Morgunblaðið - 10.08.2003, Blaðsíða 30
MINNINGAR
30 SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LEGSTEINAR
Mikið úrval af legsteinum
og fylgihlutum
Sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, sími 587 1960
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít
Móðir mín, amma okkar og langamma,
ÓLAFÍA STEINUNN HERMANNSDÓTTIR,
lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut
miðvikudaginn 23. júlí sl.
Jarðarförin hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Guð blessi ykkur öll.
Lára Stefanía Ólafsdóttir,
Ólafía Guðrún Kristmundsdóttir,
Kristmundur Kristmundsson,
Ólafur Sörli Kristmundsson
og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir,
ÁLFHILDUR GUNNARSDÓTTIR,
Núpskötlu,
Melrakkasléttu,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga Húsavík að kvöldi 5. ágúst sl.
Útförin fer fram frá Snartarstaðakirkju fimmtudaginn 14. ágúst kl. 14.00.
Haraldur Sigurðsson, Hulda Berglind Valtýsdóttir,
Jón Sigurðsson, Hrafnhildur Einarsdóttir,
Vigdís Valgerður Sigurðardóttir, Eiríkur Kristjánsson,
Kristbjörg Sigurðardóttir, Óli Björn Einarsson,
Halldóra Gunnarsdóttir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma
ÞURÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR
andaðist á Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn
24. júlí sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að vilja hinnar
látnu.
Við þökkum öllum þeim, sem með margvís-
legum hætti hafa heiðrað minningu hennar og sýnt okkur samúð og hlý-
hug.
Sérstaklega þökkum við heimilisfólki og starfsfólki á Hrafnistu í Reykjavík
fyrir samfylgd, umönnun og hjúkrun.
Það var ósk hinnar látnu að minningargreinar um hana birtist ekki í
dagblöðum. Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent á
Styrktarfélag vangefinna.
Erna Andrésd. Hansen, Valdemar Hansen,
Sigrún Andrésdóttir, Sigurður Þórðarson,
Kristín G. Andrésdóttir, Gunnar Árnason,
Þorgeir J. Andrésson, Guðrún Erla Sigurðardóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNLAUGUR HANNESSON,
Krummahólum 10,
Reykjavík,
er látinn.
Jarðarförin auglýst síðar.
Þrúður Ólöf Gunnlaugsdóttir, Óskar Smith Grímsson,
Hanna Þrúður Þórðardóttir, Guðmundur Guðmundsson,
Gunnþór Tandri Guðmundsson.
Útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ANDREU HELGADÓTTUR
fyrrv. sjúkraliða
frá Haukadal í Dýrafirði,
Ásgarði 22,
Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópa-
vogi laugardaginn 26. júlí sl., verður gerð frá Bústaðakirkju mánudaginn
11. ágúst kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi eða heimahlynn-
ingu.
Bergljót Helga Jósepsdóttir, Guðmundur Jóhannesson,
Jóna Björg Jósepsdóttir, Úlfar Sigmarsson,
Jóhanna Andrea Guðbjartsdóttir, Reinhold Paul Fischer,
Guðbjartur Páll Guðbjartsson, Arnfríður Sigurðardóttir,
Baldur Bjarki Guðbjartsson, Margrét Lovísa Einarsdóttir,
Jón Örn Guðbjartsson, Rut Gunnarsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
Útfararstjóri
Sími 5679110, 8938638
Heimasíða okkar er
www.utfarir.is
Þar eru upplýsingar um
allt er lýtur að útför:
- Söngfólk og kórar
- Erfidrykkja
- Aðstoð við skrif
minningargreina
- Panta kross og frágang á leiði
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Það er góður og gegn íslenskur
siður að skrifa um þann sem far-
inn er. Þetta er hinsta kveðja þess
BJÖRG GUÐNÝ
KRISTJÁNSDÓTTIR
✝ Björg GuðnýKristjánsdóttir
fæddist á Þingeyri
15. september 1917.
