Morgunblaðið - 05.03.2003, Side 28

Morgunblaðið - 05.03.2003, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. STÖÐUGT bætast nýjar upplýsingar á svarta listann yfir afleiðingarnar af stór- iðjufárinu, sem Sjálfstæðisflokkur, Fram- sóknarflokkur og Samfylking eru að leiða yfir þjóðina. Nú liggur það fyrir að ál- bræðslan sem Alcoa hyggst reisa á Reyðarfirði muni losa 4 sinnum meira af brennisteini (SO2) út í andrúmsloftið en sú sem Norsk Hydro hugðist reisa, jafn- vel þótt Alcoa bræðslan eigi að vera fjórðungi minni en sú norska og án raf- skautaverksmiðju. Um þetta atriði skrif- aði Bergur Sigurðsson ágæta grein í Morgunblaðið 13. febrúar sl. Svo er kom- ið í ljós að vafamál er hvort Holl- ustuvernd/Umhverfisstofnun hafi verið heimilt að auglýsa starfsleyfistillögu vegna Alcoa bræðslunnar þar sem mati á umhverfisáhrifum var ólokið á stjórn- sýslustigi. Því lýkur ekki fyrr en búið er að skera úr um kæru vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar, sem heimilaði bræðsluna án þess að hún færi í gegnum matsferlið eins og lög gera ráð fyrir. Og nú er það nýjasta að Eftirlitsstofnun EFTA hefur óskað eftir frekari gögnum um ívilnanir stjórnvalda til Alcoa svo skera megi úr um það hvort „meðgjöf“ hins opinbera, eða niðurgreiðsla á orku og aðstöðu, stangist á við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Framtíðarþróun Þegar skoðaðar eru útstreymistölur brennisteins vegna álverksmiðjanna sem þegar eru starfandi á Íslandi, að við- bættu útstreymi frá fyrirhugaðri verk- smiðju á Reyðarfirði og frá fyrirhug- uðum stækkunum verksmiðjanna á Grundartanga og í Straumsvík, bregður manni heldur en ekki í brún. Þá blasir það við að heildarmagnið sem stóriðjan losaði yrði tæp 13 þúsund tonn á ári. Þannig myndi losun frá stóriðju aukast um 9.736 tonn, sem bættust við þau 9.570 tonn, sem Hagstofan gefur upp að sé heildarlosun Íslendinga 2001. Það ger- ir 19.300 tonna heildarlosun brennisteins út í andrúmsloftið á ári. Skoðum þetta aðeins nánar í töflu: Langt umfram viðmiðunarreglur Nú er rétt að taka það fram að losun brennisteins er grafalvarlegt mál og áhrif hans á umhverfið eru óumdeild. Þau 3.864 to hugsanleg ál upp um sína myndi jafnas af brennistei rúmsloftið m loftgæðum. O stóriðju á Ís SO2 losun ok værum við a unarreglum varðar. Meir gengur út fr viðmiðunum góðum framl Getum við fengið ferskt Eftir Kolbrúnu Halldórsdóttur „Eru þingmenn með bundið eða finnst þeim þetta bara a ÞÓ AÐ skógrækt sé til þess að gera ung atvinnugrein á Íslandi er þegar far- inn að falla til viður þegar grisjun skóga á sér stað. Ég hef lagt fram á Al- þingi þingsályktunartillögu þar sem hvatt er til þess að landbúnaðarráð- herra móti stefnu í því á hvern hátt þessi viður verði nýttur. Hér er um mikil verðmæti að ræða sem mjög brýnt er að nýta betur en gert hefur verið til þessa. Ýmsir hafa bent mér á talsvert magn af trjáviði, sem þegar hefur verið höggvinn en er á engan hátt nýttur. Talsvert magn er t.d. í Heið- mörk, á Mógilsá, í Haukadal og víðar um land. Talið er eðlilegt að 30 til 50 ár líði frá gróðursetningu skógarplantna þar til grisjunarviðurinn er nýtanlegur. Benda má á fjölmargar leiðir til þess að nýta þennan við og hámarka verðmæta- sköpun og nýta þær afurðir sem skóg- urinn gefur.  