Morgunblaðið - 30.10.2003, Qupperneq 36
MINNINGAR
36 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Elskulegur faðir minn, sonur, bróðir okkar og
mágur,
GUNNAR HJÖRTUR BJÖRGVINSSON
frá Patreksfirði,
lést á hjúkrunarheimili Farsunds í Noregi
þriðjudaginn 28. október.
Guðrún Rósa Gunnarsdóttir,
Rósa Hjartardóttir,
Elfar Högnason, Sigurlaug Valdís Jóhannsdóttir,
Helena Högnadóttir, Ólafur Árni Torfason,
Hugrún Högnadóttir, Víkingur Andrew Erlendsson.
Móðir okkar,
CARLA INGEBORG HALLDÓRSSON,
síðast til heimilis í Seljahlíð,
Hjallaseli 55,
Reykjavík,
lést laugardaginn 18. október.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Halldór Sigmundsson,
Anna Sigmundsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
móðursystir,
ESTHER JÓNSDÓTTIR,
lést í Ogden, Utah, í Bandaríkjunum, mánudag-
inn 27. október. Bálför fer fram í dag í Utah.
Jarðsetning á Íslandi auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jón Raymond Miller, Ragnhildur Rúriksdóttir,
Rangkene Miller, RexAnne Bock Miller,
Sigurlaug Halldórsdóttir
og barnabörn.
Okkar yndislegi og ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og tengdasonur,
STEINÞÓR EYÞÓRSSON
veggfóðrari og
dúklagningameistari,
Víðilundi 7,
Garðabæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut mánu-
daginn 27. október.
Útför verður tilkynnt síðar.
Eiríka Haraldsdóttir,
Eiríkur L. Steinþórsson, Fjóla Þorsteinsdóttir,
Þórarinn L. Steinþórsson, Rut Erla Magnúsdóttir,
Margrét L. Steinþórsdóttir, Mogens Gunnar Mogensen,
Steinþór Örn Helgason,
Helena Sif Mogensen,
Fjóla Eiríksdóttir
og aðrir aðstandendur.
Ástkær faðir okkar og vinur,
HAUKUR INGASON,
Hlíðarvegi 5,
Ytri-Njarðvík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn
28. október.
Martha Hauksdóttir, Aðalsteinn Hauksson,
Haukur Ingi Hauksson, Hrafn Hauksson,
Hildur Hauksdóttir, Þórður Helgi Þórðarson,
Guðrún Guðmundsdóttir.
✝ Sigurður Krist-inn Guðmunds-
son fæddist í Reykja-
vík 22. apríl 1938.
Hann lést á líknar-
deild LSH í Kópa-
vogi 23. október síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru hjónin
Finnborg Finnboga-
dóttir húsmóðir, ætt-
uð frá Siglufirði, f.
29.4. 1904. d. 28.7.
1962, og Guðmundur
Pálsson, verslunar-
maður og sjómaður
af Álftanesi, f. 28.9.
1900, d. 10.7. 1980. Systkini Sig-
urðar eru Jóhann, f. 1923, búsett-
ur í Reykjavík, Ólöf Erla, f. 1926,
d. 1998, Engilráð Ólína, f. 1929,
búsett í Bandaríkjunum, Pálhild-
ur, f. 1935, búsett í Kópavogi og
Anton Svanur, f. 1937, búsettur í
Kópavogi.
dóttir hennar er Karen Harpa
Rúnarsdóttir, f. 23. nóv. 2001,
Ingibjörg Katrín Kristjánsdóttir,
f. 19. apríl 1993, og Einar Víg-
lundur Kristjánsson, f. 22. nóv-
ember 1996. 2) Jón Ottó Rögn-
valdsson, f. 16. nóvember 1960,
búsettur á Kanaríeyjum, maki
Andrea Baldursdóttir fótsnyrtir.
3) Kristín Rögnvaldsdóttir leik-
skólakennari, f. 9. ágúst 1966, bú-
sett í Reykjavík, maki Jón Þór
Einarsson múrari. Börn þeirra
eru Alexandra Ósk, f. 19. október
1994 og Sindri Þór, f. 25. sept-
ember 1998. Sigurður og Ingi-
björg slitu samvistum.
Sigurður ólst upp í Reykjavík
og dvaldi þar lengstum. Hann
lauk fullnaðarprófi frá Melaskól-
anum. 13 ára gamall fór hann
fyrst til sjós en sjómennskan var
hans ævistarf. Frá árinu 1998 var
Sigurður búsettur hjá syni sínum
og fjölskyldu. Hann sat í trún-
aðarmannaráði Sjómannafélags
Reykjavíkur frá árinu 1984 til
dánardags.
Útför Sigurðar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Sigurður kvæntist
27. desember 1980
Ingibjörgu Árnadótt-
ur. Sonur þeirra er
Sigurður Ingi verka-
maður, f. 2. maí
1975, búsettur í
Vatnsholti í Villinga-
holtshreppi, sam-
býliskona Gerður
Hreiðarsdóttir hús-
móðir, f. 12. febrúar
1973. Börn þeirra
eru Daðey Steinunn,
f. 28. júlí 1994, og
Sóley María, f. 1. des-
ember 2002. Börn
Ingibjargar og fósturbörn Sigurð-
ar eru: 1) Margrét Rögnvaldsdótt-
ir húsmóðir, f. 26. september
1959, búsett í Vatnsholti í Vill-
ingaholtshreppi, maki Kristján
Einarsson, skólabílstjóri og bóndi.
Börn þeirra eru Heiðdís Helga
Antonsdóttir, f. 14. apríl 1980,
Elsku Siggi minn.
