Morgunblaðið - 02.02.2003, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2003 53
KÆRU lesendur.Ég verð víst aðhryggja ykkur með þvíað upplýsa að þettaverður í síðasta skipti,
fram að kosningum, sem ég get
deilt með ykkur hugsunum mínum í
þessum pistlum. Það hefur orðið að
samkomulagi milli mín og ritstjóra
Morgunblaðsins að hlé verði gert á
þessum skrifum
fram yfir kosn-
ingar. Mogginn er
vandur að virðingu
sinni og getur ekki
leyft einum fram-
bjóðanda þau forréttindi að hafa
sérstakan dálk út af fyrir sig, þegar
þjóðin færir sig ofan í skotgrafirnar
til að vígbúast fyrir kosningarnar.
Allir settir á sinn bás, ekki satt, all-
ir merktir í bak og fyrir og sam-
kvæmt þeirri uppskrift hafa það
þótt hálfgerð drottinsvik af minni
hálfu að fara í framboð fyrir einn
flokk meðan ég er flokksbundinn í
öðrum. Sem eru auðvitað óþæg-
indin við það að skipta um skoðun.
Það er ekki reiknað með því í þess-
ari pólitísku formúlukeppni, að
manni snúist hugur. Enda er ég bú-
inn að senda mínum gamla flokki
lettarbréf með úrsögn, þannig að
nú vita allir hver er í hvaða liði.
Sömuleiðis er ég sjálfur búinn að
taka þá ákvörðun að koma ekki op-
inberlega fram fyrir hönd Íþrótta-
og ólympíusambands Íslands með-
an á þessari orrahríð stendur, svo
enginn ruglist á frambjóðandanum
og forsetanum. Ellert Schram verð-
ur sem sagt ekki endilega Ellert
Schram þegar þið hittið hann næst.
Eða þannig! Ég verð að dansa eftir
þessum leikreglum! Þannig skilst
mér að menn vilji hafa það.
Að því er varðar afstöðu Morg-
unblaðsins er hún skiljanleg og ég
virði hana og sömuleiðis skil ég það
sosum vel að flokkarnir vilji vita
hvaða bás þær hafa, kýrnar, sem
reknar verða inn í fjósið í kosning-
unum í vor. Eða þegar hlaupið
verður inn á völlinn.
Þetta er allt eftir þeirri kokka-
bók, sem segir að það sé óþægilegt
fyrir pólitíkina að einhver hugsi
upphátt og hugsi öðruvísi og rugli
þá einföldu og aðgengilegu mynd að
ganga megi að hverjum og einum
vísum. Það liggur við maður verði
að biðjast afsökunar, ef maður rétt-
ir ekki upp höndina og hrópar
húrra fyrir sínum flokki í fjörutíu
ár samfleytt. Ein rödd, ein skoðun,
einn alvitur flokkur.
Nú er það svo með mig að ég hef
verið í alls kyns félögum og sam-
tökum um ævina. Í KR frá barn-
æsku en á löngum ferli í íþrótt-
unum hef ég haft góð samskipti við
önnur félög og veit ekki betur en ég
sé ennþá skráður í félagatali hjá
Fram og einu sinni var ég styrkt-
araðili hjá Víkingi og ég er skráður
í því félagatali hjá Skagamönnum,
þar sem ég greiði framlag til stuðn-
ings þeim. Ekkert þessara félaga
hefur heimtað úrsögn mína, enda
þótt allir viti að ég er KRingur og
þar slær hjarta mitt.
Einu sinni gekk ég í Óháða söfn-
uðinn og man ekki heldur til þess
að ég hafi gengið úr þeim söfnuði
né þess verið óskað, enda þótt ég
hafi ekki sótt þar messur eða sinnt
þar neinu starfi í áratugi.
Er í minni Neskirkju og allir una
glaðir við sitt.
En svo kemur að pólitíkinni og
þá kemur herpingurinn og menn
bíta í skjaldarrendur og líta það
mjög alvarlegum augum og kalla
það að leika tveim skjöldum, þegar
það ferst fyrir að senda úrsagnir út
og suður, af því maður hefur álpast
til að hafa skoðun; af því maður
hefur ekki sömu skoðun ævina á
enda.
Mér datt í hug um tíma að bjóða
Sjálfstæðisflokknum upp á starfs-
lokasamning eins og nú tíðkast fyr-
ir þá og handa þeim, sem eru til
óþurftar á fleti fyrir. En starfsloka-
samningar eru ekki fyrir seglskip.
Að minnsta kosti ekki fyrir þá sem
eru óþægir. Enda hef ég engin
starfslok í hyggju. Öðru nær. Ég er
rétt að byrja. Á hverju? Jú, ég ætla
að einhenda mér í þessa baráttu og
halda áfram að hugsa upphátt um
það sem mér sýnist. Þar á meðal og
aðallega um þá grundvallarspurn-
ingu og helga rétt, sem við höfum
öll, lesendur og kjósendur, flokks-
bundnir og óflokksbundnir, að gera
það upp við okkur hvar og hvernig
við verjum atkvæði okkar. Viljum
við vera í liði með þeim sem skara
eld að sinni köku og fleyta rjómann
ofan af þeim gróða, sem skapast
hefur, m.a. með því að sameign
þjóðarinnar er afhent ókeypis, þeim
til prívateignar? Eða viljum við
standa þeim megin sem almanna-
hagsmunir eru virtir og fólkið ræð-
ur en ekki fjármagnið?
Ég fyrir mitt leyti veit í hvoru
liðinu ég vil vera. Þeir ríku og vold-
ugu sjá um sig. Og þurfa ekkert á
mér að halda. Hvers vegna skyld-
um við hin kyssa vöndinn og greiða
götu þessarar misskiptingar, þess-
arar sérhagsmunagæslu, með at-
kvæðum okkar?
Það er hér sem ég dreg mörkin.
Það er um þetta sem slagurinn
stendur. Valið er mitt og þitt.
Þar með er enginn að segja að
þannig verði um aldur og ævi. Að
línurnar verði sífellt svona skýrar.
Kannske hætti ég að styðja Sam-
fylkinguna einhvern tímann í fram-
tíðinni og kýs aftur Sjálfstæð-
isflokkinn. Eða einhverja aðra.
Enginn veit sína ævina fyrr en öll
er. Ég lofa engu um það. Það á mig
enginn nema ég sjálfur, hversu
mörgum flokkum og félögum sem
ég tilheyri, hversu mörgum félögum
og flokkum sem ég geng úr. Réttur
okkar og ábyrgð eru sem sagt í því
fólgin, að hugsa upphátt, hugsa
sjálfstætt, frá einum tíma til ann-
ars. Að vera sjálfum okkur trú.
Ég þakka ritstjóra Morgunblaðs-
ins og starfsmönnum fyrir að hafa
leyft mér að láta gamminn geisa
síðustu sjö árin. Ég skil afstöðu
blaðsins þegar það vill gera hlé á
þessum skrifum og virði hana.
Ég þakka fyrir mig. Sjáumst í
kosningaslagnum.
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir Ellert B.
Schram
Með allt á hreinu
bílar
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM
SMÁAUGLÝSING
AÐEINS 995 KR.*
Áskrifendum Morgunblaðsins
býðst smáauglýsing fyrir aðeins 995 kr.*
Pantanafrestur er til kl. 12 á þriðjudögum.
* 4 línur og mynd.
HAFÐU SAMBAND!
Auglýsingadeild Morgunblaðsins sími 569 1111 eða augl@mbl.is
Kynning í Lyfju:
Mánudaginn 3. febrúar Smáratorgi.
Fimmtudaginn 6. febrúar Spönginni.
Fimmtudaginn 6. febrúar Smáralind.
Föstudaginn 7. febrúar Smáralind.
Laugardaginn 8. febrúar Smáralind.
ofnæmisprófaðar og ilmefnalausar
snyrtivörur og verðið, það gerist ekki betra...
GOSH
cosmetics
Kaupauki: Glæsileg taska að gjöf þegar keypt er fyrir 2.000 kr.
www.lyfja.is