Morgunblaðið - 21.01.2003, Qupperneq 25
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 25
ÞANN 1. október 2002 tóku gildi
nýjar reglur í Kína er varða allan
innflutning til landsins frá Evrópu-
sambandinu. Reglur þessar eru sett-
ar til að hamla gegn því að hættuleg
meindýr s.s. barkbjöllur og aðrar
trjáviðarbjöllur berist með umbúð-
um og vörubrettum úr trjáviði er
fylgja vörum við flutning til landsins.
Reglugerð þessi var sett 28. júní
2002 og kemur skýrt fram í enskri
þýðingu hennar að einungis sé átt
við innflutning frá Evrópusamband-
inu. Á hún því ekki að ná yfir inn-
flutning frá Íslandi og fékkst þetta
staðfest við fyrirspurn sendiráðs
okkar í Kína til yfirvalda þar í landi í
fyrra.
Hins vegar er höfundi kunnugt um
að útflytjandi hafi fengið það svar frá
tollyfirvöldum í Kína að reglurnar
gildi einnig fyrir Ísland. Norðmenn
sem eins og Íslendingar standa utan
Evrópusambandsins hafa búið sig
undir að reglur þessar gildi einnig
um útflutning þeirra til Kína. Oft er
vörum héðan umskipað í Evrópu-
sambandslöndum og því hætt við að
erfitt geti verið að sannfæra kín-
versk tollyfirvöld um undanþágu
okkar. Ekki er ólíklegt að mildilega
hafi verið tekið á málum til að byrja
með og að fyrst reyni á framkvæmd-
ina nú er líða tekur á þetta ár. Er því
rétt að gera nánar grein fyrir um
hvað málið snýst.
Ef notaðir eru trékassar eða tré-
bretti sem fylgja eiga vörunni inn í
Kínverska alþýðulýðveldið þá verður
trjáviðurinn að vera laus við börk og
á að hafa hlotið meðhöndlun sem við-
urkennt er að drepi meindýr. Send-
ingunni á að fylgja plöntusjúkdóma-
vottorð („phytosanitary certificate“)
sem staðfestir að umrædd með-
höndlun hafi farið fram, en hér á
landi er það plöntueftirlit Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins sem
gefur slík vottorð út. Sérstakar
merkingar eiga að vera á umbúðun-
um sem sýna hvers konar meðhöndl-
un hefur farið fram. Sú meðhöndlun
sem Kínverjar viðurkenna er í fyrsta
lagi gösun með metýlbrómíði sem
ekki er mögulegt að framkvæma hér
á landi. Í öðru lagi viðurkenna þeir
hitameðhöndlun þar sem hiti innst í
viði nær 56 gráðum í minnst 30 mín-
útur.
Ef engar tréumbúðir eða trébretti
fylgja vörunni eða ef eingöngu er
notaður viður eins og krossviður
segja reglurnar að fylgja eigi sérstök
yfirlýsing frá útflytjanda um að svo
sé.
Útflutningur til Kína
og tréumbúðir
Eftir Sigurgeir
Ólafsson
„Fyrst reyni
á fram-
kvæmdina
er líða tekur
á þetta ár.“
Höfundur er forstöðumaður
plöntueftirlits Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins.
AÐ UNDANFÖRNU hefur mik-
ið verið rætt og ritað um stjórn-
mál, bæði hér í borginni og á
landsvísu. Það styttist óðum í al-
þingiskosningar, framboðslistar
líta dagsins ljós og hver skoðana-
könnunin rekur aðra.
Í spjallþáttum í útvarpi og sjón-
varpi keppast landsmenn um að
tjá sig um landsmálin, stjórnmála-
stefnur og stjórnmálamenn og er
það vel. Það er gott að í upphafi
kosningavetrar hugsi fólk um
stjórnmál og hvernig málum
landsins verði best fyrir komið
næstu fjögur árin. En hvað heyrir
maður? Ég hef reynt að fylgjast
með umræðunni síðustu vikur og
undra mig mjög á skoðunum og
viðhorfum margra. Einnig kem ég
ekki auga á ástæður þess hvers
vegna Framsóknarflokkurinn fær
svo lítið fylgi í skoðanakönnunum
sem raun ber vitni.
