Morgunblaðið - 21.01.2003, Blaðsíða 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 19
„AUÐVITAÐ kemur þetta allt úr
hausnum á mér en á ákveðnum
tímapunkti hættir þetta að vera
ég og ég fer að fylgja persónun-
um meira eftir, reyni að gegna
þeim,“ sagði Siguringi Sig-
urjónsson, leikskáld úr Keflavík,
um fraumraun sína í leikhúsheim-
inum, einþáttunginn „Ráðalausir
menn“. Leikfélag Keflavíkur
frumsýnir verkið í Frumleikhús-
inu næstkomandi föstudag.
Einþáttungurinn er að miklu
leyti sóttur í reynsluheim höf-
undar. Fjallar um tvo unga menn
sem eru ráðalausir í kvenna-
málum en alls ekki skoðanalausir.
Þeir hittast eina kvöldstund sem
oftar heima hjá öðrum þeirra og
eru ekki sammála um hvort þeir
eigi að fara út á lífið eða vera
heima. Þar með hefst enn ein
þrautagangan.
Að sögn Siguringa á leikverkið
rætur í smásögu sem hann var
byrjaður að skrifa. „Í þessari
smásögu var ein persóna sem mér
leist nú nokkuð vel á og langaði
að gera meira úr. Ég ræddi við
vin minn sem er menntaður leik-
ari og hefur talsvert fengist við
leikstjórn og hann hvatti mig
áfram þannig að sagan þróaðist í
leikform.“
Siguringi hefur alla tíð verið
mikill lestrarhestur, eiginlega
skáldsjúklingur eins og hann
orðar það sjálfur. En hvað varð
til þess að hann fór sjálfur að
skrifa?
„Leiði. Mér leiddist svo ég fór
að ganga um gólf og haltra eins
og Byron. Og víst ég var byrjaður
að haltra, því þá ekki að hósta
líka eins og berklaveikt skáld. Þá
fann ég að það var sál mín sem
kallaði á að ég skrifaði leikrit.“
Siguringi leikstýrir verkinu
sjálfur en leikendur eru tveir,
þeir Jón Marinó Sigurðsson og
Sigurður Erlingsson, sem báðir
eru margreyndir leikarar. Sig-
uringi segir ástæðuna einkum
vera þá að hann vilji læra sem
mest á þessu verki. „Ég lít á þetta
bæði sem skemmtun og lærdóm.
Auðvitað var ég ekkert viss um
að ég gæti þetta en taldi sjálfum
mér trú um að ég gæti leikstýrt.“
– Eigum við eftir að sjá fleiri
verk eftir þig?
„Það er aldrei að vita. Ég er
hálfgert skúffuskáld enn sem
komið er en get kannski dregið
eitthvað upp úr skúffunni. Nú er
ég á kafi í þjóðsögum til að at-
huga hvort megi gera sér ein-
hvern mat úr þeim,“ sagði Sig-
uringi að lokum.
Leikfélag Keflavíkur frumsýnir fyrsta leikverk ungs Keflvíkings
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Leikskáldið og leikstjórinn Siguringi Sigurjónsson. Í bakgrunni glittir í persónurnar tvær í einþáttungnum.
„Leiði knúði mig til að skrifa“
Keflavík
VINKONURNAR Þóra Jónsdóttir
og Jófríður J. Jónsdóttir eru með sýn-
ingu á málverkum sínum í Ingimund-
arbúð, kaffihúsinu á Ránni við Hafn-
argötu í Keflavík. Sýningin stendur til
12. febrúar.
„Okkur var boðið að sýna hér
vegna þess að Björn Vífill er að aug-
lýsa staðinn upp sem kaffihús. Það er
gaman að vera með málverkasýningu
hér, salurinn hentar vel til þess,“ seg-
ir Þóra. Þær stallsystur eiga ýmislegt
sameiginlegt. Þær eru um sjötugt og
hafa lengi tekið þátt í starfi mynd-
listaklúbbsins Baðstofunnar í
Reykjanesbæ.
Þær hafa haft sama kennara um
skeið, Kristin Má Pálmason, og sýna í
Ingimundarbúð ávöxt námsins hjá
honum. „Þótt við höfum haft sama
kennarann þá sést greinilega hvað við
tökum viðfangsefnin mismunandi
tökum,“ segir Þóra.
Á sýningunni er mikið af óhlut-
bundnum myndum og segja þær að
ákaflega skemmtilegt og frjálst sé að
mála myndir með þeim hætti. Jófríð-
ur segir að opnast hafi nýjar víddir
við það að takast þannig á við mynd-
listina. „Nú þorir maður að gera það
sem mann hefur lengi langað til,“ seg-
ir hún.
Þær njóta hverrar stundar í mynd-
listinni og segja að það hafi aldrei ver-
ið skemmtilegra en nú. Hvetja þær
fólk á sínum aldri til að láta draumana
rætast og vinna að áhugamálum sín-
um, það sé aldrei of seint að byrja.
Aldrei verið
skemmti-
legra að mála
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Þóra Jónsdóttir og Jófríður J. Jónsdóttir sýna í Ingimundarbúð.
Keflavík
HUNDRUÐ fyrirspurna hafa
borist vegna beins flugs HMY
Airways milli Íslands og Kanada.
Þegar hafa hátt í 100 farþegar
bókað far til Kanada.
Mikið hefur verið að gera hjá
starfsfólki Hótels Keflavíkur frá
því á föstudag að tilkynnt var að
kanadíska leiguflugfélagið HMY
Airways hefði fengið leyfi sam-
gönguyfirvalda á Íslandi til að
flytja farþega milli Íslands og
Kanada. Félagið kemur vikulega
við á Keflavíkurflugvelli í flugi
sínu milli Vancouver og Calgary í
Kanada og Manchester í Englandi
en fyrirhugað er að fjölga ferðum í
sumar.
