Morgunblaðið - 21.01.2003, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.01.2003, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 29 og ákveðið hvort gripið er til lyfja- meðferðar þar sem blóðseginn í æð- inni er leystur upp með svokölluðu segaleysandi lyfi eða hvort laga þarf þrengslin með kransæðaþræðingu þar sem gerð er belgvíkkun og jafn- vel sett inn stoðnet. Þess vegna höf- um við kransæðavíkkunarteymi á vakt allan sólarhringinn fimm daga vikunnar og við vonumst til að geta fljótlega tekið upp sjö daga vakt.“ Davíð segir að sé ekki augljóslega um kransæðastíflu að ræða sam- kvæmt hjartalínuriti sé beitt lyfja- meðferð og sjúklingnum gefin ann- ars konar blóðþynningarlyf. Segir hann fylgst mjög náið með sjúkling- um á brjóstverkjamóttökunni sam- kvæmt ákveðnum vinnureglum og reglulega tekin blóðsýni og hjarta- línurit. Afleiðingar kransæðastíflu segir hann ráðast af því hversu fljótt meðferð hófst og hvort tekist hafi að opna stíflaða æð. Sjúkrahús- leguna eftir kransæðastíflu segir hann gjarnan vera u.þ.b. viku til tíu daga eftir því hversu mikla meðferð og rannsóknir sjúklingur þurfi að ganga í gegnum. Brýnt að leita hjálpar En hvernig á að bregðast við? „Við leggjum áherslu á að menn leiti læknis ef verkur hefur staðið í fimm eða tíu mínútur eða lengur,“ segir Karl. „Brýnt er að menn leiti hjálpar, aki ekki sjálfir á spítalann heldur sé kallað eftir sjúkrabíl því þá er hægt að veita meðferð strax í bílnum.“ Skemmst er að minnast herferðarinnar Hringja og hnoða sem fram fór í haust. Snerist hún um fyrstu viðbrögð við hjartastoppi, þ.e. að menn hringi eftir hjálp og beiti síðan hjartahnoði við sjúkling til að viðhalda blóðflæði ef augljóst er að hjartað hefur hætt að slá. „Þetta eru réttu viðbrögðin og við teljum herferðina hafa skilað ár- angri,“ segir Davíð, „þar sem við urðum vör við að fólk sem varð vitni að hjartastoppi viðhafði þessi við- brögð sem eru tvímælalaust til hjálpar.“ Í lokin má geta þess að bæklingur Hjartaverndar er fáanlegur á hjartadeild og brjóstverkjamóttöku Landspítalans og hjá Hjartavernd. Hann má einnig sjá á heimasíðu Hjartaverndar hjarta.is. ð með raf- irra sem rtruflanir fremur. da á að stafað frá stíflu, frá ngum en rmi sting- kkrar sek- þeir séu s. Verkir sæðastíflu , koma til líkamlega þeir sem ákveðna rið hækk- ykursýki, ðfitur og úkdóm. óttöku tilkomu sé beint artatilfell- gar koma ið hjarta- ikilvægar artans. Þá er stífluð 63% á tveimur áratugum Morgunblaðið/Golli r Hjartaverndar í Kópavogi. i en 75 árlega joto@mbl.is ssa ðjan anda ur. og ndi. ins og gi, erk og an við lík- áða nstri ga. og kur, a- fnvel a- MEÐAL þátttakenda á námskeiðinu voru þeir Bjarki Sigfússon, flugrekstrarstjóri Bláfugls, og flugöryggisfulltrúarnir og flugmennirnir Kolbeinn I. Arason hjá Flugfélagi Íslands og Sigurður Dagur Sigurðsson hjá Íslandsflugi. Þeir voru spurðir um ávinning af því að sitja námskeiðið. „Tilgangurinn er að búa okkur undir að taka þátt í rannsókn á flugslysi, að við séum vel und- ir slíkt verkefni búnir ef á þarf að halda,“ segir Bjarki Sigfússon en flugöryggisfulltrúi Blá- fugls, Gunnar J. Ólafsson, sat einnig nám- skeiðið. „Hér hefur verið farið yfir þann við- búnað sem flugrekendur þurfa að viðhafa ef slys kemur upp en það snertir auðvitað alla í fyrirtækinu, forstjóra, millistjórnendur og starfsmenn. Hver og einn flugrekandi setur upp kerfi sem flugöryggisfulltrúi, flugrekstr- arstjóri og yfirflugstjóri setja saman en for- stjóri ber líka ábyrgð á.