Nýta viðinn til handverks- og list- munagerðar. Einnig er eðlilegt að nýta viðinn til handmenntakennslu í skólum landsins. Þannig hefur viðurinn uppeld- islegt gildi fyrir nemendur og í því er fólgin kynning á því hvernig nýta má afurðir skógarins. Þeir Guðmundur Magnússon, listasmiður á Flúðum, og Ólafur Oddsson, starfsmaður Skógrækt- ar ríkisins, hafa unnið gott starf við kynningu á því hvernig nýta má viðinn til listmunagerðar nú síðast með útgáfu bókarinnar Lesið í skóginn, tálgað í tré. Margir aðilar hafa þegar unnið mjög merkilegt starf í þessum efnum s.s. Vík- ingaeyjan á Höfn, listafólkið á Mið- húsum á Héraði, Sigríður Guðmunds- dóttir listakona á Grund í Villingaholtshreppi, Félag rennismiða og skemmtilegt var að sjá níræðan höfðingja, Ríkharð Long Ingibergsson sem skar út í íslenskan við milli þess sem hann stundaði gömlu dansana og marga fleiri áhugamenn og listamenn mætti nefna  Límtré byggingaref timburs er a steinsteypu ins og á útiv gerðar úr vi  Lerki e framleiðslu palla svo dæ Héraði hefu ur o.m.fl. dæ  Allan a nýta til eldi ur er til hei og járnblen nýta úrgang sem hentar  Enn ei hefur verið Íslenskur trjáviður – ón Eftir Ísólf Gylfa Pálmason „Talið er eðlilegt að 30 til 50 gróðursetningu skógarplant grisjunarviðurinn er nýtanle MEÐ þeirri efnahags- og atvinnustefnu sem ríkisstjórnin hefur mótað og fram- fylgt er nú svo komið að grundvöllur hef- ur skapast til frekari breytinga á skatt- kerfinu þannig að fólkið í landinu njóti ávaxtanna. Að undanförnu hefur athyglin ekki síst beinst að stöðu venjulegs fólks með meðaltekjur – fjölskyldufólks í því samhengi. En í efnahagsmálum þarf fleira skoðunar við, t.d. vaxtastefna Seðlabankans sem er að sliga jafnt at- vinnulífið sem heimilin í landinu. Það er samdóma álit fólks að vextir hér á landi verði hreinlega að lækka. Færa má gild rök fyrir því að vextir séu of háir hér á landi og jafnframt gengi krónunnar miðað við núverandi stig hag- sveiflunnar og horfur í efnahagsmálum. Þessi samsetning vaxta og gengis getur skaðað hagvöxt til lengri tíma og ég skora á Seðlabankann að skoða gaum- gæfilega hvort bankinn sé á réttri leið í stefnu sinni. Við endurmat vaxtastefnunnar þarf að skoða hversu hratt er farið í styrkingu gjaldeyrisforðans og lánastýringu hins opinbera með tilliti til endurgreiðslu á innlendum og erlendum lánum. Það gæti leitt til hagstæðara starfsumhverfis fyrir atvinnulífið og dregið úr sveiflum í hag- kerfinu. Það er margt sem bendir til þess að minni vaxtamunur gagnvart útlöndum og nokkru lægra gengi gæti stuðlað að meiri atvinnu og framleiðslu við núver- andi aðstæðu ugleika í tvís Það er og miða Frams stjórnmálum hagstjórnina stöðugleikan var m.a. að a banka Ísland bólgumarkm ráðstöfun át dag um að þ að færa Seðl Vextir verða að lækka Eftir Björn Inga Hrafnsson „Færa má gild rök fyrir því a háir hér á landi og jafnframt unnar miðað við núverandi s unnar og horfur í efnahagsm 2002 losuð tonn af SO2 Fyrirsjáanleg tonnum sk Grundartangi1 756 2,50 Straumsvík1 2,499 6,62 Reyðarfjörður2 0 3,86 Samtals 3,254 12,99 1) Tölurnar eru úr matsskýrslum fyrir stækkunaráform fyrirt heimildir verði rýmri þegar til kemur, sbr. 17% afslátt sem N tíma skv. starfsleyfistillögu Hollustuverndar. Þar voru 828 to 966 tonn í tillögu að starfsleyfi. 