Morgunblaðið - 21.01.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 11
MEÐALEINKUNNIR á sam-
ræmdum prófum í íslensku og
stærðfræði í 4. bekk á nýliðnu
hausti voru hæstar í Nesskóla í
Fjarðabyggð. Í 7. bekk var með-
altalið í íslensku og stærðfræði
hæst í grunnskóla Reyðarfjarðar.
Í fyrrahaust voru 4.562 nemend-
ur skráðir í 4. bekk. Af þeim tóku
4.350 nemendur samræmt próf í ís-
lensku og 4.349 samræmt próf í
stærðfræði í 171 skóla eða nær
95% nemenda á skrá. Um 98%
nemenda á Norðurlandi vestra
þreyttu prófin en hlutfallið var
lægst á Suðurnesjum, 92-94%.
Stúlkurnar marktækt hærri
í íslensku í 4. bekk
Meðaleinkunn landsins í 4. bekk
var 6,6 í íslensku og 7,1 í stærð-
fræði. Á normaldreifðum kvarða
var meðaltalið í íslensku hæst á
Austurlandi eða 5,6 en lægst á
Suðurnesjum eða 4,4. Í stærðfræði
er hæsta einkunnin 5,1 í nágrenni
Reykjavíkur, á Suðurnesjum,
Norðurlandi eystra og Austur-
landi, en lægst á Suðurlandi eða
4,6.
Enginn munur er á frammistöðu
kynjanna í stærðfræði en stúlk-
urnar eru marktækt hærri en pilt-
arnir í íslensku. Hlutfall stúlkna
með lágar einkunnir er lægra en
hjá piltum og hlutfall stelpna með
háar einkunnir er hærra en hjá
strákum. Hlutfall einkunna í með-
allagi er áþekkt hjá báðum kynj-
um.
Meðaleinkunn í íslensku í Nes-
skóla í Fjarðabyggð var 6,4, í
Hvassaleitisskóla í Reykjavík 6,1
og síðan komu nemendur í Mela-
skóla og Landakotsskóla með 6,0 í
meðaleinkunn.
Nemendur í Nesskóla fengu 7,0 í
meðaleinkunn í stærðfræði. Næstir
komu nemendur í Hvassaleitis-
skóla í Reykjavík með 6,9 í með-
aleinkunn, þá nemendur í Flata-
skóla í Garðabæ með 6,2, í
Davíkurskóla og grunnskólanum á
Eskifirði með 6,1 og síðan komu
nemendur í Fossvogsskóla og
Grundaskóla á Akranesi með 6,0 í
meðaleinkunn.
Marktækur munur í 7. bekk
Hlutfall nemenda sem þreyta
samræmd próf í 7. bekk hefur ver-
ið um 96% á hverju ári og er hlut-
fallið óbreytt eða frá 93% til 98%
eftir kjördæmum.
Munur á landsbyggðinni og höf-
uðborgarsvæðinu er áfram mark-
tækur. Stelpur stóðu sig betur en
strákar í íslensku en lítill munur er
á frammistöðu kynjanna í stærð-
fræði.
Á nýliðnu hausti voru 4.736 nem-
endur skráðir í 7. bekk. 4.548
þeirra þreyttu próf í íslensku eða
96% og 4.580 nemendur í stærð-
fræði í 172 skólum.
Hlutfallslega tóku flestir ís-
lenskuprófið á Norðurlandi vestra
(97,5%) en fæstir á Suðurnesjum
(93,4%). Í stærðfræði tóku 98,4%
prófið á Vestfjörðum en fæstir á
Suðurnesjum eða 94,5%.
Meðaleinkunn landsins á kvarð-
anum 1 til 10 var 7,0 í íslensku og
7,6 í stærðfræði. Meðaleinkunnir
landshluta á normaldreifðum
kvarða eru frá 4,3 til 5,2 í íslensku,
hæstar í nágrenni Reykjavíkur og
á Norðurlandi eystra en lægstar á
Suðurnesjum. Í stærðfræði eru
þær frá 4,5 (á Suðurnesjum) til 5,1
(í nágrenni Reykjavíkur, á Vest-
fjörðum og Norðurlandi eystra).
