Morgunblaðið - 21.01.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.01.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sölumenn okkar eru við símann frá kl. 8:00 – 17:00. Hringdu í síma 520 6666 eða líttu á úrvalið í stórverslun okkar að Réttarhálsi 2. Opið mán. – fös. 8:00 – 18:00. SKRIFSTOFUVÖRUR Vandaður 80 gr fjölnotapappír 500 blöð í búnti 298.- Geisladiskar CD-R 25 stk 720Mb / 80 mín / 1x - 32x 1.458.- Bréfabindi A4 7 cm kjölur Ýmsir litir 138.- stk Á tilboði núna INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sat fyrsta fund þing- flokks Samfylkingarinnar á nýju ári í Alþingishúsinu í gær. Var hún boðin velkomin sem forsætis- ráðherraefni flokksins í næstu kosningum. Samþykkti þingflokkurinn ályktun þar sem segir að góð samstaða sé í flokknum um menn og málefni og er þingflokkurinn sagður standa þétt að baki Össuri Skarphéðinssyni, formanni flokksins, og Ingibjörgu Sólrúnu. Ingibjörg segir að eftir að hún láti af embætti borgarstjóra muni hún reyna eftir föngum að sitja þingflokksfundi Samfylking- arinnar fram að kosningum til að fylgjast með þeirri umræðu sem á sér stað á Alþingi. Aðspurð segir Ingibjörg að hún muni ekki hafa neitt sérstakt hlutverk á þeim fundum, hún muni taka þátt í stefnumótun og undirbúa kosn- ingabaráttuna sem er í uppsigl- ingu. Ingibjörg, sem var þingmaður Reykvíkinga fyrir Kvennalistann árin 1991–1994, segir að það hafi verið sérkennilegt að koma aftur inn í Alþingishúsið. „Mér fannst það svolítið sérkennilegt vegna þess að það er búið að breyta svo mörgu þarna síðan ég var þing- maður og ég hef ekkert komið þarna síðan 1994 og átti erfitt með að rata,“ segir Ingibjörg. Hún villtist þó ekki þar sem Öss- ur Skarphéðinsson, formaður flokksins og svili Ingibjargar, leiddi hana um húsið. Í ályktun sem þingflokkurinn samþykkti á fundinum er ákvörð- un forystu flokksins, að tilnefna Ingibjörgu Sólrúnu sem forsætis- ráðherraefni Samfylkingarinnar í næstu kosningum, fagnað. „Ingi- björg Sólrún hefur sýnt með verkum sínum að hún er einn öfl- ugasti stjórnmálamaður okkar tíma. Hún hefur reynst afburða farsæll borgarstjóri og með verk- um sínum unnið sér trúnað langt út fyrir hefðbundin flokksbönd. Nútímaleg jafnaðarstefna felur m.a. í sér sterka áherslu á kven- frelsi og jafnrétti. Konur hafa sótt fram á síðustu áratugum, ekki síst fyrir tilstuðlan þeirra flokka sem stóðu að stofnun Sam- fylkingarinnar. Flokkurinn telur tímabært að enn einum áfanga í jafnréttisbaráttunni verði náð með því að kona taki að sér for- ystu í landsstjórninni undir merkjum jafnaðarstefnunnar,“ segir í ályktuninni. Morgunblaðið/Kristinn Átti erfitt með að rata um Alþingishúsið Ingibjörg Sólrún sat fyrsta þingflokksfund Samfylkingar- innar á nýju ári LÆKNAR hafa kvartað undan því við Lyfjastofnun að starfsfólk lyfjabúða bendi sjúklingum á að þeir geti fengið lyfin sín á lægra verði með því að fá ávísað á stærri lyfjaskammt í hvert sinn. Í kjölfar- ið sendi Lyfjastofnun bréf til apó- tekanna þar sem stofnunin tekur undir sjónarmið lækna um að þetta sé óheppilegt. Munur á verði getur numið þús- undum króna á lyfjaskammti eftir því hvort ávísað er á hann mán- aðarlega eða til 100 daga í senn. Fólk sem þarf að taka inn lyf til lengri tíma á í mörgum tilvikum rétt á því að læknir ávísi 100 daga skammti á lyfin í stað 30 daga í hvert sinn. Þegar ávísað er 100 daga skammti greiðir Trygginga- stofnun ríkisins í flestum tilvikum stærri hluta af lyfjunum en þegar ávísað er til 30 daga. Í bréfi Lyfja- stofnunar segir að það geti ekki talist fagleg vinnubrögð þegar starfsfólk lyfjabúða tilkynni sjúk- lingi að mögulegt sé að lækka verð lyfjanna með því að fara fram á það við lækni að hann ávísi 100 daga skammti í stað 30 daga skammti. Vinnubrögð starfsfólks lyfjabúða eigi „að miðast við að sjúklingur fái sem besta og hag- kvæmasta meðferð“. Afskipti lyf- sala geti truflað lyfjameðferð sjúk- lings sem er á ábyrgð lækna. Sjúklingar þrýsta á lækna Rannveig Gunnarsdóttir, for- stjóri Lyfjastofnunar, segir að ver- ið geti að læknir láti sjúkling vís- vitandi ekki hafa nema mánaðarskammt af lyfi. Læknar hafa, að hennar sögn, orðið fyrir því að sjúklingar reyni að þrýsta á þá svo þeir fái vísað á meira magni af lyfjum en upphaflega hafi staðið til, svo þeir fái lyfin sín á lægra