Morgunblaðið - 01.02.2003, Page 14
ÍSLENSK erfðagreining og Vertex
Pharmaceuticals hafa undirritað
samning um rannsóknir í lyfja-
erfðafræði samhliða klínískum
lyfjaprófunum. Dótturfyrirtæki ÍE,
Íslenskar lyfjarannsóknir, mun
gera klínískar prófanir á lyfjum
sem eru í þróun hjá Vertex og ÍE
mun safna og greina lyfja-
erfðafræðilegar upplýsingar. Í
sameiginlegri tilkynningu frá fyr-
irtækjunum segir að fyrsta verk-
efnið verði rannsóknir á öðrum
fasa klínískra lyfjarannsókna á lyf-
inu VX-148 gegn psóríasis og að
skráning þátttakenda sé þegar haf-
in.
Vertex Pharmaceuticals, sem var
stofnað árið 1989, er bandarískt
fyrirtæki á sviði líftækni, sem leit-
ast við að uppgötva, þróa og mark-
aðssetja lyf, sjálft eða í samstarfi
við aðra, að því er fram kemur í ný-
legri fréttatilkynningu frá fyr-
irtækinu.Vertex beitir genatækni
við rannsóknir sínar og er með yfir
12 lyf í þróun. Fyrsta samþykkta lyf
fyrirtækisins er vegna HIV-
veirunnar og er sett á markað í
samstarfi við lyfjarisann Glaxo-
SmithKline. Líkt og deCODE, móð-
urfyrirtæki ÍE, er Vertex skráð á
Nasdaq-hlutabréfamarkaðinn.
Markaðsverð þess er rúmir áttatíu
milljarðar króna, en markaðsverð
deCODE er um níu milljarðar
króna.
Vertex vonast eftir
víðtækara samstarfi
Í hinni sameiginlegu tilkynningu
Vertex og ÍE segir að möguleikar
ÍE í lyfjaerfðafræði muni gera
Vertex kleift að greina niðurstöður
lyfjaprófana í tengslum við erfða-
þætti sem hafi áhrif á svörun sjúk-
linga við lyfjameðferð. Niðurstöður
slíkra rannsókna geti verið mik-
ilvægar, bæði fyrir skipulagningu
frekari lyfjaprófana og við þróun
lyfjaerfðafræðilegra greining-
arprófa. Ef rannsóknirnar sem
samningurinn nái til skili mark-
verðum niðurstöðum sé mögulegt
að fyrirtækin muni auka við sam-
starfið og vinna saman að þróun og
markaðssetningu slíkra lyfja-
erfðafræðilegra greiningarprófa.
Í tilkynningunni er haft eftir
John J. Alam, framkvæmdastjóra
lyfjaprófana hjá Vertex, að fyr-
irtækið voni að þessi rannsókn
marki upphafið að víðtæku sam-
starfi við ÍE.
Ekki verður greint frá fjárhags-
hlið samningsins milli ÍE og Vertex.
Morgunblaðið/Júlíus
ÍE semur við banda-
rískt lyfjafyrirtæki
Rannsóknir í lyfjaerfðafræði samhliða
klínískum prófunum á lyfjum
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AOL Time Warner tapaði jafn-
virði 7.700 milljarða íslenskra
króna á síðasta ári, sem að sögn
The Wall Street Journal er
mesta tap í sögu hlutabréfa-
markaðarins. Nær helmingur
tapsins stafar af afskriftum
vegna erfiðleika America On-
line.
Samhliða uppgjörinu var
greint frá afsögn Ted Turner,
stofnanda CNN, sem varafor-
manns stjórnar fyrirtækisins,
en hann situr áfram í stjórn
þess. Turner hefur verið einn af
helstu gagnrýnendum samein-
ingar America Online og Time
Warner, en AOL yfirtók Time
Warner fyrir tveimur árum og
úr varð stærsti samruni í sögu
Bandaríkjanna.
Verð hlutabréfa fyrirtækis-
ins hefur lækkað mikið síðustu
átján mánuði og markaðsverð
þess hefur lækkað um meira en
8.000 milljarða króna og er nú
rúmlega 4.900 milljarðar króna.
AOL Time Warner
Mesta tap
sögunnar
BANDARÍSKI
gosdrykkjafram-
leiðandinn Coca-
Cola hefur ákveð-
ið að segja upp
eitt þúsund manns
í kjölfar samein-
ingar þriggja
deilda í Norður-
Ameríku. Deild-
irnar sem um
ræðir eru Coca-
Cola Norður-Ameríku, Coca-
Cola Fountain og framleiðslu-
deild ávaxtasafans Minute
Maid. Í tilkynningu frá fyrir-
tækinu kemur fram að um helm-
ingur starfsfólksins sem mun
missa vinnuna starfar í höfuð-
stöðvum Coca-Cola í Atlanta.
Þegar fréttist af fyrirhuguð-
um uppsögnum lækkaði verð
hlutabréfa í fyrirtækinu um rúm
3%.
Uppsagnir hjá
Coca-Cola
OVALLA Trading hefur selt
1,6% af hlut sínum í Trygginga-
miðstöðinni og á nú 9,7% í fyr-
irtækinu en átti áður 11,3%.
Viðskiptin áttu sér stað á
fimmtudag og miðað við gengi
dagsins var söluverðið tæpar
150 milljónir króna.
Eigendur Ovalla Trading eru
Gaumur Holding, sem á 85% í
félaginu, og Austursel, með
15% hlut. Gaumur er í eigu
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og
fjölskyldu, og Austursel er í
eigu Hreins Loftssonar.
