Morgunblaðið - 02.02.2003, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 02.02.2003, Blaðsíða 50
Frábært þorrablót ÉG vil þakka Aftureldingu fyrir frábært þorrablót sem félagið stóð fyrir laugar- daginn 25. janúar í Mos- fellsbæ. Þrátt fyrir að þetta hafi verið frumraun hjá fé- laginu mættu þarna um 500 manns og skemmtu sér konunglega fram eftir nóttu. Veislustjórn, matur og skemmtiatriði voru til fyrirmyndar og ekki skemmdi fyrir að hinir frá- bæru Papar léku fyrir dansi. Vonandi verður þetta árviss viðburður hér í Mosfellsbæ því eitt er víst að ég mæti aftur að ári. Hanna Margrét Kristleifsdóttir. Svar við fyrirspurn Í VELVAKANDA í síðustu viku var fyrirspurn beint til ÍTR varðandi gjaldskrá sundstaða og hvers vegna hætt hefði verið sölu 30 miða korta í sundlaugum í Reykjavík. Því er til að svara að þeg- ar sú ákvörðun var tekin nú um áramótin að hætta sölu 30 miða korta lá fyrir að af- greiðslukerfum sundstað- anna í Reykjavík yrði breytt og tekið upp rafrænt afgreiðslukerfi. Þetta raf- ræna kerfi mun gjörbreyta því kerfi sem notast er við í dag varðandi afslátt svo sem vegna 30 miða, 10 miða og sölu árskorta og vænt- anlega bjóða upp á fleiri og margþættari möguleika fyrir viðskiptavini sund- staðanna. Í samþykktum um fjárhagsáætlanir stofn- ana ÍTR er ákvæði um að gjaldskrár taki breytingum í takt við hækkanir á vísi- tölu, launabreytingar o.fl. Gjald fyrir fullorðna hafði ekki hækkað frá 1998 og því þótti ástæða til að hækka það nú. Anna Kristinsdóttir, formaður ÍTR. Athugasemd við Íslendingabók ÉG undirrituð vil geta þess, að burtséð frá ókostulegri rangfærslu, ól ég ekki ónefnt piltbarn 1973, og allra síst eingetið, svo ég sé mér ekki annað fært en af- neita móðerninu. Með fullri virðingu að öðru leyti fyrir „fræði- mönnum“. Guðrún Jacobsen, Bergstaðastræti 34, R. Tapað/fundið Bleikur heitur pottur HEITUR pottur, bleikur að lit, hvarf frá Sandtaki, Skútahrauni 11, Hafnar- firði, aðfaranótt sl. fimmtu- dags. Þeir sem gætu gefið upp- lýsingar um afdrif pottsins hafi samband í síma 892- 7995 eða lögregluna í Hafn- arfirði. Rauður svefn- poki týndist RAUÐUR, lítill svefnpoki týndist 30. desember sl. á leiðinni frá Grettisgötu eða í nágrenni Hlemms. Skilvís finnandi hringi í síma 483 0391 eða sendi póst á netfangið: laukki- mus@hotmail.com VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is DAGBÓK 50 SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Sel- foss kemur í dag, Hvid- björnen fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Splittnes kemur í dag. Regina fer í dag. Mannamót Aflagranda 40. Fé- lagsvist á morgun kl. 14. Árskógar 4. Þorrablót verður laugardaginn 15. febrúar, húsið opn- að kl. 17. Hljómsveit Hjördísar Geirs leikur fyrir dansi. Ýmis skemmtiatriði. Félag eldri borgara í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánu- og fimmtu- daga. Púttkennsla í íþróttahúsinu á sunnu- dögum kl. 11. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan opin kl. 10–13 virka daga. Morgunkaffi, blöðin og matur í há- degi. Sunnudagur: Dansleikur kl. 20. Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Skrifstofa fé- lagsins er í Faxafeni 12, sími 588 2111. