Morgunblaðið - 12.06.2003, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 12.06.2003, Blaðsíða 48
FÓLK Í FRÉTTUM 48 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ  AMIGOS: Gunni og aparnir fimmtudag kl. 20 til 23.  ARI Í ÖGRI: Óskar Einarsson föstudag og laugardag.  ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Dansleik- ur, Caprí-tríó leikur fyrir dansi sunnudag kl. 20 til 24.  BÁSINN, Ölfusi: Harmónikuball laugardag.  BILLABAR, Seyðisfirði: DJ Skuggabaldur föstudag.  BORGARLEIKHÚSIÐ: Hljóm- sveitin Napoli 23 með útgáfutónleika fimmtudag kl. 21.  BÆJARBARINN, Ólafsvík: Gilitr- utt laugardag.  CAFÉ AMSTERDAM: Hljómsveit- in Fjandakornið rokkar föstudag og laugardag.  CAFÉ AROMA, Verslunarmið- stöðinni Firði: Ingi Valur heldur uppi stemmningu föstudag og laugardag. Blústónleikar, Halldór Bragason og Guðmundur Pétursson sunnudag kl. 21.  CATALINA, Hamraborg 11, Kópavogi: Hermann Ingi föstudag, laugardag og mánudag.  DÚSSA-BAR, Borgarnesi: Ingimar spilar á harmoniku föstudag.  EGILSBÚÐ, Neskaupstað: Lúdó og Stefán föstudag og laugardag.  FÉLAGSHEIMILIÐ LEIKSKÁL- AR, Vík: Hljómsveitin Papar laugar- dag.  FÍH-SALURINN, Rauðagerði: Trommarinn Rod Morgenstein held- ur sólótónleika laugardag kl. 16.  FÍLADELFÍUKIRKJAN: Gosp- elkór Reykjavíkur fimmtudag kl. 20.  GAUKUR Á STÖNG: Hljómsveitin Sniglabandið föstudag.  GLAUMBAR: Atli fimmtudag. DJ Steini föstudag. Þór Bæring laugar- dag.  GRANDHÓTEL, Reykjavík: Gunn- ar Páll leikurr fyrir matargesti föstu- dag og laugardag.  GRANDROKK: Vínyll fimmtudag kl. 22. Bob, Noise o.fl. föstudag kl. 22.30. Maus laugardag kl. 23.  GRÆNI HATTURINN, Akureyri: Hljómsveitin Karma föstudag og laugardag.  GULLÖLDIN: Svensen og Hall- funkel föstudag og laugardag til kl. 3.  HERÐUBREIÐ, Seyðisfirði: Dans- leikur með Geirfuglunum laugardag kl. 23. 18 ára aldurstakmark.  HÓTEL VALASKJÁLF, Egilsstöð- um: Stuðmenn mánudagskvöld.  HVERFISBARINN: Bítlarnir fimmtudag. Atli föstudag og laugar- dag.  HÖLLIN, Vestmannaeyjum: Land og synir laugardag.  JÓMFRÚIN, Lækjargötu: Stór- sveit Reykjavíkur leikur laugardag kl. 16 til 18.  KAFFI-LÆKUR: Njalli í Holti sér um tónlistina föstudag og laugardag.  KAFFI-STRÆTÓ, Mjódd: Glyms- arnir föstudag og laugardag.  KLIF, Ólafsvík: Írafár mánudag.  KRÁIN, Laugavegi 73: Danni föstudag og laugardag. Árni Ísleifs leikur djass sunnudag. Ingvar Val- geirsson mánudag.  KRINGLUKRÁIN: Hljómsveitin Úlfarnir föstudag og laugardag.  LAUGAVEGUR 11: NI föstudag og mánudagskvöld.  LAUGAVEGUR 22: Rallý-Cross föstudag. Bobby K laugardag. Diab- olocals mánudag.  LEIKHÚSKJALLARINN: 80’s partý með Johnny dee föstudag. Gull- foss og Geysir laugardag. Hljómsveit- in Jagúar mánudag.  MEKKA SPORT, Dugguvogi 6: Hljómsveitin Spútnik föstudag.  NASA VIÐ AUSTURVÖLL: Sveitaball á mölinni: Stuðmenn leika fyrir dansi föstudag. Forsala miða hefst á miðvikudag kl. 14 á Nasa.  ODD-VITINN, Akureyri: Karaoke kvöld föstudag. Hljómsveitin Bylting leikur fyrir dansi laugardag. Karaoke kvöld sunnudag og mánudag.  PLAYERS-SPORT BAR, Kópa- vogi: Í svörtum fötum föstudag. Hljómsveitin Spútnik laugardag.  RÁIN, Reykjanesbæ: Hljómsveitin Sín föstudag og laugardag.  SALKA, Húsavík: Hljómsveitin The Hefners verður með dansleik laugardag.  SPOTLIGHT: DJ Sesar í kjallaran- um föstudag, laugardag og mánu- dagskvöld.  SÚLNASALUR, Hótel Sögu: Millj- ónamæringarnir Bjarni Ara, Páll Óskar og Raggi Bjarna mánudag kl. 22 til 4. Á bransaballi, uppskeruhátíð leiklistarinnar. Miðsasala hófst 2. júní.  