Morgunblaðið - 21.01.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 9
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Kápur og dragtir
aukaafsláttur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230
Opið mán.–fös. kl. 10-18,
lau kl. 10-14.
Útsala
Matseðill
www.graennkostur.is
21/01-27/01 frá GRÆNUM KOSTI, Skólavörðustíg 8.
Opið mánudaga-laugardaga kl. 11.30-21.00,
sunnudaga kl. 13.00-21.00. Pantanir í síma
552 2028, skrifstofa 552 2607, fax 552 2607.
Þri 21/1: Moussaka, grískt salat & grísk
jarðepli m. fersku salati,
hrísgrjónum & meðlæti.
Mið 22/1: Pakistanskur spínatréttur m. fersku
salati, hrísgrjónum & meðlæti.
Fim 23/1: Koftaskarrý m. koftas, fersku
salati, hrísgrjónum & meðlæti.
Fös 24/1: Suðrænn exótískur pottréttur
m. fersku salati, hrísgrjónum
& meðlæti.
Helgin 25/1 & 26/1:
Cashewkarrý að hætti hússins.
Mán 27/1: Grænmetislasagna
& tilheyrandi.
Bankastræti 14, sími 552 1555
Fallegur fatnaður
úr apaskinni
Takmarkað magn
Ú
T
S
A
L
A
15-70%
afsláttur
Stærðir 36–54 (S-3XL)
Opið virka daga frá kl. 10-18,
og laugardaga kl. 10-14
Sími 567 3718
Útsala ÷30% - Á slá ÷50%
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, s. 553 2347
sérverslun. Sérhönnun st. 42-56
Fataprýði
Munið falleg og frábrugðið
Laugavegi 63, sími 551 4422
Ú
T
S
Ö
L
U
LOK
Viðbótar-
afslættir
GATNAFRAMKVÆMDIR eru hafn-
ar á Alaskalóðinni í Breiðholti og
innan skamms hefjast bygginga-
framkvæmdir, en gert er ráð fyrir
að þeim ljúki um mitt ár 2004.
Á lóðinni verða byggðar 50 íbúðir
og þar af 18 í sérbýli, þ.e. átta íbúðir
í raðhúsum og tíu í samtengdum tví-
býlishúsum, en 32 íbúðir í fjölbýli
með sameiginlegri bílageymslu und-
ir.
T.ark Teiknistofa ehf. teiknaði
íbúðirnar fyrir Holtasel ehf., sem á
lóðina og fær verktaka í fram-
kvæmdirnar. Talið er að hægt verði
að malbika botnlanga í hverfinu í lok
maí eða byrjun júní, en að sögn Pét-
urs Guðmundssonar, eins eigenda
Holtasels, verður byrjað að grafa
fyrir steypuvinnu í næsta mánuði.
Hann segir að töluverð undirbún-
ingsvinna sé framundan, en gangi
allt samkvæmt áætlun verði hægt að
byrja að steypa í vor og ljúka fram-
kvæmdum um mitt ár 2004.
Framkvæmdir hafnar
á Alaskalóðinni
Morgunblaðið/Golli
Gatnaframkvæmdir eru hafnar á Alaskalóðinni í Breiðholti en bygginga-
framkvæmdir hefjast innan tíðar.
ÁSTÆÐAN fyrir því að morfín-
neysla Íslendinga hefur þrefaldast á
undanförnum tíu árum, eins og kom
fram í Morgunblaðinu nýlega, er
talin sú að upp úr 1985 kom á mark-
að morfín í töfluformi. Þar með hef-
ur notkun morfíns til meðferðar
verkja batnað. „Það er ekki ástæða
til að ætla annað en að aukningin sé
eðlileg,“ segir Haukur Valdimars-
son, aðstoðarlandlæknir.
„En þetta hefur það í för með sér
að meira er af morfíni í umferð og
það hlýtur aftur að geta leitt til þess
að lyfið sé meira misnotað, en það er
mjög erfitt að meta í hversu miklum
mæli,“ segir Haukur.
