Morgunblaðið - 05.03.2003, Page 37
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 37
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í
dag kl. 13-16.30. Handavinna, spilað,
föndrað. Öskudagsgleði og börn
skemmta. Bílaþjónusta í símum
553 8500, 553 0448 og 864 1448.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka
við fyrirbænum í síma 520-9700. Krakka-
blúbbar í safnaðarheimilinu: 9-10 ára
börn kl. 16-17 og 11-12 ára kl. 17.30-
18.50. www.domkirkjan.is
Grensáskirkja. Samverustund aldraðra
kl. 14. Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og
spjall. Alfa-námskeið kl. 19.30-22.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra
ungra barna kl. 10-12.
Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl.
11. Kvöldbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Kl. 12.10 bænagjörð
með orelleik og sálmasöng. Allir velkomn-
ir. Kl. 12.30 súpa og brauð í safnaðar-
heimilinu (kr. 300) Kl. 13-16 opið hús fyr-
ir eldri borgara. Söngur, spjall, föndur og
tekið í spil. Kaffiveitingar. Kl. 17-18.10
Krúttakórinn, 4-7 ára.
Laugarneskirkja. Öskudagsball verður í
kirkjunni í samvinnu Laugarneskirkju og
Foreldrafélags Laugarnesskóla ætlað
börnum í 1.-4. bekkur. Safnaðarheimilið
opnað kl. 13, en ballið hefst kl. 14. Ferm-
ingartími kl. 19.15. Unglingakvöld Laug-
arneskirkju og Þróttheima kl. 20 (8. bekk-
ur). Umsjón hefur Sigurvin Jónsson
guðfræðinemi og Ingibjörg Dögg Kjartans-
dóttir tómstundaráðgjafi hjá Þróttheim-
um. (Sjá síðu 650 í Textavarpi).
Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12,
kaffi og spjall, umsjón Elínborg Lárusdótt-
ir. 7 ára starf kl. 14.30. Föstuguðsþjón-
usta kl. 20. Elísabert Jökulsdóttir les úr
ljóðum sínum. Kór Neskirkju syngur. Org-
anisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur
sr. Örn Bárður Jónsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Léttur hádegisverður eftir stundina.
Fríkirkjan í Reykjavík. Alfa-námskeið í
safnaðarheimilinu kl. 20. Kyrrðar- og
bænastund í kapellu safnaðarins í safn-
aðarheimilinu, Laufásvegi 13, 2. hæð, kl.
12. Allir velkomnir.
Árbæjarkirkja. Kl. 12. Kyrrðarstund í há-
degi. Orgeltónlist, altarisganga, fyrirbænir
og íhugun. Kl. 13-16. Opið hús.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eft-
ir stundina. „Kirkjuprakkarar.“ Starf fyrir
7-9 ára börn kl.16.30. TTT. Starf fyrir 10-
12 ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á vegum
KFUM & K og kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Unglingastarf KFUM &
KFUK kl. 20-21.45. (sjá nánar: www.
digraneskirkja.is)
Grafarvogskirkja. Helgistund í hádegi kl.
12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er
upp á léttan hádegisverð á vægu verði að
lokinni stundinni. Prestar safnaðarins
þjóna fyrir altari, orgelleikari Hörður
Bragason. Allir velkomnir. Námskeiðið
„Að búa einn“ kl. 20-22. KFUM fyrir
drengi 9-12 ára í Grafarvogskirkju
kl.16.30-17.30. Kirkjukrakkar í Rima-
skóla kl. 17.30-18.30 fyrir 7-9 ára. TTT
(tíu til tólf ára) í Rimaskóla kl. 18.30-
19.30. Æskulýðsfélag í Engjaskóla kl.
20-22 fyrir 8.-9. bekk.
Hjallakirkja. Fjölskyldurmorgnar kl.
10.TTT-starf kl. 17.Tólf spora námskeið
kl. 20.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára börn-
um í dag kl. 16.45-17.45 í safnaðarheim-
ilinu Borgum. Starf með 10-12 ára börn-
um TTT, á sama stað kl. 17.45-18.45.
Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 19. Alfanám-
skeið í safnaðarheimili Lindasóknar, Upp-
sölum 3.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartan-
lega velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefn-
un í kirkjunni í síma 567 0110. Æsku-
lýðsfundur fyrir unglinga 14-15 ára kl. 20.
Biblíulestraröð Seljakirkju kl. 19.30 ann-
an hvern miðvikudag. Næsti lestur er
miðv. 12. mars.
Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar.
Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra
barna kl. 10-12. Heitt á könnunni. Fjöl-
mennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl.
13-16 í samstarfi við Félag eldri borgara
á Álftanesi. Notalegar samverustundir
með fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður
eða Erlendur sjá um akstur á undan og
eftir.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar í safnað-
arheimilinu Kirkjuhvoli kl. 10-12. Hittumst
og spjöllum. Heitt á könnunni og djús fyrir
börnin. Allir foreldrar velkomnir með eða
án barna.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljós-
broti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í dag kl. 12. Boðið er upp á súpu
og brauð í safnaðarheimilinu á eftir. Hægt
er að koma fyrirbænaefnum til sóknar-
prests eða kirkjuvarðar. Opið hús fyrir
eldri borgara í dag kl. 13. Gott tækifæri til
að hittast, spjalla saman, spila og njóta
góðra veitinga. Verð velkomin.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar
í dag kl. 10-12.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
16.20 TTT yngri, 9-10 ára krakkar í kirkj-
unni. Ratleikur. Sr. Þorvaldur Víðisson og
leiðtogarnir.
Kl. 17.30 TTT eldri, 11-12 ára krakkar í
kirkjunni. Ratleikur. Sr. Þorvaldur Víð-
isson og leiðtogarnir.
Kl. 20 opið hús í KFUM&K fyrir æskulýðs-
félagið. Hulda Líney Magnúsdóttir.
Lágafellskirkja. Foreldramorgnar í safn-
aðarheimili kirkjunnar í Þverholti 3, 3.
hæð, frá kl. 10-12. Umsjón hefur Arndís
L. Bernharðsdóttir og Þuríður D. Hjalta-
dóttir. AA-fundur kl. 20.30 í Lágafells-
kirkju. Unnið í tólf sporunum.
Keflavíkurkirkja. Öskudagur. Kirkjan opn-
uð kl. 12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í
kirkjunni kl. 12.10.
Samverustund í Kirkjulundi kl. 12.25 –
súpa, salat og brauð á vægu verði – allir
aldurshópar.
Umsjón Ólafur Oddur Jónsson. Æfing
Kórs Keflavíkurkirkju frá 19.30-22.30.
Umfjöllun um svefn, hvíld og streitu.
Bænarefni tengd alþjóðlegum bænadegi
kvenna sem er hinn 7. mars.
Æfing Kórs Keflavíkurkirkju frá 19.30-
22.30. Stjórnandi Hákon Leifsson.
Njarðvíkurkirkja (Innri-Njarðvík)
Foreldramorgun í Safnaðarheimilinu mið-
vikudaginn 5. mars kl.10.30 í
umsjá Kötlu Ólafsdóttur og Petrínu Sig-
urðardóttur.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í
síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Lofgjörð, lestur
Orðsins, fróðleikur og samvera. Allt ungt
fólk velkomið.
Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58.
Samkoma kl. 20. Borgin á himnum: Birna
G. Jónsdóttir talar, vitnisburðir. Allir vel-
komnir.
Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21.
Glerárkirkja. Hádegissamvera kl. 12-13.
Orgelleikur, fyrirbænir, sakramenti. Léttur
málsverður að helgistund lokinni í safn-
aðaðarsal á vægu verði.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10.
Opið hús, kaffi og spjall. Safi fyrir börnin.
ÆFAK, yngri deild kl. 20.
Skálholtsdómkirkja
Öskudagsmessa verður á miðvikudags-
kvöld 5. mars kl.
21.
Sóknarprestur.
