Morgunblaðið - 01.02.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Gætuð þér ekki líka tekið Ara Trausta í karphúsið? Hann er búinn að hræða líftóruna úr
heilu byggðarlagi.
Reykjavík • Akureyri
Selfoss • Reykjanesbær
www.blomaval.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
00
37
02
/2
00
3
pottaplöntuútsala
Útsölumarkaður
í Garðskálanum, Sigtúni.
Blómavörur á tombóluverði.
Grænar plöntur Blómstrandi plöntur Silkiblóm
50%
afsláttur
30%
afsláttur
20%
afsláttur
Alþjóðlega knattspyrnumótið VISA Rey-Cup
Stefnir í 60 liða
fótboltaveislu
ALÞJÓÐLEGTknattspyrnumótfyrir unglinga
vakti athygli á síðasta ári.
Þar var á ferðinni svokall-
að VISA REY CUP og
tókst svo vel til að skipu-
lagning er fyrir nokkru
hafin á áframhaldi. VISA
REY CUP verður sumsé
aftur á komandi sumri og
væntanlega árlega hér eft-
ir. Hörður Hilmarsson,
margreyndur knatt-
spyrnu- og handknatt-
leiksmaður á árum áður er
framkvæmdastjóri hjá ÍT
ferðum sem sér um skipu-
lagningu mótsins.
– Hvaða mót er þetta?
„VISA REY CUP er
haldið af Knattspyrnu-
félaginu Þrótti og ÍT ferð-
um í Laugardal með stuðningi
Reykjavíkurborgar, VISA Ís-
lands o.fl. aðila. Það var fyrst
haldið sumarið 2002. Þátttökulið
voru 32, þar af tvö erlend, Bolton
Wanderers og Stoke City. Mótið,
eða hátíðin, því að það er nær að
kalla viðburðinn knattspyrnuhá-
tíð, tókst frábærlega vel og var að-
standendum til mikils sóma.“
– Verður meiri þátttaka í sum-
ar?
„Markmiðið fyrir 2003 er að 50
til 60 lið taki þátt í VISA REY
CUP, þar af a.m.k. 6-8 erlend lið.
Nú þegar hafa fjögur erlend lið
boðað komu sína og önnur fjögur
eru mjög líkleg. Í þeirra hópi er
Everton. Auk þess eru fleiri er-
lend lið að íhuga þátttöku, þar á
meðal Bolton sem vill koma aftur
og freista þess að halda titlinum
sem félagið vann 2002. Íslensk
knattspyrnufélög hafa einnig sýnt
VISA REY CUP aukinn áhuga
enda er viðburðurinn mjög spenn-
andi fyrir unglinga, bæði þátttaka
á alþjóðlegu móti á Íslandi og
einnig mikið af skemmtilegum
uppákomum sem krydda sjálft
knattspyrnumótið, s.s. sundlaug-
arpartí, skemmtibolti, diskó, úti-
grill í Fjölskyldugarðinum og svo
einn af hápunktunum sem er loka-
hóf á Broadway, en það stefnir í að
verða ein aðal unglingaskemmt-
unin í Reykjavík á hverju sumri.“
– Hvaða lið geta tekið þátt í
mótinu?
„Öll knattspyrnulið skipuð leik-
mönnum á vissum aldri geta tekið
þátt í VISA REY CUP. Til að
byrja með leggjum við áherslu á 3.
og 4. flokk stráka og stelpna, en
það er aldurinn 13 til 16 ára. Frá
dönskum samstarfsmanni hefur
komið ósk um að vera með riðil
fyrir stúlkur 16 til 17 ára og það
mál er í vinnslu. Ef erlend lið í
ákveðnum aldursflokki vilja taka
þátt þá komum við til móts við
þær óskir og bætum við aldurs-
flokki. Varðandi Ísland, þá eru lið
frá fámennum byggðarlögum vel-
komin, einnig ef þau ná ekki í 11
manna lið. Við verðum með sér-
staka riðla skipaða sjö manna lið-
um, ef áhugi er fyrir því.“
– Er liðum raðað eft-
ir styrkleika eða aldri?