Mikil neysla verkjalyfja sem inni-
halda svokallaða kódein-blöndu
veldur að sögn Hauks áhyggjum, en
notkun þeirra hefur margfaldast á
undanförnum árum. Kódein má
finna í lyfjum sem seld eru í lausa-
sölu, t.d. Ibúkód og Parkódín. Það
fæst hins vegar í meira mæli t.d. í
lyfinu Parkódín Forte sem er lyf-
seðilsskylt en ekki eftirritunarskylt
fyrr en skammturinn er kominn yfir
40 töflur.
Kódein getur valdið ávana og fíkn
og því telur Haukur ástæðu til að
vara fólk við lyfjum sem innihalda
það og bendir á að oft dugi önnur
verkjalyf sem ekki innihalda kódein
jafnvel og þau sem innihalda blönd-
una.
Sextán ára stúlka ánetjaðist
„Það ætti ekki að nota kódein-lyf
nema að vel athugðu máli,“ segir
Haukur og nefnir dæmi um 16 ára
stúlku sem ónetjaðist kódeini við
fyrstu töflu ef svo má að orði kom-
ast. „Við höfum sérstakar áhyggjur
af því að unglingar séu að nota þessi
lyf og spurningar hafa vaknað um
hvort hætta ætti að selja þau í
lausasölu.“
Haukur segir sjúklinga sem sann-
arlega þurfi á lyfjum er innihalda
morfín og kódein að halda, t.d.
krabbameinssjúklinga, ekki ánetjast
þeim. „Þannig að ef lyfin eru notuð
samkvæmt réttum ábendingum,
sem eru alvarlegir verkir, eru þau
sannarlega góð lyf. Ég myndi hins
vegar aldrei mæla með því að ung-
lingsstúlka notaði kódein-lyf við túr-
verkjum t.d. Það eru aðrar betri
leiðir til að lina verkina.“
Verkjalyf er
innihalda kódein
varhugaverð
ÍBÚUM, sem hafa búið á vegum Fé-
lagsþjónustunnar í íbúðum við
Vatnsstíg 11 í Reykjavík, var sagt
upp leigusamningi um síðustu ára-
mót. Íbúðirnar sem um ræðir eru um
24 og margir sem í þeim búa eiga við
félagslegan vanda að etja.
Lára Björnsdóttir, félagsmála-
stjóri Reykjavíkur, segir það and-
stætt stefnu Félagsþjónustunnar að
hópa fólki, sem verið er að aðstoða,
undir sama þak. Margir eigi við erf-
iðleika að etja og það geti skapað
vandamál.
„Stefnan okkar er sú að fólk búi í
almennu umhverfi innan um aðra
borgara þjóðfélagsins. Þannig kem-
ur hinn félagslegi stuðningur líka
beint og óbeint þaðan,“ segir Lára.
Hún vonar að ódýrara og betra
húsnæði fáist fyrir fólkið þótt það
hafi ekki skipt höfuðmáli. Það sé þó
hægt að finna jafndýrar eða jafnvel
ódýrari lausnir fyrir Reykjavíkur-
borg.
Lára segir að öllum verði útvegað
nýtt húsnæði í samstarfi við Fé-
lagsbústaði um leið og það finnist.
Þetta umrót skapi nokkurt óör-
yggi hjá íbúunum en allt sé gert til að
tryggja að málið gangi vel fyrir sig.
Hún segir að rýma verði húsið á
þessu ári svo að enn sé nægur tími til
stefnu til að finna lausnir fyrir fólkið.
Því verði ekki kastað út á götu.
Reykjavíkurborg hefur leigt húsið
við Vatnsstíg í um 20 ár. Lára segir
að mikill húsnæðisvandi hafi verið í
Reykjavík og þá hafi verið gripið til
þess ráðs að leigja heilu húsin til að
leysa mikinn vanda.
Langtímaleigusamningur við eig-
endur hússins rann út um síðustu
áramót og segir Lára að ekki hafi
verið óskað eftir framlengingu á
honum.
Félagsþjónustan
losar leiguíbúðir
við Vatnsstíg
C vítamín 400 mg
með sólberjabragði
Bragðgóðar tuggutöflur.
Eflir varnir.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum
Moggabúðin
Reiknivél, aðeins 950 kr.