Safnaðarstarf
Í YFIR fjörutíu ár hafa kristnar
konur á Íslandi komið saman
fyrsta föstudag í mars til að biðja
fyrir og með systrum sínum um
heim allan. Þessi dagur, alþjóð-
legur bænadagur kvenna, á sér
rætur rúma öld aftur í tímann og
nær til um 200 þjóða. Að þessu
sinni koma bænarefni dagsins frá
konum allra kristinna kirkju-
deilda í Líbanon. Þær biðja um
frið og jafnvægi inn í aðstæður
síns stríðshrjáða lands og fyrir
konur um heim allan, en yf-
irskrift dagsins er: „Fyll oss,
heilagi andi.“
Á bænastundum þennan dag
ríkir mikil samkennd og það er
gott að dvelja saman í nærveru
heilags anda. Víða um land koma
konur og karlar saman í stórum
og smáum hópum, á öllum aldri
og frá mörgum kristnum kirkju-
deildum.
Samkoman á höfuðborgarsvæð-
inu er haldin í Aðventkirkjunni
við Ingólfsstræti og hefst kl. 20,
föstudaginn 7. mars. Ræðukona
kvöldsins er Alda Baldursdóttir,
lögreglukona, og fjölbreytt tón-
list mun hljóma. M.a. munu Mar-
grétarsystur syngja fyrir okkur
lög af nýja diskinum sínum. Sam-
skot kvöldins renna til Hins ís-
lenska biblíufélags, sem er að
safna fyrir Nýja testamentum til
Konsó um þessar mundir. Allir
eru velkomnir, konur sem karlar.
F.h. landsnefndar um alþjóð-
legan bænadag kvenna,
sr. María Ágústsdóttir.
Fræðslu-
kvöld um
Daníelsbók
BIBLÍUSKÓLINN við Holtaveg
gengst fyrir fræðslukvöldi um
spádómsbók Daníels í Gamla
testamentinu fimmtudaginn 6.
mars kl. 20 í húsi KFUM og
KFUK á horni Sunnuvegar og
Holtavegar í Reykjavík. Texti
bókarinnar er yfir 2000 ára gam-
all en á samt erindi til okkar í
dag. Spilling, græðgi og öfund
eru dæmi um einkenni þess um-
hverfis sem bókin er skrifuð í.
Höfundur hennar, Daníel, treystir
á Guð og tekur ekki á einu ein-
asta vandamáli án þess að byrja á
því að gera öllum ljóst að Guð er
sigurvegarinn. Pétur Björgvin
Þorsteinsson, fræðslufulltrúi Há-
teigskirkju, mun fjalla um bókina
og velta upp þeirri spurningu
hvort Guð Daníels sé sá sami og
við treystum á og hvernig hann
geti verið sigurvegari í okkar lífi.
Fræðslukvöldið er liður í þriggja
ára áætlun Biblíuskólans,
„Þekktu Biblíuna betur“, sem
hófst í haust með mánaðarlegum
fræðslukvöldum sem hafa verið
vel sótt. Einnig er boðið upp á
fræðslu á vefsíðu skólans,
www.bibliuskoli.krist.is. Aðgang-
ur að fræðslukvöldinu er ókeypis
og öllum opinn.
Árdegismessur á
miðvikudögum í
Hallgrímskirkju
FRÁ OG með miðvikudeginum 5.
mars, sem er öskudagur, verður
tekin upp sú nýbreytni í helgi-
haldi að hafa stutta messu árdeg-
is á miðvikudögum í Hallgríms-
kirkju kl. 8.00.
Í messunni er stutt hugleiðing
og altarisganga og að henni lok-
inni er einfaldur morgunverður í
safnaðarsal Hallgrímskirkju. Gert
er ráð fyrir að þau sem eiga stutt
að fara geti verið komin til vinnu
kl. 9.00.
Hér er á ferðinni spennandi ný-
breytni í helgihaldi í Hallgríms-
kirkju. Messurnar eru tilvaldar
fyrir sérhvern sem vill taka þátt í
helgihaldi í miðri viku og eiga ró-
lega stund áður en haldið er af
stað út í ys og þys vinnudagsins.