Ovalla selur
í TM
ÁKVEÐNAR hafa verið skipulags-
breytingar hjá Eimskipi ehf. einkum
á sölu- og markaðssviði og rekstr-
arsviði. Í tengslum við þessar breyt-
ingar hefur verið ákveðið að fækka
starfsmönnum félagsins í almennum
skrifstofustörfum um 17 á næstu
mánuðum og hefur viðkomandi að-
ilum verið greint frá því, samkvæmt
upplýsingum frá Eimskipi.
Á sölu- og markaðssviði verða
tvær deildir, verslunarþjónusta og
bíla- og tækjaþjónusta, sameinaðar í
eina deild, sölu flutningaþjónustu. Á
rekstrarsviði verða nokkrar deildir
sameinaðar og verður talsverð til-
færsla starfsmanna í tengslum við
það og fækkun forstöðumanna. Þess-
ar breytingar verða kynntar nánar
fljótlega.
Eimskip hefur fengið fyrirtækið
Mannafl til að aðstoða þá starfsmenn
sem láta af störfum hjá félaginu
vegna þessa. Ekki er gert ráð fyrir
að grípa til frekari fækkunar starfs-
manna umfram venjubundnar breyt-
ingar á einstaka störfum eins og
gengur og gerist í rekstri félagsins,
samkvæmt upplýsingum frá Eim-
skipi.
Í tilkynningu kemur fram að meg-
intilgangur þessara breytinga og
fækkunar starfsmanna er að auka
hagkvæmni í rekstri félagsins og
bæta þannig afkomu félagsins og þar
með arðsemi flutningastarfseminnar
ekki síst í ljósi þess að afkoma flutn-
ingastarfseminnar hefur verið óvið-
unandi undanfarin misseri, að því er
segir í tilkynningu frá Eimskipi.
17 sagt upp
hjá Eimskipi
ÍRSKA lággjaldaflugfélagið Ryanair
tilkynnti í gær að það hygðist kaupa
lággjaldaflugfélagið Buzz af hol-
lenska flugfélaginu KLM. Ryanair
greiðir 23,9 milljónir evra, um 1.990
milljónir íslenskra króna, fyrir Buzz.
Ryanair tilkynnti einnig í gær að
félagið ætlaði að panta 22 737-800
þotur til viðbótar frá Boeing verk-
smiðjunum en Ryanair á nú kauprétt
á 78 þotum af Boeing. Með kaupun-
um á Buzz verður Ryanair aftur
stærsta evrópska lággjaldaflugfé-
lagið en með samruna easyJet og Go
á síðasta ári varð sameinað félag það
stærsta í Evrópu.
Höfuðstöðvar Buzz eru á Stansted
flugvelli í London líkt og hjá Ryan-
air. Buzz flýgur til 21 áfangastaðar í
Evrópu.
Reuters
Ryanair kaupir
Buzz af KLM
GENGI krónunnar hækkaði um
0,41% í miklum viðskiptum í gær
og endaði gengisvísitalan í 121,50.
Gengi krónunnar hefur því hækk-
að sex viðskiptadaga í röð og um
1,90% í vikunni. Alls námu við-
skipti á gjaldeyrismarkaði 8,5
milljörðum í gær samkvæmt upp-
lýsingum frá Íslandsbanka. Doll-
arinn er nú 77,45 krónur, evran
83,10 krónur og jenið 0,65 Geng-
ishækkunin í gær kom nokkuð á
óvart í ljósi þess að framkvæmd-
um vegna stækkunar Norðuráls
gæti seinkað. Hagnaðartaka var
þó áberandi þegar gengisvísitalan
fór undir 122,00, samkvæmt upp-
lýsingum frá Íslandsbanka.
Gengi íslensku krón-
unnar hækkar enn
SMÁVÆGILEG aukning varð
í verslun með dagvöru fyrir síð-
ustu jól samanborið við jólin
þar á undan samkvæmt smá-
söluvísitölu Samtaka verslunar
og þjónustu. Sala á matvöru og
annarri dagvöru jókst um 0,3%
í desember sl. miðað við desem-
ber árið áður að teknu tilliti til
breytinga á verðlagi á þessu
tímabili. Veltuaukning varð
einnig á áfengissölu eða um
1,7% ef borin eru saman sömu
tímabil. Fram kemur í smásölu-
vísitölunni að nánast engin
breyting hefur orðið í veltu
lyfjaverslana milli síðustu fjög-
urra mánaða ársins.
Sala á mat-
vöru jókst
um 0,3%
bílar
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM
SMÁAUGLÝSING
AÐEINS 995 KR.*
Áskrifendum Morgunblaðsins
býðst smáauglýsing fyrir aðeins 995 kr.*
Pantanafrestur er til kl. 12 á þriðjudögum.
* 4 línur og mynd.
HAFÐU SAMBAND!
Auglýsingadeild Morgunblaðsins sími 569 1111 eða augl@mbl.is
LOÐNUAFLINN frá áramótum
er nú orðinn um 210.000 tonn sam-
kvæmt upplýsingum frá Samtök-
um fiskvinnslustöðva. Er þessi afli
mun meiri en í fyrra.
Kvótinn var nýlega aukinn og er
heildarkvóti íslenzkra skipa sam-
kvæmt honum 660.000 tonn. Á
sumar- og haustvertíðinni veiddust
tæplega 180.000 tonn. Heildarafli
er því um 390.000 tonn og óveidd
eru samkvæmt því um 270.000
tonn.
Gert er ráð fyrir því að kvótinn
verði aukinn enn frekar þegar líð-
ur á febrúar.
Loðnu hefur verið landað víða
um land, en fjórar löndunarhafnir
skera sig úr. Mestu hefur verið
landað hjá SR mjöli á Seyðisfirði,
26.600 tonnum, 25.400 tonnum hef-
ur verið landað í Neskaupstað,
24.300 á Eskifirði og 22.700 í
Grindavík.
Mikil
loðnuveiði