einu að stífla verður í æðinni sem veldur blóðþurrð og drepi í hjartavöðva og um leið geta orðið truflanir á hjart- slætti. Slíkar truflanir eru hættu- legastar og eru helstu orsakir þess að sjúklingar deyja áður en þeir komast í meðferð. Ef hins vegar sjúkraflutningsmenn eða læknir Dánartíðni vegna kransæðastíflu hefur lækkað um 6 Hjartalæknarnir Davíð O. Arnar, Karl Andersen og Gunnar Sigurðsson eru hér fyrir utan nýtt aðsetur Um 380 yngri ára greinast á Hjartalæknar segja horfur þeirra sem fá kransæðastíflu ráðast af því hversu fljótt þeir komast í meðferð. Þeir segja fyrstu viðbrögð skipta miklu máli og að brýnt sé að menn þekki líkleg einkenni. Jóhannes Tómasson ræddi við þrjá hjartalækna. Óþægindi yfir brjóstkas sem liggja yfir hann mið undir bringubeini og sta lengur en 5 til 10 mínútu Óþægindin geta komið o farið eða verið viðvaran Einkennum er oft lýst ei sviðatilfinningu, herping þyngslum eða bítandi ve er stundum ruglað sama brjóstsviða eða nábít. Óþægindi í efri hluta l amans með leiðni út í bá handleggi (oftar út í vin handlegg), herðar, bak, hnakka, kjálka eða mag Önnur einkenni eins o ógleði, léttur höfuðverk svimi, hjartsláttur (auka slög), kaldur sviti og jafn andnauð. Merki um kransæða stíflu HÆTTUR ERFÐAFRÆÐILEGRAR FÁBREYTNI Aðferðir líffræðinnar til að ræktastöðugt gjöfulli afbrigði græn-metis og ávaxta hafa fært mann- kyninu mikla búbót. En afleiðingar þess að eiga við náttúruna eru sjaldnast fyrirsjáanlegar eins og nú virðist vera að koma í ljós varðandi banana. Sam- kvæmt grein, sem birtist í vísindaritinu New Scientist og greint var frá í Morg- unblaðinu á laugardag, er ræktaða af- brigðið af banönunum að verða undir í baráttunni við sjúkdóma og sníkjudýr vegna erfðafræðilegrar fábreytni. Er óttast að bananinn verði horfinn af borðum fólks um allan heim eftir tíu ár takist ekki að finna ný afbrigði, sem standast sjúkdóma og sníkjudýr betur en þau, sem nú eru í ræktun. Um er að ræða þrjá ógnvalda, sveppasýkingu, sem kennd er við Pan- ama, aðra sveppasýkingu, sem nefnist Svarta Sigatoka og að síðustu sníkju- dýr, sem herja á bananaekrur í Mið- Ameríku, Afríku og Asíu. Sérstaklega virðist Svarta Sigatoka vera harðger og í hvert sinn, sem komið hefur nýtt sveppalyf myndar sveppurinn ónæmi gegn því á skömmum tíma. Bananinn, sem seldur er í búðum, er frælaust og ófrjótt afbrigði. Nú er unn- ið að því að skrásetja erfðamengi ban- anans og er búist við að það taki fimm ár. Beinist athyglin einkum að villtum banönum, sem eru frjóir og fullir af hörðum fræjum og um leið ónæmir fyr- ir sveppasýkingum á borð við Sigatoku. Bananaframleiðendur hafa hins vegar lítinn stuðning viljað veita vísinda- mönnum af ótta við að neytendur vilji ekki sjá erfðabreytta banana. Fyrsta dæmið um gróðurspillingu, sem vitað er um, er kartöfluplágan á Ír- landi skömmu fyrir miðja 19. öldina. Kartöflur komu frá Ameríku og urðu fljótt einn af grunnþáttum mataræðis á Írlandi. Árið 1845 gerði dularfull gróð- urplága vart við sig, réðist á kartöflu- uppskeruna og hungursneyð breiddist út á Írlandi. Írska afbrigðið reyndist sérlega viðkvæmt fyrir plágunni, en að lokum fundust önnur afbrigði í Andes- fjöllum og Mexíkó, þar sem kartaflan er upprunnin, sem voru ónæm fyrir plágunni. Vísindamenn hafa ekki aðeins áhyggjur af banönum. Erfðafræðileg fábreytni hefur gert vart við sig á fleiri sviðum. Til dæmis sýndi rannsókn að 7098 afbrigði af eplum voru ræktuð í Bandaríkjunum milli 1804 og 1905, en nú hefur 6121 þeirra þurrkast út eða 86,2%. Svipaða sögu er að segja af per- um. Þau dæmi, sem hér hafa verið nefnd, sýna hætturnar, sem fylgt geta fá- breytni tegundanna. Ef allir rækta sömu tegundina af kartöflum og skyndilega brestur á plága, sem engin