“ Sigurður Dagur Sigurðsson segir að eftir námskeið sem þetta viti menn hvernig þeir eigi að bera sig að vegna slysarannsókna enda var einn þáttur þess æfing í að setja upp viðbragðs- kerfi. Hann sat námskeiðið við annan mann frá Íslandsflugi, Þórarin Ólafsson, deildarstjóra flugrekstrar. „Menn gera sér vel grein fyrir því að það verður að vera til áætlun um viðbrögð við svona aðstæður og hver á að gera hvað. Mér finnst ekki ósennilegt að við færum á vettvang ef eitthvað kæmi upp varðandi vélar okkar og myndum þá senda fulltrúa okkar á vettvang sem þekkja best inná viðkomandi flugvélateg- und.“ Kolbeinn I. Arason segir ekkert einfalt mál að eiga að fara á vettvang ef flugvél frá félagi skoðunar hjá flugrekandanum og hvaða lær- dóm mætti draga af slíkum atvikum. Flugrek- endur hafa nú orðið sérstakt eftirlitskerfi vegna frávika sem upp geta komið án þess að þau stofni öryggi í hættu. Þeir sögðu líka að fram kæmu margháttaðar upplýsingar og lær- dómur á námskeiðinu og mikils virði að fleiri en einn frá hverju fyrirtæki gætu sótt það. Þannig væri betur tryggt að þekking kæmist til skila og yrði nýtt í fyrirtækinu. Þá voru þeir sammála um að eins nauðsyn- legur og þessi undirbúningur væri vonuðust vitanlega allir til að þurfa aldrei að nýta þessa þekkingu. hans myndi lenda í slysi. „Þar gætu vinnu- félagar og vinir í áratugi átt í hlut og það var einmitt ein ábendingin á námskeiðinu að menn spyrðu sig hvort þeir væru tilfinningalega bún- ir undir það að fara á vettvang við slíkar að- stæður,“ segir Kolbeinn. Frá Flugfélagi Íslands sat námskeiðið auk hans, Björn Þverdal gæða- stjóri. Eftirlitskerfi vegna frávika Þremenningarnir sögðu að þótt námskeiðið snerist mikið um viðbrögð við slysum væri ekki síður mikilvægt að menn hefðu uppi ákveðin viðbrögð vegna minni atvika sem kæmu þá til Viðbragðskerfi verður að vera til Morgunblaðið/jt Sigurður Dagur Sigurðsson (lengst til vinstri), Kolbeinn I. Arason og Bjarki Sigfússon. Aftan við þá sést í aðalkennarann, Gary R. Morphew, frá Öryggisstofnun Suður-Kaliforníu, SCSI. NÍTJÁN sátu í síðustuviku námskeið um flug-slysarannsóknir semRannsóknarnefnd flug- slysa, RNF, stóð fyrir. Nefndin fékk bandaríska fyrirtækið South- ern California Safety Institute, SCSI, Öryggisstofnun Suður-Kali- forníu, til að sjá um námskeiðið en þar er einkum fjallað um skipulag við rannsóknir á flugslysum og flugatvikum og hvernig flugrek- endur koma þar við sögu. Þormóður Þormóðsson rann- sóknastjóri og Þorkell Ágústsson aðstoðarrannsóknastjóri tjáðu Morgunblaðinu að SCSI stæði framarlega í námskeiðahaldi er varðaði hvers kyns öryggis- og flugslysamál. Þorkell sótti nám- skeið hjá stofnuninni á síðasta ári og sagði hann að í framhaldi af því hefði kviknað sú hugmynd að fá fyrirtækið til að halda námskeið hérlendis. „Það er bæði hagkvæm- ara að fá tvo kennara hingað til viku námskeiðahalds í stað þess að senda hóp til Bandaríkjanna og við fengum einnig sérsniðið námskeið að þörfum flugrekenda hér,“ segir Þormóður. Mikilvægt að kunna viðbrögð Þorkell segir námskeiðið einkum fyrirlestra en einnig er nokkuð um verkefni sem þátttakendur þurfa að leysa. „Flugrekendur þurfa að þekkja reglur og vinnubrögð varð- andi flugslysarannsóknir og oft er um margs konar samstarf að ræða í tengslum við slys eða atvik,“ segir Þorkell og bendir á að mikilvægt sé að menn þekki allar boðleiðir, tilkynningaskyldu og hvernig skýrslugerð skuli háttað. Þeir Þormóður og Þorkell segja íslenska flugrekendur fúsa til að tilkynna um atvik og þannig hafi á nokkra fasta kennara í fullu starfi og síðan aðgang að 25 til 30 manna hópi sem tekur að sér einstök nám- skeið eða þætti