Morgunblaðið - 02.03.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.03.2003, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 2. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ STARFSEMIN felst í því aðvið tökum við genum fráýmsum aðilum. Geningeyma upplýsingar umprótein og við breytum genunum á ákveðinn hátt, svo byggplantan skilji upplýsingarnar. Eftir að við höfum breytt geninu, en í því felst meðal annars að próteinið hleðst eingöngu upp í fræi byggsins, ferjum við það yfir í plöntuna og veljum úr þær plöntur sem tjá það í nægilega miklum mæli, sem getur verið mjög einstaklingsbundið. Síð- an er plöntunum fjölgað og fyrr en síðar setjum við þær í útiræktun á akri. Þegar fræin hafa náð ákveðnum þroska eru þau tekin og próteinið hreinsað úr þeim.“ Frumkvöðlar ORF líftækni hf., Björn L. Örvar og Einar Mäntylä, virðast vera með lífvænlegt sprota- fyrirtæki í höndunum, því mikil eft- irspurn er eftir próteinum, sem eru t.d. notuð sem virkt efni í lyfjagerð. Prótein eru hvítuefni, sem stjórna gerð frumu og vinna öll helstu störf hennar. Þau eru afurðir genanna. Mörg gen framleiða prótein, sem eru einkennandi fyrir sérstakar frumur og aðgreina þær frá öðrum. Lyf sem innihalda prótein hafa verið í þróun undanfarin ár og líkur á að rannsóknum fleygi fram. ORF líf- tækni hyggst í framtíðinni nýta erfðabreytt íslenskt bygg til að framleiða prótein, t.d. bóluefni, pró- teinlyf, afurðir fyrir læknisfræði- rannsóknir og líftækni, náttúru- legar fjölliður og iðnaðarensím. Byggið erfitt viðureignar Ekki var sjálfgefið að íslenska byggið yrði fyrir valinu þegar ORF líftækni ákvað að þróa svokallaða græna smiðju, eða erfðabætta plöntu, til framleiðslu sérvirkra pró- teina. Byggið er sérstaklega erfitt viðureignar, en launar erfiðið ríku- lega með ýmsum kostum. „Við tók- um mikla áhættu fyrir tveimur ár- um, þegar við ákváðum að nota byggplöntuna. Vefjaræktun byggs, sem er nauðsynlegur hluti af ferlinu, er mjög erfið. Þá er líka erfitt að ferja gen yfir í byggið. Bygg er síð- asta korntegundin þar sem tókst að ferja gen yfir með þessum hætti, en áður hafði það tekist með hrísgrjón og maís. Stærsta ástæða þess að við völdum byggið er sú, að við getum tryggt erfðafræðilega einangrun plöntunnar. Engar skyldar plöntur eru í íslenskri náttúru og bygg- plantan er ófær um að frjóvga aðrar plöntur. Hún nær ekki að vaxa utan ræktunarreita án aðstoðar manns- ins og getur því ekki breiðst út, eins og sannast hefur hér allt frá land- námi. Það hefði vissulega verið auð- veldara að erfðabreyta öðrum plöntum, en miklu áhættusamara. Samkeppnisaðilar okkar úti í heimi hafa rekið sig á þetta. Erfðabreytt- ur maís og repja hafa dreift sér, sem er óæskilegt og óverjandi þegar um er að ræða framleiðslu á lyfvirkum próteinum.“ ORF líftækni fékk í liðinni viku leyfi Umhverfisstofnunar til tilraunaræktunar á erfðabreyttu byggi undir berum himni í sumar. „Sú ræktun er ekki erfið, enda löng hefð fyrir byggræktun hér á landi. Kynbætur á byggi hafa tekist mjög vel og við byggjum á þeirri vinnu sem farið hefur fram á RALA. Erf- iðasti hluti okkar starfs er á rann- sóknarstofunni, áður en kemur að ræktun og uppskeru.