svör eru við, getur það haft gríðarleg áhrif á matvælaframleiðslu. Hið sama á við um banana. Bæði þessi dæmi snerta tegundir, sem eru mjög mikilvægar undirstöður í næringu mannkyns. Ban- anar eru ein af undirstöðum mataræðis hálfs milljarðs manna í Afríku og Asíu og óhætt er að segja að þeir séu borð- aðir á hverju heimili hér á landi þótt mikilvægi þeirra sé ekki það sama hér. Aukin erfðafræðileg fábreytni dregur úr sveigjanleika í matvælaframleiðslu, hún dregur úr möguleikunum á að finna ný lyf í náttúrunni og grefur undan möguleikum á að finna nýja möguleika til að næra mannkynið. Maðurinn hefur ávallt reynt að beisla náttúruna, en hún er ekki auðsveip. Það er vandrataður vegur að lifa af náttúrunni og með henni og dæmunum um það hversu var- lega verður að fara fjölgar jafnt og þétt. FJÖLBREYTTARA SKÓLAKERFI Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir al-þingismaður ritar grein hér í blaðið síðastliðinn laugardag og vekur máls á nauðsyn þess að kanna leiðir til að auka fjölbreytni og fjölga valkostum í skóla- kerfi landsmanna með því að fleirum en hinu opinbera sé gert kleift að reka skóla. Þingmaðurinn bendir á dæmi frá Hollandi og Svíþjóð. Í fyrrnefnda land- inu er löng hefð fyrir sjálfstæðum skól- um, sem engu að síður eru fjármagnaðir af almannafé, en í síðarnefnda landinu hefur sveitarfélögum verið gert að greiða 75% af reiknuðum meðalkostnaði á nemanda til þess skóla, sem foreldrar hafa valið að senda börn sín í. Í báðum löndum hefur valfrelsi, ásamt greiðslum sem fylgja nemendum, aukið fjölbreytni og hvatt skólana til að gera enn betur. Þorgerður Katrín nefnir að hér á landi séu til einkaskólar á borð við Ís- aksskóla og Landakotsskóla sem hafi getið sér gott orð, en auk þeirra eru nú aðeins þrír aðrir einkaskólar á grunn- skólastigi. Þessir skólar séu ákveðinn valkostur fyrir þá, sem séu reiðubúnir að greiða skólagjöld en aðrir foreldrar eigi engan valkost, þar sem hið opin- bera treysti eingöngu sjálfu sér til að reka skóla. Við þetta má reyndar bæta, að Reykjavíkurborg leggur ekki sömu upphæð með hverjum nemanda í einka- skólum og í skólum, sem hún rekur sjálf, þrátt fyrir að foreldrar barna í þessum skólum greiði útsvarið sitt til borgarinnar eins og aðrir. Þannig verða foreldrar, sem eru tilbúnir að borga aukalega fyrir betri menntun, í raun að greiða mun hærri fjárhæðir en sem nemur kostnaði við þá umframþjónustu, sem einkaskólarnir veita. Hér á landi ríkir víðtæk samstaða um að menntun barna skuli fjármagna með almannafé. Hins vegar er ekkert sem segir að hið opinbera, þ.e. sveitarfélög- in, eigi eða þurfi endilega að reka alla skóla þótt þau fjármagni þá. Morgun- blaðið hefur hvatt til þess að fjölbreytni og gæði í skólakerfinu verði aukin með því að auka valfrelsi um grunnskóla, hvetja til stofnunar einkaskóla og efla samkeppni milli skóla með því að binda fjárstuðning hins opinbera við nem- endafjölda. Þessi stefna blaðsins var m.a. reifuð ýtarlega í Reykjavíkurbréfi 21. júlí á síðasta ári. Því miður falla hugmyndir af þessu tagi oft í grýttan jarðveg. Þorgerður Katrín bendir í grein sinni á að umræða um að skoða nýjar leiðir á fyrstu skóla- stigunum rati oft beint ofan í gamal- kunnar skotgrafir – menn grípi til ómerkilegs hræðsluáróðurs í stað þess að sýna einlægan vilja til að kanna leiðir sem geti leitt til öflugra menntakerfis. Það er kominn tími til að koma upp úr skotgröfunum, fara að dæmi margra ná- grannaríkja og ræða þessi mál í alvöru á vettvangi sveitarstjórna. Markmiðið á að vera að hlú að þeim valkostum, sem þegar eru fyrir hendi í skólakerfinu og auka svo stórlega frelsi foreldra til að velja þann skóla, sem hentar börnum þeirra bezt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.