VALHÖLL, Eskifirði: DJ Skugga- baldur laugardag.  VÍDALÍN: Bob, Isidor og Coral fimmtudag kl. 21. Hljómsveitin Buff föstudag og laugardag. Blús leikinn sunnudag kl. 20. DJ Atli mánudag.  VÍK, Höfn í Hornafirði: Sixties-ball laugardag.  VÍKURRÖST, Dalvík: Hljómsveit- in Papar mánudag. Vinyll leikur á Grandrokk í kvöld. Millarnir leika á uppskeruhátíð leiklistargeirans á Hótel Sögu 16. júní. FráAtilÖ ADAM Sandler, vinur vors og blóma og allmargra ungmenna er mættur til leiks á ný. Þótt hann sé kannski aðeins þroskaðri í Reiði- stjórnun en í mörgum undangengn- um myndum sínum, þá er þessi mynd einmitt það sem aðdáendur hans hafa lengi verið að bíða eftir. Hér leikur hann Dave nokkurn Buznik sem er hógvær, lítillátur og feiminn maður sem lætur hrokafullan yfirmann sinn troða á sér. Fyrir mis- skilning lendir hann í meðferð fyrir reiðisjúklinga, þar sem hinn klikkaði dr. Buddy Rydell þykist ætla koma fyrir hann vitinu. Og þá byrjar fjörið. Doktorinn leikur stórleikarinn Jack Nicholson, sem er ekki hægt að segja um að sé á jafn miklum heima- velli og Sandler. Aðdáendur Jacks sem ætla á myndina hans vegna, geta ekki búist við að sjá sinn gamla, góða leikara þar. Það er gaman að sjá hina sætu og fínu leikkonu Marisu Tomei í hlutverki hinnar hjartagóðu kærustu sem Sandler-týpan á – eða eignast undir lokin – í hverri mynd. Eiginlega hefði hún mátt sjást mun meira. Það er nú varla að það sé pláss fyrir hana, því Adam Sandler virðist vera orðinn þvílíkur gæðastimpill að myndin er yfirfull af frægum stjörnum í agnar- litlum hlutverkum. Þeirra á meðal var einkar ánægjulegt að endurnýja kynnin við Woody „Long Time No See“ Harrelson í hlutverki klæðskipt- ings og vallarvarðar. Myndin hefði þó mátt vera betri. Hugmyndin er góð, því þegar öllu er á botninn hvolft, þá hefðu áreiðanlega margir af okkur, bældu Íslendingun- um, gott af því að fara í álíka meðferð. Sannleikskorn reynist því í þessu öllu saman og margar persónanna eru guðdómlegar. Hins vegar höktir myndin frekar, bæði þegar kemur að framvindu handrits og leikstjórn, og hefðu fastari tök getað gert hér gæfu- muninn. Mörg atriðanna eru fín, en því mið- ur dettur myndin oft niður, atriði verða of löng og sömu hugmyndirnar eru notaðar aftur og aftur. Ég hafði annars mjög gaman af dónabröndur- unum og gat yfirleitt lifað mig mjög sterkt inn í vanlíðan aumingja Daves. Hér er sem sagt engin stórmynd á ferð, heldur ágætasta dægrastytting með skemmtilegum uppákomum. Þrátt fyrir að ég sé hlynnt „happy endings“ að hætti Sandlers, þá er þessi nú einum of og ekki einu sinni frumlegur – hjálp! Hinn sanni Sandler á ný KVIKMYNDIR Smárabíó, Regnboginn, Laug- arásbíó, Borgarbíó Akureyri REIÐISTJÓRNUN/ANGER MANAGEMENT  Leikstjórn: Peter Segal. Handrit: David Dorfman. Kvikmyndataka: Donald McAlpine. Aðalhlutverk: Adam Sandler, Jack Nicholson, Marisa Tomei, Luis Guzmán, Jonathan Loughran, Kurt Fuller, Krista Allen, January Jones og John Turt- urro. 106 mín. USA. Columbia Tristar 2003. Þrír góðir á góðri stund – Sandler, Harrelson og Nicholson. Hildur Loftsdóttir FYRIR tveimur áratugum lágu leiðir þeirra Charlies Carbones (Jerry O’Connell) og Louis Bookers (Anthony Anderson) saman á bað- ströndinni er Louis bjargaði Charlie frá drukknun. Síðan hefur seinheppni hlunkurinn hann Louis gert Charlie, sem orðinn er besti vinur hans, hvern óleikinn á fætur öðrum. Sá nýjasti er að flækja Charlie í elt- ingaleik á bíl með stolið góss sem fer allt í vaskinn og það sem verra er; eig- andi þess er mafíuforinginn Sal (Christopher Walken), stjúpi