Morgunblaðið - 21.01.2003, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
HROSSIÐ Hjálmar frá Vatnsleysuströnd sem bitinn var af stóð-
hestum í æsku er nú með einkanuddara og iðkar leikfimi í góðu yf-
irlæti innan girðingar í Húsdýragarðinum í Laugardal. Fá hross
hafa það jafn gott og Hjálmar en hann vekur jafnan mikla aðdáun
vegna glæsileika síns hjá börnum sem koma og skoða hann. Hér er
hann við æfingar heima hjá sér í Húsdýragarðinum.
Morgunblaðið/Ómar
Hjálmar liðkar sig
FUGLABÚIÐ Móar hf. fékk í gær framlengda
greiðslustöðvun til 8. apríl nk. Við meðferð málsins
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur lagðist Búnaðarbanki
Íslands, viðskiptabanki Móa, gegn því að greiðslu-
stöðvunin yrði framlengd lengur en til 1. febrúar.
Móar fengu 19. desember sl. greiðslustöðvun í þrjár
vikur, en erfiðleikar hafa verið í rekstri fyrirtækisins.
Bókfærðar eignir búsins eru 1.090 milljónir en skuldir
1.442 milljónir. Fram kom í úrskurði Héraðsdóms að
unnið hefði verið að margvíslegum aðgerðum til að
bæta rekstur félagsins. Átta mánaða rekstur hefði
sýnt að framlegð fyrir afskrift sé jákvæð um 18,5 millj-
ónir og stefndi í 66 milljónir fyrir árið í heild í stað 80
milljóna neikvæðrar framlegðar á árinu 2001.
Greiðslustöðvunin rann út sl. föstudag, en þá ósk-
uðu stjórnendur Móa eftir að greiðslustöðvunin yrði
framlengd um þrjá mánuði. Dómarinn tók sér frest til
mánudags að úrskurða í málinu. Í Héraðsdómi í gær
kom fram að bankinn teldi „óásættanlegt að áfram-
haldandi greiðslustöðvun yrði lengur en til 1. febrúar
nk., nema fram kæmi viljayfirlýsing frá traustum aðila
eða aðilum um 200.000.000 kr. hlutafjáraukningu
skuldara í peningum“.
Fulltrúi Móa taldi að vilyrði fyrir nýju hlutafé feng-
ist ekki nema formlegir nauðasamningar kæmust á á
milli Móa og lánardrottna fyrirtækisins. En til að ná
fram nauðasamningum við lánardrottna, sem eru um
400, væri þörf á að semja frumvarp að nauðasamningi,
afla áskilins fjölda meðmælenda með frumvarpinu,
leggja fram beiðni fyrir héraðsdóm um heimild til að
leita nauðasamnings og tryggja frumvarpinu nægileg-
an stuðning. Allt þetta tæki tíma og því væri framleng-
ing á greiðslustöðvun um þrjá mánuði nauðsynleg.
Móar óska
eftir nauða-
samningum
ÞEGAR Valgerður Sævarsdóttir
var 11 ára gömul klippti hún hár
sitt eins og Vala Flosadóttir. Það
var liður í hennar áætlunum um að
verða jafn góð í stangarstökki og
Vala. Nú, þremur árum síðar, er
Valgerður vel á áætlun. Um helgina
bætti hún níu ára gamalt meyj-
armet Völu með því að stökkva 3,06
metra í stangarstökki.
Líkt og Vala og Þórey Edda El-
ísdóttir eru jafnan nefndar í sömu
setningu gæti svipað átt við Val-
gerði og stöllu hennar, Fanneyju
Björk Tryggvadóttur, í framtíðinni.
Fanney stökk sömu hæð og því
deila þær meyjarmetinu.
„Mig langaði til að prófa að fljúga
niður á dýnuna þegar ég var lítil,“
sagði Valgerður ástæðuna fyrir því
að hún valdi stangarstökkið. „Ég
prófaði þetta einhvern tímann og
Hlynur [Guðmundsson þjálfari]
sagði að ég gæti orðið ágæt.“ Val-
gerður hefur æft stangarstökk í
þrjú ár og á mjög erfitt með að gera
það upp við sig hvort hún heldur
meira upp á Völu eða Þóreyju
Eddu. „Ég hef talað við Þóreyju,“
sagði Valgerður og bætti því við að
draumur hennar væri að komast á
Ólympíuleika.
Þrátt fyrir að vera aðeins 14 og
15 ára æfa stúlkurnar fimm sinnum
í viku, Valgerður með Aftureldingu
en Fanney Björk með ÍR.