Meðaleinkunn stráka er 4,9 í
stærðfræði en stelpna 5,1 og er
munurinn marktækur. Í íslensku
er mun meiri munur á kynjunum.
Þar eru rúm 19% pilta með háa
einkunn en 29% stúlkna.
Meðaleinkunn stúlkna í íslensku
er vel yfir 5,0 í öllum landshlutum
nema á Suðurnesjum og á Vest-
urlandi.
Meðaleinkunnir í íslensku í
grunnskóla Reyðarfjarðar voru 6,6,
í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi 6,2
og í Melaskóla, Austurbæjarskóla,
Fossvogsskóla, Snælandsskóla í
Kópavogi, Varmalandsskóla í
Borgarfirði og Brekkuskóla á Ak-
ureyri 6,0. Í stærðfræði voru með-
aleinkunnirnar 7,1 í grunnskóla
Reyðarfjarðar, 6,1 í grunnskóla
Bolungarvíkur og 6,0 í Ártúnsskóla
og Reykholtsskóla.
Niðurstöður samræmdra prófa í 4. og 7. bekk haustið 2002
Hæstu meðaleinkunnir
nemenda í Fjarðabyggð
/*<*$0*
$# *)
#"* B;
,$-#."#
)*,$-#."# *
*$
=$! *<
=$!0**
/* *<"$!*
/* *<$-!*
! *<
*<
23
;
.6< .6<
&' '(
$B
$#
$B
$#
'$<()!!/0
/*<*$0*
$# *)
#"* B;
,$-#."#
)*,$-#."# *
*$
=$! *<
=$!0**
/* *<"$!*
/* *<$-!*
! *<
*<
23
.6< .6<
&' '(
$B
$#
$B
$#
'$<()!!/0
GUÐMUNDUR Páll Ólafsson hef-
ur sent Morgunblaðinu eftirfar-
andi athugasemd vegna ummæla
Hákons Aðalsteinssonar í blaðinu
17. janúar. Fyrirsögn er höfundar.
„Frá því að Landsvirkjun söðl-
aði um og stökk á Kárahnjúka-
virkjun í stað Fljótsdalsvirkjunar
og þar til matsskýrsla átti að vera
tilbúin var rétt um eitt ár. Það
þýðir: Eitt íslenskt sumar í sýna-
tökur og svæðisbundnar rannsókn-
ir á umfangi og afleiðingum lang-
stærstu áformuðu framkvæmdar
Íslandssögunnar. Þetta er því mið-
ur hryggileg staðreynd málsins.
Hákon Aðalsteinsson vatnalíf-
fræðingur fullyrðir í Morgun-
blaðinu á föstudag (bls.6) að „eitt
íslenskt sumar“ sé fjarri sanni hjá
mér og setur samasem merki á
milli almennra rannsókna á nátt-
úrufari og jarðfræði vegna LSD
annars vegar og Kárahnjúkavirkj-
unar hins vegar. Kárahnjúkavirkj-
un er ekki sama og LSD – sem er
eins konar helför virkjana og
vatnaflutninga norðan Vatnajökuls
sem hvorki Orkustofnun né Lands-
virkjun vilja ræða upphátt núna.
Vandinn er sá að náttúrurann-
sóknir eru afar flókin viðfangsefni.
Fólk þarf að melta niðurstöður til
að skilja og eitt sumar til sýnitöku
og einn vetur til að vinna úr og
skilja allt samhengið við umfangs-
mestu náttúruspjöll Íslandsögunn-
ar – er einfaldlega ósanngjarnt og
um leið háskaleg vinnubrögð.