“ Amboð og amínósýruröð Að baki ORF líftækni hf. eru vís- indamennirnir og frumkvöðlarnir sem hófu rannsóknirnar, Rannsókn- arstofnun landbúnaðarins og Iðn- tæknistofnun. Fyrstu fjárfestarnir gengu til liðs við fyrirtækið á dög- unum, Framtakssjóður Eignar- haldsfélags Alþýðubankans og fjár- festingarsjóðurinn MP Bio. Fyrirtækið starfar í tveimur ORF líftækni hf. erfðabreytir íslensku byggi til að framleiða prótein Gæti opnað leið fyrir ódýrari próteinlyf Morgunblaðið/KristinnBjörn L. Örvar og Einar Mäntylä við íslenskt bygg á rannsóknarstofunni. „Kornaxið er okkar verksmiðja og við próteinframleiðsluna kemur það í stað gerjunartanka sem kosta marga milljarða.“ VIÐ erfðabreytingar á byggi þarf fyrst að búa til genaferju. Genaferjan er búin til úr genabútum, sem koma aðallega frá nokkrum mismunandi plöntuteg- undum. Genaferjan býr líka yfir alls konar skipunum, m.a. um að próteinið skuli aðeins safnast saman í fræi byggsins. Genið sem geymir upplýsingar um verðmætt prótein er sett inn í genaferjuna. Ferjan er svo sett inn í jarðvegsbakteríu, sem skilar henni inn í byggið og er þannig náttúruleg genaferja. Genaferjunni þarf að koma yfir í frumu í bygginu, sem er tilbúin til að skipta um hlutverk. Slíkar frum- ur eru í óþroskuðu kími, en kím er plöntufóstur sem myndast þegar okfruma tekur að skipta sér. Þessar frumur eru því sambærilegar við stofnfrumur í dýrafóstrum. Vísindamenn ORF líftækni hf. nema brott hluta kímsins og jarðvegsbakterían flytur genið yfir í kím- ið. Þegar hér er komið sögu þarf að mynda plöntu úr kíminu. Kíminu er komið fyrir í sérstöku æti, sem er þeirrar náttúru að það hindrar vöxt á öðrum frumum en þeim sem bera genið sem flutt var í kímið. Kímið er nú farið að líkjast litlum gerdeigsklumpi og þá tekur erfiðasti hluti verkefnisins við. Frum- urnar þurfa að skipta um hlutverk, sumar að breyt- ast í rót og aðrar í stöngul og blöð. Af hverjum 100 plöntufóstrum tekst ORF líftækni hf. að rækta upp 15-20 plöntur. Dæmi eru um að rannsóknarstofur hafi ekki náð að rækta eina einustu plöntu með þessari aðferð, enda er vefjaræktun mjög flókin. ORF líftækni frétti að Ástralir hefðu náð ágætum árangri í vefjaræktun og réð þaðan vísindamann, Daniel Bishop, sem hefur unnið hjá ORF líftækni frá því í maí á síðasta ári. Erfðabreyting á byggi Morgunblaðið/Kristinn Kím í sérstöku æti. Mynda þarf byggplöntu úr kím- inu og þegar eru örsmáir rótarangar og blöð farin að myndast. Þetta er erfiðasti hluti ferlisins. Morgunblaðið/Kristinn Byggplantan hefur nú tekið á sig mynd og styttist í að henni verði plantað í mold. Ljósmynd/Kesara Anamthawat-Jónsson og Hlynur Sigurgíslason í samvinnu við ORF Smásjármynd sem sýnir erfðabreytta frumu í byggi sem tjáir flúr- ljómandi prótein (skærgræn), skömmu eftir erfðaflutning, innan um frumur sem ekki eru erfðabreyttar (rauðar). BAKTERÍUR, gersveppir og dýrafrumur hafa verið notuð við próteinframleiðslu, auk plantna. Bakteríur og gersveppir ráða ekki við flókin, samsett prótín. Til þess þarf heilkjörn- unga. Dýrafrumur og plöntur eru heilkjörnungar. Framleiðsla með dýrafrumum er hins veg- ar óhagkvæm og stofnkostn- aður er mjög mikill. Plöntur eru mun ódýrari kostur, en þá kemur til álita hversu öruggur hann er, t.d. hvort hætta er á að erfða- breytt planta frjóvgi aðrar plöntur. Íslenska byggið tryggir af- mörkun ræktunarinnar, er sjálf- frjóvga og á sér enga ættingja í náttúrunni og stendur því betur að vígi en t.d. maís, repja og tóbaksplanta. Byggið er ófært um að lifa af í ís- lenskri náttúru, hægt er að rækta það án þess að nota eit- urefni og nóg er af rækt- unarlandi. Með því að stýra erfða- breytingum á byggi á þann veg, að próteinið safnist að- eins fyrir í fræjunum, er geymsluþol og stöðugleiki pró- teina tryggt. Afmörkuð ræktun 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.