Morgunblaðið - 17.10.2003, Side 26
DAGLEGT LÍF
26 FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
föstudag
og laugardag
Opið til kl. 16 laugardag
Tilboð í 2 daga
Okkar árlega
hausttilboð
Stærsta töskuverslun landsins
Skólavörðustíg 7, Rvík, sími 551 5814
20%
afsláttur
SAGA íslenskrar húsgagna-hönnunar er ekki sérlegalöng og þorri þeirra hús-
gagna sem prýða híbýli landsmanna
er erlendur að uppruna. Íslenskir
hönnuðir sækja þó sífellt í sig veðrið
og er það ekki hvað síst í stólahönn-
un sem þeir hafa látið að sér kveða
og er skemmst að minnast vel-
gengni Sóleyjar Valdimars Harð-
arsonar og Delta Óla Jóhanns Ás-
mundarsonar. Það er því vel við
hæfi að einn af stólum Sveins Kjar-
vals, Litli borðstofustóllinn, skuli nú
hafa verið vakinn til lífsins á nýjan
leik eftir langt hlé og það fyrir til-
stilli dansks húsgagnaframleiðanda.
En hulunni var svipt af fyrsta ein-
taki nýrrar framleiðslu stólsins í
versluninni Epal síðla dags í gær.
Forsagan að framleiðslu danska
húsgagnaframleiðandans Hansen og
Sørensen á Litla borðstofustólnum
hófst í febrúar sl. er Eyjólfur Páls-
son, eigandi Epal, lánaði Ivan Han-
sen, forstjóra fyrirtækisins, sum-
arhús sitt á Eyrarbakka. Einn
daginn var Hansen að blaða í gegn-
um blaðakörfu í sumarhúsinu og rak
þá augun í teikningar Sveins af
stólnum, sem þar höfðu verið lagðar
til hinstu hvílu. Stóllinn greip hug
hans og hann hringdi í Eyjólf og
vildi fá að vita hver hönnuðurinn
væri. „Stóllinn er verulega góður og
ég sagði Eyjólfi að þennan stól yrð-
um við að fá að framleiða,“ segir
Hansen og setti sig í framhaldi sam-
band við Guðrúnu, ekkju Sveins,
sem svo skemmtilega vill til að býr í
Silkiborg, þar sem höfuðstöðvar fyr-
irtækisins eru. „Hún bauð mér í
kaffi, við ræddum málin og hún
samþykkti að við hefðum fram-
leiðslu á stólnum á ný. Síðan kom öll
fjölskylda Sveins og skoðaði frum-
eintak okkar áður en framleiðsla
hófst til að tryggja að öllu væri rétt
fylgt eftir.“
Hansen segir stólinn enda ná-
kvæma eftirgerð af Litla borðstofu-
stólnum, utan þess að hann hafi ver-
ið hækkaður um einn sentimetra til
að aðlaga hann aukinni hæð manna í
dag. „Aðrar breytingar hafa ekki
verið gerðar og hér má meira að
segja fá hann með kálfskinnssetu,
líkt og í upphaflegri hönnun Sveins,
þó að nú sé hann einnig fáanlegur
með leðursetu.“
Hansen og Sørensen eiga nú þeg-
ar í samstarfi við Epal um fram-
leiðslu á hönnun Erlu Sólveigar
Óskarsdóttur og til stendur að fram-
leiða borð Ólafar Jakobínu Ernu-
dóttur og segir Hansen íslensku
hönnunina vekja athygli á
vörum fyrirtækisins. Hann á
von á að stóll Sveins geri hið
sama, en nú þegar er sending
af stólnum á leið til Japan þar
sem Hansen býst við að hann
muni njóta enn meiri vin-
sælda en í Danmörku.
„Margt í hönnun Sveins
minnir á danska hönnun og
það má sjá að hann lærði í
Danmörku. Hönnun hans er
bæði einföld og klassísk og
líkt og við eigum fjöldan
allan af klassískum dönsk-
um hönnuðum, myndi ég segja að
Sveinn væri klassískur íslenskur
hönnuður,“ segir Hansen.
Fulltrúi danskra
hugmynda og hugvits
Sveinn Kjarval var brautryðjandi
í húsgagna- og innréttingahönnun á
Íslandi á fimmta og sjötta áratug
síðustu aldar. Litla borðstofustólinn
hannaði hann upphaflega fyrir kaffi-
húsið Tröð sem var opnað árið 1963 í
Austurstræti 18. Stóllinn var síðan
endurgerður í einfaldari útgáfu
fyrir heimavist Menntaskólans á
Akureyri 1965 og svo endur-
framleiddur í Danmörku fyrir
Hótel Valhöll árið 1979.