Charl- ies. Sal lofar hrakfallabálkunum fyr- irgefningu ef þeir fari með dularfullt bréf til Ástralíu og komi því í hendur manns sem bíður þeirra úti í óbyggð- unum. Allt gengur vel uns bláeygir bjálfarnir eru nánast komnir á áfangastað. Þá aka þeir á kengúru, hún rotast, Louis hyggst mynda hana í jakkanum sínum, pokadýrirð raknar úr rotinu og hverfur út í buskann. Það þarf ekki að segja meira, menn geta auðveldlega séð framhaldið fyrir sér. Til að byrja með ruglar það áhorfandann í ríminu að framleiðandi Kengúru-kobba er sjálfur Jerry Bruckheimer, sem staðið hefur fyrir gerð nokkurra svæsnustu og hröð- ustu afþreyingarmynda síðustu ára- tuga. Eitthvað hefur karli fatast flug- ið eftir að hann fór að reyna við aðrar myndgreinar, líkt og mistökin Pearl Harbor. Nú er hann kominn inn á barna- og fjölskyldumyndamarkað- inn og í þeim geira getur þessi ofur al- vitlausa en ekki beint leiðinlega mynd plumað sig bærilega. Farið því ekki á Kengúru-Kobba undir þeim formerkjum að sjá hefð- bundna Bruckheimer-mynd í anda Armageddon, Con Air og The Rock, heldur dæmigerða Disney-mynd í slakari kantinum. Og takið smáfólkið með, það kann helst að meta farsa- kenndan aulaganginn. Menn eru ekki að reyna að afreka neitt hér, myndin seiglast áfram á meðalmennskunni einni saman og maður hefur á tilfinn- ingunni að Bruckheimer væri hollast að snúa sér aftur að hasarnum. Kjánaprik og kengúrur KVIKMYNDIR Sambíóin KENGÚRU-KOBBI (KANGAROO JACK) Leikstjóri: David McNally. Handrit: Steve Bing og Scott Rosenberg, byggt á sögu e. Bing og Barry O’Brien. Kvikmynda- tökustjóri: Peter Menzies Jr. Tónlist: Trevor Rabin. Aðalhlutverk: Jerry O’Connell (Charlie Carbone), Anthony Anderson (Louis Booker), Estella Warren (Jessie), Michael Shannon (Frankie Lombardo), Bill Hunter (Blue), Christ- opher Walken (Sal Maggio), Marton Csokas. 88 mínútur. Warner Brothers. Bandaríkin 2003. „Farsakennd mynd helst ætluð smáfólkinu,” segir í umsögn. Sæbjörn Valdimarsson HARMUR PATREKS eftir Auði Haralds 3. sýn. fös. 13. júní kl. 20 4. sýn. lau. 14. júní kl. 20 Dansleikhús með ekka frumsýnir LÍNEIK OG LAUFEY lau. 14. júní kl. 14 lau. 14. júní kl. 16 sun. 15. júní kl. 14 Miðaverð kr. 500 sun 15. júní kl. 21, Hótel Borgarnes fim 19. júní kl. 21, Félagsh. Valhöll Eskifirði lau 21. júní kl. 21, Félagsh. Herðubreið Seyðisf. Forsala í Borgarnesi í versl. Fínu fólki, Borgarbraut Forsala á Eskifirði í síma: 8977424 Forsala á Seyðisfirði í síma: 8617789 www.sellofon.is Stóra svið Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga. Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is Miðasala 568 8000 Nýja svið NAPÓLÍ 23 - ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Hilmar Jensson, Skúli Sverrisson, Matthias Hemstock, Eyvind Kang Í kvöld kl. 20 15:15 TÓNLEIKAR - FERÐALÖG Bergmál Finnlands: Poulenc hópurinn Lau 14/6 kl. 15:15 Litla svið RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Lau 21/6 kl. 20 - AUKASÝNING UPPSELT Sun 22/6 kl. 20 - AUKASÝNING ATHUGIÐ SÍÐUSTU SÝNINGAR ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield Fö 13/6 kl. 20 SÍÐASTA SÝNING Í VOR DON GIOVANNI EFTIR W. A. MOZART ÓPERUSTÚDÍÓ AUSTURLANDS Su 15/6 kl. 17 Má 16/6 kl. 20 GREASE ÍSLENSKA LEIKHÚSGRUPPAN Fi 26/6 FRUMSÝNING ALLIR Í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA! Borgarleikhúsið er fjölskylduvænt leikhús: Börn, 12 ára og yngri, fá frítt í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum. Gildir á ÖFUGU MEGIN UPPÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.