Morgunblaðið - 30.10.2003, Blaðsíða 18
AKUREYRI
18 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þegar þú ferðast
ferðastu þá með AVIS
Verð pr. dag kr. 2.700
M.v. lágmarksleigu 7 daga Opel Corsa eða sambærilegur
Við gerum betur
AVIS Sími 591 4000
www.avis.is
Frankfurt
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
VOGIR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum eitt mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
Fangelsi vegna þjófnaðar | Rúmlega tví-
tugur karlmaður hefur verið dæmdur í 6
mánaða fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands
eystra, en hann var ákærður fyrir þjófnað.
Hann braust inn í sundlaugina á Dalvík og
stal þaðan 92 þúsund krónum úr afgreiðslu-
kassa og peningakassa sem þar var.
Játaði hann sakargiftir og var peningun-
um skilað. Maðurinn hefur áður komist í kast
við lögin, m.a. hlotið refsidóma vegna hegn-
ingarlagabrota og var hann á skilorði er um-
rætt brot var framið. Refsing hans þótti með
hliðsjón af sakarferli hans hæfilega ákveðin
6 mánaða fangelsi, en með hliðsjón af ungum
aldri og skýlausri játningu þótti dómara fært
að fresta fullnustu 4 mánaða af refsingunni
og hún látin niður falla haldi maðurinn al-
mennt skilorð í þrjú ár.
STJÓRN Skógræktarfélags Eyfirðinga hefur
ákveðið að ráðast í viðamiklar skipulagsbreyt-
ingar á félaginu en til stendur að kanna til hlítar
kosti þess að stofna hlutafélag um rekstur
Gróðrarstöðvarinnar í Kjarna og ef til vill fleiri
þátta í starfseminni. Fyrirhugaðar breytingar á
skipulagi leiða til þess eru að nú um mánaðamót-
in verður öllum fastráðnum starfsmönnum fé-
lagsins, sjö manns, sagt upp störfum, en þeim
verður öllum boðin endurráðning að breyting-
um loknum, að sögn Vignis Sveinssonar for-
manns Skógræktarfélags Eyfirðinga.
Vignir sagði að nokkur undanfarin misseri
hefði umræða átt sér stað innan félagsins um
breytingar á félagsforminu. Endurskoðunar- og
ráðgjafarfyrirtækið KPMG gerði úttekt á
rekstri og starfsemi félagsins nýlega og ákvað
stjórn SE í ljósi niðurstöðu hennar að ráðast í
breytingarnar.
Félagið hefur á síðustu árum fjárfest mikið í
gróðurhúsum og búnaði og hefur framleiðsla
þess vaxið hröðum skrefum. Framleiðsluáætl-
anir hafa þó ekki að fullu gengið eftir nú í ár,
m.a. vegna áfalla sem urðu af völdum hrets sem
yfir landið gekk síðasta vor. Reksturinn hefur
því gengið verr en vonir stóðu til. „Það fór tölu-
verður hluti framleiðslunnar forgörðum vegna
þessa og það hefur vissulega áhrif á afkomuna,“
sagði
Vignir. Af þessum sökum m.a. sagði hann
nauðsynlegt að fá nýtt fjármagn inn í reksturinn
í formi hlutafjár og verður áhugi meðal fjárfesta
kannaður á næstunni. Eins sagði hann að starf-
seminni fylgdi mikil fjárbinding, m.a. í húsum og
birgðum. „Þess vegna munum við reyna að fá
inn nýja hluthafa og líka til að opna félagið fyrir
þeim sem áhuga hafa,“ sagði Vignir. „Við erum
albúin til nýrra átaka hjá félaginu.“
Skógræktarfélag Eyfirðinga er áhugamanna-
félag, stofnað árið 1947. Höfuðstöðvar þess eru í
Kjarnaskógi, en allt frá upphafi hefur félagið
framleitt og selt garð- og skógarplöntur til al-
mennings, stofnana og félagasamtaka, auk þess
að hafa umsjón með allmörgum skógarreitum á
Eyjafjarðarsvæðinu. „Starfsemi félagins hefur
breyst mjög ört á liðnum misserum, það hefur
verið að færast meira út í að vera atvinnurekst-
ur frekar en hefðbundið félagsstarf áhuga-
mannafélags. Með tilliti til þeirra krafna sem
uppi eru í viðskiptalífinu var ákveðið að skoða
þessar fyrirhuguðu breytingar fyrir alvöru. Við
erum að undirbúa þær núna og munum þá í
framtíðinni haga okkar starfsemi með tilliti til
stærðar félagsins og umfangs starfsemi þess,“
sagði Vignir. Skógræktarfélagið verður þó
áfram starfrækt sem áhugamannafélag með
þeirri starfsemi sem þar á heima.