þeirra. Gary R. Morphew hefur áratuga reynslu af starfi sem flugmaður í bandaríska hernum þar sem hann stjórnaði vinnu við að koma upp öryggis- kerfum og þjálfun. Fyrirtæki hans hefur einnig staðið fyrir ráð- stefnum á sviði flugöryggismála. Kevin A. Darcy starfaði um ára- bil hjá Boeing sem slysarann- sóknastjóri en rekur nú ráðgjafa- fyrirtæki á sviði flugöryggis. Hann hefur tekið þátt í rannsóknum á yf- ir 100 slysum, þar af 20 á vettvangi. Kenna samskipti við fjölmiðla Í ítarlegri umfjöllun fyrirlesar- anna um alþjóðlegar reglur við flugslysarannsóknir var m.a. farið yfir þýðingu þess að spilla ekki um- merkjum og gögnum á slysstað, samstarf og samskipti fulltrúa flugrekenda og rannsóknanefnda, hvernig rannsóknamenn skuli búa sig undir starf á vettvangi, sam- skipti við fjölmiðla og fleira. Þeir Morphew og Darcy sögðu nauð- synlegt að menn huguðu að sam- skiptum við fjölmiðla því flugslys eða atvik væri alltaf frétt og fjöl- miðlar leituðu stíft eftir upplýsing- um um slík mál. Þeir sögðu rann- sakendur iðulega bera ugg í brjósti gagnvart þremur aðilum, þ.e. stjórnmálamönnum, lögmönnum og fjölmiðlum. Brýnt væri að flug- rekendur og rannsóknarnefndir sinntu fjölmiðlum og nauðsynlegt væri að hvor um sig veitti aðeins þær upplýsingar sem að þeim sneru. Varðandi undirbúning rann- sóknar á vettvangi slyss var lögð áhersla á að menn hefðu ákveðinn búnað tiltækan, ákveðin tæki, fatn- að og slíkan búnað, hefðu fyrirfram áætlun um hverjir færu hugsan- lega á slysstað og væru búnir undir nokkurra daga eða vikna verkefni. Einnig yrðu menn að spyrja sig hvort þeir væru andlega tilbúnir til að takast á við slík verkefni. Þess má að lokum geta að ráð- gert er að halda síðar á árinu nám- skeið sem einkum snýr að flugvall- arstarfsmönnum, slökkviliði og björgunarmönnum. verið svo mikinn hjá nefndinni á einu ári. Sex af atburðunum 39 gerðust erlendis þar sem rannsókn er á forræði rannsóknanefndar í viðkomandi landi en RNF kemur við sögu. Þátttakendur í námskeið- inu voru frá öllum stærstu flugrek- endum í landinu og það sitja einnig fulltrúar Flugmálastjórnar. Þeir segja ekki hafa verið vanda- mál að fá næga þátttöku í nám- skeiðinu og margir flugrekend- anna hafi sent fleiri en einn. Hafa kennt 4.500 manns Bandaríska stofnunin SCSI hef- ur frá árinu 1987 tekið um 4.500 manns á námskeið og segir Gary R. Morphew, yfirmaður stofnunar- innar og annar kennara á nám- skeiðinu hér, að bæði séu haldin grunnnámskeið um slysarann- sóknir og öryggismál, sérhæfð námskeið og framhaldsnámskeið fyrir einstaka þætti í rannsóknum og síðan sérsniðin námskeið fyrir ýmsa aðila. „Við höfum haldið námskeið í Singapore, Ástralíu, Tékklandi og Suður-Afríku bæði fyrir flugheri landanna og flugrekstraraðila,“ segir hann en stofnunin hefur síðasta ári borist 350 tilkynningar til RNF. Af þeim fékk 91 tilkynn- ing svokallað málnúmer, þ.e. atvik var kannað, og 39 mál hlutu form- lega og ítarlega rannsókn. Mis- munurinn, 52 mál, eru mál sem fóru til athugunar hjá öðrum að- ilum, svo sem Flugmálastjórn, t.d. mál vegna flugumferðarstjórnar. Segja þeir málafjölda aldrei hafa Mikilvæg þekking sem menn vilja ekki þurfa að nota Námskeið á vegum Rannsóknar- nefndar flugslysa um viðbrögð við slysum og flugatvikum Kevin A. Darcy var annar aðalkennaranna á námskeiðinu. Þormóður Þormóðsson (t.v.) og Þorkell Ágústsson frá Rannsókn- arnefnd flugslysa. Á nýlegu námskeiði fyrir flugrekendur voru þeim kennd ýmis atriði um hvernig bregðast eigi við þegar slys eða flugatvik koma upp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.