Morgunblaðið - 02.02.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Útrás Samskipa
Samskip hafa keypt helmings-
hlut í eistneska skipafélaginu
T&E ESCO-Container Lines AS.
Eru kaupin að sögn áfangi í útrás
Samskipa í austurvegi og styrkja
flutningþjónustu þeirra milli N-
Evrópu og Eystrasaltsríkja, Finn-
lands og Rússlands.
Lausir úr prísund
Skipverjarnir fimm á Hugin
VE-66, sem voru í raun kyrrsettir
um borð í skipinu í Múrmansk í
Rússlandi losnuðu úr þeirri prís-
und í gær. Var skipið selt þangað
en rússneskir embættismenn vildu
ekki taka vegbréf mannanna gild
þegar til kom.
Átök um atkvæðin
Búist er við að Bretar og
Bandaríkjamenn muni leggja á
það mikla áherslu á næstunni að
fá ríkin í öryggisráði SÞ á sitt
band í Íraksmálinu. Hefur Bush
opnað á nýja ályktun en fortöl-
urnar munu mæða mest á Blair.
Seld t i l s jö landa
Kvikmyndin Nói albínói eftir
Dag Kára hefur þegar verið seld
til sjö Evrópulanda eftir þátttöku
sína í kvikmyndahátíðinni í Rott-
erdam í vikunni. Þá þykir myndin
mjög sigurstrangleg á kvik-
myndahátíðinni í Gautaborg.
Aukin bí lasala
Sala á nýjum bílum jókst um
43% í janúar miðað við janúar í
fyrra. Seldust alls 703 nýir bílar í
ár og var salan mest hjá Toyota.
Formaður Bílgreinasambandsins
segir spáð 15-20% aukningu í ár.
Gjaldþrotum fjölgar
Gjaldþrotum fyrirtækja fjölgaði
um rúmlega 200 á síðasta ári og
er það 56,5% fjölgun milli ára. 565
fyrirtæki urðu gjaldþrota 2002 en
361 á árinu 2001.
Meiri hindranir
Íslenskir sjóntækjafræðingar
halda því fram, að lög hér á landi
takmarki starfsemi þeirra miklu
meira en í nágrannaríkjunum.
Hafa þeir í mörg ár barist fyrir
því að fá að annast sjónlagsmæl-
ingar en samkvæmt lögum er að-
eins augnlæknum heimilt að gera
það.
Sunnudagur
2. febrúar 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 9.389 Innlit 19.296 Flettingar 99.064 Heimild: Samræmd vefmæling
Sölumaður fyrir
hár- og förðunarvörur
Heildsala sem sérhæfir sig í hár- og förðunar-
vörum leitar að reyndum sölumanni. Í starfinu
felst að finna nýja viðskiptavini, þjónusta nú-
verandi viðskiptavini og hafa umsjón með
kynningarmálum.
Um 40% starf er að ræða til að byrja með, laun
eru að hluta frammistöðutengd.
Áhugasamir sendi starfsferilskrá til augl.deildar
Morgunblaðsins fyrir 9. febrúar merkt: „Hár 1“.
DREIFINGARAÐILI ÓSKAST!
Við óskum eftir áhugasömum aðila til að sjá um
sölu og dreifingu á hágæða smurefnum á Íslandi.
Varan er seld í 147 löndum um heim allan í dag.
Við bjóðum upp á:
Heildarlausn: þjálfun og kennsla, efni og prufur fyrir
markaðssetningu og markaðsvernd.
Við leitum að:
Fyrirtæki eða einstaklingi, sem getur ráðið til sín
starfsfólk ef þarf, og hefur til umráða a.m.k. 50 fm
lagerrými.
Þekking og/eða reynsla af smuerfnum ekki nauðsynleg
þar sem við veitum alla nauðsynlega kennslu.
Nánari upplýsingar í síma 45 2331 7895.