Nú er kvölum þínum lokið eftir
löng og erfið veikindi. Þú komst inn í
líf mitt þegar þú kynntist mömmu. Þá
var ég bara 2–3 ára lítil stelpa. Þú
tókst mér strax sem þinni eigin dóttur
og varst mér ætíð svo góður. Við vor-
um ávallt miklir vinir og ég gat alltaf
leitað til þín. Allt vildir þú fyrir mig
gera og hvattir mig áfram. Þú hafðir
óbilandi trú á því sem ég tók mér fyrir
hendur.
Eftir að þú og mamma skilduð
minnkuðu tengslin okkar á milli en þú
munt alltaf eiga þér stað í hjarta
mínu, elsku Siggi pabbi minn.
Kristín.
Mikill er söknuðurinn að missa þig
svona fljótt Siggi minn.
Þú varst alltaf svo nærgætinn,
elskulegur og fljótur til ef þú varst
beðinn um að gera eitthvað. Ósér-
hlífni og atorkusemi voru ein af þín-
um sterku persónueinkennum. Við
áttum eftir að gera svo margt saman
en almættið var með önnur áform.
Engin veit sína ævi fyrr en öll er.
Ég vona að þér líði betur núna því að
þú varst búinn að vera svo mikið veik-
ur og þjáður. Ég hugga mig við það að
svo sé. Þakka þér fyrir þennan tíma
sem við áttum saman. Blessuð sé
minning þín.
Kært var með ykkur Sigurði Inga
syni þínum en hann sýndi mikinn
dugnað er hann sat hjá þér á hverjum
degi þar til yfir lauk.
Elsku Sigurður Ingi, ég votta ykk-
ur Gerði og börnunum, systkinum
hins látna og fósturbörnum mína
dýpstu samúð. Megi Guð hugga þau í
sorg sinni.
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur.)
Þín vinkona
Pálína.
Elsku Siggi.
Mikill er söknuður okkar. Einnig
hjá börnunum, Ingibjörgu og Einari,
sem alltaf hlupu í fang afa þegar þú
komst til okkar. En við vitum að þú
ert kominn á yndislegan stað og við
biðjum Guð almáttugan að varðveita
þig.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Vald. Briem.)
Við þökkum þér fyrir allt, elsku
Siggi.
Margrét, Kristján, Ingi-
björg Katrín og Einar
Víglundur í Vatnsholti.
Lítil kveðja.
Þegar myrkur yfir grúfði,
og engin sáust lönd.
Gatan svo grýtt og hrjóstrug,
– ei glitti í sólar rönd.
Þá þóttist í örvinglan finna,
að mér var útrétt hönd,
svo sterk – og skjólið bauð mér.
Ég skildi að af Guði var send.
Og þó að leiðirnar skildu,
sá þráður er bundinn var þar.
Hann sterklega og þétt var ofinn,
og aldreigi slitinn var.
Því er það mín hinsta kveðja,
að Hann, er mér sendi þig.
Taki þig traustum örmum,
er tókst þú forðum mig.
Ingibjörg.
Ég kynntist Sigurði K. Guðmunds-
syni fyrir tæpum 6 árum. Það var í
barnaafmæli dótturdóttur minnar,
sem hann reyndist Daðey góður afi og
Gerði góður tengdafaðir.
Sigurður var einn af heimilisfólkinu
á heimili Sigga og Gerðar. Hann var
ötull við að hjálpa þeim innan sem ut-
an dyra þegar hann var heima á milli
sjómennskunnar. Það var alltaf gam-
an að ræða heimsmálin sem komu yf-
irleitt upp þegar við ræddumst við
fyrir austan, sem var töluvert oft, ég
kom oft austur og gisti gjarnan. Her-
bergið hans fékk ég alltaf ef hann var
ekki heima, takk fyrir það.
Sigurður var frábær faðir sem afi.
Mér er minnisstætt eitt atriði sem
varðaði matartíma hjá Daðey, þegar
afi hjálpaði henni með matinn þar
sem hún var löt við að klára og kom
hlaupandi fram sigri hrósandi, búin
með matinn, „en afi hjálpaði mér“.
Svona er Sigurði rétt lýst, alltaf til
taks og mátti ekki heyra skamm-
aryrði.
Daðey á eftir að skila góðum minn-
ingum um afa til systur sinnar Sól-
eyjar Maríu sem fékk ekki að njóta
afa síns nema 11 mánuði.
Ég votta Sigga, Gerði, fósturbörn-
um, barnabörnum og Pálínu mína
dýpstu samúð.
Daðey Steinunn Daðadóttir.
SIGURÐUR K.
GUÐMUNDSSON
AFMÆLIS- og minningar-
greinum má skila í tölvupósti
(netfangið er minning@mbl.is,
svar er sent sjálfvirkt um leið
og grein hefur borist) eða á
disklingi. Ef greinin er á disk-
lingi þarf útprentun að fylgja.
Nauðsynlegt er að tilgreina
símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusíma og heima-
síma). Ekki er tekið við hand-
skrifuðum greinum.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein aðalgrein af hæfi-
legri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar séu um 300 orð
eða 1.500 slög (með bilum) en
það eru um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í
sálma eða ljóð takmarkast við
eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín-
ur, og votta virðingu án þess að
það sé gert með langri grein.
Greinarhöfundar eru beðnir að
hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar og
hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður.
Þar sem pláss er takmarkað
getur þurft að fresta birtingu
greina, enda þótt þær berist
innan hins tiltekna frests.
Frágangur af-
mælis- og minn-
ingargreina