2) Tölurnar eru úr drögum að starfsleyfi Reyðaráls ehf. auglýs 17. desember 2002. DREIFÐ EIGNARAÐILD KOSTUR Í samtali við Morgunblaðið í gær segirGarth Leder, hlutabréfasérfræðing- ur hjá fjárfestingarbankanum Fox- Pitt,Kelton, sem nýlega gerði hluta- bréfagreiningu á Íslandsbanka: „Íslandsbanki er áhugaverðari fjár- festingarkostur á alþjóðavettvangi en Landsbanki og Búnaðarbanki vegna þess að eignaraðild að bankanum er dreifð … Íslandsbanki hefur enga kjöl- festufjárfesta þannig að öll þeirra bréf geta gengið kaupum og sölum. Flestir aðrir bankar í Evrópu hafa einn eða tvo stóra hluthafa, sem minnkar það hlutafé, sem hægt er að eiga viðskipti með.“ Þetta eru athyglisverð ummæli hins erlenda sérfræðings, ekki sízt í ljósi þeirra umræðna, sem hér hafa farið fram sl. 4–5 ár um dreifða eignaraðild að bankakerfinu. Í þeim umræðum hafa ýmsir sérfróðir menn innan bankakerf- isins íslenzka haldið því fram, að hug- myndir um dreifða eignaraðild að bankakerfinu væru tóm vitleysa. Á tímabili bryddaði á þeirri kenningu að talsmenn dreifðrar eignaraðildar væru eins konar sósíalistar! Nú er veruleikinn orðinn sá, að eign- araðild að Íslandsbanka er orðin mjög dreifð. Þar er enginn sérstakur kjöl- festufjárfestir. Stærsti hluthafinn í bankanum er Lífeyrissjóður verzlunar- manna með rúmlega 10% hlut. Ekki verður séð að þessi dreifða eignaraðild hafi valdið Íslandsbanka neinum sér- stökum vandamálum í rekstri. Raunar virðist meiri friður um eignarhald á bankanum en var á meðan þar voru hluthafar, sem réðu yfir stærri hlut. Síðan kemur hingað erlendur sér- fræðingur, sem segir að það sé beinlínis kostur fyrir Íslandsbanka að hafa enga svokallaða kjölfestufjárfesta, þannig að öll bréf geti gengið kaupum og sölum og að Íslandsbanki sé af þessum sökum áhugaverðari fjárfestingarkostur fyrir alþjóðlega fjárfesta en Landsbanki og Búnaðarbanki. Svo virðist sem hinir íslenzku sér- fræðingar þurfi að endurmeta afstöðu sína bæði vegna reynslunnar, sem nú þegar er fengin af hinni dreifðu eign- araðild að Íslandsbanka, en líka vegna þess, að auðveldara verði með þessum hætti fyrir íslenzka banka að fá erlenda fjárfesta til þess að kaupa hlutabréf í bönkunum hér. Það hefur ekki lítil vinna verið lögð í að fá erlenda banka til þess að kaupa hlut í bönkunum hér. Morgunblaðið hefur hvatt mjög ein- dregið til þess á undanförnum árum, að lögð verði áherzla á dreifða eignaraðild að íslenzka bankakerfinu, ekki fyrst og fremst á þeim forsendum, sem hinn er- lendi sérfræðingur byggir mat sitt á, heldur af þjóðfélagslegum ástæðum. Að það sé einfaldlega ekki hollt fyrir ís- lenzkt samfélag að bankarnir skiptist upp á milli örfárra aðila. Í ljósi þeirra umræðna, sem hér hafa farið fram undanfarin ár, er þess að vænta að íslenzkir fjármálasérfræðingar sjái dreifða eignaraðild að bankakerfinu í nýju ljósi. Þeir hafa væntanlega eftir sem áður áhuga á því að fá erlenda fjár- festa til þess að leggja fé í íslenzka bankakerfið. ÍSLENDINGAR AXLA ÁBYRGÐ Meiri og meiri þungi er lagður íþátttöku Íslendinga í friðar-gæslustarfi í heiminum. Nú hef- ur íslensku friðargæslunni verið falið að stýra alþjóðaflugvellinum í Pristina í Kosovo næsta árið í umboði KFOR-fjöl- þjóðahers Atlantshafsbandalagsins, NATO. Þetta er stærsta verkefni ís- lensku friðargæslunnar frá upphafi. Þegar Íslendingar tóku formlega við stjórn flugvallarins