Morgunblaðið - 21.01.2003, Blaðsíða 33
Ó, Jesú bróðir besti
og barnavinur mesti,
æ, breið þú blessun þína
á barnæskuna mína.
( Páll Jónsson.)
Elsku amma mín, þetta söngstu oft
og mun þessi bæn ævinlega fylgja
mér.
Þó að ég hafi hitt þig stutt þá mun
ég ætíð vera þér nærri.
Blessuð sé minning þín.
Þinn
Tindur Örvar.
Elsku amma, aldrei vildir þú mig
skamma, nei, þú varst alltaf svo góð,
vissir allt, svo fróð. Ég vildi að þú
værir hér hjá mér, en þú verður alltaf
hjá mér í hjarta mínu. Minning þín
mun aldrei hverfa.
Amma mín, takk fyrir allt sem þú
gerðir fyrir mig. Það er ekki hægt að
finna marga eins góða og umhyggju-
sama og þig. Þú varst einstök og ég
mun ávallt líta upp til þín, elsku
amma mín. Ég er heppin að hafa
kynnst langömmu minni svona vel og
ég verð Guði ætíð þakklát fyrir það.
Megir þú hvíla í friði.
Þín
Þuríður Kristín Kristleifsdóttir.
Í dag kveðjum við móðursystur
mína Aðalheiði Árnadóttur, sem
ávallt var kölluð Heiða frænka. Mig
langar að minnast hennar með
nokkrum kveðjuorðum.
Hún tengdist okkur systkinum
mínum og foreldrum órjúfanlegum
böndum, en sem ung stúlka kom hún
á heimili foreldra minna á Norðfirði
og kynntist þar verðandi eiginmanni
sínum Guðmundi Helgasyni sem var
bróðursonur Björgvins föður míns.
Á Neskaupstað bjuggu þau Heiða
og Guðmundur þar til hann lést í
snjóflóðinu sem féll á bæinn rétt fyrir
jólin 1974.
Á árunum á Neskaupstað var sam-
gangur mjög mikill á milli heimilanna
en stutt var á milli og skilaboð gjarn-
an send um að kaffi væri á könnunni
eða samræðu væri þörf með því að
setja hvítt viskastykki í eldhúsglugg-
ann. Heiðu var margt til lista lagt og
bar heimilishald hennar allt vott um
það. Hún var létt í skapi, listakokkur
og nutum við oft góðs af því. Þá lék
allt í höndum hennar, hannyrðir og
saumaskapur. Þá var hún einstök
sögumanneskja og var yndi að hlusta
á frásagnir hennar um hvaðeina og
einnig skoðanir hennar á þjóðfélags-
málum sem hún tjáði tæpitungulaust.
Árið eftir að Guðmundur dó flutti
Heiða síðan til Hafnarfjarðar eins og
við löngu áður og var samgangur
okkar mikill sem fyrr. Þá hafði Jón-
hildur fært henni barnabörn og var
það hennar líf og yndi eftir suður-
komuna að huga að velferð barna-
barna og síðan barnabarnabarna.
Alltaf var sami hressileikinn og frá-
sagnargleðin þrátt fyrir hrakandi
heilsu, einkum sjóndepurð og var allt-
af jafn mikil upplifun að heimsækja
Heiðu á Hjallabrautina. Þar kom að
því þrátt fyrir góða umönnum á
Hjallabrautinni að hún varð að fara á
elliheimili til sólarhrings umönnunar
en hún náði ekki að vera þar í mánuð
áður en kallið kom. Ég vil þakka
henni samfylgdina um leið og ég votta
fjölskyldunni samúð mína. Megi Guð
blessa minningu Heiðu.
Arnbjörg G. Björgvinsdóttir.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 33
✝ Elín Þorleifs-dóttir fæddist í
Fjarðarhorni í
Helgafellssveit á
Snæfellsnesi 20. júní
1934. Hún lést á
heimili sínu í Kefla-
vík 13. janúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Þorleif-
ur Einarsson, f. 4.11.
1895, d. 8.10. 1969,
og Guðrún Matthías-
dóttir, f. 6.10. 1893,
d. 23.4. 1986. Systk-
ini Elínar voru:
Helga, f. 9.8. 1918,
Mattea, f. 18.4. 1922, Jón, f. 1.4.
1924, d. 10.8. 1990, Páll, f. 5.4.
1926, d. 8.3. 1989, Einar, f. 6.7.
1927, d. 18.4. 1988, Karítas, f.
12.9. 1929, og Idda, f. 4.7. 1957.