Sveinn hafði mikil áhrif á híbýla-
menningu og húsgagnasmíði síns
tíma. Sjálfur var hann fæddur í
Danmörku og bjó ýmist á Íslandi
eða þar í landi, þar sem hann lagði
stund á nám í húsgagnahönnun og
-smíði. Hönnun Sveins var í anda
módernismans, eða nytjastefn-
unnar, og má segja að hann hafi ver-
ið eins konar fulltrúi hugmynda
danskrar hönnunar og hugvits á Ís-
landi er kom að framleiðslu fram-
sækinna húsgagna og annars hús-
búnaðar.
Sveinn rak um skeið teikni- og
vinnustofu hér á landi og hófu marg-
ir húsgagna- og innréttingahönnuðir
landsins vinnuferil sinn á teiknistofu
hans, en meðal þeirra fyrirtækja og
stofnana sem hann hannaði fyrir má
nefna Þjóðminjasafn Íslands, veit-
ingahúsið Naustið, Alþingi og
Menntaskólann í Reykjavík.
Litli borðstofustóllinn
eftir Svein Kjarval hef-
ur nú gengið í endurnýj-
un lífdaga, einum fjöru-
tíu árum eftir að hann
var fyrst framleiddur.
Morgunblaðið/Ásdís
HÖNNUN | Klassískir íslenskir stólar í framleiðslu á ný eftir langt hlé
Stólarnir fara
víða, meðal
annars til Japans
Hönnuðurinn: Sveinn
Kjarval, sem hér sést
með annarri stólahönnun
sinni, hafði mikil áhrif á
íslenska húsgagnasmíð.
Litli borðstofustóllinn:
Hann er íslensk klassík
að mati Ivans Hansen.
Stólað á gamla hönnun
KAFFIDRYKKJA hefur hingað til
verið talin til lasta og jákvæð áhrif
kaffis á heilsu manna sögð lítil, þótt
örvandi eiginleikar drykkjarins
hafi óneitanlega jákvæð áhrif á
þær svefnpurkur sem eiga erfitt
með að vakna á morgnana.
Brasilískir vísindamenn við
Bandarísku frjósemismiðstöðina í
San Antonio í Texas telja sig nú
hins vegar hafa uppgötvað að kaffi-
drykkja hafi jafn örvandi áhrif á
sæðisfrumur og svefnpurkur, að
því er greint var frá á netmiðli BBC
á dögunum. Þannig veki kaffið ekki
síður sæðisfrumurnar en karlana
sjálfa og örvi hreyfigetu frumn-
anna sem fyrir vikið eigi aukna
möguleika á að ná að frjóvga egg.
Koffín virðist hins vegar vera
eini vímugjafinn sem hefur jákvæð
áhrif á frjósemi manna, því rann-
sóknir á neyslu tóbaks, áfengis og
kannabisefna benda til öllu nei-
kvæðari niðurstöðu.
Morgunblaðið/Arnaldur
Frjósemislyf: Kaffi er talið hafa
örvandi áhrif á sæðisfrumur.
Kaffi eykur
frjósemi karla
TÖLVUMÚSIN getur haft skaðleg
áhrif á líkamann samkvæmt nið-
urstöðum nýlegs dómsmáls í Dan-
mörku. Þar voru starfsmanni
LEGO dæmdar skaðabætur vegna
álagsmeiðsla af tölvumúsarnotkun.
Það hefur verið metið svo að þegar
músarnotkunin fer yfir 25 tíma á
viku, auki það hættu á óþægindum
sem kalla má músarmeiðsl.
Á vefsíðu Politiken er greint frá
því að Anne Marie Lenger Ploug
haldi sjaldan á börnunum sínum af
því hún finni svo til. Samkvæmt
könnunum stéttarfélaga í Dan-
mörku þjáist yfir helmingur allra
þeirra sem vinna með tölvumýs af
verkjum í höndum, öxlum og
hnakka. Anne Marie sem er 38 ára
er nú hætt að vinna hjá LEGO og
fékk sem samsvarar þremur millj-
ónum íslenskra króna í bætur. Árið
1997 var fyrirtækinu bent á að
stytta þann tíma sem Anne Marie
ynni með tölvumús en stjórnendur
fyrirtækisins hirtu ekki um ábend-
ingarnar. Þeir íhuga nú áfrýjun.
HEILSA
Heilsuspillandi: Mikil músarnotkun
getur valdið óþægindum.
Músarmeiðsl