Morgunblaðið - 05.07.2003, Síða 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Borgartúni 28 • Sími 562 5000 • www.bjorninn.is
Eldhúsinnréttingar • Innihurðir
Baðinnréttingar • Fataskápar
I n n r é t t i n g a r
• Fjölbreytt úrval innréttinga.
• Verð við allra hæfi.
• Hönnun og ráðgjöf.
Í GÆR var frumsýnd ný auglýsing
frá Umferðarstofu. Auglýsingin er
sú fyrsta af þremur auglýsingum
sem Umferðarstofa ásamt Vega-
gerðinni lét gera en gerð þeirra er
liður í nýju umferðarátaki sem mið-
ar að því að hafa áhrif á vitund öku-
manna með því að gera þá meðvit-
aða um staðreyndir og afleiðingar
hraða- og ölvunaraksturs.
Auglýsingin sem birtist í gær
fjallar um hraðakstur og er nokkuð
frábrugðin öðrum auglýsingum um
umferðaröryggi en í henni er lögð
áhersla á afleiðingar hraðaksturs
með sláandi hætti. Seinni tvær aug-
lýsingarnar taka fyrir ölvunar-
akstur og bílbeltanotkun og eru
með sama sniði og verða frum-
sýndar seinna í sumar.
Hjá Umferðarstofu stendur til að
fylgja átakinu eftir með hraðamæl-
ingum og samanburði á hraðakstri
fyrir og eftir sýningu auglýsing-
arinnar en Vegagerðin hefur komið
fyrir svokölluðum umferðar-
greinum víða um þjóðvegi landsins
og eins innanbæjar.
Sigurður Helgason hjá Umferð-
arstofu sagði að með auglýsing-
unum væru reyndar nýjar leiðir til
þess að ná til fólks en rætt var við
ungt fólk við gerð auglýsinganna
og ábendingar fengnar frá því.
Umferðarstofa stendur fyrir umferðarátaki í sumar
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu kynnti auglýsingaherferðina á blaðamannafundi í gær.
Áhersla á afleið-
ingar slysanna
FLUGUMFERÐARSTJÓRN
á Íslandi ákvað að beina engum
flugvélum yfir Jan Mayen í gær
eftir að fréttir bárust af því að
hugsanlega væri eldgos hafið á
eynni. Fregnir af eldgosinu
reyndust þó ýktar en við skoð-
un á gervitunglamyndum hafði
virst sem hitamyndun yfir
eynni væri óeðlileg. Þeir vís-
indamenn sem staddir voru á
Jan Mayen í gær könnuðust
ekki við meint eldgos þegar
haft var samband við þá og var
því ákveðið að hleypa flugvél-
um að nýju á svæðið sem hafði
verið lokað. Svæðið var 150
mílna radíus í kringum eyna.
Fyrsta flugvélin fór inn á
svæðið eftir að því var lokað
skömmu fyrir klukkan 18 í gær,
en hún var á leið til Japans.
Engin röskun varð vegna hins
ætlaða eldgoss.
Flugi beint
frá Jan Ma-
yen vegna
„eldgoss“
FYRSTA helgin í júlí er önnur
stærsta ferðahelgi ársins á eftir
verslunarmannahelginni en skipu-
lögð hátíðarhöld eru víða um land og
búist er við að margir verði á ferð-
inni. Meðal annars er stór hátíð í
Ólafsvík, þar sem staðið verður fyrir
færeyskum dögum og búist við um
4.000 manns að sögn lögreglu, á
Siglufirði er þjóðlagahátíð og í Stað-
arfelli heldur SÁÁ fjölskylduhátíð
sína. Háskólanemar safnast saman á
Skógum, Sniglarnir halda sína hátíð
í Njálsbúð um helgina og á Höfn í
Hornafirði er humarhátíð.
Að sögn lögregluyfirvalda á þess-
um stöðum tók umferð að þyngjast
eftir því sem leið á daginn og á
nokkrum stöðum er lögreglan með
aukaviðbúnað, t.d. á Hvolsvelli, Höfn
og Ólafsvík.
