Morgunblaðið - 25.11.2003, Page 18

Morgunblaðið - 25.11.2003, Page 18
Nýr revíufarsi verð-ur frumsýndur áMelum í Hörg- árdal á föstudag kl. 20.30. Verkið heitir Fiðringur og er farsi með söngvum eftir Aðalstein Bergdal leikara, sem jafnframt leikstýrir verkinu. „Þetta er leik- verk af léttasta taginu þar sem leikarar leyfa sér að sprella á nótum farsans,“ segir um verkið. Leikritið gerist í hádegisverðarhléi hjá sorphreinsunarmönn- um og líkt og gengur og gerist í slíkum verkum kemur upp misskilningur sem stefnir í að verða meiriháttar vandamál, en ekki er allt sem sýnist. Verkið er að sögn einungis hugsað til að fá fólk til að hlæja ofurlítið eina kvöld- stund í skammdeginu. Fiðringur Félagar Kvenfélags Sjúkrahúss Siglufjarðarhéldu nýlega upp á 50 ára afmæli félags síns.Félagið hefur safnað fé til gjafa vegna tækja- búnaðar og ýmissa annarra muna til sjúkrahússins og einnig Skálarhlíðar. Upphæðirnar sem félagið hefur safnað skipta tugum milljóna. Á myndinni er núverandi stjórn, talið frá vinstri: Björg Friðriksdóttir, Svava Bjarnadóttir, Magðalena Hallsdóttir, sem hefur verið formaður í alls 22 ár, Guðbjörg Friðriksdóttir, Björk Hallgrímsson og Halldóra Jónsdóttir. Ljósmynd/Steingrímur Kristinsson Hálfrar aldar afmæli Fagridalur | Þegar sólin lækkar á lofti og dimmasti tími skamm- degisins nálgast eru morg- unsólin og sólarlagið oft í ein- staklega fallegum lit. Litirnir verða meiri og dýpri, loftið breytir gersamlega um lit og skartar öllum tónum rauðu og gulu litanna og landslag verður eins og skuggamyndir. Þessar breytingar gerast mjög hratt og þess vegna eru aldrei tvær myndir eins, þó að þær séu teknar með mínútu millibili. En það styttist óðum í vetr- arsólstöður sem eru 22. desem- ber. Við þau tímamót fer daginn aftur að lengja. Í Almanaki Háskólans segir að þegar daginn fer að lengja á ný, virðast áhrifin meiri síðdegis en að morgninum. Fyrsta mán- uðinn breytist tími sólarupp- rásar um þrjá stundarfjórðunga samkvæmt klukkunni en sól- setri seinkar á sama tíma um fimm stundarfjórðunga eða þar um bil. Þetta stafar af því að há- degið - sá tími þegar sól er hæst á lofti - hefur færst til um stund- arfjórðung á þessum mánuði, þ.e. hádeginu hefur seinkað eft- ir klukkunni að dæma. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Kvöldsólin litar loftið Reynisdrangar LANDSVIRKJUN hefur samið við þýska fyrirtækið DSD Stahlbau GmbH um að sjá um stálfóðrun fallganga Kárahnjúkavirkj- unar en samningar voru undirritaðir í síð- ustu viku. Samningsupphæðin samsvarar nálægt 2,3 milljörðum króna án virðisauka- skatts. Tilboð sem bárust frá fjórum aðilum voru opnuð í verkið 5. júní og öll voru nokk- uð undir kostnaðaráætlun Landsvirkjunar. Verkið felst í deilihönnun, framleiðslu og uppsetningu á stálfóðringum í tvenn lóð- rétt fallgöng við stöðvarhús Kárahnjúka- virkjunar í Fljótsdal. Fallgöngin eru rúm- lega 400 metra há frá inntaksmannvirki við enda aðrennslisganga efst inni í Valþjófs- staðafjalli niður að stöðinni. Stöðvarhúsið er um kílómetra inni í fjallinu skammt inn- an við Valþjófsstað. Heildarstálmagn er um 3.500 tonn. Framleiðsla búnaðarins hefst nú í vetur en uppsetning bíður til ársins 2005. Verklok eru áætluð í árslok 2006. Þjóðverjar annast fóðr- un fallganga Morgunblaðið/RAX FRÆÐSLURÁÐ Hafnarfjarðarbæjar hefur samþykkt sumarlokanir á leikskól- um bæjarins næstu þrjú árin og með því móti er reynt að koma á móts við óskir og þarfir foreldra og forráðamanna leikskóla- barna. Fimmtán leikskólar eru í bænum með um 1.300 börn og eru flest þeirra á aldrinum tveggja til sex ára. Leikskólar bæjarins hafa fram að þessu verið lokaðir í júlí og fram yfir verslunar- mannahelgi en nú verður breyting þar á. Sumarlokanir á leikskólunum skiptast í tvö tímabil, um er að ræða tvö fimm vikna tímabil hvert ár og að u.