Þegar ég sem kjósandi skoða
hug minn til stjórnmálaflokka og
stjórnmálamanna horfi ég á
stefnumál, efndir og trúverðug-
leika. Hvað skiptir mestu máli í
fari stjórnmálamanna? Skiptir það
mestu máli að standa sig vel í
kappræðum, koma vel fyrir sig
orði, vega með háði að andstæð-
ingum sínum, slá um sig með orð-
skrúði og gífuryrðum? Margt af
þessu má eflaust telja stjórnmála-
mönnum til tekna. En góður
stjórnmálamaður er í mínum huga
maður sem er heiðarlegur, vinnu-
samur og hefur þekkingu á þeim
málum sem upp koma hverju sinni.
Þetta eru eiginleikar sem góður
starfsmaður, í hvaða starfi sem er,
þarf að búa yfir. Því finnst mér
ómaklegt þegar ítrekað er í fjöl-
miðlum að formaður Framsóknar-
flokksins, Halldór Ásgrímsson,
hafi ekki skemmtilega framkomu,
sé þungur á brún og dvelji lang-
dvölum erlendis. Ummæli sem
þessi dæma sig sjálf, en síend-
urtekin meitla þau steininn og fólk
fer að trúa því sem það heyrir. Á
svipaðan hátt og sumum Reykvík-
ingum finnst Ingibjörg Sólrún hafi
verið rekin úr stóli borgarstjóra
en sjá ekki að stjórnmálamaður í
hennar stöðu gat alls ekki komið
fram sem trúverðugur fulltrúi
þriggja ráðandi flokka í Reykjavík
og samtímis helgað sig harðri
kosningabaráttu hjá Samfylking-
unni. Hún valdi Samfylkinguna
fram yfir það að leiða R-listasam-
starfið og gegna störfum borgar-
stjóra.
Það vill nú þannig til að Halldór
Ásgrímsson, formaður Framsókn-
arflokksins, er utanríkisráðherra
landsins og verður því væntanlega
að dvelja erlendis oftar og lengur
en hann sjálfur óskaði sér. Hann
er fulltrúi landsins í ótal málum,
smáum sem stórum, sem snúa að
samskiptum landsins við umheim-
inn. Halldór Ásgrímsson er stjórn-
málamaður sem hefur í gegnum
árin notið víðtæks trausts lands-
manna, hann leggur mál sín fram á
trúverðugan hátt, án upphrópana
og fagurgala. Það er styrkur fyrir
Reykjavík og Reykvíkinga að fá
hann hingað á mölina. Því er það í
hæsta máta ómálefnalegt að meta
störf og hæfileika manna út frá
framkomu þeirra í fjölmiðlum. Mín
skoðun er sú að stjórnmál snúist
um allt annað og mikilvægari hluti
en „fjölmiðlavæna“ framkomu.
Á hverjum tíma er verið að
vinna með framtíð þjóðarinnar og
sætta ólík sjónarmið á lýðræðis-
legan hátt. Framsóknarflokkurinn
hefur á liðnum árum lagt allt kapp
á að vinna vel, en auðvitað segir
sig sjálft að í samvinnu tveggja
ólíkra flokka verður á stundum að
sætta ólík sjónarmið og koma sér
saman um vænlegasta kostinn í
stöðunni.
Þingmenn og ráðherrar Fram-
sóknarflokksins hafa ekki skorast
undan því að taka að sér erfið og
vandasöm verkefni og ráðuneyti.
Ráðuneyti sem kalla á síaukið fjár-
magn og snúa að daglegu lífi fólks-
ins í landinu. En því miður halda
framsóknarmenn ekki utan um
ríkisfjármálin í þessari ríkisstjórn
þó að tekist hafi að auka verulega
framlög til heilbrigðis- og félags-
mála í ráðherratíð framsóknar-
manna. Framsóknarflokkurinn
hefur alla tíð staðið vörð um þau
grundvallargildi sem Íslendingar
trúa á og má þar nefna traust og
öruggt atvinnulíf, sem óneitanlega
er undirstaða þess velferðarþjóð-
félags sem við öll viljum viðhalda.
Flokkurinn hefur staðið vörð um
gott heilbrigðis- og menntakerfi í
höndum ríkisins og skynsamlega
nýtingu auðlinda landsins.
