Morgunblaðið - 31.10.2003, Side 10

Morgunblaðið - 31.10.2003, Side 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLAND færir sig upp um fjögur sæti á lista yfir samkeppnishæfni þjóða heims sem unninn er af World Economic Forum. Ísland er nú í átt- unda sæti en var í 12 sæti á síðasta ári. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra kveðst ánægð með niðurstöðuna. „Við erum á upp- leið sem sýnir að það er einhver heildarhugsun í gangi hjá íslenskum stjórnvöldum. Á þeim opna markaði sem við störfum á í dag er aðalmálið auðvitað að geta staðist samkeppni og mér finnst stjórnmálin snúast meira og minna um það að styrkja samkeppnisstöðu Íslands. Þess vegna er mjög ánægjulegt að sjá að við erum á réttri leið í þeim efnum,“ sagði Valgerður í samtali við Morg- unblaðið. Valgerður sagði að góð samkeppn- ishæfni landsins skipti unga fólkið ekki síst máli. „Til þess að unga fólk- ið velji að setjast að á Íslandi þarf Ís- land einfaldlega að vera best.“ Ísland fékk hvað lakasta einkunn þegar gefin var einkunn fyrir ný- sköpun í landinu. Valgerður segist skilja það mjög vel. „Innan stjórn- kerfisins höfum við ekki verið með nógu góðan farveg fyrir nýsköpun. Það sem hins vegar gerist með sam- þykkt laganna um vísinda- og tækni- ráð og það að á næsta ári skuli verða settur á laggirnar tækniþró- unarsjóður skiptir mjög miklu máli. Ég hef tekið eftir því í mínu starfi að það er ákveðin nýsköpunargjá hér sem ekki hefur verið brúuð, en þessi nýju lög og sjóðurinn nýi ættu að hafa verulega mikið að segja um stöðu okkar að þessu leyti.“ Gleðileg niðurstaða Ari Edwald, fram- kvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, segir að niður- staðan sé gleðileg. Hann segir að kannanir sem þessar staðfesti þá þróun sem samtökin telji að hafi orðið til batnaðar á starfs- skilyrðum íslensks atvinnu- lífs. „Það er ánægjulegt að hækka á listanum, en um leið sést að mörg okkar helstu nágranna- og sam- keppnislönd skora hærra en við, þannig að það er enn svigrúm til að gera betur,“ sagði Ari í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að það sé hins vegar bagalegt hve Ísland kemur illa út úr mælingu á nýsköpunarhlutanum. „Aðrar kannanir sýna mikinn frum- kvöðlavilja Íslendinga. Við höfum ný- lega endurskipulagt mikið stuðnings- umhverfi rannsókna og nýsköpunar og ég held að þessi niðurstaða hljóti að vera okkur hvatning til að setja meira kjöt á þau bein og styrkja þá sjóði sem fjármunum er veitt úr í þeim málaflokki.“ Mælikvarði á bætt umhverfi Tryggvi Þór Herbertsson, for- stöðumaður Hagfræðistofnunar Há- skóla Íslands, segir að aukin sam- keppnishæfni Íslands sé ótvírætt mælikvarði á það hvað umhverfi fyr- irtækja er að batna hér á landi. „Þetta ætti að virka sem hvati á erlendar fjárfestingar hér á landi og ætti einnig að halda ís- lenskum fyrirtækjum í landinu. Það er mjög góð þróun sem birtist í þessum niðurstöðum,“ sagði Tryggvi í samtali við Morg- unblaðið. Spurður um það af hverju Ísland fengi jafn- góða einkunn og raun bæri vitni þegar metin væru gæði stofnana sagði Tryggvi að sú niðurstaða kæmi ekki á óvart. „Skattkerfið hér er mjög gott. Hér eru lágir skattar á fyrirtæki og tiltölulega