Morgunblaðið - 02.02.2003, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2003 41
Sérhæfðir sölumenn í atvinnuhúsnæði!
FRANZ@holl.is
Hóll — Alltaf
rífandi salaAGUST@holl.is
FJÖLDI EIGNA TIL
SÖLU OG LEIGU!
Ekki hika við að hringja í
okkur félagana,
Franz, gsm 893 4284,
Ágúst gsm, 894 7230.
TIL LEIGU
Til leigu í þessu glæsilega
húsi skrifstofuhúnæði sem
uppfyllir allar kröfur til skrif-
stofureksturs. Mjög góð
staðsetning. Næg bílastæði.
Frábært útsýni.
6. hæð ca 430 fm
7. hæð (efsta) 850 fm
Upplýsingar veitir
Magnús Gunnarsson í
s. 588 4477 eða 822 8242
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Höfum til sölu 6 íbúðir í
þessu fallega endurgerða
húsi í Þingholtunum. Um er
að ræða rúmgóðar og bjart-
ar íbúðir með sérlega góðri
lofthæð. Íbúðirnar verða afh.
fullbúnar án gólfefna með
sérsmíðuðum innréttingum.
Íbúð á 1. hæð, 0101, að gólffleti 146,1 fm Verð 21.000.000
Íbúð á 1. hæð, 0103, að gólffleti 72,8 fm Verð 13.000.000
Íbúð á 2. hæð, 0201, að gólffleti 84,2 fm Verð 14.200.000
Íbúð á 2. hæð, 0202, að gólffleti 69,7 fm Verð 12.200.000
Íbúð á 2. hæð, 0203, að gólffleti 103,2 fm Verð 17.800.000
Íbúð á 3. hæð, „penthouse“, að gólffl.177,8 fm Verð 32.000.000
Íbúðirnar verða til sýnis á morgun, mán. og á þri. milli kl. 16 og 18.
Verið velkomin.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
Þingholtsstræti 6
Nýjar íbúðir í miðbænum
RAÐHÚS
- HVERAGERÐI - NÝTT
Raðhús við Bjarkarheiði og Réttarheiði.
Húsin eru á einni hæð með innbygg. bíl-
skúr, samtals 123 fm. Húsin afhendast
fullfrágengin, lóð jöfnuð. Að innan eru
húsin með vélslípuðum gólfum, fullein-
angruð, klædd og tilbúin undir gólfefni.
Verð frá 9,4 millj. fyrir byggingarstig 1 og
frá 13,8 fyrir byggingarstig 2. Nr. 3001
jöreign ehf
Sími 533 4040
www.kjoreign.is
Ármúla 21, Reykjavík
Dan V.S. Wiium hdl.,
lögg. fasteignasali,
Skrifstofan opin í dag frá kl. 12 -14
NÝJAR/NÝLEGAR EIGNIR Á SKRÁ HJÁ OKKUR
STEKKJARHVAMMUR
+AUKAÍBÚÐ
Fallegt raðhús í Hafnarfirði, alls 228 fm +
30 fm bílskúr. Endaraðhús, hæð og ris
auk 2ja. herb. íbúðar á jarðhæð.
Staðsetning góð og hús fallegt.
Verð 22,6 millj. Nr.3432
VÍÐIMELUR Góð og falleg 2ja herb. kjallaraíb. á frábærum stað í bænum.
Stutt í allt. Parket á gólfum. Ljósar innréttingar. Rúmgóð og björt. Verð 8,5 millj.
Nr. 3416
LEIRUBAKKI Glæsileg 4ra herb. íbúð á þessum vinsæla stað. Nýleg gólfefni
og nýleg tæki í eldhúsi. Stórar góðar svalir. Sameign snyrtileg. Merkt bílastæði fylgir.
Verð 12 millj. Áhvíl. 4,8 millj. húsbr. Nr. 3404
ÁLFTAMÝRI - MIKIÐ ENDURNÝJUÐ + BÍLSKÚR Rúmgóð
3ja herb. íbúð á 4. hæð, um 80 fm, auk 21 fm bílskúrs. Hús nýmálað og bílskúrinn er
nýlegur. Nr 3407
KÓPAVOGSBRAUT 2ja íbúða hús sem selst saman eða í sitt hvoru lagi.
Íbúðirnar eru hvor um sig 3ja herb. Önnur ca 65 fm og hin 67 fm. Hús sem býður
upp á mikla möguleika, s.s. tvöföld húsbréf ef báðar íbúðirnar eru teknar. Nánari
uppl. veittar á skrifstofu. Verð 9,5 millj. hvor íbúð. Nr. 3421 og 3422
NEÐSTABERG Mjög gott einbýlishús, sem er hæð og ris, ásamt sérbyggðum
bílskúr, á góðum stað innarlega í lokuðum botnlanga. Um 181 fm. Verð TILBOÐ.
