Morgunblaðið - 31.10.2003, Blaðsíða 4
NORÐURÁL, Orkuveita
Reykjavíkur (OR) og Hitaveita
Suðurnesja munu síðar í dag
undirrita viljayfirlýsingu um
orkusölu vegna stækkunar
Norðuráls. Í viljayfirlýsingunni
verða væntanlega fyrirvarar
þar sem enn á eftir að klára
umhverfismat og skipulags-
vinnu vegna fyrirhugaðrar
virkjunar OR á Hellisheiði og
því ekki hægt að ganga frá
orkusamningi fyrr en þau mál
eru í höfn.
Orkusala vegna
Norðuráls
Skrifað
undir vilja-
yfirlýsingu
í dag
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
edda.is
Miskunnarlaust Tyrkja-
ránið, ferðin suður í
Barbaríið og nýtt líf í
framandi heimi er megin-
viðfangsefni þessarar
áhrifamiklu skáldsögu.
Mikil heimildavinna liggur
að baki verkinu, enda hefur
höfundurinn, Úlfar Þormóðs-
son, margsinnis dvalist í
Norður-Afríku við rannsóknir.
Söguleg skáldsaga
eins og þær gerast bestar
ANNARRI umferð Mjólkurskák-
mótsins á Hótel Selfossi lauk í
gær. Í meistaraflokki gerðu Laur-
ent Fressinet og Vladimir Malakh-
ov jafntefli, rétt eins og Hannes
Hlífar Stefánsson og Jonathan
Rowson, Ivan Sokolov og Þröstur
Þórhallsson og Francisco Vallejo
Pons og Predrag Nikolic en við-
ureign Nicks de Firmians og Vict-
ors Bologans lauk með sigri Bolog-
ans.
Í áskorendaflokki sigraði Jan
Votava Róbert Harðarson og Tom-
as Oral lagði Tómas Björnsson en
Henrik Danielsen og Ingvar Þór
Jóhannesson skildu jafnir en það
gerðu einnig Stefán Kristjánsson
og Jón Árni Halldórsson, Louis
Galego og Regina Pokorna.
Óvæntustu úrslitin í þessari um-
ferð verða að teljast þau að Þröst-
ur Þórhallsson knúði fram jafntefli
við Ivan Sokolov, sem var ósáttur
við taflmennsku sína og lét sig
hverfa úr salnum að tafli loknu.
Victor Bologan lét sverfa til
stáls eftir ósigur í fyrstu umferð
og sigraði Nick de Firmian með
svart, en viðureign þeirra var sú
eina sem ekki endaði með jafntefli
í meistaraflokki.
Ingvar Þór Jóhannesson og
Henrik Danielsen skildu jafnir að
skiptum en Ingvar hefur byrjað
vel, rétt eins og Stefán Kristjáns-
son sem í gær gerði jafntefli við
Jón Árna Halldórsson. Skák-
drottning Hróksins, Regina Pok-
orna, gerði góða hluti gegn Portú-
galanum Louis Galegó og endaði
skák þeirra með jafntefli.
Þröstur náði jafn-
tefli gegn Sokolov
HÉRAÐSDÓMUR Vest-
fjarða dæmdi í gær karlmann
á fimmtugsaldri í 15 mánaða
fangelsi fyrir kynferðisbrot
gegn stjúpdóttur sinni og
dóttur á árunum 1995 til 2001
á heimili sínu.
Ákærðir var sakfelldur fyr-
ir að hafa brotið ítrekað gegn
stjúpdóttur sinni, fæddri
1987, á árunum 1995–1999,
eða þegar hún var 8–12 ára.
Einnig fyrir brot gegn dóttur
sinni á hálfs árs tímabili fram
í maí 2001 er hún var á 13.
ári.
Brot ákærða þóttu alvarleg
en með þeim rauf hann fjöl-
skyldutengsl og braut gegn
trúnaðartrausti stúlknanna
sem hann hafði uppeldis- og
umsjárskyldur við. Átti hann
sér engar málsbætur og þótti
ekki koma til greina að skil-
orðsbinda refsinguna.
Ákærði var ennfremur
dæmdur til að greiða stjúp-
dóttur sinni 600.000 kr. í
miskabætur og dóttur sinni
400.000 kr., auk alls sakar-
kostnaðar.
Málið dæmdu Erlingur Sig-
tryggsson, dómstjóri og
dómsformaður, Halldór Hall-
dórsson dómstjóri og Sigríður
Ingvarsdóttir héraðsdómari.
Verjandi ákærða var Kristinn
Bjarnason hrl. Málið sótti
Sigríður Jósefsdóttir, sak-
sóknari hjá ríkissaksóknara.
15 mánaða
fangelsi
fyrir kyn-
ferðisbrot EIGENDUR landnámshænsna hér á landi
hafa ákveðið að stofna með sér félag.
Verður stofnfundur haldinn í Bændahöll-
inni, Hótel Sögu í Reykjavík, næstkomandi
laugardag kl. 14.
Jóhanna Harðardóttir er meðal þeirra
sem undirbúa stofnun félagsins en hún á
sjálf sjö hænur af þessum stofni, sem talið
er að hafi komið til landsins með Ingólfi
Arnarsyni og fleiri landnámsmönnum.
Hún segir mikinn áhuga á félaginu og þeg-
ar hafi nærri 80 manns skráð sig, fólk af
öllu landinu og jafnvel erlendis. Konur eru
í meirihluta í hópnum og er aldursdreif-
ingin mikil, eða frá tíu ára aldri og upp í
nírætt.