auðvelt að telja fram til skatts. Peningamála- stjórnin er eins og hún þekkist best í heiminum með flotgengi og verð- bólgumarkmið og ef við skoðum fjár- málahliðina þá var Ísland eitt af fyrstu ríkjum heims sem fór að gera ríkissjóð upp á rekstrargrunni. Það hefur verið lítið tap og skuldir hafa verið greiddar upp og slíkt. Ef við skoðum lífeyrisskuldbindingar ríkis- ins eru þær að mjög miklu leyti fjár- magnaðar, ólíkt og í löndum t.d. í Mið- Evrópu eins og Þýskalandi, Ítalíu og Frakklandi, sem standa frammi fyrir stókostlegu vandamáli.“ Skýrsla World Economic Forum um samkeppnishæfi þjóða var birt í gær, en 102 þjóðir taka þátt. Listinn er unninn upp úr könnun sem gerð er á meðal leiðandi aðila í viðskiptalífi landanna. Mælikvarðar eru helstir; tækniumhverfi, gæði opinberra stofn- ana og efnahagslegt umhverfi í lönd- unum.          $% &% '% &(% )% *% +% &$% ,%     $(($           MEÐ komu Íslands inn á listann yfir tíu samkeppnishæfustu þjóðir heims eru allar Norðurlandaþjóðirnar nú á meðal efstu tíu þjóða hvað samkeppn- ishæfni varðar. Finnland trónir á toppnum, Svíþjóð er í þriðja sæti og Dan- mörk í fjórða sætinu. Þá er Noregur í sætinu á eftir Íslendingum, eða því níunda. Samkvæmt því sem fram kemur í frétt frá Iðntæknistofnun, samstarfs- aðila World Economic Forum á Íslandi, standa Íslendingar framar öðrum þjóðum í upplýsinga- og fjarskiptatækni og eru í fremstu röð hvað varðar gæði opinberra stofnana. Helstu skýringar þess að samkeppnisumhverfi á Íslandi hefur batnað milli ára eru betri efnahagsskilyrði, að því er segir í fréttinni. Þegar efna- hagsskilyrði eru borin saman hafnar Ísland í 16. sæti og hefur hækkað um átta sæti frá fyrra ári. Veikasti þátturinn í samkeppnishæfni Íslands er ný- sköpun eins og fyrr sagði. Ísland hafnar aðeins í 21. sæti í samanburði á ný- sköpun. Bandaríkin falla úr fyrsta sæti Fram kemur í skýrslunni að Bretland hefur dottið niður um fjögur sæti og niður í það 15. og Kanada hefur dottið út af listanum yfir tíu efstu, í það 16, einkum vegna þess að gæðum opinberra stofnana hrakaði. Bandaríkin eru í öðru sæti í ár en voru í fyrsta sæti í fyrra. Bandaríkin standa öðrum þjóðum framar í nýsköpun en minnkandi gæði opinberra stofnana og einnig versnandi efnahagsskilyrði draga landið niður. Stöðug aukning Í frétt Iðntæknistofnunar segir að samkeppnisumhverfi á Íslandi hafi batnað jafnt og þétt undanfarin ár. Árið 2001 var Ísland í 16. sæti og hafði þá hækkað um sjö sæti frá árinu 2000 og úr 38. sæti árið 1997. Sterkustu stoðir Íslands hvað samkeppnishæfni varðar eru lítil spilling, sterkir innviðir og traustar opinberar stofnanir, að því er segir í fréttinni. Þeir þættir sem mest koma niður á viðskiptaumhverfi á Íslandi að mati framámanna í íslensku viðskiptalífi, eru verðbólga, íþyngjandi vinnumarkaðslöggjöf og erfiður aðgangur að lánsfé. Aðrir þættir sem hafa neikvæð áhrif á samkeppnishæfni Íslands eru mikill vaxtamunur í bankakerfinu, lítill sparnaður og lítill fjöldi háskólanema. Allar Norðurlandaþjóð- irnar meðal tíu efstu Samkeppnishæfni landsins góð KONUR úr íslenskum kvennasam- tökum fjölmenntu á þingpalla Al- þingis í gær er Kolbrún