„Sjálft knattspyrnu-
mótið fer fram, eftir
reglum KSÍ og alþjóð-
legra knattspyrnusam-
banda UEFA og FIFA. Liðum er
raðað á hefðbundinn hátt eftir
aldri, en svo styrkleikaröðum við
innan aldursflokkanna þegar slíkt
er nauðsynlegt. Þannig voru við
með fjóra riðla í 4. flokki drengja,
13-14 ára, í fyrra og skiptum því í
raun upp í tvö mót, þar sem A og
B riðillinn voru sterkari en C og
D. Þetta mæltist mjög vel fyrir og
kemur t.d. í veg fyrir að lið frá
sama félagi sem sendir kannski
3-4 lið í sama aldursflokki, leiki
saman innbyrðis. Þannig var
Fjölnir í Grafarvogi með 4 lið í
4.flokki, eitt í hverjum riðli.“
– Er ekki afar taugatrekkjandi
að halda svona mót á Íslandi þar
sem allt eins getur gerst að mótið
þurfi að halda í suðaustan níu?
„Það eru haldin íþróttamót á Ís-
landi allan ársins hring og knatt-
spyrnumót utanhúss frá vori til
hausts. Vissulega væri verra ef
það gerði vitlaust veður, en VISA
REY CUP er haldið í júlí ár hvert
og við verðum að reikna með að þá
viðri a.m.k. sæmilega til útiveru.
Svo er Laugardalurinn í Reykja-
vík einstakur hvað varðar alla að-
stöðu, bæði innanhúss og utan,
þannig að ef þurfa þykir þá er
hægt að flytja alla helstu við-
burðina í hús, þó ekki sjálfa knatt-
spyrnuleikina sem eru það sem
allt snýst um.“
– Hvað koma margir að svona
móti og hvaða aðilar eru það?
„Góð spurning. Það er ómæld
vinna við að skipuleggja og halda
svona viðburð. Í ár verða 19
vinnuhópar starfandi fyrir VISA
REY CUP og meðan á hátíðinni
stendur. Forsvarsmenn vinnu-
hópanna hittast á reglulegum
fundum, en annars eru vinnuhóp-
arnir nokkuð sjálfstæðir. Það fólk
sem í vinnuhópunum er, kemur úr
mjög öflugu foreldrastarfi Knatt-
spyrnufélagsins Þróttar og undir
styrkri stjórn Guð-
mundar Vignis Óskars-
sonar mótsstjóra vinn-
ur það aldeilis frábært
starf. Ég kynntist
fjölda fólks í tengslum
við VISA REY CUP 2002 og
fannst aðdáunarvert hvað það
lagði sig fram um að gera viðburð-
inn glæsilegan. Það er heiður að
vinna með þessu fólki, enginn
nefndur, engum gleymt. Ef ég
ætti að skjóta á fjölda þeirra sem
koma með einum eða öðrum hætti
að VISA REY CUP, þ.e.a.s. að
skipulagi og framkvæmd, þá yrði
sú tala hátt í 200 manns.“
Hörður Hilmarsson
Hörður Hilmarsson er fæddur
21. nóvember 1952. Hann er
framkvæmdastjóri ÍT-ferða. Eig-
inkona er Rita Kárason og eru
börn þeirra Bryndís f. ’80, Sara
Mildred f. ’90 og Birna Ósk f. ’94.
Hörður er kennaramenntaður og
starfaði lengi við kennslu, einnig
var hann handknattleiks- og
knattspyrnuþjálfari um árabil.
Hefur starfað við ferðaþjónustu
frá 1986, hjá Samvinnuferðum
Landsýn og Úrval-Útsýn, en hjá
ÍT-ferðum frá haustinu ’96. Sér-
grein þar er íþróttatengd ferða-
þjónusta og markaðssetning á
Reykjavík og Íslandi.
Það er heiður
að vinna með
þessu fólki