Morgunblaðið - 05.03.2003, Page 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 13
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
-
IT
M
90
47
V. Fellsmúla • S. 588 7332
Opið: Mán. - föst. 9-18,
Laugardaga 10-14
Baðinnréttingar
Útlit: Perutré
Breidd 65 sm
Við látum verðið tala!
Útlit: Spónl. hlynur
Breidd 120 sm
Útlit: Kirsuber
Breidd 110 sm
Útlit: Hvít fulning
Breidd 90 sm
Útlit: Eplatré
Breidd 160 sm
Útlit: Spónl. kirsuber
Breidd 120 sm
Útlit: Spónl. kirsuber
Breidd 140 sm
Útlit: Hlynur
Breidd 80 sm
Útlit: Gegnheilt kirsuber Útlit: Hvít slétt
Breidd 95 sm
Útlit: Hlynur
Breidd 120 sm
Útlit: Græn fulning
Breidd 130 sm
Útlit: Hvít slétt
Breidd 80 sm
Útlit: Hvít fulning
Breidd 120 sm
Útlit: Kirsuber fuln.
Breidd 155 sm
Gegnh. kirsuber
Breidd 110 sm
Gegnheilt kirsuber
Breidd 110 sm
Kirsuber fulning
Breidd 95 sm
Útlit: Hlynur
Breidd 120 sm
Útlit: Mahóní
Breidd 80 sm
Útlit: Kirsuber
Breidd 90 sm
Tauskápar
f. baðherbergi
• Nýtt útlit
• Nýjar uppstillingar
Uppgefnar breiddir miðast við
neðri skápa, ekki heildarbreidd.
Allar innréttingar til afgreiðslu af lager
• 25-30% afsláttur
1 2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
17 18 19 20 21 22
16
SJÁLFKJÖRIÐ verður í bankaráð
Íslandsbanka en frestur til að gefa
kost á sér til setu í ráðinu rann út í
gær. Nýtt bankaráð verður kjörið á
aðalfundi bankans 10. mars næst-
komandi. Af þeim sjö sem gefa kost á
sér sem aðalmenn í ráðinu eru þrír
sem ekki hafa setið áður sem aðal-
menn. Guðmundur B. Ólafsson, lög-
fræðingur VR, Gunnar Felixson, for-
stjóri Tryggingamiðstöðvarinnar, og
Jón Snorrason, fyrrum eigandi Húsa-
smiðjunnar, gefa kost á sér í banka-
ráðið en Guðmundur og Gunnar eru
varamenn í því bankaráði sem nú sit-
ur. Auk þessara þriggja gefa þeir
fjórir sem nú sitja sem aðalmenn í
ráðinu áfram kost á sér. Þeir eru Ein-
ar Sveinsson, framkvæmdastjóri Sjó-
vár-Almennra, Helgi Magnússon,
framkvæmdastjóri Hörpu Sjafnar,
Kristján Ragnarsson, núverandi
bankaráðsformaður og stjórnarfor-
maður LÍÚ, og Víglundur Þorsteins-
son, formaður stjórnar Lífeyrissjóðs
verslunarmanna.
Sjö gefa kost á sér sem varamenn:
Friðrik Jóhannsson, Guðmundur Ás-
geirsson, Guðrún Helga Lárusdóttir,
Halldór Björnsson, Halldóra Þórðar-
dóttir, Hilmar Pálsson og Vilmundur
Jósefsson og verða því sjálfkjörin sem
varamenn.
Sjálfkjörið í bankaráð
Íslandsbanka
EIGENDUR Hlutdeildar, innláns-
reiknings hjá Íslandsbanka sem
stofnaður var fyrir þremur árum,
eiga enn höfuðstól sinn óskertan.
Þetta þýðir að verðgildi innstæðn-
anna hefur því lækkað um sem
nemur verðbólgunni á þessum
tíma.
Íslandsbanki hefur sent við-
skiptavinum sínum sem lögðu inn
fjármagn á Hlutdeildarreikning
bréf, þar sem inneignin á Hlutdeild
er laus til útborgunar. Í bréfinu
kemur fram að þegar reikningur-
inn var settur á markað hafi mikill
uppgangur verið á verðbréfamörk-
uðum. Þrátt fyrir það hafi sérfræð-
ingar varað við of mikilli bjartsýni í
hlutabréfakaupum. Því hafi orðið
til hugmynd um innlánsreikning
sem gerði fólki kleift „að taka þátt í
góðu gengi á hlutabréfamörkuðum
með lágmarksáhættu.“ Fram kem-
ur í bréfinu að fjölmargir hafi
ákveðið að nýta sér þennan kost og
öryggið sem honum fylgdi í stað
þess að fjárfesta beint á hluta-
bréfamörkuðum. Þá segir orðrétt:
„Nú, þremur árum síðar, er ljóst að
Hlutdeildin hefur skilað hlutverki
sínu vel því þrátt fyrir mikla lækk-
un á hlutabréfamörkuðum undan-
farið eiga eigendur Hlutdeildar enn
höfuðstól sinn óskertan.“ Í bréfinu
er einnig nefnt dæmi um að ef við-
komandi hefði keypt í hlutabréfa-
sjóði fyrir þremur árum fyrir 100
þúsund krónur væri andvirði inn-
stæðunnar 45 þúsund krónur í dag.
Samkvæmt upplýsingum frá Ís-
landsbanka er af samkeppnis-
ástæðum ekki gefinn upp fjöldi
reikninga eða fjárhæðir á ein-
stökum tegundum reikninga.
Neikvæð ávöxtun á
Hlutdeildarreikningi
Íslandsbanka
Alltaf á þriðjudögum
VÖRUR fyrir 16,1 milljarð voru
fluttar frá Íslandi í janúarmánuði en
innflutningur nam 11,4 milljörðum
(fob), samkvæmt tölum frá Hagstof-
unni. Vöruskiptin við útlönd voru því
hagstæð um 4,8 milljarða króna á
föstu gengi. Verðmæti vöruútflutn-
ingsins var 5% minna á föstu gengi
en á sama tíma árið áður og verð-
mæti vöruinnflutnings var 6%
minna. Sjávarafurðir voru fluttar út
fyrir 8,8 milljarða króna í janúar síð-
astliðnun en fyrir 10,6 milljarða
króna í janúar 2001 og nemur sam-
drátturinn 7,5%. Mest hefur dregist
saman í útflutningi á frystum fiski.
Álútflutningur dróst einnig saman
en verðmæti hans nam um 3,5 millj-
örðum króna í janúar 2003 en um 4,5
milljörðum í sama mánuði 2002.
Verðmæti innflutnings á fólksbíl-
um jókst um 75% og verðmæti inn-
flurnings varanlegra neysluvara
jókst um 19% milli tímabila.
Vöruskiptin
hagstæð um 5
milljarða