Mikilvægt að ungt
fólk haldi hópinn
Mikið er um að ungt fólk fari úr
bænum og skemmti sér fyrstu
helgina í júlí en undanfarin ár hefur
það ráðist á síðustu stundu hvert
þessi hópur fer til að skemmta sér.
Það hefur gert yfirvöldum erfitt fyr-
ir þegar jafnstór hópur ungmenna
mætir skyndilega enda erfitt að
skipuleggja löggæslustarf með svo
skömmum fyrirvara.
Hjalti Björnsson, sem sér um ung-
lingastarf hjá SÁÁ, sagði í samtali
við Morgunblaðið að mesta hættan
fyrir unglinga væru óskipulagðar
samkomur þar sem löggæsla væri í
lágmarki. Hann sagði jafnframt að
skemmtanahöldum um þessa helgi
fylgdi alltaf ýmis hætta, fólk æki
timbrað og í slæmu ástandi og hafi
það oft leitt til slysa. Hjalti vildi
brýna fyrir unga fólkinu að vera ekki
eitt á ferð heldur halda hópinn enda
væru alltaf einhverjir misyndismenn
inn á milli. Hann sagðist taka eftir
aukningu í alvarlegum ofbeldisverk-
um frá því um 1995 þegar sterk fíkni-
efni fóru að koma inn í auknum mæli.
6–15% ökumanna nota
ekki bílbelti
Sigurður Helgason hjá Umferðar-
stofu sagði í samtali við blaðið að bú-
ist væri við mikilli umferð nú um
helgina líkt og mörg önnur ár. Hann
vildi leggja áherslu á það að öku-
menn keyrðu á settlegum hraða,
færu gætilega í framúrakstur, not-
uðu öryggisbúnað og væru edrú. Sig-
urður sagði jafnframt að óvanir öku-
menn væru áhyggjuefni sem og að
fólk væri með fulla athygli við akst-
urinn, enda margt sem hægt er að
freistast til að gera meðan ekið er,
t.d að borða, stilla útvarpið, reykja
eða tala í síma.
Umferðarstofa gerði mælingar á
bílbeltanotkun í júní á helstu þjóð-
vegum landsins. Samkvæmt mæl-
ingum, sem fóru fram frá föstudegi
fram á sunnudag, notuðu á bilinu 6–
15% ökumanna ekki bílbelti en í ljós
kom að beltanotkun hefur aukist frá
því á sama tíma í fyrra. Beltanotkun
var verri nálægt þéttbýliskjörnum.
Umferðarstofa brýnir því fyrir öku-
mönnum að nota belti um helgina.
Önnur
stærsta ferða-
helgi ársins
HALLDÓR Blöndal, forseti Alþing-
is, átti fund á fimmtudag með starfs-
bræðrum sínum í Færeyjum og á
Grænlandi. Fundurinn fór fram í
Qaqortoq á S-Grænlandi með
Jonathan Motzfeldt, forseta græn-
lenska lögþingsins, og Edmund Jo-
ensen, forseta færeyska lögþingsins.
Halldór Blöndal segir við Morg-
unblaðið að fundurinn hafi bæði ver-
ið góður og gagnlegur. Starfsemi
þinganna var rædd sem og hin póli-
tíska staða í löndunum þremur.
Hann segir þingforsetana hafa verið
sammála um að nauðsynlegt sé að
styrkja vestnorrænt samstarf.
„Við ræddum um störf og mark-
mið Vestnorræna ráðsins en þau efni
verða nánar rædd á fundi þess í
Færeyjum eftir nokkrar vikur. Að
mínu mati er nauðsynlegt að skýra
stöðu ráðsins betur. Það er eini sam-
eiginlegi vettvangurinn sem þing-
menn þjóðanna hafa til að skiptast á
skoðunum og ræða þau mál sem efst
eru á baugi og þýðingarmest fyrir
þjóðirnar saman og hverja um sig.