Nr. 2369
ÁSGARÐUR Falleg og vel umgengin 60 fm 2ja herbergja stúdíóbúð á jarðhæð
í góðu fjölbýli. Góður svefnkrókur með fataskápum. Íbúðin er öll flísalögð. Geymsla
og þvottahús innaf íbúð. Sérinngangur af svölum. Hús í mjög góðu ástandi. Róleg og
góð staðsetning. Verð 8,9 millj. Nr. 2737
KROSSEYRARVEGUR - HAFNARFIRÐI Mikið endurnýjuð 3ja
herb. neðri sérhæð í tvíbýli. Nýtt eldhús. Eikarparket. Allt nýtt á baðherbergi. Mjög
góð staðsetning í lokaðri botnlangagötu.Laus strax. Verð 9,8 millj. Nr. 2381
ASPARFELL 2ja herbergja íbúð á 2. hæð. Anddyri er lagt parketi úr kirsuberja-
viði. Stofan er einnig lögð kirsuberjaparketi og þaðan er útgengt á stórar suðursvalir.
Eldhúsið er með nýlegum viðarinnréttingum, dökkar borðplötur og parket á gólfum.
Baðherbergið er allt flísalagt. Verð 7,5 millj. 2358
HRAUNBÆR Snotur 2ja herbergja íbúð á 1. hæð, jarðhæð, í litlu fjölbýli. Laus
strax. Hús nýlega viðgert og klætt með Steni-klæðningu að utan. Verð 6,9 millj. Nr.
2395
FELLSMÚLI Góð 4ra herb. íbúð á 3. hæð. Gott útsýni. Hús klætt með álklæðn-
ingu að framanverðu. Sérþvottah. í íbúð. Verð 11,9 millj. Nr. 1941
DALALAND - LAUS Góð 2ja herb. íbúð á jarðhæð. Sérgarður í suður. Ljós
innrétting. Parket á gólfum. Fallegt hverfi. Verð 8,5 millj. Stærð 43 fm. Nr. 2317
HÁALEITISBRAUT Mjög góð 4ra til 5 herb. íbúð á 1. hæð í fjölbýli. Ljósar
innréttingar. Þvottahús innaf eldhúsi. Ljóst parket. Vestursvalir. Áhv. húsbréf 8,1
millj. Verð 13,0 millj. Nr. 2163
TÓMSARHAGI - GÓÐ SÉRÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ - LÍTIÐ
NIÐURGRAFIN Vel staðsett, nálægt HÍ. Stutt í þjónustu. Verð 10,9 millj.
Nr 2194
Auk fjölda annarra eigna á skrá.
Hafið samband við sölumenn vegna frekari uppl.
Fjöldi annarra eigna á skrá.
Hafið samband við sölumenn vegna frekari uppl.
SKÚTUVOGUR 2 - RVÍK - TIL LEIGU
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími 520 7500
Skrifstofuhúsnæði
Glæsil. vandað nýtt lyftuhús (2. hæð) og 3. hæð (útsýnisturn). Tilvalin eign fyrir t.d. lögfræðing,
verkfr., stofnanir, læknastofur o.fl. o.fl. Góð aðkoma, næg bílsastæði. Einstök staðsetning og aug-
lýsingagildi. Afh. strax. Ath. að 1. hæðin, jarðhæðin er öll leigð.
Upplýsingar gefur Helgi Jón á skrifstofu Hraunhamars.
Það reyndust vera rök umhverf-issinna sem urðu sigursælli og
fengu mig til þess að móta, ég vil
segja, mjög djarfa tillögu í þá veru
að gera Ísland að hreinni nátt-
úruparadís eins og það á skilið –
„landið vort fagra
með litskrúðu
fjöllin, leiftrandi
fossa og glóð undir
ís.“
Við, afkomendur
þeirra óróaseggja
sem flæmdust
hingað með
skyldulið sitt,
þræla og búfénað
fyrir röskum 1.100 árum, ættum að
reyna að bæta fyrir þessa röskun á
friði og landgæðum Íslands. Í kjöl-
far Móðuharðindanna 1783 voru
uppi hugmyndir í Danmörku um að
flytja þálifandi Íslendinga á Jót-
landsheiðar vegna þess hvernig
landið hafði leikið þá, af þeim flutn-
ingum varð ekki. Nú ættum við að
bæta um betur og fara burt vegna
þess hvernig við erum búin að leika
landið. Við erum ekki nema á fjórða
hundrað þúsund talsins og gætum
vafalaust fengið til ábúðar eyðifirði
og heiðarlendi í Noregi, þaðan sem
flestir forfeður okkar komu. Okkur
ætti að vera þar óhætt núna, Har-
aldur hárfagri er löngu horfinn og
núverandi Noregskonungur virðist
meinhægur maður að sjá.