Að messunum standa Hallgríms-
kirkja og áhugahópur presta,
guðfræðinga og starfsmanna af
Biskupsstofu. Fjöldi presta og
leikmanna munu koma að þeim.
Hugmyndin að þessum messum
er fæddist hjá mörgum sem eiga
leið framhjá kirkjunni á leið til
vinnu og er vonin sú að hægt
verði að búa til áningarstað á
virkum degi þar sem maður
gengur fram fyrir Guð í miðri
vinnuviku og þiggur næringu
bæði líkamans og trúarlífsins.
Verið velkomin í Hallgrímskirkju
á miðvikudagsmorgnum klukkan
8.
Orgelnefnd Krists-
kirkju, Landakoti,
með bingó
FIMMTUDAGINN 6. mars kl.
20.00 heldur orgelnefnd og
kirkjukór Kristskirkju Landakoti
bingó til fjáröflunar fyrir við-
haldssjóð orgels kirkjunnar og
kirkjukórsstarfið. Bingóið fer
fram í safnaðarheimili Krists-
kirkju í Landakoti að Hávalla-
götu 14 í Reykjavík.
Margir vinningar eru í boði en
aðalvinningurinn er flugfar með
Iceland Express til Kaup-
mannahafnar eða London. Af öðr-
um vinningum má nefna gjafa-
kort á veitingastað í Reykjavík
og gjafakort á heilsubaðstað í
Vesturborginni.
Að auki eru margir aðrir vinn-
ingar. Hvert bingóspjald kostar
250 krónur, í hálfleik verður
kaffi og kökuhlaðborð sem kostar
hið sama, eða 250 krónur.
Allur ágóði af bingóinu rennur
til viðhalds orgels Kristskirkju og
til reksturs og starfsemi kirkju-
kórs kirkjunnar sem fyrr segir.
Allir velunnarar Kristskirkju eru
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Alþjóðlegur
bænadagur
kvenna
Mig langar til þess að
minnast hennar ömmu
minnar, hennar Lauf-
eyjar.
Hún var mjög ákveð-
in, elskuleg, kærleiksrík og góð
manneskja. Hún lagði líka mikla
áherslu á að allir lærðu eitthvað og
yrðu að manni.
Ég man þegar við fórum eitt sinn í
Hólminn, þegar ég var níu ára.
Mamma, pabbi og afi fóru í afmæli út í
eyjar, þannig að við amma vorum ein-
ar eftir. Þá kenndi hún mér að búa til
hálsmen úr melónusteinum. Ég var
svaka montin með að hafa getað gert
þetta. Hún sagði mér líka sögur af
fólki sem hún þekkti. Ég efast um að
ég muni gleyma þessu.
Líka þegar ég var lítil fór ég oft nið-
ur í fjöru fyrir framan húsið hjá
LAUFEY
SIGURÐARDÓTTIR
✝ Laufey Sigurð-ardóttir fæddist
á Fáskrúðsfirði 9.
ágúst 1920. Hún
andaðist á Landspít-
alanum við Hring-
braut 13. febrúar
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Stykkishólms-
kirkju 22. febrúar.
ömmu og afa til að tína
skeljar. Oft kallaði
amma á mig í mat og þá
var oftast fiskur, en
hann var alltaf mjög
góður. Líka var alltaf
eitthvað bakað í kaffi-
tímanum.
Amma var mjög virk í
öllu kórstarfi í Stykkis-
hólmskirkju. Hún söng
þar í mörg ár í alt-rödd.
Hennar uppáhalds-
sálmur var Heyr himna
smiður. Þegar amma
komst að því að ég var í
kór og var látin syngja í
fyrstu rödd varð hún svo stolt og það
gerði mig svo glaða þá. Og nú þegar
ég lít aftur þýðir það svo mikið fyrir
mig að hún heyrði mig syngja þó að
væri ekki nema einu sinni.
