Morgunblaðið - 25.11.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.11.2003, Blaðsíða 12
FRÉTTIR 12 ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ATLANTSOLÍA áformar að opna bensínstöð í Kópavogi í næsta mán- uði. Að sögn Huga Hreiðarssonar markaðsstjóra hafa öll leyfi fengist fyrir starfseminni við Kársnesbraut 115, skammt fyrir ofan höfnina, þar sem Skeljungur var áður með stöð. Hugi segir að eftir áramót standi til að setja upp sjálfsafgreiðslustöð við Óseyrarbraut í Hafnarfirði, þar sem þjónustustöð félagsins er með sölu á flotaolíu og díselolíu. Að sögn Huga hafa viðbrögðin við þeirri stöð verið mjög góð og ætlun Atlantsolíu sé að fara í samkeppni við hin olíufélögin af fullum krafti. Á föstudag var söluhæsti dagur Atlantsolíu frá því fyrirtækið hóf dreifingu á eldsneyti. Atlantsolía taldi ekki þörf á hækkun á olíuverði hjá fyrirtækinu. Segja talsmenn Atlants- olíu starfsmenn hafa orðið vara við marga nýja viðskiptavini og þá sér- staklega almennum notendum. Atlantsolía hyggst stækka við sig  ERLA Sigríður Grétarsdóttir varði doktorsritgerð sína í klínískri sálfræði hinn 28. júlí sl. frá ríkis- háskólanum í Louisville (Uni- versity of Louis- ville) í Banda- ríkjunum. Titill ritgerðarinnar er „The overlap between anxiety and physical ill- ness in older adults: Empir- ical approach to practical differ- entiation“. Sérsvið Erlu innan klín- ískrar sálfræði er öldrun og fjallar doktorsritgerð hennar um kvíða hjá öldruðum. Í ritgerðinni skoðar höfundur þau vandamál sem felast í því að greina kvíða hjá öldruðum og kemur fram með hugmyndir að lausnum. Meðferðaraðilar hafa átt í miklum erfiðleikum með að greina kvíða hjá eldra fólki vegna skörunar við líkamlega kvilla og vegna tilhneigingar til að telja kvíðaeinkenni eðlilegan hluta af öldrunarferlinu. Margt eldra fólk fær þar af leiðandi ekki tilhlýðilega meðferð við kvíða sem hefur alvar- legar afleiðingar í för með sér. Niðurstöður rannsóknarinnar fyrir aldraða bentu til þess að ýmis hug- ræn einkenni kvíða greini mark- tækt betur en líkamleg einkenni á milli þeirra sem að haldnir eru kvíðakvillum og þeirra sem eru til- tölulega lausir við slíka kvilla. Þessi munur á aðgreiningarhæfni líkamlegra og hugrænna kvíðaein- kenna kom ekki fram í hópi yngra fólks sem einnig var skoðaður í rannsókninni. Raunvísindalegar niðurstöður um þetta efni hafa ekki verið til og er því dokt- orsritgerðin fyrsta skrefið í að finna hagkvæmar og auðveldar leiðir til að greina kvíða hjá öldr- uðum. Doktorsritgerðin var unnin und- ir leiðsögn dr. Suzanne Meeks og ásamt henni voru nefndarmenn doktorarnir Stanley Murrell, Jos- eph Aponte, Janet Woodruff- Borden og Wayne Usui, öll pró- fessorar við The University of Louisville. Gögnin sem dokt- orsverkefnið er unnið úr eru viða- mikil og eru Erla og dr. Meeks að vinna að ýmsum greinum sem styðjast við þetta gagnasafn. Ein þessara greina fjallar um fé- lagskvíða hjá öldruðum og hefur verið samþykkt til birtingar hjá tímaritinu Behavioural Research and Therapy. Erla hefur hlotið marga styrki á meðan á námi hennar stóð í Bandaríkjunum. Meðal annars fékk hún Fulbrightstyrk, Thor Thors styrk, rannsóknarstyrk úr minningarsjóði Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar, styrk frá félagi háskólakvenna, styrk úr rannsóknarsjóði öldrunarráðs, styrk frá ýmsum íslenskum dval- arheimilum aldraðra og styrk frá félagi aðstandenda alzheim- ersjúklinga. Erla Sigríður Grétarsdóttir er fædd 18. júní 1972 og foreldrar hennar eru Sigfríður Þórisdóttir þjónustufulltrúi og Grétar Ómar Guðmundsson, búsettur í Banda- ríkjunum. Stjúpfaðir Erlu er Árni Magnússon, fyrrverandi skóla- stjóri. Erla lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1992 og BA prófi í sálarfræði frá Háskóla Íslands árið 1996. Erla hóf doktorsnám í klínískri sálfræði haustið 1998 og fékk MA gráðu í þeirri grein árið 2002. Erla starfar nú á geðdeild Landspítalans og mun hefja kennslu í öldr- unarsálfræði við Háskóla Íslands í janúar 2004. Eiginmaður Erlu er Gísli Þór Arnarson verkfræðingur. Doktor í klínískri öldrunar- sálfræði AUSTURLENSKAR kræsingar nánast sliga veisluborðin á veit- ingastaðnum Sjanghæ við Laugaveg þessa dagana. Nú er þar í fyrsta skipti kínverskt jólahlaðborð í há- deginu og á kvöldin. Matseðillinn er fjölbreyttur og á honum er að finna um 30 sjávar-, kjöt- og grænmet- isrétti í margvíslegum útfærslum að hætti Kínverja. Magnús Ingi Magn- ússon veitingamaður sem nýlega tók við rekstri Sjanghæ segir kínverska ferðamenn oft sækja staðinn og bera honum vel söguna. Matreiðslumað- urinn Qing Xin Wei sér um elda- mennskuna. Léttur í maga Í kvöld verður auk þess sérstök dagskrá í boði fyrir matargesti Sjanghæ. Þá heldur Unnur Guðjóns- dóttir hjá Kínaklúbbi Unnar sérstakt Kínakvöld með tilheyrandi dagskrá. Unnur, sem hefur boðið upp á ferðir til Kína og fleiri Austurlanda í meira en áratug ár, mun kynna Kína í máli og myndum. Unnur segir kínverskt jólahlaðborð góðan valkost í hlað- borðaflóruna hér á landi. Kínverskur matur sé léttur í maga og magur, ólíkt íslenska jólamatnum. Kínverskt hlaðborð í mið- bænum Morgunblaðið/Árni Sæberg Magnús Ingi Magnússon veitingamaður, Unnur Guðjónsdóttir hjá Kína- klúbbi Unnar, klædd kínverskum búningi, og Qing Xin Wei matreiðslumað- ur við kínverska jólahlaðborðið á Sjanghæ. FIMMFALDA þarf fjárframlög til svonefndra samkeppnissjóða Rann- sóknarráðs ríkisins, RANNÍS, til að efla enn frekar grunnrannsóknir vís- indamanna hér á landi. Þetta er meðal niðurstaðna starfshóps um eflingu grunnrannsókna í heilbrigðis- og lífvís- indum en greinargerð starfshópsins var kynnt í fyrirlestri í Læknagarði Háskóla Íslands í gær. Framlög þess- ara sjóða námu tæpum 100 milljónum króna á síðasta ári til heilbrigðis- og líf- vísinda þannig að ef tillögurnar ná fram að ganga yrðu framlögin um 500 milljónir króna á ári. Heildarupphæð styrkja frá RANNÍS er um 400 millj- ónir króna en þyrfti að mati vísinda- manna að vera um tveir milljarðar króna. Eru þessir sjóðir sagðir kjöl- festa grunnrannsókna á Íslandi og því mikilvægt að efla þá til muna. Magnús Karl Magnússon, læknir og sérfræðingur í blóðmeinafræði, fór fyrir starfshópnum og flutti fyrirlest- urinn í gær. Með honum í hópnum voru tíu aðrir vísindamenn. Hann segir að núverandi staða þessara sjóða RANNÍS valdi vísindamönnum verulegum áhyggjum og hún sé í raun óviðunandi. Snúa þarf þróuninni við Magnús Karl segir að framlögin til grunnrannsókna í dag komi að mestu leyti frá rekstrarfé viðkomandi stofn- ana, ekki úr samkeppnissjóðunum. Mikilvægt sé að snúa þessari þróun við, líkt og nágrannaþjóðir hafi áttað sig á. Góðir vísindamenn sem ná ár- angri, og eru duglegir að afla sér styrkja, eigi ekki að gjalda þess með því að krefjast mótframlaga frá stofn- unum sem þeir starfa hjá. „Víða erlendis fer þetta þannig fram að til viðbótar þeim styrkjum sem fara til vísindamannsins sjálfs rennur hlut- fall fastakostnaðar til stofnunarinnar sem hann starfar við. Sá peningur nýt- ist til innri uppbyggingar í viðkomandi vísindadeild. Í dag er þessu öfugt farið hér þegar stór styrkur frá RANNÍS til vísindamanns þýðir aukið mótframlag frá rannsóknastofnun hans. Með þessu er verið drepa í dróma aðrar rannsókn- ir hjá stofnuninni,“ segir Magnús Karl. Í greinargerð starfshópsins er bent á að framlög hins opinbera til rann- sókna og þróunar eru hæst hér á landi meðal OECD-landa, eða um 1,2% af vergri þjóðarframleiðslu. Magnús Karl segir það mótsagnarkennt að á sama tíma séu samkeppnissjóðir RANNÍS minni en gerist og gengur og ráðstöfunarfé þeirra hafi staðið í stað undanfarin 15 ár. Tekur hann dæmi um Finna, sem hafi lagt mikla áherslu á