Niðurstöður skoðanakannana og
gengi Framsóknarflokksins, bæði
hér í Reykjavík og út um land, eru
því í mínum huga óskiljanleg. Auð-
vitað finnst okkur framsóknar-
mönnum þetta slæm tíðindi en trú-
um ekki öðru en að kjósendur
endurskoði afstöðu sína þegar
kosningastefnuskrá liggur fyrir og
málefnaleg umræða fer af stað um
verk framsóknarmanna á liðnu
kjörtímabili. Mikil vinna bíður
okkar framsóknarmanna um allt
land. Eftir að moldviðri síðustu
daga hefur gengið yfir er kominn
tími til að hefjast handa, safna liði
og nota hvert tækifæri sem gefst
til að kynna stefnu og störf Fram-
sóknarflokksins.
Viðhorf til stjórn-
málamanna
og stjórnmálaflokka
Eftir Fannýju
Gunnarsdóttur
Höfundur er kennari og
námsráðgjafi í Reykjavík..
„Þingmenn
og ráðherrar
Framsókn-
arflokksins
hafa ekki
skorast undan því að
taka að sér erfið og
vandasöm verkefni og
ráðuneyti.“
MEÐ því að sameina krafta okkar
geta Norðurlöndin orðið sterkt afl í
Evrópu. Við getum miðlað af reynslu
okkar hvað varðar uppbyggingu lýð-
ræðis, velferðarkerfis og samvinnu.
Norðurlöndin geta einnig lagt sitt af
mörkum með framsækinni umhverf-
isstefnu og með jafnréttissjónarmið-
um. Samhæfing Norðurlandanna
hefur lengi verið fyrirmynd annarra
Evrópuþjóða. Þegar á sjötta ára-
tugnum mynduðum við sameiginleg-
an norrænan vinnumarkað, löngu áð-
ur en hugmyndin að innri markaði
Evrópusambandsins leit dagsins ljós.
Samhæfing er einnig efst á baugi í
dag þegar Svíþjóð tekur við for-
mennsku í Norræna ráðherraráðinu.
Við erum nú þegar hluti af hinni fjöl-
menningarlegu og fjölþjóðlegu Evr-
ópu. Nú er mikilvægt að við á Norð-
urlöndunum göngum skrefi lengra
og gerum samfélög okkar að einu
svæði.
Fyrsta skrefið í því starfi er að af-
nema landamærin á milli Norður-
landanna. Það ætti að vera auðvelt að
búa í Danmörku og vinna í Svíþjóð
eða að búa í Svíþjóð og vinna í Finn-
landi. Ég er afskaplega ánægð með
að njóta aðstoðar Pouls Schlüters,
sem er sérlegur fulltrúi minn í mál-
efnum sem varða landamærahindr-
anir á milli Norðurlandanna.
Poul Schlüter er fyrrverandi for-
sætisráðherra Danmerkur. Hann
hefur þá reynslu og þau sambönd
sem þarf til þess að losa okkur við
þessar hindranir. Með sameiginlegu
átaki getum við samræmt lönd með
mismunandi ríkisstjórnir og mis-
munandi löggjafir. Við höfum svo
lengi rætt um að losa okkur við síð-
ustu hindranirnar á milli landa okk-
ar; nú er svo sannarlega kominn tími
til þess að hrinda því í framkvæmd!
Við viljum að fólk geti sótt vinnu
eða skóla yfir landamærin. Við viljum
að fyrirtækjum eigi að vera frjálst að
hasla sér völl á öllum Norðurlöndun-
um, í einu eða fleiri löndum. Sú er nú
þegar raunin á pappírunum en þegar
á reynir eru ýmsar fyrirstöður.
Við eigum eftir að ráða fram úr
nokkrum atriðum sem varða skatta
og almannatryggingar. Þetta á einn-
ig við um atriði eins og gildi persónu-
skilríkja og ökuskírteina á Norður-
löndunum. Einnig verðum við að
auðvelda framkvæmd peningayfir-
færslna.
Við getum ekki samræmt Norður-
löndin algjörlega. Aftur á móti er
hægt að ryðja veginn fyrir þá sem
starfa í fleiri en einu landi og fyrir þá
sem flytja á milli Norðurlandanna
vegna vinnu eða af öðrum ástæðum.
