Morgunblaðið - 02.03.2003, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 02.03.2003, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MARS 2003 33 ar horft er til átaka í Írak. Velta menn þá fyrir sér hvað beri að gera þegar átökum ljúki. Óvissuástand í Afganistan Í Afganistan ríkir enn mikið óvissuástand þótt vissulega hafi ým- islegt breyst. Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, var í Afganistan fyrr á árinu og eru myndir úr för hans birtar í sunnudagsblaðinu og í dag, laugardag, eru myndir hans birtar á vefsíðu Morgunblaðsins á Netinu auk þess sem hægt er að skoða hluta þeirra á sýningu ljósmyndara í Gerðarsafni í Kópavogi. Guðni Einarsson blaðamaður fjallar um hjálparstarf í Afganistan og ræðir við Þorkel: „Frá því bráðabirgðastjórnin tók við völdum 22. desember 2001 hafa mikil umskipti orðið í Afgan- istan. Þrjár milljónir barna hófu aftur skólanám, þar af meira en milljón stúlkna, en þeim var bönn- uð skólavist í valdatíð talíbana. Um 1.700 þúsund afganskir flóttamenn hafa snúið heim, flestir frá nágrannaríkinu Pakistan, þótt margra bíði ekk- ert nema rústir einar. Þorkeli þótti aðkoman að Kabúl ekki glæsileg. „Stórir borgarhlutar eru mjög illa farnir eftir 24 ára styrjöld, fyrst við Rússa, síðan innbyrðis átök og loks þegar Bandaríkin og bandamenn þeirra réðust á talíbana,“ segir Þorkell. „Íbúðar- hverfin eru til dæmis mjög illa farin eftir loft- árásir og skothríð. Margir búa í afskaplega lélegu húsnæði eða hreysum. Innviðir landsins eru í rúst. Starfhæf veitukerfi, eins og rafmagns- og vatnsveitur, eru af skornum skammti. Þar af leið- andi eru hús hituð með ofnum þar sem brennt er eldiviði og kolum. Skólpkerfi eru sömuleiðis illa farin eftir hernaðinn og eðlilegt viðhald hefur ver- ið lítið sem ekkert í á þriðja áratug.““ Í liðnum mánuði brutust enn út átök í landinu og hafa bandarískir, evrópskir og afganskir her- menn barist hlið við hlið gegn uppreisnarmönn- um úr röðum talibana, en komið hafa í ljós vís- bendingar um að talibanar séu að reyna að safna liði og láta að sér kveða að nýju á landamærum Pakistans. Margt er enn ógert í Afganistan bæði í öryggis- og efnahagsmálum eins og kom fram í grein eftir Isobel Coleman, sem er í rannsókn- arstöðu við Ráð milliríkjasamskipta, í dagblaðinu Financial Times í febrúar. 4.800 manns eru í al- þjóðlegri öryggissveit, sem er á staðnum og það virðist útséð um að hún verði stækkuð. Banda- ríkjamenn hafa verið að þjálfa afganskan atvinnu- her, sem í eiga að vera hermenn af öllum þjóð- arbrotum og trúarhópum, sem byggja landið, en greinilegt er að það mun taka tíma. Eftir margra mánaða þjálfun hafa aðeins 50 hermenn tekið til starfa, en nokkur hundruð hermenn eru í þjálfun. Sagt er að utan Kabúl ráði stríðsherrar og stiga- menn ríkjum og oft vinni þeir saman. Hjálpar- stofnanir hika við að starfa utan helstu þéttbýlis- kjarna. Gríðarleg vinna er framundan í Afganistan. „Afganar þurfa að færa sér alþjóðlegan stuðn- ing sem mest í nyt meðan tækifærin eru fyrir hendi eftir stjórn talibana,“ skrifar Coleman. „Hversu lengi þau tækifæri verða fyrir hendi er ekki ljóst, en það verður ekki til frambúðar og Afganar eru í sárri þörf fyrir hjálp til að hrinda efnahagslífinu af stað. Þó virðist stjórn Bush leggja meiri áherslu á að heyja stríðið gegn hryðjuverkum en að byggja hikandi upp þjóð í Afganistan. Framlög til hernaðaraðgerða hafa verið rúmlega milljarður dollara á mánuði á með- an aðstoð til mannúðarmála og uppbyggingar í þessu stríðshrjáða landi var minni en 530 millj- ónir dollara árið 2002. Meira að segja í banda- ríska varnarmálaráðuneytinu velta menn nú vöngum yfir því hvort hagsmunum Bandaríkj- anna væri ekki betur borgið með því að færa meira fé til uppbyggingar.“ Það sýnir umfang vandans að innviðir á borð við samgöngur eru í molum og íbúar landsins lítt menntaðir. 95% afganskra kvenna og 65% karla eru ólæs. Lífslíkur eru 40 ár. Hamid Karzai, for- seti Afganistans, heimsótti Bush í Hvíta húsið á fimmtudag. Í tengslum við heimsóknina var bent á að ekki dygði að setja á svið táknrænar athafnir á meðan stjórn Bush gerði ráð fyrir minna fé til uppbyggingar í Afganistan á fjárlögum en þingið hefði heimilað. Í leiðara í dagblaðinu New York Times í gær, föstudag, sagði að „sigurinn á víg- vellinum gæti orðið innantómur ef ekki væri út- hald til að ljúka verkefninu“. Deilt um kostnað og þörf fyrir hermenn Það mun líka þurfa út- hald í Írak. Samkvæmt fréttum, sem birtust í dag- blaðinu Los Angeles Times á miðvikudag er bandaríska varnarmálaráðuneytið nú farið að láta að því liggja við