Morgunblaðið - 02.02.2003, Blaðsíða 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2003 49
NOKKUR orð vegna brota úr ræðu
forsætisráðherra Frakka er sagt var
frá í Morgunblaðinu 20. janúar s.l.
þar sem hann taldi að heimurinn
væri orðinn sturlaður undir forustu
Bandaríkjanna.
Þjóðverjar og Frakkar eru þær
tvær þjóðir sem báðar telja sig
fremri öðrum í hugsun, tækni og
menningu og krefjast ótakmarkaðr-
ar virðingar þess vegna.
Hið „klóka“ Frakkland eins og
forsætisráðherrann komst að orði
um ágæti þjóðar sinnar bar ekki síst
ábyrgð á tveimur heimstyrjöldum á
síðustu öld. Það hefur líklega verið
af ást til Araba að hinir „klóku“
Frakkar háðu áratuga blóðuga
styrjöld við Alsírbúa á síðustu öld.
Líklega hefur Raffarin forsætisráð-
herra Frakka aldrei heimsótt graf-
reiti hundraða þúsunda bandarískra
ungmenna er létu lífið í tveimur
heimstyrjöldum til varnar Frakka-
landi og lýðræðinu í Evrópu. Það
væri hollt fyrir þennan sama Raffar-
in og Schröder kanslara og reyndar
alla stjórnmálamenn og blaðamenn
að heimsækja Auswitz í Póllandi og
grafreiti bandarískra og þýskra her-
manna í Luxemburg svo þeir geti
séð af eigin raun afleiðingar þess,
hverju eftirgjöf við hin illu öfl kemur
af stað.
Styrkur NATO hefur fyrst og
fremst verið sá að halda hinum
stríðsglöðu Evrópuþjóðum í skefjum
ekki síður en til varna hinum illu öfl-
um í austri. Við, Íslendingar, erum
nú þegar farnir að sýna einræðis-
ríkjunum undirlægjuhátt eins og
heimsókn forseta Kína til Íslands er
svo gott dæmi um. Komúnisminn
sem margir mörlandar vörðu með
odd og egg og stunduðu hatursáróð-
ur gegn Bandaríkjunum voru síðan
verðlaunaðir fyrir að hafa logið að
þjóðinni í áratugi gegn betri vitund
með því að gera einn af þeim að
sendiherra Íslands í NATO-ríki.
Mér var og er misboðið og svo er um
þúsundir aðra Íslendinga.
Frakkar áttu í styrjöldum við svo
til allar Evrópuþjóðir á árunum 1797
til 1814. Þeir áttu í styrjöld við Þjóð-
verja 1871, 1914-1918 og 1939-1945
Nú þykjast forustumenn þessarar
sömu þjóða vera friðarsinnar eins og
reyndar fyrir báðar heimstyrjald-
anna og telja sig geta haft vit fyrir
Bandaríkjamönnum sem eru að
verja sjálfan sig fyrir hryðjuverka-
mönnum.
Það er fyrst og fremst Bandaríkj-
unum að þakka að þjóðir eins og
Japanir og Þjóðverjar búa í dag við
almenn mannréttindi. Það voru t.d
Frakkar sem börðust við Bandaríkin
í Alsír 1943 vegna undirlægjuháttar
herforingja þeirra við leppstjórnina í
Frakklandi. Eru það slík atvik sem
forsætisráðherra Frakka er að vísa
til er hann talar um að rödd Frakk-
lands eigi að hljóma aftur í heims-
málum?
KRISTÓFER MAGNÚSSON,
Miðvangi 41, 220 Hafnarfirði.
Frakki í sturluðum heimi
Frá Kristófer Magnússyni:
Í FRAMHALDI af aukafjárveitingu
sem ráðherrann beitti sér fyrir
vegna heyrnatækjakaupa fyrir u.þ.b.
ári síðan, langar mig að spyrjast fyr-
ir um hvar málið er statt. Aukafjár-
veitingin átti að tryggja jafna nið-
urgreiðslu tækjanna til neytenda, en
ekkert bólar á framkvæmdum. Ég
hef beðið eftir úrlausn þessarra mála
á þriðja ár og málið er brýnt fyrir
stóran hóp fólks í sömu sporum.Það
er því afar áríðandi að því sé sinnt
hið fyrsta. Svar óskast.
RANNVEIG MAGNÚSDÓTTIR,
Efstahjalla 23, 200 Kópavogi.
Opið bréf til
heilbrigðisráð-
herra, Jóns
Kristjánssonar
Frá Rannveigu Magnúsdóttur
hefur borist svofelld fyrirspurn:
Moggabúðin
Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.
Fyrirtæki til sölu
Upplýsingar um fyrirtæki aðeins veittar á skrifstofunni.
Vinsamlega pantið tíma. Síminn er 533 4300.
Söluturn á góðum stað í vesturbænum. Þarfnast mikilla endurbóta.
Heildsala/smásala í snyrtivörugeiranum. Miklir vaxtamöguleikar.
Járnsmíðaverkstæði í Kópavogi. Ársvelta 32 m. kr. Ágæt verkefna-
staða.
Matvöruverslun á uppgangsstað í nágrenni Reykjavíkur. Ársvelta 136 m.
kr. Góð afkoma.
Þekkt heildverslun með 100 m. kr. ársveltu og ágæta markaðsstöðu.
H-búðin Garðatorgi. Rótgróin fataverslun með eigin innflutning.
Skemmtilegt tækifæri fyrir tvær samhentar konur.
Lítil heildverslun/verslun í Hafnarfirði með gjafavörur.
Skyndibitastaður í atvinnuhverfi.
Góð sólbaðstofa í Breiðholti. Besti tíminn framundan.