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Bilj- ardstofan opinn alla virka daga frá kl 13.30– 16. Félagsstarfið Sléttu- vegi 11. Á morgun kl. 9 leikfimi, kl. 14 fé- lagsvist. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Í dag mynd- listarsýning Árna Sig- hvatssonar opin frá kl. 13–16 listamaðurinn á staðnum. Á morgun vinnustofur opnar frá 9–16.30, frá hádegi spilasalur op- inn. Allar upplýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Myndakvöld frá ferð- um sundhópsins og Fé- lagsstarfs aldraðra frá síðastliðnu sumri verð- ur í Gjábakka mið- vikudagskvöldið 5. febrúar kl. 20. Þar verða einnig kynntir ferðamöguleikar sum- arsins 2003. Vesturgata 7. Bíósýn- ing í Háskólabíó. Stella í framboði. Þriðjudag- inn 11. febrúar kl.14.30. Farið frá Vesturgötu kl.14. Skráning í síma 562 7077, allir vel- komnir. Kristniboðsfélag karla. Aðalfundur fé- lagsins verður í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58–60 mánudaginn 3. febrúar kl. 20. Venjuleg aðal- fundarstörf. Allir karl- menn velkomnir. Kvenfélag Háteigs- sóknar, aðalfundurinn verður þriðjudaginn 4. febrúar kl. 20 í safn- aðarheimilinu, venju- leg aðalfundarstörf, upplestur félagsvist, fánakynning. Konur eru beðnar um að mæta vel. Kvenfélag Fríkirkju- nar í Hafnarfirði. Aðal- fundur verður haldinn 4. febrúar í safn- aðarheimilinu við Linn- etsstíg kl. 20.30. Gestur fundarins verður Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Kvenfélagið Fjallkon- urnar heldur rabbfund þriðjudaginn 4. febrúar kl. 20 í Safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju. Allar konur velkomnar. Kvenfélag Seljasóknar heldur aðalfundinn þriðjudaginn 4. febrúar sem hefst kl.19. 30. Venjuleg aðalfund- arstörf og léttur kvöld- verður. Kvenfélag Garða- bæjar heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 4. febrúar á Garðaholti kl 20.30. Atriði úr Sello- fon verður sýnt. Konur beðnar um að mæta vel. Félag breiðfirska kvenna, aðalfundurinn verður mánudaginn 3. febrúar kl. 20. Rætt um framtíð fé- lagsins, kaffi, nýir fé- lagar velkomnir. Kvenfélag Breiðholts, heldur aðalfundinn, þriðjudaginn 11 febr- úar kl. 20. Þorramatur, venjuleg aðalfund- arstörf. Kvenfélag Bústaða- sóknar heldur aðal- fundinn mánudaginn 10. febrúar kl. 20 í Safnaðarheimilinu. Kvenfélag Laug- arnessóknar, aðal- fundur félagsins er á morgun, 3. febrúar, kl. 20 í safnaðarheimilinu. Kvenfélagið Heimaey, fundur verður á Ársal Hótel Sögu mánudag- inn 3. febrúar kl. 20.30. Sýndar verða gamlar myndir frá Vest- mannaeyjum. Kvenfélag Árbæj- arsóknar. Aðalfundinn verður haldinn mánu- daginn 3. febrúar á veitingastaðnum Aski, Suðurlandsbraut 4, kl. 19. Venjuleg aðalfund- arstörf, umræður um úrsögn úr BKR. Í dag er sunnudagur 2. febrúar, 33. dagur ársins 2003. Kynd- ilmessa. Orð dagsins: Aflið yður eigi þeirrar fæðu, sem eyðist, heldur þeirrar fæðu, sem varir til eilífs lífs og Manns- sonurinn mun gefa yður. Því á hann hefur faðirinn, Guð sjálfur, sett innsigli sitt. (Jóh. 6, 27.) Víkverji skrifar... VÍKVERJI rakst á dögunum inn áheimasíðu þar sem fjallað er um allt er viðkemur meðgöngu og fæðingu. Meðal annars er þar að finna sam- skiptavettvang þungaðra kvenna þar sem sjá mátti ýmsar vangaveltur