forseta og þing að kostnaður- inn við það að sigra Íraka og hernema landið í sex mánuði gæti orðið 85 milljarðar dollara, en það er mun meira en embættismenn stjórnarinnar hafa sagt opinberlega. Í blaðinu segir að þegar upp- hæðin, sem ætluð er Tyrkjum fyrir samvinnufýsi, bætist við verði kostnaðurinn kominn upp í rúm- lega 100 milljarða dollara og það sé helmingi meira en Rumsfeld varnarmálaráðherra kvaðst gera ráð fyrir í janúar. Bush segir að ótímabært sé að ræða tölur og gefur til kynna að kostnaður af stríði eigi ekki að hafa forgang fyrir þjóðarör- yggi. Þá hafa ummæli herforingjans Erics K. Shins- ekis, yfirmanns landhers Bandaríkjahers, fyrir þingnefnd um stærð þess herafla, sem þurfi að vera áfram í Írak eftir að átökum lýkur, vakið at- hygli. Shineski sagði að nokkur hundruð þúsund hermenn myndi þurfa til að stunda friðargæslu og sinna mannúðarverkefnum eftir stríð. Í frétt í dagblaðinu Los Angeles Times sagði að þing- mennirnir, sem á hlýddu, hefðu verið slegnir yfir þessum tölum og haft var eftir sérfræðingi að fengju Bandaríkjamenn ekki aðstoð yrði að senda nánast allan þann herafla, sem til taks væri í bandaríska landhernum, á vettvang í Írak. Talið er að af 480 þúsund manns í landhernum, sem hefur yfirleitt tekið að sér svona verkefni, séu 293 þúsund hermenn til taks. Paul Wolfowitz, sem áð- ur er getið, sagði þegar hann bar vitni fyrir þing- nefnd á fimmtudag að mat herforingjans á þeim herafla, sem þyrfti, væri stórlega ýkt og sömu- leiðis ályktanir um kostnað. Fór greinilega í taug- arnar á nefndarmönnum að Wolfowitz vék sér fimlega undan tilraunum til að fá hann til að leggja mat á það hver kostnaðurinn kynni að verða. Bandaríkjamenn hafa gert tvær ólíkar áætl- anir um það hvernig eigi að stjórna Írak ef stjórn Saddams verður steypt af stóli. Í annarri þeirra er gert ráð fyrir því að Bandaríkjamenn verði ein- ir að verki og þurfi því að vera lengur en ella á staðnum til þess að ná markmiðum um afvopnun og uppbyggingu lýðræðis. Sú áætlun myndi gefa Bandaríkjamönnum meira vald yfir atburða- rásinni, en myndi einnig skapa meiri hættur, til dæmis ef illa gengur og andúð skapast. Hin áætl- unin gerir ráð fyrir því að Bandaríkin feli sam- félagi þjóðanna vald og aðra ábyrgð þremur eða fjórum mánuðum eftir að átökum lýkur. Ekki hef- ur verið skilgreint með hvaða hætti þetta yrði, en styðjast mætti við reynsluna frá Kosovo og Aust- ur-Tímor. Hópur lýðræðissinnaðra, íraskra stjórnarand- stæðinga hefur haft samráð við Bandaríkjastjórn um gang mála. Einn úr þessum hópi, Kanan Mak- iya, hefur nú sett fram harða gagnrýni á fyrirætl- anir Bandaríkjamanna. Hann segir að fyrirheit, sem Bush gaf á fundi með nokkrum stjórnarand- stæðinganna, um lýðræði virðist ætla að fara fyrir lítið vegna vélabragða embættismanna í Wash- ington, sem „alltaf hafa verið andvígir hugmynd- inni um að koma á lýðræði í Írak með hjálp Bandaríkjanna, en slíkt myndi af nauðsyn fela í sér róttækt fráhvarf frá hefðinni á þessum slóð- um, til dæmis með því að uppræta Baath-flokkinn (með svipuðum hætti og nasistar voru upprættir í Þýskalandi eftir stríð), og endurskipulagi íraska ríkisins sem sambands- og lýðræðisríki, sem ekki byggðist á skiptingu í þjóðarbrot“. Makiya skrifaði í dagblaðið Guardian að frið- þæging gjaldþrota, arabískrar valdastéttar lægi að baki og þegar upp væri staðið ætti að halda í kúgunarstofnanir Baath-flokksins og hersins í nýju gervi. „Bandaríkjamenn eru komnir á fremsta hlunn með að skuldbinda sig við áætlun um að skipa herstjórn í Bagdað eftir Saddam þar sem Bandaríkjamenn stjórni ráðuneytum og bandarískir hermenn vakti götur íraskra borga,“ skrifar hann. „Áætlunin eins og hún var kynnt írösku stjórnarandstöðunni í Ankara [í byrjun febrúar] gerir einnig ráð fyrir því að Bandaríkja- menn skipi óráðinn fjölda íraskra kvislinga, sem eru arabaríkjunum við Persaflóa og Sádum þókn- anlegir til að þjóna þessari herstjórn sem ráðgjaf- arráð.“ Horfur á stríði virðast aukast dag frá degi og aðdragandinn hefur ekki farið framhjá neinum. Yfirleitt er það aðdragandi stríðs, sem fær mesta athygli, en það er ekki síður mikilvægt hvernig komið er á friði því að þar er hætt við að sáð verði fræjum næsta ófriðar ef ekki er farið rétt að. Morgunblaðið/Árni Sæberg Álftir við Ægissíðu. Power vitnar í skjal, sem hún gróf upp, frá bandaríska utan- ríkisráðuneytinu: „Burtséð frá mann- réttindum og efna- vopnum eigum við að mörgu leyti sam- leið með Írökum hvað snertir póli- tíska og efnahags- lega hagsmuni.“ Laugardagur 1. mars
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.