Ég tel að við eigum að leggja áherslu
á að treysta þessa samvinnu. Það er í
raun nauðsynlegt að Vestnorræna
ráðið fái sterkari stöðu en það hefur
nú,“ segir Halldór og leggur til að
innan þinganna verði með óformleg-
um hætti myndaður hópur þing-
manna sem hefur sérstakan áhuga á
vestnorrænni samvinnu.
Þýðingarmikill fundur
Málefni Evrópusambandsins voru
einnig rædd á fundi þingforsetanna
þriggja. Halldór segir þá hafa verið
sammála um að á fundum Vestnor-
ræna ráðsins sé nauðsynlegt að gera
sér grein fyrir því hvaða reynslu
þjóðirnar hafi af Evrópusambandinu
og hvernig þær sjái stöðu þeirra
gagnvart því í framtíðinni.
„Fundur eins og þessi hefur mikla
þýðingu í framtíðinni. Margvísleg
málefni brenna á þjóðunum þremur.
Við ræddum meðal annars um heil-
brigðismál, ferðamál og sjávarút-
vegsmál og höfum ákveðið að hittast
í Færeyjum að ári. Ég hef áður verið
hér á þessum slóðum á Suður-Græn-
landi og þess vegna hefur þessi
mikla hlýja og gestrisni, sem ég
mæti hvarvetna, ekki komið mér á
óvart. Grænlendingar eru yndislegt
fólk og náttúran er einstök. Gaman
er að sjá uppbygginguna hér í Qaq-
ortoq og mér sýnist bjartsýni ríkja
meðal fólksins,“ segir Halldór.
Halldór Blöndal hitti þingforseta Færeyja og Grænlands
Þörf á að skýra stöðu
Vestnorræna ráðsins
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Sigurði
G. Guðjónssyni, forstjóra Norður-
ljósa samskiptafélags hf. Tilefnið
er frétt DV í gær undir fyrirsögn-
inni „Grunur um alvarleg bók-
haldsbrot og undanskot hjá Norð-
urljósum. Dæmi um tugi milljóna
króna hjá sumum starfsmönnum.“
„Norðurljós samskiptafélag hf.
er eignarhaldsfélag, eigandi Ís-
lenska útvarpsfélagsins hf, Sýnar
hf., og Skífunnar hf. Íslenska út-
varpsfélagið hf., Sýn hf., og Skífan
hf., hafa ekki fengið nein gögn eða
skýrslur frá skattrannsóknastjóra
ríkisins varðandi brot á skatta- eða
bókhaldslögum.
Norðurljós samskiptafélag hf.
hefur engan rekstur með höndum.
Skattrannsóknarstjóri ríkisins
hefur lokið rannsókn sinni á því
og sent félaginu rannsóknar-
skýrsluna til skoðunar og and-
svara. Andsvör Norðurljósa sam-
skiptafélags hf. verða afhent
skattrannsóknarstjóra á umsömd-
um tíma.
Í skýrslu skattrannsóknarstjóra
ríkisins um Norðurljós samskipta-
félag hf. er ekki að finna ásaknir
um undanskot, bókhalds- eða
skattalagabrot. Ágreiningur er
hins vegar milli skattayfirvalda og
félagsins um hvort sérstakar
greiðslur til stjórnarmanna og
stjórnenda félagsins eigi að með-
höndla sem launatekjur eða verk-
takagreiðslur. Engin leynd hefur
hvílt yfir þessum greiðslum og
reikningar gefnir út fyrir þeim af
þeim aðilum sem hlut eiga að máli.
Forsíðufyrirsögn DV um Norð-
urljós er því hreinn tilbúningur,
nema skattayfirvöld hafi látið
blaðamönnum DV í té einhver þau
gögn sem Norðurljósum sam-
skiptafélagi hf. og eða dótturfélög-
um þess hafa enn ekki borist.
Verður því ekki trúað, enda hefur
samstarf skattrannsóknarstjóra
og starfsmanna Norðurljósa sam-
skiptafélags hf. og dótturfélaga
við skattrannsóknina verið gott.“
Yfirlýsing frá Norðurljósum