þ.b. helmingur leikskóla bæjarins verði lokaður hvort tímabil. Árið 2004 nær fyrra tímabilið frá 21. júní–22.júlí en seinna tímabilið frá 12.júlí–13. ágúst. Þetta kemur fram á heimasíðu Hafnar- fjarðar og þar má sjá lista um sumarloka- nir leikskóla bæjarins 2004–2006. Sumarlokanir skipulagðar       Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Formleg opnun | Fræðslumiðstöð at- vinnulífsins var formlega opnuð á föstudag en Alþýðusamband Íslands og Samtök at- vinnulífsins stofnuðu hana í desember í fyrra og hófst starfsemin í haust. Hlutverk Fræðslu- miðstöðvarinnar er að vera samstarfsvett- vangur stofnaðilanna um fullorðinsfræðslu og starfsmenntun í sam- starfi við aðrar fræðslu- stofnanir á vegum aðild- arsamtaka ASÍ og SA. Markmiðið er að veita starfsmönnum, sem ekki hafa lokið prófi frá framhaldsskóla, tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína á vinnu- markaði. Starfsemin byggir á samþykktum félagsins sem stendur að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og þjónustusamningi sem gerður hefur verið við menntamálaráðu- neytið, en Tómas Ingi Olrich mennta- málaráðherra flutti ávarp við athöfnina. Úr bæjarlífinu Tómas Ingi Olrich HÉÐAN OG ÞAÐAN Stýrir minningarsafni | Forsætisráðu- neytið hefur ráðið Guðnýju Dóru Gests- dóttur í starf framkvæmdastjóra Minning- arsafns um Halldór Laxness að Gljúfrasteini frá og með 1. janúar 2004. Guðný Dóra er ferða- málafræðingur að mennt og hefur á undanförnum árum starfað að ýmsum ferða- og kynning- armálum. Sem atvinnu- og ferðamálafulltrúi Mosfellsbæjar stýrði hún undirbúningi og framkvæmd Lax- nesshátíðar árið 2002. Þá annaðist hún skipulagningu norrænnar ráðstefnu for- stöðumanna rithöfunda- og tónskáldasafna sem haldin var hér á landi í október 2003. Guðný Dóra Gestsdóttir Tekur sæti ráðherra | Á fulltrúaráðs- fundi Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldinn var á föstudag var Þorvaldur Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar í Sveitarfélaginu Árborg, kosinn aðalmaður í stjórn sambandsins í stað Árna Magn- ússonar félagsmálaráðherra. Þá var Jóhannes Bárðarson varaborg- arfulltrúi kosinn varamaður í fulltrúaráð í stað Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur og Ragnheiður Hergeirsdóttir, Árborg, vara- maður Torfa Áskelssonar, Árborg. Séra Hjálmar Jónssonorti um atburða-rásina í viðskiptalíf- inu síðustu daga: Undarlegur er sá fjári ekki veit ég hverju þjónar að hafa í laun á einu ári eins og 100 meðaljónar. Kristján Eiríksson setti málin í víðara samhengi: Betra er að slá í banka lán og bankann síðan kaupa en að stunda rupl og rán með reiddan hníf - og hlaupa. Svo eru skiptar skoðanir um Kárahnjúka. Ólína Þorvarðardóttir orti: Kalt er við Kárahnjúka kostur þar naumur bíður klórar sér kalinn um búka krókloppinn verkalýður. Já, kalt er við Kárahnjúka. Kulið beitir menn hörðu. Um tindana fannir fjúka og frost þiðnar aldrei úr jörðu. Ófriðar eru þar læti enga finna menn hlýju og fái þeir eitthvert æti það efalaust veldur þeim klígju. 100 meðaljónar pebl@mbl.is ♦ ♦ ♦ Borgarnes | Lionsklúbburinn Agla færði Dvalarheimili aldraðra í Borg- arnesi lyftubaðstól að gjöf nýlega. Helga Helgadóttir, talsmaður Öglu, lét þess getið við afhendinguna að stóllinn væri fyrst og fremst gjöf frá íbúum sveitarfélagsins sem hefðu stutt ötullega við fjáröflun klúbbsins. Margrét Guðmundsdóttir veitti stólnum viðtöku og þakkaði fyrir höfðinglega gjöf auk þess sem hún ítrekaði að Dvalarheimilið ætti íbúum sveitarfélagsins mikið að þakka fyrir stuðning og hlýhug gegnum árin. Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Frá vinstri: Steinunn Ásta Guðmundsdóttir, Helga Helgadóttir, Þóra Björgvinsdóttir frá Lionsklúbbnum Öglu, Elín Björg Magnúsdóttir og Mar- grét Guðmundsdóttir frá Dvalarheimilinu – með lyftubaðstólinn á milli sín. Nýr lyftubaðstóll gefinn á Dvalarheimilið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.