Morgunblaðið - 02.02.2003, Síða 56

Morgunblaðið - 02.02.2003, Síða 56
FÓLK Í FRÉTTUM 56 SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Á bakvið rómantíkina, glæsileikann og ástríðurnar er átakanleg og ögrandi saga einstakrar konu. Ein eftirminnilegasta mynd ársins! „Listaverk...Salma Hayek sýnir góðan leik í aðalhlutverkinu og Alfred Molina jafnvel enn betri leik í hlutverki Diego.“ ★★★ HÖJ kvikmyndir.com Golden Globe Besta tónlistin SJÓNVARPSSTÖÐVAR í Bandaríkj- unum keppast við að sýna þætti um Michael Jackson. Poppkóngurinn þyk- ir fremur vera konungur sjónvarpsins nú um stundir því ávallt er hann birt- ist í sjónvarpi fylgist bandaríska þjóð- in með. ABC er komið með sýningarréttinn á bresku heimildarmyndinni Living With Michael Jackson. Er stöðin sögð hafa greitt um 350 milljónir króna fyrir sýningarréttinn í Bandaríkjunum en fjölmargar stöðvar kepptust um réttinn. Myndin verður sýnd föstudaginn 7. febrúar, sem tveggja klukkustunda út- gáfa af fréttaskýringarþættinum 20/ 20. Þátturinn er sagður gefa einstaka sýn inn í sérstætt líferni Jacksons. Tíu dögum síðar ætlar NBC að sýna sérstakan Dateline-þátt, sem myndi einungis fjalla um líf og starf Jack- sons, og þær breytingar, sem hafa orðið á honum og ekki síst andliti hans. Í Dateline verða viðtöl við fólk, sem hefur staðið Jackson nærri, m.a. við lýtalækni, sem hefur gert aðgerð á honum. Ef þættirnir eru jafnupplýs- andi og gefið er í skyn er líklegt að almenningur verði orðinn einhvers vísari um sérvitringinn. Reuters Hvernig skyldi Michael Jackson sjá heiminn? Bandarískir sjón- varpsáhorfendur verða einhvers vísari um það á næstu vikum. Jackson vinsælt sjónvarpsefni Asian Dub Foundation – Enemy of the Enemy HINIR bresku Public Enemy? Asian Dub hafa soðið athyglisverð- an seið í hartnær áratug, þar sem poppi, rokki, tæknói, hipp hoppi, döbbi og ind- verskri tónlist er hrært saman í merkilega heildstæðan jafning. Sveit- in er þá afar pólitísk, eitthvað sem er henni bæði styrkur og veikleiki. Tón- listarlega hefur sveitin orðið æ örugg- ari í gegnum árin og hér má finna mörg góð dæmi um hvert hún er kom- in („Fortress Europe“, „Rise to the Challenge“). Best eru hröðu, beittu lögin þar sem stílum ægir saman í belg og biðu. En um leið og framvind- an verður hægari er eins og botninn detti úr sveitinni og enn vafasamari eru tilraunir til hreinna dægurlaga, þar sem Sinead O’Connor er fengin til aðstoðar. Sumir sprettirnir á Enemy of the Enemy eru því dálítið slappir en sem heild tollir þetta ágætlega vel, einkum er afstaða sveitarinnar og að- koma að tónlistinni svöl.  Foo Fighters – One By One Það er orðið sorglega sjaldgæft að sveitir vaxi að styrk jafnt og þétt með árunum. Í dag er það iðulega þannig að mesta fúttið er farið þegar önnur platan kemur út (Oasis?). Dave Grohl hefur hins vegar tekist að gera sína bestu plötu hér. Popprokk Foo Fighters hefur hingað til verið fremur ósannfærandi en ef það tekur þrjár plötur að fínpússa formúluna þá verður bara að hafa það! Það er fáránlega mikið öryggi yf- ir plötunni og Grohl og félagar hoppa úr tuddarokkurum yfir í melódískt pönkrokk af einskærri lagni. Afar skothelt allt saman og mettandi.  Erlend tónlist Arnar Eggert Thoroddsen Maðurinn frá Elysian Fields (The Man From Elysian Fields) Drama Bandaríkin 2001. Myndform VHS. (106 mín.) Bönnuð innan 12 ára. Leikstjórn George Hickenlooper. Aðalhlutverk Andy Garcia, James Coburn, Mick Jagger, Jul- ianne Margulies, Olivia Williams. BYRON Tyler (Garcia) er hæfi- leikaríkur en lánlítill rithöfundur sem berst í bökkum. Síðasta bók hans er komin í útsöluhauginn og útgefandinn neitar að gefa út næstu bók. Um síðir neyðist hann því til að leita á önnur mið til að geta fram- fleytt fjölskyldunni. Hann kynnist dul- arfullum snyrti- pinna (Jagger) sem býður honum vel launað starf, sem fylgdarsveinn, eða karlhóra til þess að gæta jafnréttis. Með sært stolt gerist Tyler leikfang ungrar eiginkonu (Williams) frægs rithöfundar (Coburn heitinn í einni af sínum lokarullum) sem biður hann að aðstoða sig við að klára bók áður en dauðinn knýr dyra. Þetta vandaða og skemmtilega karlmennskudrama kemur þægilega á óvart. Tilfinningaflækja miðaldra karlmanns, sem neyðist til að horfast í augu við að hafa ekki upp á annað að bjóða en líkama sinn, er sannfærandi, einkum vegna frábærrar frammi- stöðu Garcia, sem og reyndar allra meðleikara hans, þar með talið Jagg- ers.  Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Rithöfund- ur til sölu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.