þeirra. Víkverji komst til að mynda að því að líklega eru norskar konur duglegri en aðrar að halda í sér börnum því nú er rætt um að loka fæðingadeildinni í Gjø- vik í Noregi milli 20. júní og 20. ágúst í sumar. Einhverjar höfðu þó áhyggjur af þessu. Það virtist reyndar vera eitt og annað sem konurnar höfðu áhyggjur af ef marka má vefsíðuna. Ein konan kvart- aði sáran undan manni sínum sem henni fannst lítið áhugasamur um undrið mikla í vömbinni á henni. Önnur hafði þungar áhyggjur yfir því að hún hefði ekki „fengið æði“ fyrir neinu eins og hún hafði heyrt að allar óléttar konur fengju. Viðbrögð vefkvenna létu ekki á sér standa og deildu þær óspart reynslu sinni af því að geta ekki verið án tiltek- inna matartegunda. Má þar nefna dökkt súkkulaði, græn epli, kavíar, tómata og grænar baunir. x x x VÍKVERJI man eftir sögum semhann hefur heyrt af þunguðum kon- um sem tóku upp enn furðulegri mat- arvenjur en að ofan greinir. Má þar fyrsta nefna móður hans sem játaði eitt sinn að hafa ávallt fundið óstjórnlega þörf fyrir að borða malað kaffi þegar hún var með barni. Önnur kona um ní- rætt sagði Víkverja frá því að hafa gert sér ferðir á byggingastaði þegar hún var ólétt til að næla sér í svolítið múrryk sem hún síðan japlaði á. Einhverju sinni las Víkverji um dyggan eiginmann sem rauk að kvöldi dags út í búð til að seðja löngun þung- aðrar konu sinnar í ananas úr dós. Þeg- ar hann kom til baka með dósina brast sú ólétta hins vegar í grát. Í ljós kom að ananasinn varð að vera í hálfum dósum til að geta talist gjaldgengur. x x x Ingólfur V. Gíslason félagsfræðingursegir frá því í bók sinni „Pabbi“ að þegar hann og kona hans áttu von á sínu fyrsta barni hafi þau verið búsett í Lundi í Svíþjóð. Kom þá yfir hina verð- andi móður ómótstæðileg löngun í Royal karamellubúðing. Eftir að Ing- ólfur hafði þrætt allar matvöruverslanir í Lundi rann upp fyrir honum að slíkt hnossgæti væri ekki að finna þar í landi. Hann dó þó ekki ráðalaus heldur fékk föður sinn í lið með sér sem sendi dá- góðan forða af búðingnum með næstu vél frá Keflavík til Kaupmannahafnar þangað sem hinn ráðagóði eiginmaður sótti góssið. Undarlegustu sögurnar að mati Vík- verja eru þó af konu einni sem sleikti dagblöð í gríð og erg á meðgöngunni. Fylgir ekki sögu hvort hún hafi verið blaðamaður. Og svo má ekki gleyma vinkonu Víkverja sem uppljóstraði að þegar hún gekk með börn sín hafi hún verið sólgin í Lúx-handsápu og átti þá jafnvel til að sleikja hendur sínar við þvotta. Góð fæða fyrir verðandi mæður? 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 LÁRÉTT 1 skóflar, 4 frækinn, 7 veslast upp, 8 ásjóna, 9 vindur, 11 húsaskjól, 13 andvari, 14 tæla, 15 óbangin, 17 undur, 20 bókstafur, 22 tréð, 23 duftið, 24 ljúka, 25 híma. LÓÐRÉTT 1 fýll, 2 kiðlingarnir, 3 kyrrir, 4 snjókoma, 5 hef- ur, í hyggju, 6 brúkað, 10 fárviðri, 12 reið, 13 op, 15 ís, 16 kistan, 18 hökur, 19 kona, 20 auk þess, 21 heiti. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 hjásvæfan, 8 sýpur, 9 logns, 10 tíu, 11 tjara, 13 nánar, 15 fiska, 18 satan, 21 rek, 22 skott, 23 apans, 24 sannaðist. Lóðrétt: 2 japla, 3 sorta, 4 ætlun, 5 angan, 6 ósæt, 7 ós- ar, 12 rak, 14 áma, 15 foss, 16 Skota, 17 artin, 18 skarð, 19 trafs, 20 næst. Krossgáta     Ég er hrærður,“ átti séraBolli Gústavsson vígslubiskup að hafa sagt eftir að sóknarbörn hans höfðu fært honum öskju að gjöf með vönduðum te- skeiðum. Tilsvar séra Bolla er lítið dæmi um hnyttni prestastétt- arinnar, sem er í senn áhugaverð, alvarleg, skemmtileg – og pólitísk.     Undanfarin tvö misserihefur meira borið á því að prestar vilji auka pólitíska boðskapinn í pré- dikunum sínum og benda á það sem betur má fara í þjóðmálunum. Harðorðar ræður, viðtöl í blöðum og greinaskrif hafa vakið at- hygli. Reyndar telja marg- ir þeirra þessa leið var- færna. Varast verður að dragast inn í hringiðu stjórnmálanna og ekki má gleyma gildi trúarboð- skaparins eins og sér.     Mikið væri þó af þeimtekið ef þeir gætu ekki vísað í raunverulegt líf fólks í prédikum sínum. Séra Sigurður Árni Þórð- arsson hefur meðal ann- ars fjallað um Harry Pott- er-æðið og sagt bækurnar eins og hver önnur æv- intýraguðspjöll. Herra Karl Sigurbjörnsson nefndi eina prédikun sína fagnaðarerindi eða hagn- aðarerindi? og taldi hina sönnu auðlegð ekki fala fyrir fé. Séra Hjálmar Jónsson gagnrýndi komu klámmyndaleikara sem gerður var að hetju í fjöl- miðlum og spurði: „Hvaða brenglun er þetta eigin- lega? Eruð þið brjálaðir, fjölmiðlamenn?“     Já, þær yrðu heldur þurr-ar ræðurnar ef ein- ungis væri vísað til ritn- ingarinnar en ekki í daglegt líf borgaranna. Og þá er sjálfsagt að benda á það sem betur má fara. Slíkar ábendingar eru í eðli sínu pólitískar og persónuleg skoðun prédikarans þótt e.t.v. sé vísað í siðfræði biblíunn- ar. Slíkt hefur viðgengist í aldir og réttlætt margt. Pólitík í prestastétt teng- ist ekki bara viðhorfum til þjóðmála heldur líka átök- um um hempu og gott brauð. Svokölluð kirkju- pólitík ræður þar miklu og hafa stjórnmálaflokkar oft tengst þessum átökum, enda sótt styrk í raðir presta sem eru oft leiðtog- ar í sinni sveit og söfnuði. Margir þeirra eru líka virkir þátttakendur í stjórnmálaflokkum og hafa setið á þingi.     Það er því verðugt verk-efni að hlusta á prédik- un dagsins og rissa upp í huganum hvert vegvísir prestsins liggur. Kannski verður sú leiðsögn ekki eins augljós og á árum áð- ur. Fræg er sagan af séra Bjarna Jónssyni dóm- kirkjupresti sem þótti frek- ar hallur undir Sjálfstæð- isflokkinn. Stuttu fyrir borgarstjórnarkosningar eitt vorið kvaddi hann kirkjugesti með þessum orðum: „Kæru sóknarbörn! Kjósið D, kjósið D, ... kjósið Drottin.“ STAKSTEINAR Kirkjupólitík VERNE Carter í Penticton í Bresku Kólumbíu í Kan- ada sendi Morgunblaðinu meðfylgjandi mynd í þeirri von að einhver þekkti fólkið á myndinni, sem Óskar Magnússon tók sennilega á árunum í kringum 1900 í Reykjavík. Hún segir að amma sín, Guðfinna Pétursdóttir, sem fæddist 3. júní 1890, sé væntanlega eitt barnanna. Foreldrar Guð- finnu hafi verið Pétur Auðunsson, sjómaður, og Guðrún Guðmundsdóttir, en þau hafi einnig átt börnin Guðmund, Þóru og Óskar. Hæg er að senda Verne Carter tölvupóst (pee- wee@telus.net) en heim- ilisfang hennar er: Verne Carter, 139 Redwing Place, Penticton, British Columbia, Canada. V2A 8K6. Hverjir eru á myndinni?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.