Morgunblaðið - 25.11.2003, Blaðsíða 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003 17
#38 GAMLA HÖFNIN Í
REYKJAVÍK
ICELAND REVIEW
ÁSKRIFTARSÍMI 512-7517
askrift@icelandreview.com
HVERS VEGNA ÍSLAND?
40 ÁSTÆ‹UR
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Nýverið var þingmaður úr röðum
Kristilega demókrataflokksins,
Martin Hohmann að nafni, gerður
brottrækur úr flokknum fyrir
meinta gyðingaandúð. Hann
neitar sök. Er hér pólitísk rétt-
hugsun að kæfa réttmæta um-
ræðu eða er það rétt að gyðinga-
andúð (andsemítismi) sé að
vaxa fiskur um hrygg í vissum
kreðsum í „landi gerenda“ Hel-
fararinnar?
Hohmann er gyðingahatari. Ef
hann er það ekki er enga gyðinga-
hatara og engan andsemítisma að
finna í Þýzkalandi. Það er hins veg-
ar svo, að margir Þjóðverjar – þar á
meðal Hohmann og þeir sem mæla
honum bót – setja viðmiðið mjög
hátt. Þannig sé andsemítismi bara
þegar sex milljónir gyðinga eru
myrtar, allt undir því séu smámun-
ir. En Helförin var ekki hreinrækt-
aður andsemítismi, hún var þjóðar-
morð. Setji maður „hina endana-
legu lausn“ sem viðmið eru öll
viðmið ómerk. Það var til andsemít-
ismi fyrir Helförina og hann er til
eftir hana. Þeir sem bera gyðinga-
andúð í brjósti eru ekki endilega hugsanlegir morð-
ingjar. Og í Þýzkalandi kemur á hálfs árs fresti upp
umræða um það hvað andsemítismi sé. Nú hefur orðið
til ný skilgreining, sem mörgum Þjóðverjum hugnast:
Ef Ísraelar fara illa með Palestínumenn, þá er það
andsemítismi.
Þegar stefna Ísraelsstjórnar er gagnrýnd er oft
brugðizt við henni með ásökun um að gagnrýnin sé
andsemítismi. Ísraelski forsætisráðherrann Sharon
brást t.d. þannig við fréttum af niðurstöðum nýlegr-
ar viðhorfskönnunar, þar sem fram kom að 59%
íbúa ESB-landa telja Ísrael ógn við heimsfriðinn.
Mega Þjóðverjar – eða Evrópumenn yfirleitt – ekki
gagnrýna Ísrael án þess að fá á sig gyðingahatara-
stimpil?
Allir mega gagnrýna alla. En þegar nærri 60% Evr-
ópubúa og jafnvel 65% Þjóðverja telja að Ísrael sé
mesta ógnin við heimsfriðinn, þá er það ekki lögmæt
gagnrýni á stefnu Ísraels, heldur ný útgáfa af hinni
gömlu tuggu um gyðinga sem undirrót misklíðar í
heiminum. Tétsnía, Afganistan, Írland, átökin milli
Indverja og Pakistana, ekkert af þessu raskar ró Evr-
ópubúa. Þeir hafa helzt áhyggjur af Palestínu, því að
þar eiga gyðingar í hlut, hinn sameiginlegi óvinur. Því
miður er andsemítismi engin sérgrein Þjóðverja, held-
ur hluti evrópskrar menningar og arfleifðar.
Í Þýzkalandi, Frakklandi og víðar
í Evrópu búa margir múslimar.
Sérð þú samhengi milli fjölgunar
múslima í Evrópu og meints vaxt-
ar gyðingaandúðar í álfunni?
Hér hangir ýmislegt saman.
Múslimar hafa lært andsemítism-
ann af Evrópumönnum og Evrópu-
mennirnir vona að múslimarnir í
Palestínu ljúki því verki sem nazist-
arnir náðu ekki að klára í Evrópu.
Andsemítisminn er minnsti sam-
nefnarinn sem Evrópumenn og
múslimar geta sameinazt um; þeir
eiga annars fátt sameiginlegt.
Stórt minnismerki um Helförina
er að rísa í miðri Berlín. Það er
umdeilt og er hlé varð á smíðinni
í haust komu upp áskoranir um
að hætta alveg við hana – m.a.
frá Rafael Seligmann, þekktum
þýzkum gyðingi; minnismerkið
sé ekki til annars fallið en að
spilla fyrir því að um heilt grói í
samskiptum gyðinga og Þjóð-
verja. Hvað segir þú um þetta?
Seligmann hefur reyndar aldrei
þessu vant rétt fyrir sér hér, en
honum segist vera umhugað um „samræðu gyðinga og
Þjóðverja“. Staðreyndin er sú að hún hefur aldrei átt
sér stað því gyðingar hafa allan tímann bara talað til
sjálfra sín. Helfarar-minnismerkið er uppfinning Þjóð-
verja, sem vilja sættast við eigin sögu. Helförinni var
miðstýrt og það á líka að miðstýra því hvernig hennar
er minnzt.
Í grein eftir þig í Der Spiegel (titill: „Frekar ger-
endur en fórnarlömb“) segir: „Meðal gyðinga lifir
sú ósk að vilja ekki lengur vera fórnarlömb. Að vera
blóraböggull í 2000 ár er meira en nóg.“ Hvaða
ályktun ber að draga af þessu að þínu mati? Er
þetta ekki grundvöllur zíonismans?
Jú, mikið rétt. Gyðingar voru hin sígildu fórnar-
lömb, núna eru Ísraelar gerendurnir – gagnvart Pal-
estínumönnum. En þeir eiga alltaf á hættu að verða
fórnarlömb: arabar hafa efni á því að tapa hverju stríð-
inu á fætur öðru og byrja upp á nýtt að því loknu. Ísr-
ael getur ekki leyft sér að tapa neinu stríði, það þýddi
endalok gyðingaríkisins. Zíonisminn var stórfengleg
tilraun sem hafði það að markmiði að leysa „vanda
gyðinga“. Því miður höfðu zíonistarnir rangt fyrir sér
hér. „Gyðingavandann“ er ekki hægt að leysa, hvorki
með aðlögun [gyðinga að þeim meirihlutasamfélögum
sem þeir búa í] né með stofnun eigin ríkis.
Spurt og svarað | Henryk M. Broder
Frekar gerendur
en fórnarlömb
Henryk M. Broder er þekktur blaðamaður þýzka vikuritsins Der Spieg-
el. Hann er pólskur gyðingur að uppruna en ólst upp í Austurríki og
Þýzkalandi og býr í Berlín. Hann hefur verið atkvæðamikill í opinberri
umræðu í Þýzkalandi um ýmis mál líðandi stundar, þ.á m. um samskipti
gyðinga og Þjóðverja. Hann svarar hér spurningum þar að lútandi.
Henryk M. Broder
’ „Gyðingavand-ann“ er ekki hægt
að leysa, hvorki
með aðlögun né
með stofnun eigin
ríkis. ‘
Auðunn Arnórsson | auar@mbl.is