Elín giftist 16.4. 1954 Eyjólfi
Ingiberg (Eyberg) Geirssyni vél-
stjóra í Keflavík, f. 31.10. 1932,
d. 7.12. 2000. Foreldrar hans
voru Geir Þórarinsson, f. 3.2.
1906, d. 17.12. 1983, og Margrét
Eyjólfsdóttir, f. 14.12. 1905, d.
8.9. 1968. Elín og Eyberg eign-
uðust sex börn, þau eru: 1) Ólaf-
ur, f. 27.9. 1953, kvæntur Berg-
þóru Jóhannsdóttur, börn þeirra
eru Elín Ragna en sonur hennar
er Aron Tristan, Íris Ósk og Óli
Bergur. 2) Geir, f.
9.6. 1955, d. 17.10.
1956. 3) Geir, f.
26.12. 1957, kvænt-
ur Sigríði Ingólfs-
dóttur, börn þeirra
eru Eyjólfur Ingi-
berg, Ingólfur og
Anna Margrét, Geir
átti fyrir Kristin en
sonur hans er Sam-
úel Már. 4) Margrét,
f. 21.4. 1954, sam-
býlismaður hennar
var Sveinn Pálsson
en hann lést 17.7.
2001, börn þeirra
eru Þór og Elín. 5) Daníel, f.
28.2. 1961, kvæntur Hugrúnu
Eyjólfsdóttur, börn þeirra eru
Eybjörg og Björgvin. 6) Gunnar,
f. 6.10. 1962, kvæntur Helgu
Hildi Snorradóttur, börn þeirra
eru Gunnhildur, Snorri Már og
óskírð stúlka, Gunnar átti fyrir
Hauk Inga.
Elín ólst upp í Fjarðarhorni en
flutti ásamt foreldrum sínum til
Keflavíkur 1945 og bjó þar alla
tíð. Hún vann um árabil í Ragn-
arsbakaríi og síðar í rækju-
vinnslu, lengst af í Saltveri.
Útför Elínar verður gerð frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Mig langar til að kveðja ástkæra
móður mína með þessu erindi, því að
ég veit að ég á eftir að sakna hennar
mjög:
Þín minning lifir í mínu hjarta,
þú mesta yndi mér hefur veitt.
Við áttum framtíð svo fagra og bjarta,
en flestu örlögin geta breytt.
Og þegar kvöldið er svo kyrrt og hljótt,
ég kveðju sendi þér, þig dreymi rótt.
Þín minning lifi í mínu hjarta,
ég mun því bjóða þér góða nótt.
Elsku mamma, Guð blessi þig og
minningu þína.
Takk fyrir allt.
Þín elskandi dóttir
Margrét.
Elsku amma mín, ekki hvarflaði að
mér að þú færir núna. Þetta gerðist
svo snöggt. Þegar ég heyrði að þú
værir farin þá fór ég að hugsa svo
mikið og allar minningarnar um þig,
þær eru svo margar og góðar. Þú
varst alltaf svo dugleg og ég dáðist
að þér fyrir það hvað þú varst sterk,
sérstaklega þegar hann afi dó fyrir
tveimur árum. Þá huggaðir þú okk-
ur. Þú hélst áfram að búa í stóra hús-
inu ykkar í Hátúninu og svo fórstu og
tókst bílpróf og náðir því leikandi og
keyptir þér nýjan sætan bíl. Ég var
svo stolt af þér, amma mín, hvað þú
stóðst þig vel, leist alltaf svo vel út.
Ég man þegar þú komst í Mangó til
mín og spurðir hvort ég ætti ekki
sæta blússu handa þér, þú varst svo
mikil skvísa. Þú leist alltaf vel út. Ég
man enn þegar ég var bara sex ára
og þú passaðir mig eftir skóla þá
hafðir þú endalausa þolinmæði með
mér. Það var svo gaman hjá ömmu
Ellu og afa Eyberg, ég klæddi mig
upp í alla kjólana þína og þú lánaðir
mér öll prinsessuhálsmenin þín og
svoleiðis dansaði ég um allt húsið.
Síðan sátum við og spiluðum en ég
kunni ekkert að spila og bullaði bara
og þér fannst það fyndið. Ég dáðist
að þér, hvað þú stóðst þig eins og
hetja. Þegar hann afi var veikur, þá
tókst þú rútuna frá Keflavík alla
daga eftir langan og erfiðan vinnu-
dag, til að heimsækja hann afa sem
var þá kominn á spítala. Það var
aðdáunarvert hversu samrýnd þið
voruð, þið voruð eitt. Bæði jafn ynd-
isleg og endalaust góð. Ég man þeg-
ar þið hringduð í mig til Venezuela
og mér þótti svo vænt um að þið
hringduð.