grunnrannsóknir til að efla vöxt efnahagslífsins. Þar í landi séu framlög hins opinbera til heilbrigðis- og lífvísinda fimmfalt meiri en hér á landi. Miðað við hverja 280 þúsund íbúa séu framlögin 500 milljónir króna á móti 96 milljónum hér á landi. Ef horft sé til Bandaríkjanna séu framlögin þar fimmtán sinnum meiri til samkeppnissjóða en hér, eða um 1,5 milljarðar króna á hverja 280 þús- und íbúa. Framlögin endurspegla ekki raunveruleikann Hér á landi geta vísindamenn vænst þess að einstök verkefni fái að meðaltali 1,3 milljónir króna í rann- sóknastyrk. Að sögn Magnúsar er tal- ið að launa- og efniskostnaður við hvert rannsóknaverkefni sé um 6 milljónir á hvern starfsmann eða nema. Ótalinn sé fastakostnaður eins og tækjabúnaður og ferðalög vegna þinga. Framlögin í dag endurspegli ekki þann raunveruleika sem við vís- indamönnum blasi. Þetta muni leiða til ómarkvissrar vísindastefnu, þverr- andi gæða þeirra rannsókna sem stundaðar séu og vinni gegn nýliðun í vísindastarfseminni. „Við gerum þær kröfur að styðja einungis þau vísindi sem hafa farið í gegnum svokallað jafningjamat í sam- keppnissjóðum eins og hjá RANNÍS, þar sem aðrir vísindamenn meta um- sóknir starfsbræðra sinna. Þarna skapast drifkraftur hugmyndanna og í sjóðunum fer fram valið á bestu verk- efnunum. Þess vegna viljum við efla sjóðina,“ segir Magnús Karl. Í greinargerð starfshópsins segir m.a. að öflugir samkeppnissjóðir séu drifkraftur vísinda og forsenda rann- sókna- og þróunarstarfs háskóla, stofnana og fyrirtækja. Þeir séu besta aðferðin til að tryggja gæði rann- sókna, efla nýliðun í vísindasamfélag- inu og auka möguleika samfélagsins til að svara breyttum aðstæðum á hverjum tíma. Rannsóknatengt nám gjaldþrota Segir ennfremur í greinargerðinni að þrátt fyrir góðan árangur margra vísindamanna hér á landi séu því mið- ur blikur á lofti. Á sama tíma og vel menntuðu fólki á þessu fræðasviði; heilbrigðis- og lífvísindum, fari fjölg- andi fari fjármagnið til samkeppnis- sjóðanna þverrandi. „Við óbreytt ástand er ekki annað framundan en að efnilegir ungir vís- indamenn muni ekki geta fundið starfsvettvang hérlendis og rann- sóknatengt nám í þessum fræðigrein- um við Háskóla Íslands verði gjald- þrota í þann mund sem það er að ná góðum þroska. Slíkt mundi að sjálf- sögðu hafa alvarlegar afleiðingar fyr- ir atvinnulífið í heild og þá sérstak- lega lyfja- og líftækniiðnað á Íslandi,“ segir í greinargerðinni. Staða samkeppnissjóða RANNÍS og grunnrannsókna á Íslandi Morgunblaðið/Eggert Magnús Karl Magnússon læknir flytur fyrirlestur sinn í Læknagarði HÍ í gær. SAMSTARFSHÓPURINN um efl- ingu grunnrannsókna í heilbrigðis- og lífvísindum leggur til eftirfarandi til- lögur í greinargerð sinni:  Auka verulega framlög til sam- keppnissjóða RANNÍS. Hægt verði að sækja árlega um 5-10 milljóna styrki sem á sviði heil- brigðis- og lífvísinda yrðu a.m.k. 40. Veita veglega rannsóknastyrki sem gera íslenskum vísindamönnum kleift að keppa við jafnoka sína er- lendis.  Efla „öndvegisstyrki“ þannig að þeir verði sambærilegir við styrki NIH í Bandaríkjunum, National Institute of Health. Styrkjum til afburða vísindamanna verði fjölgað í 8 og upphæð hvers styrks verði 15-20 milljónir kr. á ári í fimm ár.  Efla rannsóknanámssjóð. Lagt er til að ráðstöfunarfé sjóðsins verði hækkað í a.m.k. 200 milljónir.  Fjölga rannsóknastöðustyrkjum og efla þá. Styrkirnir þyrftu að vera 3-4 á ári til þriggja ára í senn, þannig að þeir dygðu fyrir launum og rann- sóknatengdum útgjöldum.  Stofna „heimanmundarstyrki“. Við flesta erlenda háskóla og stofn- anir fá nýir starfsmenn heim- anmund sem þeir nýta til að koma sér fyrir á nýjum stað með tilheyr- andi búnaði og tækjum. Tillögur til eflingar grunnrannsókna Fimmfalda þarf fjárfram- lög að mati starfshóps
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.