Morgunblaðið - 21.01.2003, Qupperneq 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 49
SAMKVÆMT aðalsprautu þessarar
plötu, Sigurðar Kristinssonar sem eitt sinn
var meðlimur í Sniglabandinu góðkunna,
var ætlunin með henni að hrista aðeins upp
í góðkunnum jólalögum (sjá viðtal í Mbl., 20.
des. ’02). Lögin hafi hins vegar farið „eigin
leiðir“ og minna hafi orðið úr gruflinu en
efni stóðu til. Við hlustun
verð ég þó að andæfta Sig-
urði því útkoman úr þessu
verkefni er æði furðuleg,
hvort sem það var ætlunin
eða ekki. Sannarlega fara
lögin eigin leiðir, en mig
grunar að stundum séu áttirnar miður æski-
legar.
Það sem fyrst vekur athygli er skrýtileg
upptaka. Hljóðfærin eru einhvern veginn á
tvist og bast í hljóðblönduninni; trommur á
stundum yfirgnæfandi og önnur hljóðfæri í
sumum tilfellum lítt heyrileg. Hljómur þá
oft kaldur og vélrænn og hljóðfæraleikur
einkennilega hastur.
Lögin hér eru mismunandi skringileg.
Andrea Gylfadóttir syngur tvö þeirra: „Nú
er Gunna á nýjum skóm“ (svo) er sett í
ringlandi blúsbúning og er ágætlega gaman
hægt að hafa af þeirri útgáfu. Hið síðara – í
tvíþættum skilningi – „Gefðu mér gott í skó-
inn“ er hins vegar það einkennilegt að það
fer heilhring og fælir því frá. Þrjár aðrar
söngkonur ljá Sigurði lið og standa sig mis-
jafnlega. Halla Dröfn og Hólmfríður Rafns-
dóttir komast vel frá sínu en skynsamlegra
hefði verið að gefa hinni ungu Sigrúnu Völu
lengri tíma áður en henni var hleypt á plast.
Hún veldur því miður ekki sínum lögum.
Eftirminnilegustu lögin eru „Litli tromm-
arinn“ og „Álfadans“, og eru það vegna
skemmtilegs þungarokksvinkils sem á þau
er settur. Önnur lög ná ekki að heilla, ekki
einu sinni fyrir furðulegheitin. Velflest detta
þau niður flöt og skilja mann eftir, klórandi
sér í hausnum. Þá eykur það á kynlegheitin
að tíunda lagið er ellefu mínútur að lengd
og heitir „Fyrirheit“. Lagið stendur ekki í
neinum tengslum við það sem á undan fer
og er víst forsmekkur að einherjaskífu Sig-
urðar. Afkáraleg smíð.
Upprunalega hugmyndin – að leika sér
með góð og gild jólalög – er að sjálfsögðu
skemmtileg og dæmi eru um að vel hafi ver-
ið unnið úr henni. En hér er skotið hressi-
lega yfir markið.
Þá er umslag afleitt og lítt jólalegt.
Ég get ekki annað en komist að þeirri
niðurstöðu að fædd sé fyrsta hamfara-jóla-
platan á Íslandi. Hér er á ferðinni stór-
furðulegt verk sem mögulega er hægt að
hafa gaman af – vilji menn á annað borð
hafa það þannig.
Tónlist
Furðuleg jól
Ýmsir
Jólaplata – Svona vil ég hafa það
Vefsmiðjan sf.
Jólaplata – Svona vil ég hafa það. Hljóðfæraleikur
var í höndum Daniels Cassidy (fiðlur), Pálma Sig-
urhjartarsonar (píanó, strengir og Hammond) og
Sigurðar Kristinssonar (allt annað). Söngvarar eru
Andrea Gylfa, Halla Dröfn, Sigrún Vala og Hólm-
fríður Rafnsdóttir.
Lög eftir ýmsa höfunda, innlenda sem erlenda. Upp-
tökumenn voru Sigurður Kristinsson og Gestur
Baldursson.
Arnar Eggert Thoroddsen
Morgunblaðið/Jim Smart
Andrea Gylfadóttir syngur tvö lög á plötunni.
EINLEIKURINN Selló-
fon, sem skartar Björk
Jakobsdóttur í burð-
arrullu, hefur nú flutt sig
yfir í gamla revíuleik-
húsið, hvar skemmtistað-
urinn Nasa í Reykjavík
er nú rekinn. Fyrsta sýn-
ing þar var síðastliðinn
föstudag. Þetta leikrit
Bjarkar, en hún semur
og handritið, hefur notið
fádæma vinsælda síðan
það var frumsýnt í Hafn-
arfjarðarleikhúsinu síð-
asta vor.
Morgunblaðið/Kristinn
Björk Jakobsdóttir, höfundur og leikari, var kampakát yfir nýju vistarverunum.
Gunnar Helgason, leikari og eiginmaður Bjarkar, heilsaði
upp á fóstbróður sinn Felix Bergsson.