Elsku fallega amma mín, ég sakna
þín svo sárt, ég vildi að ég gæti tekið
utan um þig og spjallað við þig, þú
vildir alltaf hlusta og spjalla. En nú
veit ég að þú ert komin til hans afa og
Geira litla og líður vel. Elsku amma
ég mun alltaf muna eftir þér og segja
Aroni Tristan frá hversu yndisleg
manneskja þú varst. Guð geymi þig.
Þín nafna,
Elín Ragna.
Elsku amma. Það er svo skrýtið að
koma til Keflavíkur án þess að þú
takir á móti mér.
Þú vildir alltaf spila við mig og við
spiluðum mjög oft. Við áttum margar
góðar stundir saman og ég sakna þín
mjög mikið.
Guð geymi þig, Ella amma.
Elín Sveinsdóttir.
Elsku amma. Þegar mér var sagt
að þú værir farin áttaði ég mig ekki á
því að þetta værir þú. Því þú varst
alltaf svo hress og skemmtileg, þú
varst ekki þessi venjulega amma,
prjónandi og bakandi en samt sem
áður varstu frábær. Þú vildir ekki að
fólk hefði áhyggjur af þér. Þegar afi
dó hef ég aldrei séð jafn stóran per-
sónuleika í jafn lítilli manneskju. Og
sumarið sem við unnum og ég bjó
nánast hjá þér vildirðu allt það besta
gera fyrir mig, þetta var frábært
sumar. Enginn hefði getað gert sér
grein fyrir því hve fljótt við þurftum
að kveðja þig.
Með söknuði og trega kveð ég þig
og ég veit að þér líður vel hjá afa og
Svenna.
Þín
Íris Ósk.
Elsku Ella, þá er komið að kveðju-
stund og það allt of fljótt.
Þar sem við Haukur Ingi ömmu-
strákurinn þinn höfum búið í Noregi
síðustu 7 árin hafa samverustundirn-
ar verið alltof fáar en símtölin þeim
mun fleiri.
Við sátum í sumar og spjölluðum
yfir kaffibolla í Hátúninu um ferm-
inguna hans Hauks Inga og að þú
ætlaðir að koma út til okkar og vera í
nokkrar vikur. Við Haukur vorum
búinað hlakka mikið til þess. Við töl-
uðum um allt sem við ætluðum að
sýna þér og bara njóta þess að vera
saman.
Ég vil þakka fyrir allar góðu
stundirnar sem við höfum átt saman,
öll sumrin hans Hauks Inga í Hátún-
inu og vináttuna gegnum árin. Elsku
Ella mín, þá eruð þið Eyberg afi aft-
ur saman. Þín er og verður sárt
saknað.
Guðrún Helga Ingólfsdóttir.
ELÍN
ÞORLEIFSDÓTTIR
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir og
amma,
ANNA SOFFÍA JÓHANNSDÓTTIR,
Hringbraut 86,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að kvöldi
föstudagsins 17. janúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
24. janúar kl. 15.30.
Konráð Fjeldsted,
Agnes Hólmfríður Konráðsdóttir,
Gunnar Hans Konráðsson, Sigríður Pálsdóttir,
Jóhann Kristján Konráðsson, Hanna Rósa Sæmundsdóttir,
Friðrik Þór Konráðsson, Kolbrún Svala Júlíusdóttir,
Sigfríður Pálína Konráðsdóttir
og barnabörn.
Bróðir minn og mágur,
JENS ANTON TÓMASSON,
Hvassaleiti 22,
Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn
10. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug.
Ásta L.S. Tómasdóttir, Einar Sigurðsson.
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
ÁGÚST NATHANAELSSON
vélfræðingur,
Norðurbrún 1,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti laugar-
daginn 18. janúar.
Fyrir hönd ættingja,
Ásta Þorkelsdóttir og börn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
STEINGRÍMUR JÓN BIRGISSON,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
fimmtudaginn 16. janúar sl., verður jarðsung-
inn frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 25. janúar
kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á
styrktarsjóð Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga.
Birgir Steingrímsson, Steinunn Áskelsdóttir,
Ásgeir Hermann Steingrímsson, Anna Guðný Aradóttir,
Steingrímur, Þórný, Áskell Geir,
Auður Karitas og Arna Sigríður.
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar
og hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í greinunum sjálfum.
Formáli
minning-
argreina