Jóhanna segir að ætlunin sé að halda ut-
an um þennan hænsnastofn og vera eig-
endum og ræktendum hvatning til að við-
halda erfðaeiginleikum. Um afar
sérstakan stofn sé að ræða sem hafi náð að
halda einkennum sínum þrátt fyrir inn-
flutning á öðrum tegundum. Hún segir að
landnámshænurnar verpi alveg jafnmikið
og þær „hvítu“.
„Ég fékk mér hænur meira af gamni
mínu því mér fannst þær svo fyndnar. Svo
eru þetta hinar ágætustu varphænur.
Bæði hænurnar og hanarnir hafa líka náð
að halda sínum karakter. Mínar hænur
halda að þær séu spörfuglar og sitja í
trjánum. Þær eru þvílíkar hlussur að
greinarnar svigna undan þeim,“ segir Jó-
hanna hlæjandi og bætir við að einn verð-
andi félagsmaður, tíu ára stúlka, fari
reglulega út að ganga með sínar hænur.
Að sögn Jóhönnu er ætlunin að félagið
standi m.a. fyrir árlegri sýningu á hænsn-
um, líkt og hundaeigendur geri reglulega.
Vonandi takist að halda slíka sýningu
næsta vor.
Hafa haldið
einkennum
sínum
Félag um land-
námshænsn
HAGNAÐUR af samstæðu Eimskipafélags Ís-
lands var 2.171 milljón króna á fyrstu níu mán-
uðum ársins. Þar af var hagnaður af þriðja árs-
fjórðungi rúmir 2 milljarðar en hagnaður af fyrri
helmingi ársins var 134 milljónir króna. Hagn-
aður samstæðunnar af fyrstu níu mánuðunum í
fyrra nam ríflega 3,8 milljörðum króna.
Aukinn hagnaður samstæðunnar á þriðja árs-
fjórðungi skýrist aðallega af hagnaði dóttur-
félagsins Burðaráss vegna hækkandi hlutabréfa-
verðs og bættri afkomu af flutningastarfsemi
Eimskips. Afkoma sjávarútvegsstarfsemi Brims
er hins áfram slök.
Hagnaður samstæðunnar fyrir afskriftir og
fjármagnsliði, EBITDA, nam 2,7 milljörðum
króna á fyrstu níu mánuðunum en á sama tíma-
bili í fyrra nam sá hagnaður rúmum 2 milljörð-
um. Þá nam veltufé frá rekstri tæpum 1,9 millj-
örðum króna en var 1,3 milljarðar í fyrra.
Arðsemi eigin fjár reyndist 11% í lok september
en var á sama tíma í fyrra 41%. Eiginfjárhlut-
fallið var 43% og veltufjárhlutfall 1,25.
Hagnaður Burðaráss 2,5 milljarðar
Fjárfestingastarfsemi Eimskipafélagsins,
Burðarás ehf., skilaði 2.529 milljóna króna hagn-
aði á fyrstu níu mánuðum ársins. Þar af var tæp-
lega 2,1 milljarður óinnleystar tekjum sem skýr-
ist af hækkun á markaðsvirði eignarhluta í
öðrum félögum á árinu, sem varð nær alfarið á
þriðja ársfjórðungi. Fjármagnstekjur félagsins
námu 519 milljónum króna en tap varð af rekstri
félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði,
EBITDA, um 32 milljónir. Veltufé félagsins var
neikvætt um 55 milljónir króna.
Í tilkynningu frá samstæðunni kemur fram að
hagnaður af sölu hlutabréfa í Skeljungi til Stein-
hóla hafi numið 1.044 milljónum króna en þar
sem Burðarás á 25% í Steinhólum er aðeins 75%
söluhagnaðarins innleystur nú.
Afkoma Brims enn slök
Tap varð af rekstri sjávarútvegsstafsemi Eim-
skipafélagsins, Brimi ehf., sem nam 415 millj-
ónum króna. Hagnaður varð af rekstrinum fyrir
afskriftir og fjármagnsliði um rúma 1,6 milljarða
en afskriftir félagsins, sem eru að stórum hluta
frá kaupum félagsins á sjávarútvegsfélögunum
fyrr á árinu, námu tæplega 1,5 milljarði og fjár-
magnsgjöld námu tæpum hálfum milljarði.
Veltufé frá rekstri var jákvætt um rúman 1,1
milljarð.
Í tilkynningu segir að afkoman sé lakari en ráð
var fyrir gert, einkum vegna lægra afurðaverðs í
erlendri mynt og minni aflabragða í grálúðu og
loðnu. Ekki er gert ráð fyrir verulegum bata í
rekstri Brims á síðasta fjórðungi ársins.
Eimskipafélagið hagnast
um 2,2 milljarða króna
VELUNNURUM klúbbsins Geysis var boðið að
skoða ný húsakynni félagsins um leið og því var
fagnað í gær að fjögur ár eru nú liðin frá því að
starf klúbbsins hófst. Fjöldi fólks mætti til að sam-
gleðjast aðstandendum eins og myndin ber með
sér.
Jóhanna María Eyjólfsdóttir, stjórnarformaður
klúbbsins, segir starfsemina hafa vaxið gífurlega á
síðustu fjórum árum. Í upphafi hafi félagar í
klúbbnum verið tíu en nú séu þeir 165.
Klúbburinn Geysir er fyrir fólk sem átt hefur við
geðræn veikindi að stríða. Fyrirmyndin kemur frá
New York og heitir Fountain House. Jóhanna segir
svona klúbbhús starfandi um allan heim og starf
þeirra byggist á hugmyndafræði um að virkja ein-
staklinginn á ný til starfa í samfélaginu eftir mikil
veikindi. Þar er meðal annars starfrækt atvinnu-
miðlun, útgáfustarfsemi og námskeið haldin.
Tímamót hjá klúbbnum
Geysi í nýju húsnæði
Morgunblaðið/Árni Sæberg