Ofurkona flytur sig
Sellófon í Nasa
BÚIÐ er að loka plötubúðinni Hljóma-
lind. Að sögn eiganda, Kristins Sæ-
mundssonar, ætlar hann að loka og
læsa og flytja út til Englands. Versl-
unin Hljómalind var opnuð í Austur-
stræti árið 1991, en árið áður hafði
hún verið rekin sem póstverslun og
helgarsala í Kolaportinu. Hljómalind
hefur alla tíð verið ein helsta grasrót-
arplötubúðin hér á landi, jafnframt því
sem Kristinn hefur staðið að innflutn-
ingi erlendra listamanna og hljóm-
sveita hingað til lands undir merkjum
Hljómalindar.
„Ég er búinn að gefast upp á þessu
brasi,“ segir Kiddi. „Plötusalan stendur
ekki undir ævintýraþránni í mér leng-
ur. Salan er núna einn þriðji af því sem
áður var auk þess sem búð eins og
Hljómalind getur aldrei orðið einhver
massasölubúð.“
Það er engu að síður stutt í góða
skapið hjá Kidda, þrátt fyrir þessi
endalok.
„Jú, jú, þetta er búið að vera rosa
gaman en allt gott tekur einhvern tíma
enda. Núna erum við að róta í lag-
ernum, fara í gegnum einkasöfn og
undirbúa „Lok lok og læs“-útsölu sem
hefst fimmtudaginn 23. janúar kl. 12.00
og stendur yfir í tvær til þrjár vikur.“
Opið verður til kl. 20.00 þá virku
daga sem salan stendur yfir. Kiddi er
líka að skoða möguleikann á að halda
eitthvert lokahóf þegar allt er um garð
gengið.
„Ég fer svo til útlanda og ætla að
hugsa minn gang þar,“ segir Kiddi.
„En ég get ekki verið aðgerðalaus
lengi. Ég held örugglega áfram að
vinna í tónlist með einhverjum hætti.
Ísland er einfaldlega orðið allt of lítið
fyrir mig,“ segir hann hlæjandi að lok-
um, byrjaður að pússa vængina.
Plötubúðinni Hljómalind lokað
Morgunblaðið/Þorkell
„Allt gott tekur enda.“ Kiddi í Hljómalind
skyggnist inn í óráðna framtíð.
„Ísland
allt of lítið“
TENGLAR
.............................................................
www.hljomalind.is
Kvikmyndaleikkonan Renée
Zellweger hefur samþykkt að taka
að sér hlutverk Bridget Jones í
myndinni „The Edge of Reason“.
Áður hafði verið greint frá því að
Zellweger væri ekki tilbúin til að
taka að sér hlutverk Jones á ný þar
sem hún þyrfti þá að þyngjast veru-
lega. Nú hefur hún hins vegar lýst
því yfir að hún sé reiðubúin til þess.
„Ég er tilbúin til þess og fær um
það,“ segir hún. „Ég var svo stolt af
því að leika Bridget síðast og hún er
persóna sem ég finn til samkenndar
með þannig að ég fitna með gleði.“
...
Jackson 5 ætla að koma saman aft-
ur. Síðast spilaði sveitin saman fyrir
tuttugu árum en nú ætla þeir í
hljómleikaferðalag saman á næsta
ári. Jermaine Jackson upplýsti þetta
í spjallþætti Larry King.
...
Madonna er nú búin að koma hári
sínu í upprunalegt horf, en liturinn
ku dökbrúnn.
Hár söngkon-
unnar hefur borið
alla liti regnbog-
ans að heita má í
gegnum árin en
þessi nýjasta
breyting er talin í
takt við hið sett-
lega líferni sem
stjarnan er í æ
ríkari mæli að
taka upp. Hún og eiginmaðurinn,
Guy Ritchie, eru nú að reyna við
annað barn en Madonna á nú þegar
tvö börn.
FÓLK Ífréttum
DÓMUR um myndina hefur verið
birtur á vefritinu IndieWire (www.in-
diewire.com), sem er eitt helsta rit
óháðra og sjálfstæðra kvikmynda-
gerðarmanna svo og áhugamanna.
Segir að í höndum minni spámanna
hefði myndin leyst upp í móðursýki,
en handbragð Baltasars Kormáks
leikstjóra sé mjúkt sem flauel og
myndin haldi trúverðugleika sínum.
Dómurinn birtist samhliða frum-
sýningu Hafsins á föstudag á hinni
virtu Sundance-kvikmyndahátíð í
Bandaríkjunum. Í dómnum segir að
myndin sé gerólík 101 Reykjavík.
Sótt sé í Tsékov, Lé konung og leik-
stjórann John Ford og efni hennar sé
mótað á nákvæman og athugulan
hátt, sem undirstriki þá grimmd og
eymd, sem fjölskyldur valdi hver
annarri.
Hafið hlaut áhorfendaverðlaun á
kvikmyndahátíð í Tromsö um
helgina og fer á kvikmyndahátíðir í
Rotterdam, Gautaborg, Berlín, Los
Angeles og New York á næstu vik-
um.
Sótt í Tsékov, Lé konung og Ford
Hafinu
hrósað
Morgunblaðið/Þorkell
Baltasar Kormákur.