Halldórs- dóttir, þingmaður Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs, mælti fyrir frumvarpi til laga sem kveður á um bann við kaupum á kynlífs- þjónustu. Með frumvarpinu er m.a. lagt til að hver sá sem greiði fyrir kynlífsþjónustu af nokkru tagi skuli sæta fangelsi allt að tveimur árum. Fjórtán þingkonur úr VG, Samfylk- ingu, Frjálslynda flokknum og Framsóknarflokknum standa að frumvarpinu. „Þetta mál hefur verið lagt fram á fjórum undangengnum þingum,“ út- skýrði Kolbrún, „en nú ber svo til að þingkonur allra flokka, utan Sjálf- stæðisflokksins, hafa komið sér saman um þetta mál“. Hún gerði nánari grein fyrir frumvarpinu og sagði: „Nú er það svo að refsiábyrgð vegna vændis hvílir á herðum þeirra sem leiðast út í vændi, þ.e. á herðum þeirra sem neyðast til að selja að- gang að líkama sínum. Þetta telja flutningsmenn frumvarpsins vera misráðið. Við viljum breyta áherslum með því að færa refsi- ábyrgðina yfir á herðar þess sem býr til eftirspurnina, þ.e. á herðar kaupandans.“ Með frumvarpinu er m.ö.o. gert ráð fyrir því að refsi- ábyrgð vegna vændis breytist þann- ig að kaup á vændi og annarri kyn- lífsþjónustu verður refsiverð en vændi sem stundað er til framfærslu verður ekki lengur refsivert. Nýta sér eymdina og volæðið Nokkrar þeirra þingkvenna sem standa að frumvarpinu tóku til máls í umræðunni. Guðrún Ögmundsdótt- ir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði m.a. að það gæti ekki verið sið- legt að einhver keypti aðra mann- eskju til að þjóna kynlífsþörfum sín- um. Og Jónína Bjartmarz, þing- maður Framsóknarflokksins, sagði m.a. að þeir sem keyptu sér vændi væru að nýta sér veika félagslega, andlega og efnahagslega stöðu fólks sem seldi líkama sinn. „Þeir sem eru að kaupa eru að nýta sér eymdina og volæðið sem þetta fólk býr við,“ sagði hún. Drífa Hjartardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, greindi frá því að þótt þingkonur Sjálfstæðisflokks- ins hefðu ekki staðið að frumvarp- inu, þá væru þær síður en svo sam- þykkar vændi. Jónína kom aftur í pontu og sagði m.a. að í allsherj- arnefnd þingsins yrði rætt frekar um frumvarpið. Kvaðst hún vonast til þess að í þeirri nefnd yrði hægt að ná „einhverri lendingu“ um frum- varpið „þannig að allar konur geti staðið saman að því“. Engin systrasamstaða Ágúst Ólafur Ágústsson, þing- maður Samfylkingarinnar, sagði að með frumvarpinu væri verið að færa refsiábyrgðina þangað „sem hún ætti heima“ og Steingrímur J. Sig- fússon, formaður VG, sagðist vonast til þess að umrætt mál fengi af- greiðslu á þessu þingi. „Ég bind miklar vonir við að svo verði.“ Ásta Möller, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi hvernig staðið hefði verið að kynn- ingu frumvarpsins. Sagði hún að við kynninguna hefði tækifærið verið notað til að ráðast á þingkonur Sjálfstæðisflokksins fyrir að vera ekki meðflutningsmenn frumvarps- ins. „Skilaboðin voru þau að konur í Sjálfstæðisflokknum væru svo aum- ar að þær þyrðu ekki að taka af- stöðu nema bera það undir karlana í flokknum,“ sagði hún. „Það fór því lítið fyrir systrasamstöðu. Það átti að koma höggi á starfssystur sínar. Vissulega er það svo að konur og karlar í Sjálfstæðisflokknum – og reyndar þingheimur allar – eru í sárum eftir þá niðurstöðu þingkosn- inganna í vor að fimm reyndar stjórnmálakonur Sjálfstæðisflokks- ins duttu út af þingi. Það var hins vegar lúalegt bragð af konum í öðr- um flokkum þingsins að snúa hnífn- um í sárinu.