Morgunblaðið - 05.03.2003, Qupperneq 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
!" "# #$
& '$ !#($
#)%$
))
*%+ #
)$#
,
#'))$
)
-
($
!.(
) " $ " /
+0
%)
#
!
"# !
$
%& #'%
"# !
mikla trú á stjórnendum fyrirtækisins og starfs-
fólki.
Í stakk búið til frekari vaxtar
Fram kemur í tilkynningunni að frá því að
Bridgepoint Capital keypti Huurre Group árið
1998 hafi verið unnið að því að efla Huurre-sam-
stæðuna bæði með innri og ytri vexti, til dæmis
með kaupum á Prepan A/S í Noregi árið 1999 og
Svensk Butiksservice árið 2000, sem er viðhalds-
og kæliþjónustudeild sænsku verslunarkeðjunnar
ICA.
Haft er eftir Chris Busby, framkvæmdastjóra
hjá Bridgepoint í fréttatilkynningunni, að Huurre
sé komið með markaðsleiðandi stöðu á Norður-
löndum þar sem það sé vel í stakk búið til frekari
vaxtar undir forystu nýrra eigenda.
Lars Lindell, framkvæmdastjóri Huurre
Group, segir að stjórnendur félagsins hlakki til að
vinna með Kaupþingi banka og sækja enn frekar
fram og ná jafnvel enn betri árangri.
Segir í tilkynningunni að nýir eigendur muni
KAUPÞING banki hf. hefur keypt helmingshlut í
finnska frysti- og kæliþjónustufyrirtækinu
Huurre Group. Helstu stjórnendur Huurre
Group undir forystu Lars Lindell, framkvæmda-
stjóra félagsins, hafa keypt hinn helminginn.
Kaupverðið fæst ekki gefið upp. Velta fyrirtæk-
isins á síðasta ári var rúmir 12 milljarðar ís-
lenskra króna.
Í tilkynningu frá Kaupþingi segir að Huurre
Group sé leiðandi fyrirtæki í Evrópu í kæli- og
frystiþjónustu. Huurre var áður í eigu evrópska
fjárfestingarfélagsins Bridgepoint Capital,
norska fjárfestingafélagsins Foinco A/S, finnska
tryggingafélagsins Tapiola og stjórnenda
Huurre.
Helgi Bergs, framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi,
segir ánægjulegt að með yfirtöku á Huurre
Group sé Kaupþing banki kominn á kortið í kaup-
um og fjármögnun fyrirtækja á finnska mark-
aðinum. Hann segir að Huurre Group uppfylli all-
ar þær kröfur sem Kaupþing geri til fyrirtækja
sem bankinn fjárfesti í auk þess sem bankinn hafi
leggja áherslu á að auka þátt Huurre Group í
samþættingu evrópsks kæli- og frystiiðnaðar og
auka innri vöxt félagsins með því að efla þjón-
ustuþátt Huurre Group.
Veltan rúmir 12 milljarðar
Rekstrarniðurstaða Huurre Group á árinu 2002
var sú besta til þessa, samkvæmt fréttatilkynn-
ingunni. Samstæðan velti 12,4 milljörðum króna
(146,9 milljónir evra) og EBITDA félagsins var
1.210 milljónir króna (14,3 milljónir evra). Þá var
EBIT félagsins 965 milljónir króna (11,4 milljónir
evra). Starfsmenn voru alls 833 á árinu.
Segir í tilkynningunni að fyrirætlanir Huurre
Group fyrir árið 2003 séu byggðar á væntingum
um vöxt þess á helsta markaðssvæði fyrirtæk-
isins, Norðurlöndum og Norður-Evrópu. Þar
megi búast við frekari fjárfestingum í kælivörum
hjá fyrirtækjum í matvælaiðnaði, á smásölumark-
aði og hjá veisluþjónustum. Þá lofi pantanir fyrir
árið 2003 góðu.
Bank of Scotland sá um lánveitingu við kaupin.
Kaupþing kaupir helming
í kælifyrirtæki í Finnlandi
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ
fer ekki að tillögum Hafrann-
sóknastofnunarinnar um lengingu
veiðibanns til friðunar á hrygning-
arþorski og verða reglur um frið-
unina óbreyttar frá síðasta ári.
Forstjóri Hafrannsóknastofnunar-
innar segir að það muni hafa áhrif
á tillögur stofnunarinnar um heild-
araflamark á næsta fiskveiðiári.
Hafrannsóknastofnunin lagði í
lok síðasta mánaðar til að veiði-
bann vegna friðunar hrygningar-
þorsks yrði lengt um helming á
einstökum svæðum, eða úr 21 degi
í 40 daga.
