Morgunblaðið - 31.10.2003, Síða 44

Morgunblaðið - 31.10.2003, Síða 44
MINNINGAR 44 FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Tíminn líður, og við verðum öldruð áður en varir. Elín Guðmundsdótt- ir fæddist í Heiðarseli, nú Dalsá, í Göngu- skörðum í Skagafirði 31. október 1903. Voru foreldrar hennar hjón- in Lilja Kristjánsdóttir (1873-1951) og Guð- mundur Þorleifsson (1854-1940). Elín var ein af tíu systkinum. Átta þeirra náðu full- orðinsaldri, en tveir synir létust á æsku- skeiði. Elín ólst upp í Skollatungu í sömu sveit til fullorðisnára. Hún naut barnafræðslu í Skarðshreppi og var fermd í Sauðárkrókskirkju af séra Hálfdani Guðjónssyni, þeim sama og skírði mig síðar. Hún giftist föður mínum, Sveini Hannessyni frá Elivogum 11. september 1922. Fyrst bjuggu þau í Elivogum en fluttust vestur í Húnavatnssýslu 1923 og bjuggu fyrst í Selhaga á Skörðum. Þaðan fluttust þau eftir árs dvöl að Refsstöðum á Laxárdal og bjuggu að því sinni árið á þeirri jörð, í tvíbýli við Kristján Sigurðsson og Unni Björnsdóttur. Vorið 1925 fluttust þau að Sneis, utar í dalnum, og bjuggu þar til sumarsins 1934, að þeim var það ófært, vegna árása og eineltis ofbeldismanna. Frá Sneis var flust til Skagastrandarkauptúns og húsnæði tekið á leigu. Þar stund- ELÍN GUÐMUNDSDÓTTIR aði Sveinn vinnu við hafnargerð á staðnum um sumarið. Um haust- ið brann húsnæði það, sem búið var í, og var þá heimilið leyst upp. Sveinn hélt til Reykja- víkur og var þar fram á vor árið eftir, en Elín fór norður í Fljót til ættfólks síns, og var Auðunn Bragi, sonur hennar, með henni þar næsta vetur. Dóttirin, Þóra Kristín, dvaldi á Björnólfsstöðum í Langadal um veturinn hjá góðu fólki. Um vorið 1935 var bú- skapur hafinn að nýju;bújörðin Vindhæli á Skagaströnd tekin á leigu og síðar keypt. Þar var búið til vors 1938, að flutt var fram á Laxárdal og jörðin Refsstaðir, sem verið hafði í eyði um skeið, tekin á leigu af Lands- bankanum, sem átti jörðina, en síðar keypt. Þarna var búið til vors 1945, en þá var heilsa Sveins þorrin og allt lausafé og bústofn selt á uppboði. Sveinn andaðist 2. júlí 1945. Elín bjó í Reykjavík til æviloka, sem urðu 19. apríl 1958. Hún giftist Ármanni Hanssyni, verkamanni, og áttu þau saman nokkur ár, en hann lést 1973. Elín var dugleg og verk- lagin, vinföst og vinavönd. Dýravin- ur var hún. Ljóðelsk og minnug vel. Blessuð sé minning hennar. Auðunn Bragi Sveinsson. ALDARMINNING Innilegar þakkir til allra þeirra sem vottuðu okkur samúð og sýndu okkur hlýhug við and- lát og útför móður okkar og tengdamóður, SVANFRÍÐAR SIGRÚNAR GÍSLADÓTTUR, Hlíf I, áður Hlíðarvegi 8, Ísafirði. Gísli Hjartarson, Hjördís Hjartardóttir, Björgvin Guðjónsson, Sigurður Hjartarson, Kristín Karvelsdóttir, Viðar Hjartarson, Guðrún Bóel Guðjónsdóttir og fjölskyldur. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURODDUR MAGNÚSSON rafverktaki, Miðleiti 5, áður Brekkugerði 10, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 29. október. Magnús G. Siguroddsson, Guðrún R. Þorvaldsdóttir, Einar Long Siguroddsson, Sólveig Helga Jónasdóttir, Pétur R. Siguroddsson, Guðný M. Magnúsdóttir, Sólrún Ó. Siguroddsdóttir, Halldór Jónasson, Bogi Þór Siguroddsson, Linda Björk Ólafsdóttir og aðrir aðstandendur. Innilegar þakkir sendum við þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför föður míns, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, HJALTA JÓNSSONAR, Borgarhrauni, Grindavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrun- arheimilisins Víðihlíðar, Grindavík. Kristín Jóna Hjaltadóttir, Þorkell Árnason, Sigrún Kjartansdóttir, Birna Sverrisdóttir, Björk Sverrisdóttir, Magnús Arthúrsson, Hjalti Allan Sverrisson, Lísa Ásgeirsdóttir, Ólöf Guðrún Viðarsdóttir, Andrés Ari Ottósson, Laufey Viðarsdóttir, Kjartan Viðarsson, Björg Guðmundsdóttir, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Kæra móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, áður Hrafnhólum 8, lést fimmtudaginn 16. október. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug. Hilmar Grétar Sverrisson, Fanney Þorsteinsdóttir, Guðjón Rúnar Sverrisson, Rungnapa Channakorn, Sverrir Rúnar Hilmarsson, Dóra Margrét Kristjánsdóttir, Sigríður Rut Hilmarsdóttir, Kristófer Rúnar Guðjónsson. Kærar þakkir og kveðjur til allra, sem hafa sýnt okkur samhug við andlát og útför sambýlis- konu minnar, móður, tengdamóður, dóttur, systur og mágkonu, ÞORGERÐAR SIGURÐARDÓTTUR myndlistarmanns, sem lést á Landspítala Hringbraut þriðjudag- inn 14. október. Ólafur H. Torfason, Jón Gunnar Gylfason, Solveig Edda Vilhjálmsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Aðalbjörg Halldórsdóttir, Steinunn S. Sigurðardóttir, Ingólfur S. Ingólfsson, Halldór Sigurðsson, Ester Hjartardóttir, Guðmundur Sigurðsson, Sigrún Kristjánsdóttir, Ragnheiður Sigurðardóttir, Bragi Guðmundsson. Ástkær móðir okkar, dóttir og systir, VERA VAN THI NGUYEN, lést fimmtudaginn 23. október. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, föstudaginn 31. október, kl. 10.30. Máni Cong Van Jósepsson, Dísa Mai Thi Jósepsdóttir, Rósa Ðao Thi Bui, Hoang Thi Tam, Khai Van Nguyen, Huong Thi Nguyen, Hoa Thi Nguyen. M thân yêu, con thân yêu và ngi ch thân yêu ca các chúng em, Gia ình chúng tôi xin cáo tang ngi thân ca chúng tôi là Vera Van Thi Nguyn, mt ngày 23 tháng 10. L a tang s c c hành t nhà th Búðstaðarkirkja vào th sáu lúc 10 gi 30 ngày 31 tháng 10 (t c ngày m ng 7 tháng 10 n m quý mùi âm lch) Hjartkær móðir okkar, GUÐRÚN S. GUÐMUNDSDÓTTIR, Melgerði 21, Reykjavík, andaðist á Skjóli þriðjudaginn 28. október. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurbjörg Axelsdóttir, Guðmundur Axelsson, Ólafía Lárusdóttir, Axel Axelsson, Steinunn Gunnarsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin- áttu við andlát elskulegs föður okkar, tengda- föður, afa, langafa og langalangafa, BJARNA JÓNSSONAR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða fyrir góða og hlýlega umönnun. Ingibergur Vestmann, Jón Vestmann, Bjarni Vestmann, tengdabörn, afabörn, langafabörn og langalangafabarn. Bridgedeild Barðstrendinga og Bridgefélag kvenna Síðasta mánudagskvöld, 27. októ- ber, lauk þriggja kvölda barómeter- keppni félagsins með næsta öruggum sigri þeirra félaga, Sveins Ragnars- sonar og Vilhjálms Sigurðssonar jr. Þeir voru í forystu lungann af mótinu og því vel að sigrinum komnir. Þegar tvær umferðir voru eftir, munaði að- eins 5 stigum í tveimur efstu sæt- unum. Þau áttust við í næst síðustu umferð, Unnar Atli – Jóhannes voru þá í öðru sæti. Sveinn og Vilhjálmur höfðu betur, fengu 15 í plús og nánast tryggðu sér sigurinn í mótinu. Loka- staða efstu para varð þannig: Sveinn Ragnarsson – Vilhjálmur Sig. jr. 115 Unnar Atli Guðm. – Jóhannes Guðm. 64 Jón Guðmar Jónss. – Friðjón Margeirss. 