Ég vil bara að þú njótir dvalarinnar
þar sem þú ert, með ástvinum. Ég
veit að ég á eftir að sakna þín, en ég
veit líka að þér líður betur þar sem þú
ert. Ég mun líka meta mikils ferðirn-
ar í Hólminn og heimsóknir ykkar afa
til Akureyrar og síðar Kópavogs. Það
eina sem ég á eftir að segja er: Guð
blessi þig, hvar sem þú ert. Lát hann
gæta þín og styrkja.
Lilja.
Það er árið 1975 og
ég vakna snöktandi í
rúminu mínu hjá ömmu
og afa í Búðardal. Ég
heyri daufan óm sem kemur úr út-
varpinu hennar ömmu sem hún hef-
ur við höfðagaflinn sinn og veit að
það er þá kominn morgunn. Ég tek
þetta eina skref sem aðskilur rúmið
mitt og rúm ömmu og afa og ýti við
ömmu með tárin í augunum: amma,
má ég koma til þín? Hún opnar aug-
un og horfir hissa á mig, hvað er að,
elskan mín? Ég skríð upp í hlýja hol-
una á milli þeirra og hjúfra mig upp
að henni, mig dreymdi svo illa,
amma. Hún strýkur mér um vang-
ann og spyr hvað hafi gert mig svo
sorgmædda. Mig dreymdi að þú og
afi væruð dáin segi ég og fer nú að
hágráta.
Hvað segirðu, vorum við afi dáin?
segir hún, já, segi ég og ég átti aldrei
eftir að sjá ykkur aftur. Hún brosir
og tekur þétt utan um mig og fer að
segja mér að þegar hún og afi deyi
BORGHILDUR
HJARTARDÓTTIR
✝ BorghildurHjartardóttir
fæddist á Kjarlaks-
völlum í Saurbæjar-
hreppi í Dalasýslu 22.
ágúst 1915. Hún lést
á Landspítalanum
Fossvogi laugardag-
inn 15. febrúar síð-
astliðinn og var útför
hennar gerð frá Ás-
kirkju 24. febrúar.
fari þau til guðs. En ég
vil það ekki, segi ég og
verð reið inni í mér, af
hverju þurfum við öll
að fara þangað? Svona
er nú lífið, elskan mín,
segir hún og hlær lágt,
en eitt skal ég segja þér
að þegar við afi erum
komin til guðs verðum
við samt alltaf hjá þér
og ég sé líka þá hvort
þú sért eitthvað að
óþekktast segir hún og
hlær núna upphátt.
Það er febrúar árið
2003 og ég sit hjá
ömmu minni á spítalanum, þessi fal-
lega dugnaðarkona er á 88. aldursári
og ferðin til guðs framundan.
Hún talar til mín í síðasta sinn,
segir mér að guð sé hjá henni og hún
og ég verðum alltaf saman. Þú ert
góð stúlka, Bogga, og ég á svo mikið í
þér.
Og eins og forðum fer ég að gráta
og langar mest að skríða aftur upp í
hjá henni.
Ég veit þér líður vel núna, amma,
og veit að þegar sá tími kemur tekur
þú á móti mér og ég þarf ekkert að
óttast.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Borghildur Gunnarsdóttir.
Ég er búinn að
þekkja Jóhönnu lengi.
Hún var ágæt og ég
sakna hennar svo mik-
ið.
Ég man þegar við vorum úti í Nor-
egi að leika.
JÓHANNA SIGRÚN
GUÐMUNDSDÓTTIR
✝ Jóhanna SigrúnGuðmundsdóttir
var fædd á Fá-
skrúðsfirði 27. júní
1965. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 21.
febrúar síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Grafar-
vogskirkju 3. mars.
Takk fyrir sam-
veruna.
Samhryggist fjöl-
skyldu hennar.
Ykkar vinur
Sigfús.
Kæra vinkona. Ég
minnist þín sem góðs
vinar þegar við bjugg-
um saman á sambýli í
Grundarlandinu. Ég á
margar góðar minning-
ar um þig. Ég vona að
englar guðs leiki við þig
núna. Ég votta öllum
aðstandendum þínum
samúð mína.
Björgvin Kristbergsson.
MINNINGAR