Sjávarútvegsráðuneytið gaf í
gær út reglugerð um bann við
veiðum til friðunar hrygningar-
þorsks. Samkvæmt henni eru allar
veiðar bannaðar í 21 dag á svæði
frá Stokksnesi vestur um að Skor.
Fyrri hluta tímabilsins eru veiðar
bannaðar að meginefni til innan
fjögurra sjómílna frá fjörumarki
en eftir það eru veiðar bannaðar á
mun stærra svæði. Veiðibannið
austan Dyrhólaeyjar hefst 8. apríl
og stendur til og með 28. apríl en
vestan Dyrhólaeyjar hefst veiði-
bannið 1. apríl og stendur til og
með 21. apríl. Þá eru veiðar bann-
aðar innan þriggja sjómílna frá og
með 15. apríl til loka aprílmánaðar
á svæði frá Hornbjargsvita austur
um að Stokksnesi, innan þriggja
sjómílna við Grímsey og í öllu Ísa-
fjarðardjúpi.
Loks hafa allar veiðar með drag-
nót, botnvörpu og kolanetum verið
bannaðar allan aprílmánuð á
þremur tilgreindum svæðum í
Breiðafirði, á Hafnarleir og Sel-
vogsbanka. Er þetta ákveðið að til-
lögu Hafrannsóknastofnunarinnar
til að hlífa skarkola meðan á
hrygningu hans stendur. Reglurn-
ar eru óbreyttar frá síðasta ári.
Þá hefur ráðuneytið jafnframt
ákveðið að frá 1. apríl 2003 verði
einungis heimilt að nota þorskfisk-
net með minni möskvastærð en 9
þumlungar. Þó verður frá 1. jan-
úar 2004 aðeins heimilt að nota
þorskfisknet með minni möskva en
7,5 þumlungar. Ráðuneytið mun á
næstunni koma af stað vinnu þar
sem hrygningarstopp og veiðar-
færanotkun verða tekin til sér-
stakrar athugunar.
Tekið verður tillit til til-
lagna um möskvastærðir
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunarinnar, seg-
ir það vissulega miður að tillögur
stofnunarinnar hafi ekki hlotið
brautargengi, enda hafi stofnunin
talið að bregðast þyrfti með rót-
tækum hætti við þeirri þróun sem
hún hefur merkt undanfarin miss-
eri, það er að hlutfall stórra
hrygna í þorskstofninum hefur
verið að lækka og sóknin í þennan
mikilvæga hluta stofnsins hafi far-
ið hríðvaxandi. „Lokun hrygning-
arsvæða á síðasta ári hafði minni
áhrif en við höfðum vonast eftir og
því töldum við lengri lokun myndi
skila betri árangri til verndunar
þessa fisks. Jafnframt töldum við
ástæðu til að hagsmunaaðilar veltu
fyrir sér hvort mögulegt væri að
stíga skref í átt að því að tak-
marka hámarksmöskvastærð í net-
um á þessari vertíð. Það yrði að
okkar mati skilvirkasta aðferðin til
að ná þessum markmiðum, jafnvel
þótt við gerðum okkur fulla grein
fyrir því að útgerðarmenn eru
búnir að netavæðast fyrir vertíð-
ina. Við vildum koma þessum sjón-
armiðum á framfæri nú svo aðilar
gætu metið aðra leið en lengingu
svæðalokana til að bregðast við
óhagstæðri þróun mála. Því ber
hins vegar að fagna að tekið verð-
ur tillit til möskvastærðartillagna
okkar á næsta ári.“
Höldum okkar striki
Jóhann segir að vissulega hefðu
tillögurnar mátt koma fyrr fram
en þær séu hins vegar lagðar fram
að vel athuguðu máli og af illri
nauðsyn. Ljóst sé að ekki verði
komið á virkum aðgerðum til
verndunar stórþorsks á komandi
vertíð og taka þurfi tillit til þess í
tillögum stofnunarinnar til stjórn-
valda að lokinni árlegri stofnúttekt
á vori komandi. „Við höldum okkar
striki í þessum efnum jafnt sem
tillögum um vernd ungfisks. Ef við
berum ekki gæfu til að takmarka
sóknina frekar og vernda uppvax-
andi árganga sem eru í farvatninu
náum við þorskstofninum aldrei
upp úr þeim öldudal sem hann er
í,“ segir Jóhann.
Ekki farið að tillögum Haf-
rannsóknastofnunarinnar
Reglur um friðun hrygningar-
þorsks verða óbreyttar
!"
!"
#!"
#!"
!"
$ %%!&'" ( "&
! & "&
)'! *
* ! +'' * !( !