Gróðurfar, smádýralíf, fuglalíf,
vistfræði (samhengi hlutanna) –
þetta var allt unnið á einu íslensku
sumri þótt til væru eldri rann-
sóknir um gróðurfar og gróður-
kort, sem vafalítið hafa komið sér
vel. En vegna þessarar óeðlilegu
tímapressu var aldrei unnið eins
og skyldi. Engar rannsóknir á lág-
plöntum fóru til dæmis fram í
Kringilsárrana og svo til engar líf-
fræðirannsóknir fóru fram á
Hraunum – austan Eyjabakka –
nema vatnalífsrannsóknir. Engar
haf- eða sjávarlífsrannsóknir fóru
fram þetta sumar. Þær hefðu þurft
að byrja mörgum árum fyrr. Samt
er skylda að framkvæma allar
þessar rannsóknir. Og mikið er
óunnið enn. Meðal annars var
rannsóknum frestað þar sem taka
átti virkjunina í tveimur áföngum.
Nú á að eyðileggja allt í einum
rykk – einni framkvæmd.
Gott væri nú ef Hákon vatna-
líffræðingur setti saman yfirlit fyr-
ir þá sem hann vinnur fyrir þ.e.
þjóðina – yfir rannsóknir á áhrifa-
svæði Kárahnjúkavirkjunar sem
átti að rannsaka en var aldrei gert
– og ekki gleyma héraði. Þá væri
líka gott að fá sögulegt yfirlit um
LSD.
Ég minntist ekki orði á svif-
aursmælingar í Jöklu sem Hákon
státar af. Það hefði ég ekki gert í
hans sporum. Ekki svo að skilja að
þær hefðu verið illa unnar. Flestar
þessar rannsóknir voru unnar af
alúð og kostgæfni af hæfustu
mönnum þann skamma tíma sem
þeir höfðu. En mælingarnar hófust
rúmu ári eftir mjög langvinnt og
stórt hlaup sem byrjaði í ágúst
1963. Einmitt vegna þessa lang-
vinna hlaups hefði ég ekki minnst
orði á þetta. Slíkt rosahlaup sem
ekki er inni í reikningsdæminu
gefur margt válegt til kynna og
meðal annars að lífdagar uppi-
stöðulóns geti verið mun færri en
áætlað hefur verið.
Botnskrið framburðs í jökulám á
Íslandi er lítt þekkt fyrirbæri.
Reynsla af mælingum á því er nær
engin, aðferðafræði og þekking
bágborin. Í skýrslu VST stendur:
„Fyrstu mælingar á botnskriði í
Jökulsá á Brú …voru gerðar sum-
arið 2000 í alls 5 daga.“
VST er að meta aurburð og set-
myndun í Hálslóni jafnvel 100 ár
fram í tímann – með fimm daga
mælingum – með aðferðafræði
sem er ekki á hreinu. Jökla er auk
þess dyntótt fljót og miðað við
Þorvald Thoroddsen og aðrar
heimildir virðast stóratburðir í
Jöklu vera að meðaltali tvisvar á
öld.
Því miður bendir fjölmargt til
þess að stíflustæðið sé ónýtt og að
Kárahnjúkavirkjun sé illa grundað
glæfraspil vegna ónógra rann-
sókna.
En ég þakka Hákoni fyrir að
opna umræðuna. Geri það sem
flestir.“
Illa grundað glæfraspil
vegna ónógra rannsókna
RAGNHEIÐUR Bragadóttir, pró-
fessor í lagadeild Háskóla Íslands,
segir skilorðsbindingu dóma oft beitt
ef sakborningur er ungur eða brýtur
af sér í fyrsta sinn.
Ungur karlmaður var um miðjan
janúar dæmdur í fimm mánaða fang-
elsi fyrir líkamsárás á veitingahúsi á
Dalvík um jólin 2001. Með brotinu
rauf hann skilorð dóms frá því í mars
árið 2000. Var sá dómur tekinn upp og
honum gerð refsing í einu lagi fyrir
bæði málin. Refsingunni var frestað
um fjögur ár haldi maðurinn skilorði.
Ragnheiður segir að ef einstakling-
ur sem er á skilorði er tekinn fyrir
smávægilegt brot er dómstólum
heimilt að dæma refsingu fyrir það
brot sér en láta gamla skilorðsdóminn
haldast. Það komi þó einkum til
greina ef nýja brotið er ekki framið af
ásettu ráði eða varði aðeins sektum.
