Morgunblaðið - 21.01.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÖGMUNDUR Jónasson, formaður
þingflokks Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, segir að fyrirhug-
uð Kárahnjúkavirkjun eigi eftir að
setja svip sinn á umræður á Alþingi
næstu vikurnar, en þingflokkur VG
kynnti ný þingmál á blaðamanna-
fundi í gær, sem hann hyggst leggja
fram við upphaf þingfundar í dag.
Þing kemur þá saman að nýju eftir
jólahlé. Eitt þeirra þingmála sem
VG hyggst leggja áherslu á er að
fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um
byggingu Kárahnjúkavirkjunar.
Þingsályktunartillaga þessa efnis
verður lögð fram á Alþingi í dag en
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
VG, er fyrsti flutningsmaður henn-
ar. Meginefni tillögunnar er að Al-
þingi álykti að fram skuli fara al-
menn atkvæðagreiðsla,
þjóðaratkvæðagreiðsla, samhliða
kosningunum til Alþingis 10. maí
nk. um hvort ráðist skuli í byggingu
Kárahnjúkavirkjunar eða ekki.
Þá segir í þingsályktunartillög-
unni: „Alþingi felur ríkisstjórninni
að gera nauðsynlegar ráðstafanir og
tilkynna viðkomandi aðilum að ekki
skuli hafist handa um framkvæmdir
fyrr en að fengnu samþykki meiri-
hluta kjósenda en horfið frá þeim
ella ef meirihluti kjósenda reynist
þeim andvígur.“ Þingflokkur VG
hefur áður lagt fram þingsályktun-
artillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu
vegna byggingar Kárahnjúkavirkj-
unar.
Ögmundur Jónasson sagði m.a. á
blaðamannafundinum í gær að það
væri lágmarkskrafa að þjóðin verði
spurð álits um þessa stærstu fram-
kvæmd Íslandssögunnar, þ.e. um
byggingu Kárahnjúkavirkjunar.
Kolbrún Halldórsdóttir, þingmað-
ur VG, benti auk þess á að miklar
deilur hefðu staðið um byggingu
virkjunarinnar allt kjörtímabilið.
„Við teljum að auðveldara verði að
fá alla fleti málsins fram í dagsljósið
verði farið í þjóðaratkvæða-
greiðslu,“ sagði hún m.a. Þar með
ætti fólk auðveldara með að vega og
meta alla kosti og galla virkjunar-
innar. „Við teljum að þjóðin verði á
okkar bandi í þessum efnum ef hún
fær tækifæri í alvörunni til að vega
og meta alla kosti og galla.“
Þuríður Backman, þingmaður
VG, tók einnig fram að ekki hefði
verið rætt um virkjunina í síðustu
alþingiskosningum. Þar með hefði
fólk aldrei fengið að greiða atkvæði
um hana á einn eða annan hátt. Kol-
brún bætti því við að það yrði að
leyfa þjóðinni að fá að segja álit sitt
á virkjuninni og að í þeirri kosningu
ætti valið að standa um það að segja
já eða nei.
Beiti sér gegn áformum
um innrás í Írak
Þingflokkur VG hyggst einnig í
vikunni leggja fram þingsályktun-
artillögu um að ríkisstjórnin beiti
sér gegn áformum um innrás í Írak
og að Ísland standi utan við hvers
kyns hernaðaraðgerðir gegn Írak. Í
þingsályktunartillögunni segir m.a.
að komi til hernaðaraðgerða gegn
Írak á næstu mánuðum skuli Ísland
tilkynna að ekki verði heimiluð af-
not af aðstöðu á íslensku yfirráða-
svæði né verði um neins konar þátt-
töku að ræða af Íslands hálfu í
aðgerðunum. „Það er sannfæring
flutningsmanna að enginn vandi
verði leystur með stríðsaðgerðum
og þess vegna eigi Ísland ekki að
styðja slíkar aðgerðir ef til þeirra
kemur,“ segir í greinargerð tillög-
unnar, en fyrsti flutningsmaður er
Ögmundur Jónasson.
Ögmundur, Kolbrún og Þuríður
greindu einnig frá því á blaða-
mannafundinum í gær að þingflokk-
ur VG hefði farið fram á umræðu
utan dagskrár um mótvægisaðgerð-
ir í efnahags- og atvinnumálum
vegna áformaðra stóriðjufram-
kvæmda á Austurlandi. Til stendur
að halda umræðuna á Alþingi í dag.
Ögmundur verður málshefjandi
hennar en Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra verður til andsvara.