Ríkið selur
9,11% í
Búnaðar-
bankanum
RÍKISSJÓÐUR Íslands mun hefja
sölu á öllum sínum hlut, 9,11%, í
Búnaðarbanka Íslands næstkom-
andi föstudag. Um rúmlega 493
milljón króna hlut er að ræða og
verður útboðsgengið kynnt eftir lok-
un Kauphallar Íslands á fimmtudag.
Samkvæmt upplýsingum frá rík-
issjóði verður útboðsgengið ákveðið
með hliðsjón af markaðsaðstæðum
síðustu vikurnar fyrir útboðið og
skuldbindur ríkissjóður sig til þess
að selja bréfin á föstu gengi alla við-
skiptadaga útboðsins, það er frá 7.
mars til 14. mars.
Allt hlutafé í útboðinu verður selt í
samræmi við viðskiptareglur Kaup-
hallar Íslands fyrir milligöngu Bún-
aðarbankans Verðbréfa. Fjárfestar
greiða Búnaðarbankanum ekki
þóknun vegna viðskipta í útboðinu.
Greining ÍSB spáir
hækkun ávöxtunar-
kröfu húsbréfa
● ÁVÖXTUNARKRAFA algengasta
flokks húsbréfa var rúmlega
4,93% í gær og lækkaði lítillega
frá deginum áður. Þetta á bæði við
um 25 ára og 40 ára bréf og hefur
í för með sér að afföll við sölu 25
ára bréfanna er um 1,9% og 40
ára bréfanna um 2,6%.
Greining Íslandsbanka spáir því
að ávöxtunarkrafa hús- og hús-
næðisbréfa þokist upp á við fram
eftir þessu ári og að sú þróun
haldi áfram á næsta ári. Frá
þessu er greint í Markaðsyfirliti
bankans fyrir marsmánuð, sem
gefið var út í gær.
Segir í Markaðsyfirlitinu að í
ljósi þróunar undanfarinna daga og
vikna geri Greining ÍSB ráð fyrir því
að ávöxtunarkrafa skuldabréfa hafi
náð lágmarki um mánaðamótin
janúar/febrúar og að ekki sé að
vænta verulegrar lækkunar kröf-
unnar frá því sem nú er. Þá segir
að fjárfestar hafi verið að færa sig
yfir í styttri bréf, sem bendi til auk-
innar óvissu varðandi þróun ávöxt-
unarkröfunnar á næstu mánuðum.
Pólitísk óvissa sé nú í algleymingi
og eðlilegt að ávöxtunarkrafan taki
mið af því. Einnig virðist bjartsýni
neytenda vera að aukast og því
auknar líkur á því að stýrivextir
Seðlabanka verði hækkaðir á síð-
ari helmingi þessa árs.
Seðlabanki breytir
bindiskyldu
● SEÐLABANKINN tilkynnti á föstu-
daginn breytingar á bindiskyldu
lánastofnana. Frá 21. mars 2003
verða bindihlutföll, þ.e. hlutföll inn-
lánsbindingar lánastofnana, sem
nú eru 1,5% og 4%, lækkuð í 1%
og 3%.
Þá verður svigrúm lánastofnana
til að nýta bundið fé til tryggingar
fyrir uppgjöri í greiðslukerfum tak-
markað við helming umsaminnar
tryggingarfjárhæðar, frá 1. apríl
2003. „Þessi takmörkun er til
þess ætluð að tryggja að lána-
stofnanir hafi svigrúm á bindireikn-
ingi til að mæta sveiflum í lausa-
fjárstöðu,“ segir í tilkynningu frá
bankanum.
Í þriðja lagi tilkynnti Seðlabank-
inn að fyrir lok ársins væru fyr-
irhugaðar frekari breytingar, svo
sem að færa bindigrunninn og
bindihlutföll til samræmis við regl-
ur Seðlabanka Evrópu. Jafnframt
fellur þá niður heimild til að nota
bundið fé til tryggingar fyrir upp-
gjöri í greiðslukerfum.
Í fréttatilkynningu bankans segir
að búast megi við að fram-
angreindar breytingar geti leitt til
um helmings lækkunar á bindi-
skyldu íslenskra lánastofnana.
BAUGUR-ID hefur fest kaup á
tveimur milljónum hluta í
breska matvörufyrirtækinu
Big Food Group til viðbótar við
þann eignarhlut sem félagið
átti fyrir. Samtals á Baugur nú
75.941.564 hluti í Big Food
Group, eða 22,1% hlutafjár í
fyrirtækinu.
Bréf í Big Food Group hækk-
uðu lítillega í verði í Kauphöll-
inni í London, eða um 3 pens,
þegar tilkynnt var um kaup
Baugs í gær.
Baugur
með
22,1% í
Big Food
♦ ♦ ♦