Áhugasamir sendi umsóknir á ensku eða dönsku til:
Top-Tek A/S
Gasværksgade 9 - DK-6700 Esbjerg
Sími 0045 7691 34747.
Fax 0045 7613 4749.
Netfang: omega@omegaolie.dk
www.omegaolie.dk
ⓦ á Herjólfsgötu
í Hafnarfirði
Upplýsingar
í síma
569 1116.
Stóll til leigu
Hársnyrtisveinar eða meistarar! Erum með
stól til leigu á skemmtilegum vinnustað.
Góð aðstaða — frábær staðsetning.
Upplýsingar í síma 893 1376 eða 893 1375.
Fullum trúnaði heitið.
„Ég vissi alltaf að ég
vildi gera þessa bíó-
mynd sem mína fyrstu,“
segir Dagur Kári um
frumraunina Nóa albín-
óa sem í vikunni hefur
vakið mikla athygli á
þremur evrópskum
kvikmyndahátíðum. Í
samtali við Árna
Þórarinsson bætir hann
við: „Og mig langaði til
að gera mína fyrstu bíó-
mynd á Íslandi til þess
að leggja áherslu á upp-
runa minn.“ Næst kem-
ur svo dogmamynd í
Danmörku.
Öðruvísi en allir aðrir
Sunnudagur
2. febrúar 2003
ferðalögKaffihús VínarborgarbörnGrísafróðleikurbíóSvik og prettir hjá Steven Spielberg
Sælkerar á sunnudegi
Veitingahúsarýni um La Primavera
„Lykillinn
að velgengni
La Prima-
vera er stöð-
ugleikinn.“
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Hugvekja 47
Listir 28/31 Bréf 48/49
Af listum 28 Dagbók 50/51
Birna Anna 28 Krossgáta 52
Forystugrein 32 Hugsað upphátt 27
Reykjavíkurbréf 32 Leikhús 54
Skoðun 36 Fólk 54/61
Minningar 37/40 Bíó 58/61
Þjóðlífsþankar 41 Sjónvarp 62
Þjónusta 46 Veður 63
* * *
GUÐFINNA Einarsdóttir heldur í
dag upp á 106 ára afmælið sitt.
Guðfinna er þriðji elsti núlifandi
Íslendingurinn en hún fæddist á
Leysingjastöðum í Dalasýslu árið
1897.
Guðfinna býr hjá dóttur sinni
og tengdasyni, Jóhönnu Þorbjarn-
ardóttur og Páli Jónssyni.
Hún ólst upp í Dalasýslu og bjó
þar ásamt foreldrum sínum. Hún
fór í vist til Reykjavíkur um tíma.
Guðfinna fór einnig í Húsmæðra-
skóla. „Ég var á kvennaskólanum
á Blönduósi þegar ég var tuttugu
ára,“ segir Guðfinna. Það þótti
henni skemmtilegur tími.
Árið 1942 fór Guðfinna til
Reykjavíkur en fluttist stuttu síð-
ar í Hvítadal á heimili Sigurðar
Sigurðssonar og tveggja barna
hans, en hann hafði þá nýlega
misst konu sína. „Ég var þar hús-
stýra og það var nóg að gera.“
Guðfinna sá þar um heimilið í
rúm 20 ár. Þá fluttist hún til
Reykjavíkur til dóttur sinnar og
hefur búið þar síðan, eða í rúm 30
ár. „Ég kunni vel við mig í sveit-
inni, en ég kann enn betur við
mig í Reykjavík,“ segir Guðfinna.
Alltaf nóg að borða
Mikið var um tónlist á bernsku-
árum Guðfinnu. „Ég ólst upp við
söng og hljóðfæraspil. Faðir minn
spilaði á harmonikku í gamla
daga og var söngmaður mikill.