Steinþór Jónsson, hótelstjóri á
Hótel Keflavík og umboðsmaður
kanadíska félagsins, segir að þessi
mikli áhugi hafi komið sér og Kan-
adamönnunum þægilega á óvart.
Lögð hafi verið áhersla á að svara
öllum fyrirspurnum jafnóðum og
hafi það tekist. Mest hafi álagið
verið á föstudag en einnig hafi
verið hringt um helgina og áfram í
dag.
Starfsfólk Hótels Keflavíkur
hefur aðstoðað fólk við að panta
far. Steinþór er að fara til Kanada
til viðræðna við stjórnendur flug-
félagsins um framtíðarfyrirkomu-
lag þessara mála, meðal annars
um val á innlendum söluaðila fyrir
flugfélagið og markaðsátak í báð-
um löndum. Einnig framhaldsflug
og þjónustu við farþegana í Kan-
ada þegar út er komið. Þá segist
hann þurfa að fá á hreint ýmis mál
sem fólk hafi verið að spyrja um
undanfarna daga.
Steinþór segir að þegar sé búið
að panta hátt í 100 sæti til Kan-
ada. Þeir fyrstu fari vestur um haf
með vél félagsins á morgun. Þetta
segir hann að sé meðal annars fólk
sem ætli sér á skíði í Klettafjöll-
um. Þá hafi nokkrir hópar spurst
fyrir um flug en þeir hafi ekki enn
verið bókaðir. Loks segist hann
hafa frétt af því að nokkuð hafi
verið um að Vestur-Íslendingar í
Kanada hafi pantað sæti hingað til
lands með HMY Airways.
„Það hefur verið gaman að
heyra hvað fólk er ánægt með
þennan nýja möguleika og
ánægjulegt að geta aðstoðað það
við að nýta hann,“ segir Steinþór.
Búið að panta 100 sæti
Keflavíkurflugvöllur
FRÍSTUNDAHELGI verður
væntanleg haldin í Reykja-
nesbæ í apríl og ef vel tekst
til verður frístundavika í júní.
Jón Marinó Sigurðsson hefur
verið ráðinn verkefnisstjóri.
Menningar-, íþrótta- og
tómstundasvið Reykjanes-
bæjar hyggst halda frístunda-
helgina og -vikuna í samvinnu
við Tómstundabandalag
Reykjanesbæjar og Íþrótta-
bandalag Reykjanesbæjar.
Að sögn Stefáns Bjarkasonar
framkvæmdastjóra er gert
ráð fyrir að kynntar verði
jaðaríþrótir og hvers kyns
áhugamál bæjarbúa. Lands-
menn verði hvattir til að
heimsækja Reykjanesbæ til
að fylgjast með og taka þátt í
frístundahelginni og -vikunni.
Fyrir frístundahelgina og
síðar frístundvikuna verður
útbúinn listi yfir það sem
Reykjanesbær hefur upp á að
bjóða á þessum sviðum og al-
mennt í ferðaþjónustu. Stefán
segir að mikil gróska sé í
klúbbum og áhugamanna-
félögum um jaðaríþróttir af
ýmsu tagi og hann hafi komið
betur í ljós eftir stofnun Tóm-
stundabandalagsins. Reynt
verði að kynna þessa starf-
semi sem best á fyrirhugaðri
frístundahelgi og síðar á frí-
stundaviku.
Efna til
frístunda-
helgi og frí-
stundaviku
Reykjanesbær
Tungumál
10 vikna námskeið.
20 kennslustundir.
Áhersla á talmál.
Kennt er í byrjenda-,
framhalds- og talæfingaflokkum
ENSKA
DANSKA
NORSKA
SÆNSKA
FRANSKA
ÍTALSKA
SPÆNSKA
ÞÝSKA
ÍSLENSKA
fyrir útlendinga
Tölvunámskeið
FINGRASETNING OG RITVINNSLA
8 vikur - 16 kennslust.
INTERNETIÐ OG
TÖLVUPÓSTUR
1 vika - 8 kennslust.
WORD OG WINDOWS
4 vikur - 20 kennslust.
WORD II
4 vikur - 20 kennslust.
EXCEL
3 vikur - 20 kennslust.
Verklegar greinar
GLERLIST
10vikur 20 kennslust.
GLER - OG POSTULÍNSMÁLUN
8 vikna námskeið.
LEIRMÓTUN
6vikur 24 kennslust.byrj 4 vikur -
16 kennslust.
STAFRÆN MYNDATAKA
Á VIDEOVÉLAR
1 vika -12 kennslust.
LJÓSMYNDATAKA
3 vikur 9 kennslustundir
og fleiri námskeið
Saumanámskeið
FATASAUMUR-
BÚTASAUMUR
6 vikur 24 - kennslust.
BÚTASAUMSTEPPI
CRACY QUILT
4 vikur 16 kennslustundir
ÞJÓÐBÚNINGAGERÐ
10 vikur - 40 kennslustundir
SKRAUTSAUMUR
5 vikur 15 kennslust.
Matreiðslunámskeið
Garðyrkjunámskeið
Kántrý föndur
Bókhald smærri fyrirtækja
og fjöldi annarra námskeiða
Fjölbreytt námskeið
á vorönn
Fyrstu námskeiðin hefjast 22. janúar
Innritun og upplýsingar um námskeiðin í símum 564 1507
og 564 1527 kl. 18-21 og á skrifstofu
Kvöldskólans í Snælandsskóla.