Morgunblaðið - 02.03.2003, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 2. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
! "
!
# $ ! $
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
SIGRÚN Jónsdóttir myndlistar-
kennari beinir í bréfi til blaðsins í
gær [miðvikudag] spurningum til
Icelandair vegna ferðar sinnar
norður til Longyearbyen á síðast-
liðnu sumri. Hún hafði keypt far-
seðil þangað hinn 10. júlí á ákveðnu
verði með góðum fyrirvara en annar
í fjölskyldu hennar keypti með
skemmri fyrirvara farseðil hinn 12.
júlí á töluvert lægra verði. Auk þess
tók ferð Sigrúnar tvo daga, en ferð
hins tók aðeins einn dag. Hvernig
má þetta vera? spyr Sigrún.
Sjálfsagt hefði verið að skýra
málin fyrir Sigrúnu sjálfri, en úr því
þetta ber fyrir augu lesenda Morg-
unblaðsins er rétt að benda á að
Longyearbyen á Svalbarða er ekki
einn af áfangastöðum Icelandair.
Sigrún fór með Icelandair til Ósló
og þaðan með öðru flugfélagi
(Braathens) norður í íshaf með við-
komu í Tromsö. Kvörtun hennar
bæði hvað varðar mun á verði og
ferðatíma virðist snúast um flug
Braathens frá Ósló til Longyear-
byen.
Icelandair hefur á að skipa starfs-
fólki sem býr yfir mikilli þekkingu
og reynslu í því að leita að hag-
kvæmustu ferðatilhögun fyrir við-
skiptavini sem eru að fljúga til fjar-
lægra staða. Félagið býður þá
þjónustu að bóka og ganga frá far-
seðlum fyrir viðskiptavini alla leið á
áfangastað, hvort sem leið liggur til
Svalbarða í norðri eða Svasílands í
suðri, eða hvert sem er í heimi hér.
Þessi þjónusta byggist á leit í al-
þjóðlegum tölvukerfum flugfélaga
og ferðaskrifstofa.
Samgöngur til Svalbarða eru
stopular, jafnvel yfir sumartímann.
Suma daga flýgur Braathens sam-
kvæmt áætlun tvisvar á dag, aðra
daga einu sinni og þá með viðkomu í
Tromsö. Vegna fámennis eru far-
þegar til Svalbarða á sumrin eflaust
mest ferðamannahópar. Þeir hafa
þá sérstöðu að vera yfirleitt bókaðir
með löngum fyrirvara, en geta einn-
ig af ýmsum ástæðum dottið út með
skömmum fyrirvara. Því er það full-
komlega eðlilegt að þegar athugað
er með góðum fyrirvara um sæti 10.
júlí frá Ósló til Longyearbyen að þá
sýni tölvuupplýsingar frá Braath-
ens að fá sæti séu eftir laus. Því er
farþega sem vill ferðast þann dag
ráðlagt að festa sér sætið. Það
breytir því ekki að einstaklingur
sem hefur samband síðar og óskar
eftir flugi á svipuðum tíma getur
verið heppinn, t.d. ef stór ferðahóp-
ur hefur hætt við för og sæti losnað.
Sú virðist hafa verið raunin með fé-
laga Sigrúnar. Í því felst hins vegar
veruleg áhætta, því líklegra er að
allt sé þá fullbókað. Sigrúnu, líkt og
öllum öðrum, er auðvitað frjálst að
taka þá áhættu og bóka sig seint eða
snemma alveg eftir eigin hentug-
leikum. En almennt er að sjálfsögðu
betra að hafa góðan fyrirvara.
Á síðasta ári flaug Icelandair með
1,2 milljónir farþega. Þessir farþeg-
ar og fyrirspurnir þeirra koma úr
öllum heimshornum. Það er
heillandi verkefni að þjónusta alla
þessa ólíku einstaklinga bæði áður
en flogið er og eins meðan á ferð
stendur og þar býr Icelandair að
frábæru starfsfólki. Óánægja Sig-
rúnar með þjónustu þessa fólks er
okkur annars vegar ábending um að
seint verður hægt að gera svo öllum
líki og hins vegar hvatning um að
gera enn betur.
GUÐJÓN ARNGRÍMSSON,
upplýsingafulltrúi Icelandair.
Reykjavík –
Longyearbyen
Frá Guðjóni Arngrímssyni:
MIG langar að vekja athygli á minn-
ingargreinum um Kristleif Þor-
steinsson frá Húsafelli sem birtust í
Morgunblaðinu laugardaginn 15. og
föstudaginn 21. febrúar sl., þá sér-
staklega greinunum frá systrunum á
Kóngsbakka (og Ljósheimum), þeim
Brynju, Guðrúnu, Margréti og
Kristínu Jónsdætrum Bergþórsson-
ar systur Rúnu hans Kristleifs. Þær
eru einstaklega skemmtilegar og
lýsa þessum merkilega manni sér-
staklega vel. Geinar þeirra eru skrif-
aðar með glettnina að leiðarljósi,
sennilega eins og Kristleifur hefði
viljað hafa það. Þær segja allt um
þennan mikla frumkvöðul og fram-
kvæmdamann og hans persónu sem
aldrei glataði barninu í sjálfum sér.
Gat dottið út í fjörugu eldhúsi í djúpa
íhugun eins og jógi til að ná í hug-
myndir úr sviðinu sem er okkur öll-
um opin, ef egóíski lægri hugur okk-
ar gæti þagað smástund.
Þessar greinar ættu að vera
skyldulesning fyrir litla og stóra
frumkvöðla til að viðhalda eldmóði
þeirra og okkur hin sem festumst í
hvunndagsveröldinni því;
Í dásvefni lífsins
hefur einfaldleikinn
glatast
í spennitreyju
skyldunnar.
Þá lýsi ég eftir húmorískum og
heimspekilegum sagnaritara til að
skrá ævisögu Kristleifs og bíð
spennt eftir þeirri bók.
SIGFRÍÐ ÞÓRISDÓTTIR,
Nökkvavogi 17.
Skyldulesning
fyrir litla og stóra
frumkvöðla
Frá Sigfríði Þórisdóttur: