Morgunblaðið - 30.10.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 294. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Einfaldir
kjötréttir
Sigurður á Vox töfrar fram
þrjá rétti Daglegt líf 23
Vill rjúfa gat
á múrinn
Bók um lífskjör kínverskra
kvenna Miðopna
Halda merki
Íslands á lofti
Keflvíkingar í evrópsku
bikarkeppnina Íþróttir 44
HÆTTA er á að upplausn og ömurleiki
verði aftur ofan á í Afganistan verði ekki
komið böndum á ópíumframleiðsluna í land-
inu. Hún er nú sú mesta í heimi og eitur-
lyfjahringir og hryðjuverkamenn ráða víða
lögum og lofum í landinu.
Á valdatíma talibana var ópíumfram-
leiðslan upprætt að mestu en eftir fall
þeirra hefur hún aukist svo mjög, að hún er
nú 77% af heimsframleiðslunni. Kemur
þetta fram í skýrslu frá Sameinuðu þjóð-
unum en hún var birt í Moskvu í gær.
„Afganar eru á krossgötum. Annaðhvort
verður gripið til róttækra aðgerða nú þegar
eða „eiturlyfjakrabbameinið“ mun breiðast
út og birtast í spillingu, ofbeldi og hryðju-
verkum,“ segir í skýrslunni.
Ópíumógn
í Afganistan
Moskvu. AFP.
ÁÆTLAÐ er, að um 13.000 Írakar, þar af
um 4.300 óbreyttir borgarar, hafi fallið í
innrásinni í Írak í vor. Er mannfallið meðal
óbreyttra borgara meira
en í Íraksstríðinu 1991
þrátt fyrir enn nákvæm-
ari vopn og sprengjur en
þá voru notuð.
Mannfallið er metið út
frá ýmsum bandarískum
upplýsingum um átökin,
fréttum fjölmiðla af þeim
og upplýsingum frá
íröskum sjúkrahúsum.
Var miðað við tímabilið frá 19. mars til loka
apríl og matið unnið af PDA (Project of De-
fense Alternatives), bandarískri hugveitu.
Kom þetta fram á fréttavef BBC, breska
ríkisútvarpsins, í gær. Áætlað er, að í Íraks-
stríðinu 1991 hafi 3.500 óbreyttir borgarar
fallið og 20.000 til 26.000 hermenn.
Um 13.000
Írakar féllu
BÖRNIN á leikskólanum Holtakoti á Ak-
ureyri voru hin ánægðustu með að snjór-
inn væri kominn á ný og voru mætt með
snjóþotur á leikskólalóðina og léku þar við
hvern sinn fingur.
Morgunblaðið/Kristján
Snjórinn kominn
AFKOMA deCODE genetics móðurfélags Ís-
lenskrar erfðagreiningar batnaði um 84,1 millj-
ón Bandaríkjadala á þriðja ársfjórðungi miðað
við sama tímabil í fyrra. Er þetta viðsnúningur
upp á 6,4 milljarða íslenskra króna. Þetta kem-
ur fram í frétt frá félaginu vegna afkomunnar á
þriðja ársfjórðungi í ár sem birt var í gær-
kvöldi.
Tekjur voru tæpur einn milljarður króna eða
12,8 milljónir Bandaríkjadala á þriðja ársfjórð-
ungi í ár og jukust um 42% frá sama tímabili í
fyrra. Tekjurnar á fyrstu níu mánuðum ársins
hafa að sama skapi aukist um 48%, úr 1,8 millj-
örðum kr. eða 23,7 milljónum Bandaríkjadala í
fyrra í 35,1 milljón Bandaríkjadala eða 2,7
milljarða kr. í ár.
Tap félagsins minnkar verulega frá sama
tíma í fyrra. Það nam 1,3 milljónum Banda-
ríkjadala á þriðja ársfjórðungi í ár, en 85,4
milljónum Bandaríkjadala á sama tímabili í
fyrra og eru þá meðtalin óregluleg gjöld eins og
fyrra að meðtöldum ofangreindum 64,8 millj-
ónum dala. Bætt afkoma í ár er rakin til auk-
inna tekna og aukinnar framleiðni á síðari hluta
síðasta árs.
Fram kemur að rannsókna- og þróunar-
kostnaður félagsins nam 14,5 milljónum Banda-
ríkjadala á þriðja ársfjórðungi í ár samanborið
við 23,9 milljónir dala á sama tíma í fyrra.
Fyrstu níu mánuðina nam þessi kostnaður
tæpri 51 milljón dala en var tæpar 67 milljónir
dala á sama tímabili á síðasta ári. Minni kostn-
aður að þessu leyti er rakinn til fjárfestinga í
aukinni sjálfvirkni við genarannsóknir.
Í frétt félagsins vegna afkomunnar þakkar
Kári Stefánsson, forstjóri fyrirtækisins, þenn-
an rekstrarárangur aukinni áherslu á rann-
sóknavinnu og nýtingu hennar beint til
vöruþróunar. Með því að einbeita sér að því að
auka tekjur félagsins og minnka kostnað hafi
félagið náð jákvæðu greiðsluflæði á fjórðungn-
um af núverandi starfsemi þess.
kostnaður vegna nið-
urfærslu á viðskipta-
vild, starfsloka og
fleira, samanlagt að
upphæð 64,8 milljón-
ir dala. Ef horft er
fram hjá þeim kostn-
aðarliðum nam tapið
á þriðja ársfjórðungi
í fyrra 20,6 milljón-
um Bandaríkjadala,
en það jafngildir því
að tap félagsins hafi
verið 94% minna í ár
en það var á sama
ársfjórðungi í fyrra,
að því er fram kemur
í tilkynningu félagsins.
Tap félagsins fyrstu níu mánuði ársins er
24,6 milljónir Bandaríkjadala í ár, en var 121
milljón Bandaríkjadala fyrstu níu mánuðina í
Afkoma deCODE genetics batnar á þriðja ársfjórðungi í ár
Viðsnúningur upp á 6,4 millj-
arða frá sama tíma í fyrra
MEIRIHLUTI þingmanna breska
Íhaldsflokksins lýsti í gær yfir van-
trausti á leiðtoga flokksins, Iain
Duncan Smith. Samkvæmt lögum
flokksins kemur það nú til kasta
þingmanna og að síðustu almennra
flokksmanna að velja eftirmann
hans en allt bendir til að staða Mich-
ael Howards sem eftirmanns Dunc-
ans Smiths sé mjög sterk enda ljóst,
að mörgum hrýs hugur við þeim
átökum, sem leiðtogakjöri fylgja.
„Þingflokkurinn hefur kveðið
upp sinn dóm og ég mun segja af
mér sem leiðtogi þegar eftirmaður
minn hefur verið kjörinn,“ sagði
Duncan Smith þegar úrslitin lágu
fyrir.
Allir 165 þingmenn Íhaldsflokks-
ins greiddu atkvæði og var niður-
staðan sú, að 75 studdu Duncan
Smith en 90 höfnuðu honum. Þann-
ig lauk margra vikna óvissu og
átökum um framtíð hans í embætti
en margir kenna honum um, að
Íhaldsflokkurinn skuli ekki hafa
hagnast á erfiðleikum Tony Blairs
forsætisráðherra og minni vinsæld-
um hans meðal kjósenda.
Duncan Smith kvaðst mundu
styðja eftirmann sinn heilshugar en
harmaði, að hann yrði ekki „fyrsti
Smith virðingu sína en sumir aðrir
lýstu yfir létti.
„Dapurlegt en
óhjákvæmilegt“
„Þetta var dapurlegt en óhjá-
kvæmilegt. Við þurfum leiðtoga,
sem getur sigrað,“ sagði Derek
Conway, þingmaður Íhaldsflokks-
ins og einn þeirra, sem beittu sér
mest gegn Duncan Smith. Stewart
Wheeler, sem stutt hefur Íhalds-
flokkinn manna mest með fjárfram-
lögum, tók í sama streng en á óvart
kom, að David Davis, sem var talinn
mundu sækjast eftir leiðtogaemb-
ættinu, sagðist ekki ætla að bjóða
sig fram og lýsti yfir stuðningi við
Michael Howard. Það gerðu einnig
Liam Fox, talsmaður flokksins í
heilbrigðismálum, Oliver Letwin,
talsmaður hans í innanríkismálum,
og Stephen Dorrell, fyrrverandi
ráðherra.
Samkomulag um Howard?
Ýtti sú yfirlýsing undir vanga-
veltur um einhvers konar sam-
komulag á bak við tjöldin um að
Howard, sem er talsmaður flokks-
ins í efnahagsmálum, taki við sem
leiðtogi án slítandi átaka innan
hans.
Talsmaður Tony Blairs vildi ekk-
ert um málin segja. Sagði hann, að
þetta væri innanflokksmál í Íhalds-
flokknum.
Komi til leiðtogakjörs í Íhalds-
flokknum verða frambjóðendur að
skrá sig fyrir hádegi 6. nóvember
næstkomandi. Ef frambjóðandi er
einn, verður hann sjálfkjörinn, en ef
þeir eru fleiri, munu þingmenn
kjósa um þá á þriðjudögum og
fimmtudögum. Sá, sem fær fæst at-
kvæði, dettur út og þannig koll af
kolli þar til tveir eru eftir. Um þá
munu síðan almennir flokksmenn
kjósa.
forsætisráðherra Íhaldsflokksins á
þessari öld“. Sagðist hann ekki ætla
að lýsa yfir stuðningi við neinn einn
í væntanlegu leiðtogakjöri en sjálf-
ur getur Duncan Smith ekki tekið
þátt í því sem frambjóðandi.
Stuðningsmenn Duncan Smiths
leyndu ekki óánægju sinni með nið-
urstöðuna en þeir skoruðu á flokks-
menn að horfa til framtíðar og snúa
bökum saman. Vottuðu helstu
frammámenn í flokknum Duncan
Iain Duncan Smith felldur sem leiðtogi breska Íhaldsflokksins
„Við þurfum leiðtoga
sem getur sigrað“
David Davis lýsir
yfir stuðningi við
Michael Howard
London. AP, AFP.
Reuters
IAIN Duncan Smith ræðir við fréttamenn að atkvæðagreiðslunni lok-
inni. Kvaðst hann mundu segja af sér strax og eftirmaður sinn hefði
verið kjörinn. Væntanlegir frambjóðendur í leiðtogakjörinu verða að
vera búnir að skrá sig á hádegi 6. nóvember næstkomandi.
Fallinn foringi
Leiðtogaraunir/Miðopna
♦ ♦ ♦