Verslun með mjúkar vörur fyrir svefnherbergi og bað.
Tískuvöruverslun í lítilli verslunarmiðstöð. Eigin innflutningur,
góð merki.
Gott þjónustufyrirtæki í prentiðnaði.
Þekkt fyrirtæki með íþróttavörur.
Lítill fótboltabar í úthverfi.
Sólbaðstofa og naglastofa í góðu bæjarfélagi í Stór-Reykjavík. 6 bekkir,
þar af 5 nýir. Verð 7,5 m. kr.
Þekkt lítil fiskbúð í vesturbænum.
Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir, heildverslanir og iðnfyrirtæki
í ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.
Stór austurlenskur veitingastaður í miðbænum. Mikil velta, góður
hagnaður.
Lítil heildverslun með jurtabaðvörur og gjafavörur. Tilvalið sem viðbót
við annan rekstur.
Þekkt bónstöð til sölu eða rekstrarleigu fyrir réttan aðila.
Lítil skyndibitakeðja með tveimur útsölustöðum. Þekkt nafn. Gott verð.
Lítill iðnrekstur til sölu. Mjög hentugur fyrir verndaðan vinnustað.
4—6 störf.
Söluturn í atvinnuhverfi í Kópavogi. Verð 11 m. kr. Góð greiðslukjör fyrir
gott fólk.
Þekkt heildverslun með tæki og búnað fyrir byggingaverktaka.
Meðeigandi - framkvæmdastjóri óskast að húsgagnaverslun, sem vanur
aðili er að setja á stofn. Þarf að leggja fram 2—3 m. kr.
Vélsmiðja/þjónustufyrirtæki í föstum verkefnum. Hentugt fyrir 2—3
menn eða sem viðbót við stærra fyrirtæki.
Meðeigandi óskast að góðum veitingastað á Akureyri.
Framköllunarþjónusta í miðborginni. Góð tæki, frábær staðsetning.
Lítil sápugerð með fjölbreytt úrval hreinsiefna sem þykja mjög góð.
Miklir möguleikar. Tilvalið til flutnings út á land.
Rekstrarleiga með kauprétti. Við höfum verið að þróa nýjan valkost fyrir
seljendur og kaupendur, sem virðist henta mörgum vel. Gerður er fimm
ára samningur um leigu á rekstri með ákveðinni leiguupphæð á mánuði,
með tilteknum tryggingum. Jafnframt er samið um að leigutaki geti
hvenær sem er á leigutímanum keypt reksturinn á tilteknu verði og ef
hann nýtir þann rétt, gengur helmingur þeirra leigu sem greidd hefur
verið upp í kaupverðið. Nánari upplýsingar um þennan valkost er að
finna á www.husid.is.
Veitingastaðurinn Tex-Mex á Langholtsvegi er fáanlegur á rekstrarleigu
með kauprétti. Góður rekstur og pottþétt dæmi fyrir duglegt fólk.
Grensásvideó. Ágætur hagnaður, auðveld kaup. Rekstrarleiga möguleg.
Rótgróið og vel arðbært gistihús miðsvæðis í Reykjavík. 30 herbergi og
lítil íbúð fyrir eiganda. Ársvelta 40 m. kr.
Stórt samkomuhús í nágrenni Reykjavíkur með góðri aðstöðu fyrir dans-
leiki, veislur og fundi. Ársvelta 40—50 m. kr. Gott tækifæri fyrir fag-
menn. Rekstrarleiga möguleg.
Rótgróin snyrtistofa í verslunarkjarna. Verð 3 m. kr.
Dagsöluturn við Laugaveg. Fallegur og snyrtilegur staður. Verð aðeins
3,8 m. kr.
Skoðið nýja heimasíðu fyrirtækjadeildar
með ítarlegri söluskrá og gagnlegum fróðleik:
www.husid.is
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen)
Sími 533 4300, GSM 820 8658
Nýbýlavegi 12, Kóp.,
sími 554 4433.
Enn meiri afsláttur
Opið frá kl. 10—18
Laugardaga frá kl. 11—15
Allir velkomnir
NÁMSAÐSTOÐ
grunnskóli - framhaldsskóli - háskóli
íslenska - stærðfræði - enska - danska - spænska - þýska
- franska - eðlisfræði - efnafræði - bókfærsla o.fl.
www.namsadstod.is
Innritun í síma 557 9233 kl. 17-19 virka daga
Viðskiptavinir ath!
Spes og Karitas hárstofa,
Hátúni 6 a, hefur verið lokað
Hársmiðjan,
Smiðjuvegi 4, Græn gata,
Kópavogi, s. 557 3232.
Þökkum viðskiptin á liðnum árum
Höfum hafið
störf á nýjum
stöðum
Korner,
Bæjarlind 14-16,
Kópavogi, s. 544 4900.
Guðrún AlfreðsdóttirSteinunn Ýr Randversdóttir
ÖLDUVINNA (wave work)
Ölduvinnan er öflug og þróuð aðferð og byggir á þeirri kenningu að tilfinningar
sem ekki fá eðlilega útrás setjist að í líkamanum og haldi áfram að banka upp á
hjá okkur þar til við gerum eitthvað í því. Öldutæknin er ótrúlega áhrifarík og
einföld aðferð til að fást við tilfinningar. Á því lærum við stöðugt að sjá ótæm-
andi möguleika okkar og öðlumst stöðugt dýpri sjálfsþekkingu og skilning.
Helgarnámskeið, einkatímar og kvöldnámskeið
Nánari upplýsingar og skráning í sími 562 0037 og 869 9293.
Hómópatar og Heilsulausnir - Ármúla 17, 2. h., sími 588 8188.
Guðfinna S.
Svavarsdóttir,
ölduv. og
kripalujóga-
kennari.