Morgunblaðið - 05.07.2003, Side 49
Biðu meðan söngvarinn tók
háskólapróf í sagnfræði
Flugið er ekki eina prófið sem
Bruce hefur tekið um dagana. Hann
er líka með háskólapróf í sagnfræði.
„Það er orðið langt síðan ég tók það
próf,“ segir hann og lætur hugann
reika.
- Stóð aldrei til að taka upp þann
þráð?
„Það reyndi aldrei á það. Ég fór í
háskóla, eins og svo margir. Taldi
nauðsynlegt að næla mér í gráðu af
einhverju tagi. Ég hef alltaf haft
áhuga á mannkynssögu og því lá
sagnfræðin beint við. Þegar ég út-
skrifaðist var ég hins vegar kominn á
bólakaf í tónlistina. Ég gekk fljótlega
til liðs við Iron Maiden og í fimm ár
gerðum við ekkert annað en semja og
spila tónlist. Það var gríðarleg törn.
Eftir það var ekki aftur snúið.“
Skemmtilega sögu um próftökuna
er að finna í bók um Iron Maiden,
sem Mick nokkur Wall, hefur skráð
nokkuð lipurlega. Þegar Bruce var að
búa sig undir prófið fór þungarokk-
sveitin Samson að bera víurnar í
hann. Bráðvantaði nýjan söngvara og
hafði heyrt í Bruce. Samson þessi var
málsmetandi sveit á sínum tíma og
hafði gefið út plötu. Bruce leist ekk-
ert illa á þessi áform en bað menn að
bíða í nokkrar vikur meðan hann læsi
fyrir próf í sagnfræði. Munu þeir
Samsynir hafa hrist lubbann yfir
þessari undarlegu forgangsröðun. En
Bruce gekk til liðs við sveitina – að
prófi loknu. Dvöl hans var þó stutt í
herbúðum Samson því Iron Maiden
knúði fljótt dyra.
Textar Iron Maiden eru margir
hverjir með sagnfræðilegu ívafi, fjalla
meðal annars um Alexander mikla,
ofsóknir á hendur indíánum í Am-
eríku, loftvarnir Breta í seinna stríði,
flug Íkarusar, eins og áður er getið,
og þannig mætti lengi telja. Kveikjan
að einu lagi er meira að segja ljóð eft-
ir 18. aldar skáldið Samuel Taylor
Coleridge, Rime of the Ancient Mar-
iner. Bruce gerir þó ekki mikið úr
þessu. „Auðvitað skila áhugasvið
manna sér í textagerð. Það er óhjá-
kvæmilegt. Margt af þessu hafa aðrir
hljómsveitarmeðlimir hins vegar
samið.“
Þar á hann einkum við Steve Harr-
is, bassaleikara og stofnanda Iron
Maiden, sem er ekki síður sagnfróður
maður en Bruce.
Ævintýri Boatrace lávarðar
Bruce les ekki bara bækur, hann
skrifar þær líka. Hefur sent frá sér
tvær skáldsögur. Í þeirri fyrri hermir
hann af ævintýrum lávarðarins Iffy
Boatrace en seinni bókin ber þann
ágæta titil Trúboðsstellingin. „Þetta
var einhver sköpunarþörf sem ég
þurfti að fá útrás fyrir. Meira til gam-
ans gert. Ég hef lítið sinnt þessu hin
síðari ár.“
Rifja má upp sögu sem Bruce sagði
einhverju sinni. Hann var þá staddur
í flugvél og handan við ganginn var
maður að lesa bók og hló þessi lif-
andis ósköp. „Ég fór að velta því fyrir
mér hvað maðurinn var að lesa og sá
þá að hann var með bókina mína. Það
var skrýtin tilfinning – en þægileg.“
Af öðru sem Bruce hefur tekið sér
fyrir hendur um dagana má nefna
leikstjórn myndbanda og umsjón
sjónvarps- og útvarpsþátta. Þá á
hann þrjú börn með seinni eiginkonu
sinni. Í fyrrnefndri bók Walls er þess
sérstaklega getið að þau séu „fjörug“.
Kemur ekki á óvart.
Ísland er stórbrotinn staður
Bruce starfar við flug í sex mánuði
á ári. Hann flýgur jöfnum höndum til
Lundúna og Kaupmannahafnar á
vegum Iceland Express, yfirleitt
nokkra daga samfellt, og dvelst þá á
Íslandi milli ferða. Það er óhjá-
kvæmilegt að spyrja hann um landið.
„Iron Maiden hélt tónleika á Ís-
landi fyrir margt löngu og ég heill-
aðist strax af landinu. Ég átti svo tvo
frídaga þar í tengslum við flugið fyrir
um þremur mánuðum og keyrði þá
talsvert um landið. Ekki dró það úr
áhuganum. Við höfum verið að tala
um það okkar á milli nokkrir flug-
menn hjá Astraeus að það væri gam-
an að leigja litla vél og fljúga svolítið
um landið. Skoða fjöll og firði. Ísland
er stórbrotinn staður.“
Og hann langar að gera fleira á Ís-
ára skorar maður ekki lengur þá
bestu á hólm. Bestu skylmingamenn
heims eru yfirleitt undir þrítugu.“
Bruce virkar eigi að síður í góðu
formi, grannur og stæltur. Skýtur
það ekki skökku við, eftir rúma tvo
áratugi í eldlínu rokksins? Nú segja
menn að rokk og ról sé með af-
brigðum óhollur lífsstíll.
„Þvert á móti. Rokk er allra meina
bót. Það er flugið sem er hættulegt
heilsunni. Rokkið heldur mér hraust-
um!“
Það var og. Það er við hæfi að ljúka
spjallinu á þessum nótum. Enda kort-
erið mitt á enda – og vel það. Ég kveð
Bruce Dickinson með virktum. Þenn-
an viðræðugóða og fjölhæfa mann.
Og hann flýgur. Sína leið. Eins og
örninn.
orri@mbl.isBruce á leið til Donington sumarið 1988. „Þetta var frábær dagur.“
landi. „Iron Maiden var á sama hóteli
og Björk eftir tónleika í Barcelona
nýverið og við eyddum kvöldinu með
hljómsveitinni hennar. Þá kom í ljós
að einn af meðlimum hennar er fyrr-
verandi skylmingameistari Íslands.
Það er ljóst að ég verð að koma til Ís-
lands með gallann minn og hafa upp á
íslenska skylmingaliðinu.“
Allra meina bót
Skylmingar eru sum sé eitt af
helstu áhugamálum Bruce. Hann
skylmdist meira að segja á mótum á
sínum tíma með góðum árangri.
„Skylmingar áttu vel við mig og
mér vegnaði ágætlega,“ segir hann
eilítið feiminni röddu. Er greinilega
lítið fyrir að ræða um vegtyllur. „Ég
geri minna af þessu í seinni tíð. Það er
alltaf gaman að skylmast þegar tími
gefst til en þegar maður er orðinn 44
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2003 49
KÓPAL STEINTEX
Hörkutilboð
10 lítrar
aðeins 5.990 kr.
KÓPAL STEINTEX er frábær málning til notkunar á múr og
steinsteypta fleti þar sem krafist er mikils veðrunarþols.
KÓPAL STEINTEX er fáanleg í þúsundum lita.
Hentar einkar vel til endurmálunar
4 litir, hvítt, marmarahvítt, hrímhvítt og antikhvítt
Útimálning fyrir íslenskar aðstæður
Útsölustaðir Málningar:
Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfirði • Málningarbúðin Akranesi • Byko Akranesi •
Axel Þórarinsson, málarameistari, Borganesi • Verslunin Hamrar, Grundafirði • Litabúðin Ólafsvík • Núpur byggingavöruversl. Ísafirði •
Vilhelm Guðbjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sauðárkróki • Byko Akureyri • Versl. Valberg, Ólafsfirði • Versl.
Vík, Neskaupstað • Byko Reyðarfirði • Málningarþjónustan Selfossi • Miðstöðin Vestmannaeyjum • Byko Keflavík.
Við erum sérfræðingar í útimálningu
fyrir íslenskar aðstæður.