57 Örlygur Örlygsson – Hlynur Antonsson 46 Gunnlaugur Karlss. – Ásmundur Örnól. 39 Eftirtalin pör náðu hæsta skorinu á síðasta spilakvöldinu: Örlygur Örlygsson – Hlynur Antonsson 41 Karl Ómar Jónsson – Rúnar Gunnarsson 36 Jón Guðmar Jónss. – Friðjón Margeirss. 31 Jens Jensson – Jón Steinar Ingólfsson 31 Næst hjá félaginu er þriggja kvölda hraðsveitakeppni sem hefst 3. nóvember. Ef pör mæta stök, mun keppnisstjóri gera sitt besta til að mynda sveitir á staðnum. Allir vel- komnir. Bridsfélag Hafnarfjarðar Önnur lota í minningarmóti um Borgþór Ómar Pétursson fór fram mánudaginn 27. október. 20 pör mættu og spiluðu með Monrad- barometer sniði. Úrslit í annarri lotu urðu þannig: Ómar Óskarsson – Helgi G. Jónsson 61 Ólafur H. Ólafsson – Trausti Valsson 48 Hlöðver Tómasson – Sigurður Tómass. 41 Atli Hjartarson – Sverrir Jónsson 31 Hulda Hjálmarsd. – Halldór Þórólfss. 25 Staða efstu para eftir tvær lotur er þá þannig þegar báðar lotur hafa ver- ið reiknaðar miðað við meðalskor 252: Hulda Hjálmarsd. – Halldór Þórólfss. 577 Atli Hjartarson – Sverrir Jónsson 574 Ólafur H. Ólafsson – Trausti Valsson/ Jón Páll Sigurjónsson 564 Hlöðver Tómass. – Sigurður Tómass. 554 Einar Sigurðsson – Halldór Einarsson 540 Síðasta lota mótsins fer svo fram nk. mánudag, 3. nóvember. Bridsfélag Dalvíkur og Ólafsfjarðar Bridgefélag Dalvíkur og Ólafs- fjarðar hóf starfsemi sína hinn 15. sept. og er spilað í Mímisbrunni á mánudagskvöldum. Byrjað var á nokkrum eins kvölds keppnum meðan spilarar voru að koma sér í rétta gírinn. Þátttaka hef- ur verið með minna móti eða átta pör en von er á fleiri spilurum á næstunni sem ekki eru vaknaðir úr sumar- dvala. Mánudaginn 27. okt. lauk þriggja kvölda tvímenningi þar sem Tomman á Dalvík gaf pítsur í verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Lokastaðan varð þessi: Hákon V. Sigmundss. – Trausti Þóriss. (varam.: Kristján Þorsteinsson) 287 Eiríkur Helgason – Jón A. Jónsson 286 Guðm. Sigurbjörnss. – Þorsteinn Ásgeirss. (varam.: Sigurður Sveinbjörnsson og Tryggvi Guðmundsson) 260 Hinn 3. nóv. hefst svo hinn árlegi Samherjatvímenningur. „Ferskir vindar“ blása í Borgarfirðinum Mánudaginn 27. október mætti 21 par til spilamennsku hjá Bridsfélagi Borgarfjarðar og var spilaður Mitch- ell-tvímenningur, alls 24 spil. Bifrest- ingar, nú þeir Hlynur og Hörður, gefa ekkert eftir og ljóst að þeir munu hrista verulega upp í því munstri sem ríkt hefur hjá félaginu undanfarin ár. Úrslit urðu annars sem hér segir. N-S Sveinbjörn Eyjólfss. – Lárus Péturss. 61.0 Halldóra Þorvaldsd. – Unnur Jónsd. 57.7 Jón Eyjólfsson – Baldur Björnsson 55.4 A-V Hlynur Angantýss. – Hörður Gunnars. 62.2 Þorsteinn Péturs. – Guðmundur Péturs. 57.8 Eyjólfur Sigurjónss. – Jóhann Oddss. 54.4 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.