Við þurfum sannarlega ekki neitt
gósenland, erum ekki vön því og
eigum það víst varla skilið. Viðmót
Íslendinga við Fjallkonuna var að
vísu skaplegt fyrstu aldirnar þegar
þeir bjuggu í umhverfisvænum
moldarkofum, lögðu enga vegi held-
ur fóru ferða sinna fótgangandi eða
á hestum og varla er talandi um
þótt einn og einn maður hafi rist of-
an af fáeinum þúfum til að slétta í
kringum bæinn sinn. Ég viðurkenni
að það var verra með sauðféð sem
át upp skóglendið á furðu skömm-
um tíma.
Út yfir tók hins vegar þegar
tækniöld gekk í garð, Íslendingar
kynntust steinsteypu, tóku að brúa
og virkja fallvötn, byggja alls kyns
stórhýsi og loks að malbika vegi.
Nú er svo komið að Fjallkonan er
úr lofti séð eins og æðaslitinn líkami
þúsund barna móður. Á sama hátt
má líkja virkjununum við æðahnúta
á helstu slagæðum fósturjarðarinn-
ar. Og ef við viljum halda þessari
líkingu áfram þá getur ef svo heldur
fram sem horfir hæglega skapast
hætta á „blóðtappamyndun“, – ef
ekki í æðum Fjallkonunnar þá í æð-
um okkar „þúsund barnanna“ sem
höfum staðið misjafnlega mikið á
öndinni af æsingi undanfarna mán-
uði vegna deilna um umhverfismál.
Ef Norðmenn vilja okkur ekki öll
til baka þá mætti hugsa sér að sum-
ir færu til Írlands. Hingað komu í
upphafi Íslandsbyggðar um 50%
kvenna og um 20% karla af gelísk-
um uppruna samkvæmt erfðarann-
sóknum. Við erum svo heppin að
hafa hér fyrirtæki á borð við Ís-
lenska erfðagreiningu. Með ná-
kvæmum rannsóknum á núlifandi
Íslendingum væri kannski hægt að
finna út í grófum dráttum hver ætti
að fara hvert.
Hvað um það – þegar við værum
öll horfin héðan á braut með bíla
okkar og búfénað þá gæti þetta
land, sem við höfum að sögn leikið
grátt, fengið að græðast upp og
orðið að sannkallaðri paradís, -
einkum fyrir göngufólk.
Fyrstu áratugina gætu ferða-
menn gengið þær götur sem við
höfum gert en síðar munu þær von-
andi gróa upp og þá verður gaman
að brjóta sér braut um kjarrivaxnar
heiðar niður í grösuga dalina.
Við þyrftum ekki að hætta að
veiða fisk vegna þessara búferla-
flutninga. Hann er hvort sem er
nær allur veiddur af frystitogurum
sem eins gætu landað fullunnum
aflanum erlendis.
Íslenskunni og þjóðerniskennd-
inni þyrftum við heldur ekki að
glata. Við gætum öll verið í tölvu-
sambandi hvert við annað, haldið
þorrablót og hátíðalegan 17. júní ár
hvert. En fyrst og síðast gætum við
loks sofið svefni hinna réttlátu með
góða samvisku – vitandi að við höf-
um gert allt sem í okkar valdi stóð
fyrir landið okkar og velferð fugla
og gróðurs þar.
ÞJÓÐLÍFSÞANKAR/Er þetta of djörf tillaga?
Hinar nýju
Jótlandsheiðar
eftir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur
ÞÆR stundir hafa komið undanfarna mánuði að ég hef bæði undrast og hálf-
skammast mín fyrir tilfinningadoða minn þegar umræður um virkjanamál og
álverksmiðju hafa risið sem hæst. Án þess að blaka svo mikið sem augnahári
hef ég hlustað á rökin með og móti og átt einstaklega bágt með að mynda mér
haldgóða skoðun. En svo gerðist það dag einn að ljóst varð að hin endurtekna
umræða hafði síast inn í huga minn þrátt fyrir að hann hafi að mestu verið
gagntekin af smávægilegu amstri, svo sem að laga til í fataskápum, hreinrita
gömul ljóð, lita á mér augabrúnirnar og þrífa bílinn.
Moggabúðin
Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr.