Morgunblaðið - 02.03.2003, Page 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MARS 2003 31
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvals-
staðir Leiðsögn um sýninguna then
... hluti 4 – minni forma verður kl. 15.
Þetta er jafnframt síðasti sýning-
ardagurinn.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Leiðsögn um sýninguna Andlits-
myndir og afstraksjónir kl. 14 og 16.
Íslensk grafík, Hafnarhúsi Sýning
Önnu G. Torfadóttur er ljúka átti í
dag verður framlengd til 9. mars.
Bíósalur MÍR, Vatnsstíg 10 Ball-
ettkvikmynd um Ívan grimma verð-
ur sýnd kl. 15. Um 20 árum eftir lát
tónskáldsins Sergejs Prokofiev, sem
samdi tónlistina við kvikmyndir Eis-
ensteins, var ballett við þessa tónlist
frumsýndur í Bolshoj-leikhúsinu í
Moskvu. Danshöfundur var Júrí
Grígorovits.
Þjóðmenningarhúsið, bóksalur
Sýningu á verkum Þórarins Eldjárn
sem hefur verið Skáld mánaðarins er
að ljúka. Þjóðmenningarhúsið er op-
ið frá 11-17, ókeypis aðgangur er á
sunnudögum.
Nýheimar, Höfn í Hornafirði Ingv-
eldur Ýr Jónsdóttir messósópran og
Guðríður Sigurðardóttir píanóleikari
halda tónleika kl.
20. Tónleikarnir
bera yfirskriftina
„Á leið til Vest-
urheims“, en þær
fóru með þessa
tónleika til Kan-
ada og komu fram
á tíu stöðum á Ís-
lendingaslóðum á
vegum Þjóðrækn-
isfélags Íslend-
inga í Norður-Ameríku.
Á dagskránni eru m.a. kanadísk lög
eftir tónskáldið Jean Coulthard við
ljóð haida-indíána, þekkt lög eftir
Sibelius, lagaflokkurinn Haugtussa
eftir Grieg, nýleg íslensk lög eftir
ýmsa höfunda og blanda af frönskum
kabarettlögum.
Menningarmiðstöð Hornafjarðar
stendur fyrir tónleikunum.
Gunnarsstofnun, Skriðuklaustri
Ljósmyndasafn Austurlands opnar
ljósmyndasýningu kl. 14.30. Sýndar
verða gamlar myndir frá atvinnu-
háttum og mannlífi á Austurlandi
fyrr á tíð. Ennfremur myndir af
Fljótsdælingum og fleiri Hér-
aðsbúum frá ýmsum tíma. Mynd-
irnar eru skannaðar í tölvu og sýnd-
ar með myndvarpa á tjaldi. Þá
verður starfsemi Héraðsskjalasafns
Austfirðinga kynnt í stuttu máli.
Sýningin er styrkt af Menningarráði
Austurlands.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Ingveldur Ýr
Jónsdóttir
LHÍ Laugarnesi Haraldur Jónsson
myndlistarmaður heldur fyrirlestur
kl. 12.30 og fjallar í myndum og máli
um tilurð og uppsprettu verka sinna.
Einkasýning á verkum Haraldar
stendur nú yfir í i8.
Gallerí List Skipholti 50d Auður
Ólafsdóttir myndlistarkona er
gluggalistamaður gallerísins til 17.
mars. Auður hefur haldið nokkrar
einkasýningar og fjölda samsýninga.
Gallerí List er opið 11-18 virka daga
og 11-14 á laugardögum.
Á MORGUN
Nýjar vörur
Hallveigarstíg 1
588 4848 Moggabúðin
Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.
4.500
nemendur
lesa upp
STÓRA upplestrarkeppni 7. bekk-
inga grunnskólanema hefur nú göngu
sína í sjöunda sinn. Fyrstu keppnirn-
ar verða á morgun, mánudag, í
Reykjanesbæ og á Akranesi og þær
síðustu í Eyjafjarðarsveit og í Aust-
urbæ Reykjavíkur 1. apríl. Um 4.500
nemendur í 150 skólum taka þátt í
keppninni, eða um 95% árgangsins.
Skáld keppninnar í ár eru þeir Pét-
ur Gunnarsson og Davíð Stefánsson.
Hinir ungu upplesarar munu flytja
brot úr Punkti punkti kommu striki
eftir Pétur og nokkur ljóð eftir Davíð,
auk ljóða að eigin vali.
Nemendur hafa allt frá degi ís-
lenskrar tungu æft vandaðan upplest-
ur og framburð undir leiðsögn kenn-
ara síns, og á hátíðunum koma fram
þeir sem lengst hafa náð í sínum
skóla. Keppnin hefur á undanförnum
árum verið mikil lyftistöng fyrir
bekkjarstarfið í 7. bekk. Nemendur
hafa lært að koma fram og flytja texta
á vandaðan og virðulegan hátt, lagt
rækt við góða túlkun en án nokkurra
öfga eða tilgerðar.
Til sölu
Chippendale-
borðstofuhúsgögn -
borð - 12 stólar - 3 skápar.
Upplýsingar í síma
897 1023 eða 695 2129
Ferðahappdrætti
Aðalútdráttur
föstudaginn 4. apríl 2003
ferð fyrir tvo til Dublinar
eða Prag að verðmæti
90.000
1 Vinningur
2 Vinningar
Ferð fyrir tvo í eina viku til
Mallorca eða Portúgal
að verðmæti
150.000
að verðmæti42milljónir
Vinningar
Í sjónvarpinu strax
að loknum kvöldfréttum
Alla föstudaga í mars, þ.e. 7. 14. 21. og 28
verður dregið aukalega úr greiddum miðum
um þrjá vinninga hverju sinni
að verðmæti 330.000 Upplýsingar í síma 570 5900
Fjöldi útgefina miða er 190.000
332 vinningar að verðmæti 42.820.000
Vinningaskrá á heimasíðu
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
www.landsbjorg.is
2003