Ögmundur sagði í gær að flest
benti til þess að af stóriðjufram-
kvæmdum yrði á Austurlandi. Þrátt
fyrir það væru „ýmsir endar óhnýtt-
ir,“ eins og hann orðaði það. „Það er
lágmarkskrafa að ríkisstjórnin geri
grein fyrir því á hvern hátt hún
hyggist beita sér fyrir mótvægisað-
gerðum sem öllum ber saman um að
séu nauðsynlegar ef af þessum
áformum verður.“
Þjóðin greiði atkvæði
um Kárahnjúkavirkjun
ÞAÐ getur verið gaman að vera í fjörunni og fylgjast
með öldunum þegar mest læti eru í sjónum. Engar
tvær öldur eru eins, sundum eru þær litlar og stund-
um stórar eins og aldan á myndinni sem virðist vera
að opna munninn til að gleypa eitthvað en fellur svo
niður í fjöruborðinu og verður að engu. Eftir að
veðrið snerist til norðanáttar hefur verið mikið brim
og ölduhæð oft töluverð í sjónum við suðurströndina.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Sjógangur við syðsta odda
ÍSLENSKA ríkið hefur verið dæmt í
Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða
konu á fimmtugsaldri hálfa milljón
króna í bætur vegna brjóstaminnkun-
araðgerðar á Landspítalanum. Hafði
konan krafist 22,6 milljóna kr. í
skaðabætur.
Málið kemur í annað sinn í héraðs-
dóm en en dæmt var í því í júlí árið
2000. Áfrýjað var til Hæstaréttar og
með dómi hans í mars árið 2001 var
dómur héraðsdóms ómerktur og mál-
inu vísað heim í hérað.
Málavextir eru þeir helstir að að-
gerð á konunni var framkvæmd í
ágúst árið 1991. Í kjölfar hennar fékk
konan drep í stóran hluta geirvörtu
og þurfti að gera margar lýtaaðgerðir
í framhaldinu. Var fallist á að brjóst
konunnar hefðu verið gerð minni en
tæknilegar og heilsufarslegar ástæð-
ur gáfu tilefni til og ályktað að van-
smíðin hefði valdið því að annarrar
aðgerðar var þörf.
Misræmi í skjölum
frá heilbrigðiskerfinu
Í niðurstöðu héraðsdóms kemur
m.a. fram að misræmis hafi gætt í
sjúkraskýrslum, vottorðum og öðrum
málskjölum sem komu frá heilbrigð-
iskerfinu. Misræmið veldur þó ekki
því, að áliti dómsins, að álykta megi að
drep í hægra brjósti konunnar eftir
aðgerðina hafi orsakast af mistökum
við aðgerðina eða við eftirmeðferðina
á henni á sjúkrahúsinu.
Því er ekki mótmælt í dómnum að
afleiðingar upphaflegu aðgerðarinnar
á heilsu og líðan konunnar hafi verið
miklar og langvarandi. Fjölmargar
skurðaðgerðir og önnur meðferð hafi
fylgt í kjölfarið. Héraðsdómur kemst
þó að þeirri niðurstöðu að ekki verði
talið að spítalinn beri skaðabóta-
ábyrgð á ætlaðri örorku konunnar
sem varð vegna drepsins.
Á hinn bóginn er talið að spítalinn
beri ábyrgð á að konan þurfti að
gangast undir aðgerð til að leiðrétta
legu geirvörtu vinstra brjósts og að
húð var tekin á röngum stað á kon-
unni til ígræðslu í annarri aðgerð í
september árið 1991. Er konan því
sögð eiga rétt á miskabótum að upp-
hæð 500 þúsund krónur.
Róbert Árni Hreiðarsson hdl. flutti
mál konunnar og Skarphéðinn Þór-
isson ríkislögmaður var til varnar.
Páll Þorsteinsson héraðsdómari kvað
upp dóminn en meðdómendur voru
læknarnir Stefán Einar Matthíasson
og Þorvaldur Jónsson.
Hálf milljón í bætur
vegna brjóstaaðgerðar
FRAMBOÐSLISTI framsóknar-
manna í Suðurkjördæmi var
ákveðinn á kjördæmisþingi á Sel-
fossi um síðustu helgi. Hann er
þannig skipaður:
1. Guðni Ágústsson, landbún-
aðarráðherra, Selfossi.
2. Hjálmar Árnason,
alþingismaður, Reykjanesbæ.
3. Ísólfur Gylfi Pálmason,
alþingismaður, Hvolsvelli.
4. Eygló Harðardóttir,
framkvæmdastjóri,
Vestmannaeyjum.
5. Helga Sigrún Harðardóttir,
verkefnastjóri, Reykjavík.
6. Ásborg Arnþórsdóttir, ferða-
málafulltrúi, Bláskógabyggð.
7. Ólafur Sigurðsson, bóndi,
Svínafelli í Öræfum.
8. Elín Einarsdóttir, kennari,
V-Skaftafellssýslu.
9. Arnar Freyr Ólafsson,
bankamaður, Eyrarbakka.
10. Elsa Ingjaldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri, Árborg.
11. Birgir Þórarinsson,
guðfræðingur, Vatnsleysu-
strandarhreppi.
12. Guðjón Þ. Guðmundsson, flutn-
ingabílstjóri, V-Skaftafells-
sýslu.
13. Ásta Begga Ólafsdóttir,
ferðaþjónustubóndi,
Rangárvallasýslu.
14. Haraldur Hinriksson,
verkamaður, Sandgerði.
15. Lára Skæringsdóttir, hár-
greiðslumeistari, Vest-
mannaeyjum.
16. Laufey Sveinsdóttir,
hjúkrunarfræðinemi,
A-Skaftafellssýslu.
17. Brynjar Sigurðsson, bóndi,
Árnesi.
18. Hallgrímur Bogason,
bæjarfulltrúi, Grindavík.
19. Ingólfur Ásgrímsson, skip-
stjóri, A-Skaftafellssýslu.
20. Drífa Sigfúsdóttir, deild-
arstjóri, Reykjanesbæ.
Listi framsókn-
armanna í
Suðurkjördæmi
Á FUNDI kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins í Norðvesturkjör-
dæmi í Búðardal um síðustu helgi
var ákveðinn framboðslisti fyrir
kosningarnar í vor.
Listann skipa eftirfarandi:
1. Sturla Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra, Stykkishólmi.
2. Einar K. Guðfinnsson,
alþingismaður, Bolungarvík.
3. Einar Oddur Kristjánsson,
alþingismaður, Flateyri.
4. Guðjón Guðmundsson,
alþingismaður, Akranesi.
5. Adolf H. Berndsen, fram-
kvæmdastjóri, Skagaströnd.
6. Jóhanna E. Pálmadóttir,
bóndi, Akri.
7. Birna Lárusdóttir,
bæjarfulltrúi, Ísafirði.
8. Katrín María Andrésdóttir,
svæðisfulltrúi RKÍ, Sauðárkróki.
9. Helga Halldórsdóttir,
bæjarfulltrúi, Borgarnesi.
10. Gauti Jóhannesson, læknanemi,
Akranesi.
11. Guðný Helga Björnsdóttir,
bóndi, Bessastöðum í Hrútafirði.
12. Eyrún I. Sigþórsdóttir, við-
skiptafræðingur, Tálknafirði.
13. Skjöldur Orri Skjaldarson,
bóndi, Hamraendum í Dalasýslu.
14. Ásdís Guðmundsdóttir,
bæjarfulltrúi, Sauðárkróki.
15. Snorri Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri, Hvanneyri.
16. Jón Stefánsson, bóndi,
Broddanesi á Ströndum.
17. Eydís Aðalbjörnsdóttir,
skrifstofumaður, Akranesi.
18. Örvar Marteinsson, sjómaður,
Ólafsvík.
19. Vilhjálmur Árnason, nemi,
Hofsósi.
20. Engilbert Ingvarsson, bók-
bindari og fv. bóndi, Hólmavík.
Listi Sjálf-
stæðisflokks í
NV-kjördæmi
♦ ♦ ♦
DAGANA 22. og 23. janúar verður
haldin í Reykjavík, á Hótel Sögu,
ráðstefna höfuðborga Norðurlanda.
Ráðstefnan er umfangsmesti vett-
vangur samskipta höfuðborga Norð-
urlandanna og eru þátttakendur um
100 talsins.
Tvö umræðuefni verða tekin fyrir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borg-
arstjóri, verður frummælandi í um-
ræðu um lífsgæði í borgarsamfélagi.
Árni Þór Sigurðsson, forseti borg-
arstjórnar, verður síðan frummæl-
andi í umfjöllun um almenningssam-
göngur.
Nú taka í fyrsta sinn þátt fulltrúar
frá Álandseyjum, Grænlandi og
Færeyjum. Ætlunin er að halda ráð-
stefnuna annað hvert ár í framhaldi
af þessu. Síðast var ráðstefnan á Ís-
landi árið 1988.
Höfuðborgar-
ráðstefna
í Reykjavík
MIKILL meirihluti Íslendinga, eða
nær 68%, telur að ekki ætti að lög-
leiða spilavíti á Íslandi. Tæp 28%
svarenda voru því fylgjandi og 4,5%
tóku ekki afstöðu eða neituðu að
svara.
Þetta kemur fram í könnun sem
IBM Business Cunsulting Services á
Íslandi gerði.
Meiri andstaða var við opnun
spilavíta meðal kvenna þar sem rúm
79% þeirra voru þessu mótfallnar.
55% karla voru á móti lögleiðingu
spilavíta á Íslandi en 41% þeirra var
því fylgjandi.
Sé litið til aldurshópa voru þeir
sem eldri eru, eða 50 til 75 ára, lítt
hrifnir af hugmyndinni. 79% þeirra
voru henni andsnúnir.
Einnig var spurt hvort viðkom-
andi hefði farið í spilavíti og átti það
ekki við spilakassa Háskóla Íslands
eða aðra sömu tegundar.
21% þeirra sem tóku þátt í könn-
uninni höfðu farið í spilavíti erlendis
en 1,5% innanlands. 83% kvenna
höfðu aldrei stigið fæti inn í spilavíti,
hvorki innanlands né utan. Flestir
sem höfðu farið í spilavíti erlendis
voru á aldrinum 30 til 49 ára.
Hringt var í 600 Íslendinga um allt
land á aldrinum 18 til 75 ára. Könn-
unin var gerð í nóvember og desem-
ber á síðasta ári.
Andstaða við
spilavíti meiri
meðal kvenna
♦ ♦ ♦