Bróðir minn lærði orgelspil og
spilaði á kirkjuorgel í Hvammi
við messu hjá séra Ásgeiri í fleiri
ár. Faðir minn var forsöngvari
þar. Ég söng og þótti syngja vel,
það sagði séra Ásgeir að minnsta
kosti,“ segir Guðfinna og hlær.
Hún minnist bernsku sinnar með
brosi á vör. „Móðir mín bjó til
góðan mat og við fengum alltaf
nóg að borða.“
Guðfinna las mikið hér áður
fyrr og hlustaði á snældur en nú
hlustar hún gjarnan á tónlist og
horfir á fréttir með dóttur sinni
og tengdasyni. „Dóttir mín og
tengdasonur hugsa vel um mig.
Mér líður vel hjá þeim.“
Guðfinna átti tvö systkini, Jón
og Þuríði sem bæði eru látin og
svo einn fósturbróður, Einar
Kristjánsson, sem er 85 ára og
heimsækir hana stundum. Hún á
alls ellefu afkomendur.
Guðfinnu hefur tekist vel að að-
laga sig breyttum lífsháttum. Hún
borðar til að mynda allan nútíma-
mat og var fljót að tileinka sér
nýja tækni eins og fjarstýringu
við sjónvarp þegar hún kom fyrst.
Guðfinna er enn við ágæta
heilsu. Hún er reyndar sjóndöpur
en heyrir ágætlega. Guðfinna
gengur við göngugrind en vildi
helst vera laus við hana. Hún hef-
ur alla tíð lifað heilbrigðu lífi en
segist ekki vita hver galdurinn er
á bakvið langlífið.
Guðfinna tekur á móti vinum
og vandamönnum í dag á heimili
sínu, Dalalandi 12. Blóm og gjafir
eru afþökkuð.
flutti Valtýr Guðmundsson
stjórnarskrárfrumvarp
sem olli miklum deilum.
Meginatriði frumvarpsins
fól í sér að skipaður skyldi
sérstakur ráðherra fyrri
Ísland, er mætti á Alþingi
og bæri ábyrgð fyrir því á
öllum stjórnarathöfnum
sínum. Mótstöðumenn
þess héldu fram að það
gengi ekki einungis of
skammt heldur jafnvel í
öfuga átt í sjálfstæðisbar-
áttunni. Frumvarpið var
síðan fellt.
bárust fregnir af linnu-
lausri ásókn enskra botn-
vörpunga á fiskimið í
Faxaflóa. Almenningi
gramdist athafnaleysi
dansks varðskips sem átti
að verja landhelgina í Fló-
anum.
gáfu tvö ung skáld, Þor-
steinn Erlingsson og Ein-
ar Benediktsson, út fyrstu
bækur sínar. Bók Þor-
steins var ljóðabókin
Þyrnar en Bók Einars hét
Sögur og kvæði.
Árið 1897 …
(Heimild Öldin okkar 1861 – 1900)
Guðfinna Einarsdóttir er 106 ára í dag
Ólst upp við söng
og hljóðfæraleik
Morgunblaðið/Kristinn
Guðfinna Einarsdóttir ásamt langömmubarni sínu, Einari Páli Pálssyni.
Hún hélt á honum undir skírn sl. sumar.
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI og
Læknavaktin ehf. hafa undirritað
samning um blóðsýnatöku s.s. vegna
ölvunaraksturs fyrir ríkislög-
reglustjóra og lögreglustjóra í
Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði.
Um langt árabil voru blóðsýnin
tekin á slysadeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss, áður Borgarspít-
alans en samningi þess efnis var
sagt upp í fyrra af yfirlækni slysa-
deildar. Samkomulag var þó um að
veita þjónustuna þangað til lög-
reglan hefði komið á samningi við
annan aðila. Á fimmtudag ritaði rík-
islögreglustjóri undir samninginn
við Læknavaktina og tekur samn-
ingurinn gildi 11. febrúar.
Atli Árnason og Þórður Ólafsson frá Læknavaktinni með Harald Johann-
essen ríkislögreglustjóra á milli sín.
Læknavaktin tekur blóð-
sýni fyrir lögregluna
FIMM skipverjar, sem hafa verið
innlyksa í Hugin VE65 í höfninni í
Múrmansk síðan á þriðjudag, voru
í gærmorgun sóttir af rússneskum
embættismönnum og fluttir áleiðis
til norsku landamæranna. Áttu
þeir von á að komast heim með
flugi frá Osló eða Kaupmannahöfn
í dag.
Eins og Morgunblaðið greindi
frá í gær hafa yfirvöld í Rússlandi
neitað að taka vegabréf þeirra gild
en þeir fluttu Hugin til landsins
eftir að hann hafði verið seldur
þangað. Stóð til að þeir félagar
færu heim um leið og skipinu hefði
verið skilað.
Eftir að fyrirheit um að þeir
fengju að fara frá landi voru ítrek-
að brotin í vikunni voru skipverj-
arnir loks sóttir af rússneskum
embættismönnum í gærmorgun og
fluttir með bíl til norsku landa-
mæranna. Þegar Morgunblaðið
náði tali af þeim voru þeir staddir í
rússneskri landamærastöð og
höfðu beðið þar í nokkurn tíma.
Að sögn Gríms Gíslasonar vél-
stjóra voru landamæraverðir þar
þá enn að velta fyrir sér vegabréf-
um þeirra en hann átti þó von á að
úr myndi rætast og þeir kæmust
yfir landamærin í gær. Hann sagð-
ist svo sannarlega vona að þetta
gengi upp að þessu sinni. „Við er-
um orðnir leiðir á Rússlandi svo
vonandi sleppum við úr landi í
dag,“ sagði hann um hádegi í gær.
Grímur átti von á að þeir kæm-
ust heim með flugi frá Osló eða
Kaupmannahöfn í dag, sunnudag,
ef það gengi eftir en það færi þó
eftir því hversu vel gengi að breyta
flugmiðunum sem hann sagði búið
að breyta nær daglega síðan vand-
ræðin hófust á þriðjudag.
Skipverjar
Hugins VE65
á heimleið
AÐEINS einn læknir, Ingþór Friðriksson, er
starfandi í Borgarnesi og þjónar hann um 4.000
íbúum svæðisins. Tveir læknar hafa sinnt þremur
læknastöðum við heilsugæslustöðina en ástandið
hefur þyngst töluvert undanfarið þar sem annar
þeirra er í orlofi fram á vor.
Guðrún Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri seg-
ist vera með allar klær úti til að fá annan lækni til
starfa. „Ég leita allra leiða til að fá hingað annan
lækni. Það er óheyrilegt álag á einn mann að vera
hér með 4.000 íbúa. Það hefur gengið mjög illa að
manna þriðju stöðuna. Þetta er viðvarandi ástand
sem staðið hefur yfir í þrjú ár. Ég veit ekki ástæð-
una fyrir því,“ sagði Guðrún. Heilsugæslustöðin er
komin nokkuð til ára sinna en er vel tækjum búin
að sögn Guðrúnar.
Guðrún sagði að í svona aðstæðum reyndi enn
meira á hina 15 starfsmenn stöðvarinnar. Hún
sagði starfsfólkið vinna vel saman og alla hjálpast
að. „Auðvitað getum við ekki tekið að okkur starf
lækna en ef það er eitthvað annað sem við getum
gert til að létta undir með lækninum þá gerum við
það.“
Heilsugæslustöðin sinnir öllum bráðatilfellum.
Aðrir þurfa yfirleitt ekki að bíða lengur en í tvo
daga til að komast að enda tekur Ingþór allt upp í
30 sjúklinga á dag, en meðaltalið er 14. Guðrún
segist þó bjartsýn á að finna lækni fljótlega. Hún
sagði útlitið bjartara nú en það var fyrir nokkrum
dögum.
Læknaskortur í Borgarnesi