Ef brotið sé alvarlegra þá taki dóm-
urinn bæði málin til meðferðar og
dæmi í einu lagi. Síðan segir Ragn-
heiður að heimilt sé að hafa þann dóm
skilorðsbundinn einnig. Þá er nýi
dómurinn skilorðsbundinn fyrir bæði
gamla og nýja brotið.
Hún segir það matsatriði dómara
hvort einstaklingar fái skilorðsbund-
inn dóm þegar þeir brjóti af sér í ann-
að sinn, en það er heimilt gagnvart
lögum. Sé seinna brotið alvarlegt eru
meiri líkur á að sameiginlegur dómur
sé ekki skilorðsbundinn.
Heimilt að
dómur sé skil-
orðsbundinn í
annað sinn
Í FJÓRUM ráðuneytum, iðnað-
ar- og viðskiptaráðuneyti, fé-
lagsmála-, menntamála- og sam-
göngumálaráðuneyti, eru settir
ráðuneytisstjórar við stjórnvöl-
inn en ekki skipaðir. Í lögum er
kveðið á um að auglýsa skuli
stöður vari forföll í meira en eitt
ár en svo virðist sem því hafi
ekki verið fylgt í öllum tilvikum.
Þetta gagnrýnir Gísli Tryggva-
son, hdl. og framkvæmdastjóri
Bandalags háskólamanna
(BHM), og bendir á að t.d. hafi
komið fram í fjölmiðlum að
embætti ráðuneytisstjóra fé-
lagsmálaráðuneytis væri laust í
tvö ár vegna forfalla. Það emb-
ætti hafi því átt að auglýsa.
„Almennt talað hafa menn
sneitt af auglýsingaskyldunni,
bæði með því að reyna að fá
reglum breytt eða með því að
fara hreinlega ekki eftir þeim.
Vandamálið er hins vegar að
reglunum fylgja engin viðurlög.
Því miður kemur eina aðhaldið
frá umboðsmanni Alþingis í ein-
staka málum og svo frá sam-
tökum á borð við BHMR en það
gleymist fljótt en kostar ekkert
að brjóta reglurnar.“
Gísli minnir á að auglýsinga-
skylda gildi þegar skipa eigi í
stöðu ráðuneytisstjóra en það
velti á því hvort sett sé til
skemmri eða lengri tíma hvort
auglýsa skuli eða ekki. Í lögum
um réttindi og skyldur starfs-
manna ríkisins sé kveðið á um
það að stjórnvöld geti sett mann
til að gegna embætti um stund-
arsakir en þó aldrei lengur en í
eitt ár. Jafnframt megi setja
mann til reynslu í embætti, áður
en hann er skipaður í það, til
eins árs í senn en þó aldrei
lengur en tvö ár.
„Þetta ákvæði á hins vegar
ekki við í þessum tilvikum því
það er ekki verið að setja menn
til reynslu eða reyna menn í
starfi heldur eru menn settir
vegna forfalla og þá gildir regl-
an um eitt ár. Séu menn settir
til reynslu er skylt að auglýsa
starfið og eins ef forföll vara
lengur en eitt ár. Ég tel mjög
hæpið að setja menn í eitt ár án
auglýsingar í embætti, eins og
t.d. ráðuneytisstjóra félagsmála-
ráðuneytisins, þegar fyrir liggur
að starfið er laust í tvö ár. Í því
tilviki finnst mér mjög óeðlilegt
að starfið hafi ekki verið aug-
lýst.“
BHM um setta ráðuneytisstjóra
Á að auglýsa ef
forföll vara í
meira en eitt ár
Í TVÍGANG var reynt að brjótast
inn í fyrirtæki við Suðurlandsbraut
um helgina. Í báðum tilvikum, sem
voru með hálftíma millibili, reyndi
þjófurinn að spenna upp glugga á
annarri hæð.
Þjófavörn, sem var beintengd við
Öryggismiðstöð Íslands, fór í gang
sem hræddi þjófinn á braut í bæði
skiptin. Hann náðist ekki en hafði
sjálfur lítið upp úr krafsinu annað en
öran hjartslátt.
Reyndi inn-
brot tvisvar
♦ ♦ ♦