Viðamiklar skipulagsbreytingar fyrirhugaðar á Skógræktarfélagi Eyfirðinga
Verður breytt í hlutafélag
ALHVÍT jörð var á Akureyri á fimmta degi vetrar,
í gær, og bæjarbúum að verða nokkuð ljóst að vet-
ur er genginn í garð. Mörgum þykir raunar ekki
sem verst að fá snjóinn, nú þegar dagarnir styttast
og skammdegismyrkrið tekur völdin. Hann Elvar
Örn Rafnsson var þó ekki að velta þessum hlutum
fyrir sér í morgunsárið þegar hann hreinsaði snjó-
inn af hjólinu sínu áður en haldið var í skólann.
Morgunblaðið/Kristján
Enn skal hjólað
INFLÚENSA af A-stofni
greindist á Akureyri nokkr-
um dögum áður en byrjað var
að bólusetja og er hún óvenju
snemma á ferðinni. Að öllu
jöfnu kemur hún ekki til
landsins fyrr en í desember.
Bólusetning hófst á heilsu-
gæslustöðinni fyrir rúmlega
viku og gekk mikið á fyrstu
dagana. Fyrstu þrjá dagana
var helmingur allra sem í
venjulegu árferði fá bólu-
setningu sprautaður en alls
hafa um 2.500 manns verið
bólusettir á svæðinu. Virðist
sem flensan fari sér hægt af
stað á Akureyri enn sem
komið er. Ekki er ólíklegt að
annar faraldur komi seinna í
vetur.
Ýmsar kvefpestir aðrar en
inflúensa ganga þessa dagana
eins og venjan er á haustin.
Helsti munurinn á kvefpest
og inflúensu er sá að inflú-
ensueinkennin koma hratt
fram, hitinn er hár og stend-
ur yfir í nokkra daga, bein-
verkir og höfuðverkir eru
meiri en með kvefi en ein-
kenni frá nefi eru oft lítil.
Fólk verður almennt mun
veikara af inflúensu en kvef-
pestum og veikindin taka
lengri tíma. Heilu fjöl-
skyldurnar eða bekkjar-
deildirnar leggjast í einu,
segir á heimasíðu Akureyr-
arbæjar.
Bóluefni að ganga til
þurrðar og því betra að
hafa hraðan á
Helstu ráð við inflúensu
eru að fara vel með sig,
drekka vel af vatni og taka
parasetamol við beinverkjum
og höfuðverk ef með þarf.
Ástæða er til að benda
þeim, sem eiga eftir að láta
bólusetja sig við inflúensu, að
gera það strax, því bóluefni
er að ganga til þurrðar. Bólu-
sett verður til mánaðamóta á
HAK á 5. hæð í hádeginu,
segir ennfremur á heimasíð-
unni.
Flensan
fer hægt
af stað
Heilbrigð sjálfsmynd | Samtök floga-
veikra á Akureyri boða til fræðslufundar
annað kvöld, fimmtudag, 30. október kl. 20 á
Hótel KEA. Fyrirlesari er Valgerður H.
Bjarnadóttir félagsráðgjafi og erindið sitt
kallar hún: Að byggja upp heilbrigða sjálfs-
mynd við brothættar aðstæður. „Sjálfsmynd
okkar og þar með sjálfsstyrkur ræðst af
innri og ytri aðstæðum. Við áföll og langvar-
andi erfiðleika reynir á þennan innri styrk og
sjálfsmyndin getur brotnað. Þá er mikilvægt
að kunna leiðir til að ná í stuðning og styrk
innan frá og utan, til að byggja upp og við-
halda heilbrigðri sjálfsmynd,“ segir í frétt
um fundinn.
Létt fyrir norðan | Útvarpsstöðin Létt
96,7 hefur stækkað hlustendasvæði sitt og er
nú komin í loftið á Akureyri á tíðninni 93,3.
Úrvarpsstöðin er fimm ára um þessar mund-
ir og „hefur létt fólki vinnuna og einnig
kryddað rómantískar stundir hjá hlustend-
um,“ segir í frétt um stækkun hlustenda-
svæðisins. Leikin er jafnt innlend sem er-
lend tónlist á útvarpsstöðinni, gamlir góðir
smellir í bland við ný lög sem bruna upp vin-
sældalista víða um heim.
Aflaverðmætið um 52 milljónir | Um
258 tonnum af frystum afurðum, mest þorski
og grálúðu var landað úr Sléttbaki EA. Upp
úr sjó er aflinn 376 tonn og aflaverðmæti um
52 milljónir króna.
Þá var landað um
90 tonnum úr Ár-
bak. Kaldbakur er
nýlega kominn úr
flotkví Slippstöðv-
arinnar þar sem
hann var í reglubundinni slipptöku að því er
fram kemur hjá Þorleifi Ananíassyni hjá út-
gerðardeild ÚA. Kaldbakur og Harðbakur
munu á næstu vikum afla hráefnis fyrir land-
vinnslu ÚA, en Árbakur er á leið til Póllands
í töluverða klössun.
FYRIRTÆKI TIL SÖLU
www.fyrirtaekjasala.is
FYRIRTÆKJASALA
ÍSLANDS
Síðumúla 15 • Sími 588 5160
Gunnar Jón Yngvason
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali