Morgunblaðið - 12.06.2003, Síða 53

Morgunblaðið - 12.06.2003, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2003 53 BÖRN og unglingar sem horfa á kvikmyndir þar sem söguhetjurnar reykja eru þrefalt lík- legri til að byrja sjálf að reykja, samkvæmt nið- urstöðum rannsóknar er birt var í læknatíma- ritinu The Lancet. Nið- urstöðurnar eru um- deildar og hafa sumir sérfræðingar minnt á að margir þættir til viðbót- ar hafi áhrif á hvort ung- lingar taki upp reyking- ar. Vegna þessarar bandarísku rannsóknar hefur Glantz, baráttuhópur gegn reykingum, hvatt til þess að myndir þar sem leikarar sjáist við reykingar, verði bannaðar börnum. Indverskar kvikmyndastjörnur í Hollywood hafa nú þegar hafið her- ferð gegn því að kvikmyndaframleið- endur noti reykingar í myndum. Rannsóknin var gerð í Læknaskól- anum í Dartmouth í New Hampshire og tók til 2.063 barna á aldrinum 10 og 14 ára, sem höfðu aldrei komið ná- lægt reykingum. Börnin voru spurð árið 1999 hvaða myndir þau hefðu séð af alls 50 talsins frá áratugnum á und- an. Síðan var reiknað út hversu mikið þau hefðu séð af reykingum í kvik- myndum og var hópnum skipt niður í fjóra smærri hópa. Einu til tveimur árum síðar höfðu 10% af ungmenn- unum prófað reykingar eða byrjað að reykja og var stærsti hlutinn úr þeim hópi er hvað mest hafði fylgst með reykingum í kvikmyndum. Rann- sóknin tók svo aðra þætti inn í eins og hópþrýsting frá jafnöldrum og upp- reisnarþrá og niðurstaðan varð að börn væru þrisvar sinnum líklegri til að byrja að reykja ef þau tilheyrðu hópnum, sem mest horfði á hetjur sínar á hvíta tjaldinu við reykingar. Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að 52% af börnunum í könnun- inni hefðu byrjað að reykja vegna áhrifa frá kvikmyndum. Ekki eru allir sammála niðurstöð- unum. Fjölmiðlafræðingurinn Paul Levinson frá Fordham-háskóla í New York sagði niðurstöðurnar gall- aðar vegna þess að ekki væri litið nægilega til annarra þátta. Tóbaksframleiðandinn Philip Morris í Bandaríkjunum sagði að framleiðsluiðnaðinum væri ekki um að kenna. Fyrirtækið sagði að leik- stjórar og framleiðendur þyrftu að fara varlegar í að sýna reykingar í kvikmyndum ætlaðar ungmennum. Reykingar í kvikmyndum hafa áhrif á börn Beavis og Butthead hafa tekið upp á margri vit- leysunni, eins og að reykja. Bannað að reykja á hvíta tjaldinu? KEPPNI í hársnyrtingu á vegum Intercoiffure á Íslandi fór fram á dögunum á skemmtistaðnum NASA við Austurvöll. Alls eru 15 hárgreiðslustofur á landinu félagar í Intercoiffure en ungliðar stofanna tóku þátt í keppninni. Alls tóku 20 manns þátt í keppninni og voru þeir allir 28 ára og yngri. Sigur úr býtum bar Helena Rán Stefánsdóttir hjá Hárnýju í Kópavogi. Hlýtur hún að launum Parísarferð þar sem hún fær að sýna listir sínar með ungliðum frá 32 löndum til viðbótar á sýningu alheimssamtaka Intercoiffure í haust. Í öðru sæti lenti Nína Kristjánsdóttir hjá Jóa og félögum og í því þriðja varð Dagný Gréta Ólafsdóttir frá Salon Reykjavík. Að sögn Hrafnhildar Arnardóttur, eins skipuleggjenda, gekk keppnin vel fyrir sig. „Þetta var hörð og flott keppni,“ segir hún, og bætir við að það hafi reynst skemmtilegt að hafa dóm- ara úr mismunandi áttum en þeir voru Baldur á Mojo, Alli í Company, Hreinn ljósmyndari og Birta förðunarkona og fata- hönnuður. Ungliðakeppni Intercoiffure haldin á NASA Parísarferð að launum Morgunblaðið/Árni Torfason Nína Kristjánsdóttir hjá Jóa og fé- lögum og Hafdís módel en Nína lenti í öðru sæti í keppninni. Morgunblaðið/Árni Torfason Helena Rán Stefánsdóttir (til vinstri), frá Hárný í Kópavogi, lenti í fyrsta sæti í keppn- inni og hlýtur ferð til Parísar að launum. Morgunblaðið/Árni Torfason Hrund fæst við hárið á Dóru Björk á NASA en 20 manns tóku þátt í Int- ercoiffure-keppni ungliða. Það borgar sig að kynnast fólki vel áður en þú ferð á blint stefnumót á netinu. Queen Latifahfer á kostum og Steve Martin slær í gegn í sinni stærstu gamanmynd frá upphafi! „Einn mesti grínsmellur ársins!“  KVIKMYNDIR.COM  KVIKMYNDIR.IS KVIKMYNDIR.IS  ÓHT Rás 2 „Grípandi og gefandi með óborganlega bardaga“ EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.30, 8 OG 10.30. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. KRINGLAN Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. AKUREYRI Sýnd kl. 6, 8 og 10. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8. ÁLFABAKKI Kl. 4, 6, 8 og 10. Bi. 12 KRINGLAN Kl. 5.30, 8 og 10.30. Bi. 12 KEFLAVÍK Kl. 10. B.i. 12. KEFLAVÍK Sýnd kl. 10. AKUREYRI Kl. 10. B.i.12 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10.10. Kvikmyndir.is ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 6. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4. ÞESSI FRÁBÆRA GRÍNMYND ER FRÁ FRAMLEIÐANDANUM JERRY BRUCKHEIMER SEM HEFUR GERT SMELLINA ARMAGEDDON, PEARL HAR- BOR, THE ROCK OG CONAIR. KANGAROO JACK KEMUR ÞÉR Í SVAKA STUÐ! ´3 vi kur á to ppnu m í US A! 3 vik ur á to ppnu m á Ísla ndi Á MORGUN! m TÍMARIT UM MAT & VÍN27062003 Hafðu samband við auglýsingadeild Morgunblaðsins í síma 569 1111 eða á augl@mbl.is Auglýsendur! Næsta tölublað af tímaritinu m sem fjallar um mat og vín, kemur út föstudaginn 27. júni næstkomandi. Tímaritið fylgir Morgunblaðinu í 55.000 eintökum til allra kaupenda blaðsins um land allt. Matur og vín eru orðin stór hluti af lífi landsmanna og margir sem hafa það sem sérstakt áhugamál. Tímaritinu er ætlað að endurspegla þennan nýja lífsstíl landsmanna á lifandi og áhugaverðan hátt. Stærð tímaritsins er 25x36 sm og er það skorið og heftað. Pantanafrestur auglýsinga er til mánudagsins 23. júní kl. 16:00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.