Fanney Björk átti alveg von á því
að stökkva svona hátt enda hefur
hún stokkið hæst 3,10 metra utan-
húss. „Vala og Þórey Edda eru mín-
ar helstu fyrirmyndir,“ sagði Fann-
ey Björk og bætti því við að þær
hefðu átt nokkurn þátt í því að hún
fór að æfa stangarstökk. „Ég fór til
Svíþjóðar í sumar og þar hitti ég
Völu og svo hef ég talað við Þóreyju
Eddu. Þær hvöttu mig áfram,“
sagði Fanney Björk. „Ég stefni hátt.
Draumurinn er að komast á stór-
mót,“ sagði Fanney Björk stórhuga.
Langaði að fljúga
Morgunblaðið/Þorkell
Fanney Björk Tryggvadóttir, ÍR, og Valgerður Sævarsdóttir, Aftureld-
ingu, slógu meyjarmet Völu Flosadóttur í stangarstökki um helgina.
Í SKÝRSLU greiningardeildar
bankans Credit Suisse First Boston,
CSFB, segir að byggingarkostnaður
fyrirhugaðs álvers Alcoa á Austur-
landi verði lágur miðað við fram-
leiðslumagn. Álverið á að framleiða
322.000 tonn á ári og kostnaðurinn er
áætlaður 1,1 milljarður Bandaríkja-
dala, jafnvirði 87 milljarða króna.
Það jafngildir því að byggingar-
kostnaður á hvert framleitt tonn á ári
sé 3.416 dalir, eða 271 þúsund krón-
ur.
Greiningardeild CSFB segir að
þessi lági byggingarkostnaður komi
á óvart, því þó að Ísland sé eftirsókn-
arverður staður fyrir álframleiðslu
vegna hagstæðrar orku, sé ekki sér-
staklega ódýrt að byggja hér á landi.
Þar að auki hafi Alcoa sagt að álverið
eigi að verða hið umhverfisvænasta í
heimi og að þessi áhersla á umhverf-
ismál hafi gert framkvæmdina dýr-
ari en ella.
Telja að hlutabréf
í Alcoa hækki
Í skýrslu CSFB segir að fyrirhug-
að álver feli að óbreyttu í sér aukn-
ingu á framleiðslugetu Alcoa um
7,5% og aukningu á framleiðslugetu
heimsins alls um 1,1%. CSFB telur
þó að þessi aukning verði ekki að
veruleika nema umtalsverður skort-
ur verði á áli, því óhagkvæmari álver-
um Alcoa verði líklega lokað þegar
framleiðsla hefjist í hinu nýja álveri.
Tilfærsla á framleiðslu Alcoa frá ál-
verum í Bandaríkjunum til hag-
kvæmari álvera í Kanada og á Íslandi
muni verða mikilvæg fyrir Alcoa.
Greiningardeild CSFB telur að
hlutabréf í Alcoa muni hækka um-
fram almenna hækkun á markaðnum
á næstu 12 mánuðum. Verðið, sem nú
er rúmir 22 Bandaríkjadalir á hlut,
muni verða 29,40 dalir snemma á
næsta ári.
Ódýrt miðað við
framleiðslugetu
Skýrsla CSFB um fyrirhugað álver Alcoa í Reyðarfirði
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik lagði Ástralíu að velli
með fjörutíu marka mun, 55:15, í
fyrsta leik liðanna á Heimsmeist-
arakeppninni sem hófst í Portúgal
í gær. Þetta er stærsti sigur ís-
lenska landsliðsins frá upphafi, og
setti liðið jafnframt heimsmet þar
sem engu landsliði hefur tekist að
skora 55 mörk í einum leik. Ísland
vann Bandaríkin árið 1993 á HM í
Svíþjóð 34:19, og var það stærsti
sigur liðsins á HM þar til í gær.
Yfirburðir íslenska liðsins voru
miklir frá upphafi til enda og lék til
að mynda Ólaf-
ur Stefánsson
aðeins í upphafi
leiksins. Gera
þurfti hlé á
leiknum er 8½
mínúta lifði af
honum þar sem
ljósin í keppnis-
höllinni í Viseu
biluðu og kvikn-
aði ekki á per-
unum fyrr en eftir hálftíma hlé.
Guðjón Valur Sigurðsson skor-
aði 14 mörk í leiknum gegn Ástr-
alíu, sem er met hjá íslenskum
leikmanni á HM. Valdimar Gríms-
son átti gamla metið – hann skor-
aði 11 mörk í leik gegn Júgóslavíu
á HM í Kumamoto 1997, í leik sem
Ísland vann, 27:18.
Heiðmar Felixson varð 25.
landsliðsmaðurinn til þess að
skora 10 mörk eða meira í lands-
leik. Er þetta í annað sinn sem
tveir leikmenn Íslands ná að skora
meira en tíu mörk í sama lands-
leiknum.
Stærsti sigur frá upphafi
Guðjón Valur
Sigurðsson
Íþróttir /44-47