Ráðuneyti og stjórnvöld verða að
leggja áherslu á að afgreiða þessi
mál. Þetta er ekki síst mikilvægt
hvað varðar Eyrarsundssvæðið!
En samræming hefst heima fyrir.
Á formannsári Svía viljum við leggja
áherslu á samþættingu í ýmsum
myndum. Hvert land fyrir sig verður
að hleypa nýbúum að í samfélaginu,
ekki síst konunum. Allir eiga rétt á
atvinnu. Vinnunni fylgir félagsleg
samstaða, betri málakunnátta og
fjárhagslegt sjálfstæði.
Það verður að endurskoða mót-
töku flóttamanna á Norðurlöndun-
um. Skólarnir verða að koma til móts
við nemendur sem eru af erlendu
bergi brotnir. Börn og unglingar
mega aldrei vera látin mæta afgangi!
Allir verða að taka þátt í samfélag-
inu.
Samræming Norðurlanda og
grannsvæða er einnig ofarlega á
baugi. Útreikningar hafa sýnt fram á
að íbúafjöldinn á Norðurlöndunum
muni aukast um 0,6 prósent á ári
þegar Pólland og Eystrasaltslöndin
ganga í ESB. Samvinna Norður-
landanna og baltnesku landanna í
nokkrum málaflokkum er góð viðbót
við þá tvíhliða samninga sem þegar
hafa verið gerðir. Þetta er samvinna
sem ætti að efla. Samvinnan um um-
hverfismál Eystrasalts á að efla
þannig að hægt verði að koma á sjálf-
bærri þróun. Við höldum ótrauð
áfram baráttunni gegn mansali.
Að lokum verður að vera betri
samræming á milli Norðurlandanna
og ESB. Þrjú Norðurlandanna eru í
ESB og tvö landanna byggja sam-
vinnu sína við ESB á EES-samn-
ingnum. Evrópusamstarfið hefur
ekki ýtt Norðurlandasamstarfinu til
hliðar heldur þvert á móti; það má
frekar segja að Evrópusamstarfið ýti
undir samstarf Norðurlandanna. Við
á Norðurlöndunum stöndum saman í
Evrópu.
Við Norðurlandabúar verðum að
koma okkur saman um hvaða Evr-
ópusambandsmál við erum sammála
um, og reka svo þau mál saman. Við
ættum einnig að sjá til þess að fram-
kvæmd reglugerða frá ESB sé sam-
hæfð á öllum Norðurlöndunum. Við
viljum t.d. samhæfa endurskoðun
reglugerðar fyrir sjónvarp.
Við á Norðurlöndunum eigum
langa sögu að baki í umhverfis- og
jafnréttismálum og það ættum við að
notfæra okkur.
Á formannsári Svía í Norrænu
ráðherranefndinni viljum við miðla
þekkingu. Rekstraraðilar fyrirtækja
á Norðurlöndunum geta lært ýmis-
legt hverjir af öðrum og við getum
stuðlað að því að koma á nýjum
tengslum. Háskólar geta einnig auk-
ið samvinnu sína yfir landamærin.
Norðurlöndin eiga að taka virkan
þátt og stuðla að þróun. Bæði í
grannríkjunum og í hinni nýju Evr-
ópu.
Norrænt samstarf
Eftir Berit Andnor „Við á Norð-
urlöndunum
stöndum
saman í
Evrópu.“
Höfundur er norrænn samstarfs-
ráðherra Svía og formaður Norræna
ráðherraráðsins 2003.
Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • 562 8501 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is
BIC Atlantis penni
Verð 90 kr/stk
STABILO SWING
áherslupenni Verð
70 kt/stk
Ljósritunarpappír 400 kr/pakkningin
Skilblöð númeruð,
lituð, stafróf eða eftir
mánuðum.Geisladiskar þar sem gæðin skara framúr í10-25-50 og 100 stk einingum
NOVUS
B 425
4ra gata, gatar 25 síður.
Verð 2.925 kr
TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 310 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2003
Ljósritunarglærur,
100 stk í pakka.
Verð 1.599 kr/pk
Bleksprautu
50 stk í pakka 2.990 kr/pk
STABILO BOSS
Verð 78 kr/stk