“ Hún sagði að konum í Sjálfstæðisflokknum hefði ekki ver- ið gefið tækifæri til að standa að frumvarpinu. Þeim sem haft hefði verið samband við hefði verið gefinn kostur á að svara samdægurs. Hún sagði það þó annað mál hvort þing- konur Sjálfstæðisflokksins væru efnislega sammála frumvarpinu. Sjálf sagði hún að frumvarpið gengi út á að gera það ólöglegt að kaupa vændi en gera það löglegt að stunda það. „Þetta passar ekki saman í mínum huga. Ég er ósammála þess- ari nálgun og finnst hún ekki rök- rétt.“ Kolbrún Halldórsdóttir kom aftur í pontu og vísaði fyrrgreindri gagn- rýni Ástu á bug. „Mér finnst þetta mál svo miklu mikilvægara heldur en svo að það sé hægt að ásaka mig um það að ég hafi með lúalegu bragði reynt að koma höggi á þing- konur Sjálfstæðisflokksins. Það hef ég sannarlega ekki gert, sagði Kol- brún.“ Mælt fyrir frumvarpi um bann við kaupum á vændi Kaupandinn beri refsiábyrgðina FJÖLDI fólks lagði leið sína á Aust- urvöll í gær til að taka þátt í með- mælastöðu þar sem mælt var með hinu svonefnda vændisfrumvarpi. Þingfulltrúar voru hvattir til að sam- þykkja frumvarpið sem felur í sér að kaup á vændi verða gerð refsiverð og sektinni verður létt af vændiskonum og körlum. Margrét K. Sverrisdóttir, þing- maður Frjálslynda flokksins, mætti til meðmælastöðunnar en að hennar mati á ekki að vera leyfilegt að versla með fólk. „Þetta er siðferðisleg yf- irlýsing sem skiptir mjög miklu máli. Við höfum stutt þetta frumvarp frá upphafi og það hefur ekkert breyst.“ Guðrún Ögmundsdóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, býst fastlega við því að allir þingmenn Samfylk- ingarinnar greiði atkvæði með frum- varpinu. „Þetta mál er með mjög góðan stuðning í mínum þingflokki,“ segir Guðrún. Landssamband framsóknar- kvenna sendi á dögunum frá sér yf- irlýsingu þess efnis að frumvarpið skyldi samþykkt og fulltrúar sam- bandsins mættu í meðmælastöðuna. Bryndís Bjarnason varaformaður segir að þetta frumvarp eigi að vera þverpólitísk mál. „Þetta er mjög þarft mál. Í Svíþjóð hefur ástandið lagast til muna síðan frumvarpið var samþykkt,“ segir Bryndís. Aðilarnir 14 sem stóðu að með- mælunum eru: Bríet – félag ungra feminista, Femínistafélag Íslands, Kvenfélagasamband Íslands, Kvennakirkjan, Kvennaráðgjöfin, Kvenréttindafélag Íslands, Neyðar- móttaka vegna nauðgunar, Samtök um kvennaathvarf, Stígamót, Tíma- ritið Vera, Unifem á Íslandi, Félag kvenna í læknastétt á Íslandi, Landssamband framsóknarkvenna og V-dagssamtökin. Morgunblaðið/Þorkell Fjórtán aðilar stóðu að meðmælum við Alþingishúsið í gær til að lýsa stuðningi við frumvarp um vændi sem þá var til umræðu. Mælt með lagafrum- varpi um vændi VEGNA mistaka við vinnslu fréttar blaðsins í gær var sagt að hlutfall varaþingmanna á Al- þingi væri nú um 7% en hið rétta er að hlutfallið er rúm 17%. Beðist er velvirðingar á þessu. Hlutfall vara- þingmanna rúm 17%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.