Morgunblaðið - 02.02.2003, Blaðsíða 17
TVEIR úrskurðir kaupskrár-
nefndar varnarsvæða um laun
íslenskra stjórnunarstarfs-
manna á Keflavíkurflugvelli
uppfylltu ekki kröfur um rök-
stuðning að mati umboðs-
manns Alþingis. Beinir hann
þeim tilmælum til nefndarinn-
ar að taka málin fyrir að nýju
ef félag stjórnunarstarfs-
manna óskar þess.
Félagið kvartaði til umboðs-
manns Alþingis yfir upphafs-
tíma launabreytinga sam-
kvæmt þremur úrskurðum
kaupskrárnefndar varnar-
svæða og þeirri niðurstöðu
kærunefndar kaupskrár-
nefndar að skilyrði væru ekki
uppfyllt til þess að heimilt
væri að bera úrskurði undir
hana. Umboðsmaður Alþingis
gat hins vegar ekki tekið elsta
úrskurð kaupskrárnefndar og
kærunefndar til álita þar sem
kærufrestur var liðinn.
Félagið gerði þá kröfu að
upphafstími launahækkana,
umfram samningsbundna
launaþróun, tæki mið af
ákveðnu tímamarki og voru
rök færð fyrir þeirri niður-
stöðu. Ekki var fallist á kröfu
félagsins að þessu leyti. Um-
boðsmaður vísaði á hinn bóg-
inn til þess að kaupskrárnefnd
verði að rökstyðja ákvarðanir
sínar um leið og þær eru
kynntar málsaðilum. Nefnd-
inni hefði því borið að fjalla
sérstaklega um þessar kröfur
félagsins og rökstuðning þess.
Úrskurðirnir hafi ekki upp-
fyllt þessar kröfur enda var
þar í engu getið hvernig kom-
ist var að niðurstöðu um þetta
atriði.
Rökstuðning
vantaði
hjá kaup-
skrárnefnd
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2003 17
Kringlan 6 - Stóri Turn - 550 2000 www.sphverdbref.is
Besta ávöxtun skuldabréfasjóða 2002
Skuldabréfasjóður SPH Verðbréfa, skv. Lánstrausti hf.
13,2%
Fagna til-
lögum um
Norðlinga-
öldulón
SKOTVEIÐIFÉLAG Íslands
fagnar nýjum tillögum að miðl-
unarlóni Norðlingaöldu sem
settar eru fram í úrskurði Jóns
Kristjánssonar setts umhverf-
isráðherra. Á heimasíðu
SKOTVÍS segir að samkvæmt
tillögunum verði engin skerð-
ing á friðlandinu í Þjórsárver-
um og því hafi verið komið til
móts við alla, þ.e. að Þjórsár-
verum hafi verið bjargað og að
hægt sé að vinna nægjanlega
raforku til að Norðurál á
Grundartanga geti aukið fram-
leiðslugetu sína, sem þýði fleiri
störf á höfuðborgarsvæðinu.
„Þessi úrskurður er nokkur
áfellisdómur fyrir Landsvirkj-
un þar sem sú snjalla tillaga
sem settur umhverfisráðherra
kemur fram með virðist ekki
hafa verið til á teikniborðum
Landsvirkjunar,“ segir enn-
fremur á heimasíðunni. alltaf á þriðjudögum
HEIMILI/FASTEIGNIR
INNLENT