verði. Rannveig segir lyfjaverð til sjúklings ráðast af því hvort ávísa megi 100 daga skammti, hver sé greiðsluþátttaka ríkisins, hversu dýrt lyfið sé og hvort sjúklingur sé öryrki eða ellilífeyrisþegi. Lyfja- verð er oftast reiknað þannig að fyrst greiðir sjúklingur ákveðna og fasta upphæð, sem er sú sama hversu stór sem skammturinn er og síðan ákveðið hlutfall af því sem umfram er. Oft er ákveðið þak á verðinu þannig að sjúklingur greiðir aldrei meira en tiltekna upphæð þó svo að reiknað verð sé hærra. Í þeim tilvikum þar sem reiknað verð er hærra en þakið greiðir ríkið meira af lyfjaskammtinum. Rannveig segir að í sumum til- vikum geti það verið svo að ríkið greiði ekkert af 30 daga skammti og ekki komi til greiðsluþátttöku fyrr en um stærri skammt sé að ræða. Sum lyf megi einungis af- greiða til 30 daga í senn, t.d. áv- ana- og fíknilyf, sum svefnlyf og magalyf. Þeir apótekarar, sem Morgun- blaðið ræddi við vegna málsins, sögðu bréf Lyfjastofnunar hafa komið illa við sig. „Það er eins og verið sé að gera athugasemd við það að við séum að leiðbeina fólki um rétt sinn,“ sagði einn lyfja- fræðingur. Afskipti geta trufl- að lyfjameðferð Lyfsalar bendi sjúklingum ekki á að stærri lyfjaskammtar séu ódýrari SUMARFERÐIR, sem er ný ferða- skrifstofa í eigu Helga Jóhannssonar, Þorsteins Guðjónssonar og Gunnars Fjalars Helgasonar, er að taka til starfa og hyggst bjóða upp á beint leiguflug til Alicante á Spáni í sumar. Flogið verður vikulega alla fimmtu- daga frá 22. maí til 25. september nk. Ferðaskrifstofan hefur gert sam- starfssamning við Kennarasamband Íslands sem hyggst bjóða félögum sínum sérkjör í þessar ferðir. Helgi Jóhannsson, sem stýrði Sam- vinnuferðum-Landsýn um árabil, er framkvæmdastjóri Sumarferða. Hann hefur nýlokið MBA-námi í raf- rænum viðskiptum við Háskólann í Reykjavík, Þorsteinn Guðjónsson hefur sömuleiðis nýlokið masters- námi og Gunnar Fjalar er hagfræð- ingur og starfar í New York. Helgi sagði við Morgunblaðið að fleiri félög hefðu lýst áhuga á að gera samning við Sumarferðir líkt og Kennarasambandið. Helgi sagði að starfsemi ferðaskrifstofunnar yrði kynnt nánar í næsta mánuði og þá myndi margt „koma á óvart“. Hann vildi ekki upplýsa nánar um starfsem- ina en fram kæmi á Netinu um fyr- irtækið. Sumarferðir hafa gert samning við flugfélagið Spanair og verða notaðar nýjar vélar af gerðinni Airbus 321 sem flytur 212 farþega. 200 KÍ-félagar hafa bókað sig Verðið sem félögum KÍ býðst er tæpar 30 þúsund krónur, með flug- vallarskatti, og miðast við að bókað sé á Netinu, www.sumarferdir.is. Börn 2–11 ára greiða rúmar 26 þús. krónur, að flugvallarskatti meðtöldum. Börn yngri en 2 ára greiða 900 kr. öryggis- gjald. Ef ferðirnar eru bókaðar í síma bætast við 1.500 krónur á hvert sæti. Helgi sagði í gær að þegar hefðu um 200 félagar KÍ bókað sig í ferð- irnar til Alicante, en þar hefur KÍ ásamt fleiri stéttarfélögum verið að leigja út sumarhús. Að sögn Helga gæti fjögurra manna fjölskylda sparað sér allt að 25 þúsund krónur ef hún keypti flugmiða af Sumarferðum, miðað við fargjöld sem t.d. Plúsferðir byðu til Alicante, sem er lægst rúmar 36 þúsund krón- ur, með flugvallarskatti. Ný ferðaskrifstofa í eigu Helga Jóhannssonar og fleiri Beint leiguflug til Alicante á Spáni í sumar VINIR Guðrúnar Bjargar Svan- björnsdóttur, sem leitað hefur verið að síðan 29. desember sl., hafa sent út tölvubréf þar sem óskað er eftir aðstoð sem flestra við leitina. Er það gert í samráði við fjölskyldu Guðrún- ar og lögregluna í Reykjavík. Í bréfinu er tilgreint hvar Guðrún sást síðast og ítrekað að hver dagur sé mikilvægur. Hún sé haldin lyst- arstoli, sem geti valdið dauða hennar þar sem hún nærist ekki eðlilega. Eru viðtakendur bréfsins hvattir til að senda það sem víðast, sérstak- lega ef þeir eiga vini og kunningja annars staðar á Norðurlöndum. Bréfinu fylgja tvær myndir; and- litsmynd og mynd tekin í vopnaeft- irlitinu á Keflavíkurflugvelli daginn sem hún flaug til Danmerkur. Fram kemur að peningar voru teknir út af bankareikningi Guðrún- ar 16. janúar í hraðbanka í miðbæ Kaupmannahafnar. Seinna sama dag er sagt að vitni hafi séð Guðrúnu á járnbrautarstöð í Malmö í Svíþjóð. Beðið um hjálp á Netinu Vinir ungrar konu sem er saknað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.