Hún andaðist 15. maí
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru hjón-
in Jóhanna Benónýs-
dóttir og Kristján
Jónsson. Systkini
Bjargar, níu talsins,
voru Magnús, Rand-
ver, Hrefna, Sigurð-
ur, Anna, Ragna,
Jónas og Inga en
yngst var Jakobína.
Inga er ein systkin-
anna sem lifir Björgu, systur sína.
Með fyrri manni sínum, Snorra
Jónssyni, átti Björg börnin Jó-
hönnu og Erni Kristján en með
seinni manni sínum, Nóa Skjald-
berg, átti hún börnin Kolbrúnu og
Þór. Barnabörnin voru tíu og
barnabarnabörnin fjögur.
Björg var jarðsett í kyrrþey að
hennar ósk 28. maí síðastliðinn.
sem kveður. Ég
kynntist Björgu fyrir
tæpum 30 árum og sá
að þarna var glæsileg,
sterk, greind og
hreinskiptin kona.
Það fannst mér strax
gott. Það myndaðist
hægt góð vinátta á
milli okkar sem aldrei
bar skugga á.
Einhver samhljóm-
ur var þar á ferð.
Margar minningar
koma upp í hugann
þegar litið er til baka.
Ég minnist sérstak-
lega sameiginlegra kvöldverða
þegar við sátum ásamt börnunum
mínum drykklanga stund eftir
matinn til að spjalla. Björg hafði
gaman af að segja frá og hún hafði
góða frásagnargáfu. Börnum
finnst alltaf gaman að heyra um þá
daga þegar amma var ung og líka
hvernig mamma og pabbi voru
þegar þau voru yngri, umfram allt
verður sú sem segir frá að hafa
góða kímnigáfu sem Björg hafði í
ríkum mæli. Við hreyfðum okkur
ekki frá borðstofuborðinu til þess
eins að flytja okkur inn í betri
stofu því þá er stemmningin farin.
Þetta eins og annað í lífinu er svo
viðkvæmt.
Björg kom eitt sumar með mér
langa ferð austur undir Eyjafjöll
að keyra börnin mín í sveit. Dag-
urinn var fallegur, við með nesti
og krakkarnir héngu á framsæt-
unum til að missa ekki af neinu
sem amma Björg hafði að segja,
þá var ekkert verið að hugsa um
bílbeltin. Björg var vinmörg og fé-
lagslynd og allir elskuðu hana.
Hún hafði það lífsviðhorf að taka
öllu sem að höndum ber með
æðruleysi og standa sig. Þannig
var hún börnum og barnabörnum
góð fyrirmynd. Þetta er í mínum
huga að vera manneskja. Síðustu
árin þegar heilsunni var að hnigna
og ég spurði barnalega hvernig
hún hefði það sagði hún ævinlega:
„Ég er bara löt.“ Þannig man ég
að faðir minn komst að orði þegar
ég spurði hins sama. Þessi kynslóð
vildi enga vorkunnsemi en dreifa
heldur umræðunni á eitthvað ann-
að.
Þeim sem farinn er að heilsu er
dauðinn kærkominn. Ég læt fylgja
með brot úr ljóðinu Fljótið eftir
Þorvald sonarson Bjargar en það
er að finna í ljóðabókinni „Við
enda sléttunnar“.
Lífið er hverfult
sem skugginn,
sem ég aldrei upplifði.
Vaggandi öldur
bæra þér áfram,
áfram frá landi,
en sál þín varð eftir,
hjá mér.
Þetta var í fyrsta skipti,
sem ég kynntist dauðanum.
Hann kom
eins og stormsveipur,
en endaði
í beiskum tárum manns.
Nýlega var ég á ferð á bernsku-
og æskuslóðum Bjargar á Þingeyri
og Gerðhömrum við Dýrafjörð og
á Ísafirði. Gaman hefði verið að
hafa Björgu með í för, kannski var
hún það? Enginn getur svarað
þeirri spurningu. Hvíl í friði.
Geirlaug Þorvaldsdóttir.
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu-
síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda
þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn
einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að
það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.