af Ítölum í fyrradag var Halldór Ásgrímsson, utanríkisráð- herra, viðstaddur, ásamt Filippo Bers- elli, aðstoðarvarnarmálaráðherra Ítalíu, og Ibrahim Rugova, forseta Kosovo-hér- aðs. Af því tilefni sagði Halldór í samtali við blaðamann Morgunblaðsins: „Mikilvæg- ast fyrir okkur er að það skuli nú vera orðin staðreynd að okkur sé treyst fyrir svona verkefni án þess þó að her sé til staðar á Íslandi ... Það er nauðsynlegt að við tökum þátt í friðargæslu eins og aðrar þjóðir. Við eigum að leggja okkar af mörkum og það er mikilvægt fyrir okkur að öðlast reynslu á þessu sviði. Við eigum mikið af hæfu fólki sem er komið hingað og það eiga fleiri eftir að taka þátt í þessu starfi.“ Sameinuðu þjóðirnar hafa stýrt Kos- ovo-héraði síðan loftárásum NATO á Júgóslavíu lauk í júní 1999, en þá var bundinn endir á grimmdarverk öryggis- sveita Serba í héraðinu. Uppbygging eft- ir stríðsátökin gengur hægt, allt að 70% atvinnuleysi er í landinu og undir niðri kraumar mikið hatur á milli Kosovo-Alb- ana og serbneskra íbúa héraðsins. Þetta er því vandasamt verk sem Íslendingar hafa tekið að sér. Íslendingar munu vinna að því að koma flugvellinum í Pristina undir borgaralega stjórn Sameinuðu þjóðanna 1. apríl 2004 og er stefnan sú að þá verði rekstur flug- vallarins í höndum heimamanna. Nú starfa um eitt hundrað manns af fjórtán þjóðernum við flugvöllinn í Pristina undir yfirumsjón íslensku friðargæslunnar, sem tók óformlega við stjórn flugvallar- ins af Ítölum 20. janúar sl. Framlag Íslendinga verður margþætt og felst ekki aðeins í flugumferðarstjórn, en tíu íslenskir flugumferðarstjórar vinna nú við flugvöllinn. Það felst einnig í rekstri slökkviliðs á vellinum, veður- stofu, heilsugæslustöðvar og stjórn hlað- manna. Auk þess felur verkefnið í sér þjálfun 60 til 80 heimamanna, sem eiga að leysa Íslendinga af hólmi. Með forystu í þessu verkefni sýna Ís- lendingar að þeirra þáttur í friðargæslu skiptir máli, ekki síst vegna þess að um er að ræða verðmæta starfsmenn, sem eru dýrari en t.d. meðalhermaður. Ísland hefur á að skipa eftirsóttum sérfræðing- um, t.d. flugumferðarstjórum og læknum og hjúkrunarliði, sem fengur er að á stríðshrjáðum slóðum. Hálf öld er liðin síðan Íslendingar tóku fyrst þátt í friðargæslu og hefur þátttak- an aukist jafnt og þétt frá 1994. Á leið- togafundi NATO, sem haldinn var í nóv- ember, skuldbatt Ísland sig til að efla íslensku friðargæsluna með því að hraða áður áformaðri uppbyggingu og fjölga virkum friðargæsluliðum í áföngum úr 25 í 50 fram til ársins 2006. Gert er ráð fyrir að kostnaður við íslensku friðargæsluna verði þar með orðinn hálfur milljarður á ári. Þessum loforðum var vel tekið hjá NATO og í höfuðstöðvum Brussel þóttu þær falla vel að hugmyndinni um „sér- hæfð framlög“ aðildarríkjanna, þ.e. framlagið er raunhæft fyrir Ísland og kemur bandalaginu í heild að gagni. Ástæða er til að taka undir það með ut- anríkisráðherra að herleysið megi ekki verða til þess að Íslendingar sýni ekki bandalagsríkjum sínum í NATO sam- stöðu og taki þátt í því starfi sem unnið er í þágu friðar í heiminum. Með því að efla íslensku friðargæsluna er stigið mikil- vægt skref í þá átt og um leið skapar skuldbindingin Íslendingum trúverðug- leika í samvinnu á alþjóðavettvangi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.