Morgunblaðið - 25.11.2003, Qupperneq 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003 21
Reykjanesbær | „Ég vil hvetja bæj-
arbúa til að leggja til hugmyndir að
skipulagi lífæðarinnar. Okkur vant-
ar góðar hugmyndir,“ sagði Árni
Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanes-
bæjar, við upphaf sýningarinnar
Betri bær í Kjarna sl. laugardag. Á
sýningunni eru meðal annars kynnt-
ar þær breytingar sem orðið hafa á
lífæð bæjarins, það er að segja á leið-
inni frá Njarðvíkurfitjum að Duus-
húsum í Keflavík, en miklar end-
urbætur hafa verið gerðar á þessari
leið að undanförnu.
Framkvæmdum er þó hvergi
nærri lokið og eins og Árni benti á
verða góðar hugmyndir að óskipu-
lögðu svæði vel þegnar. Til hvatn-
ingar fyrir sýningargesti hefur ver-
ið settur upp hugmyndabás þar sem
ýmsum hugmyndum er varpað
fram, meðal annars erlendis frá.
Auk kynningar á fegrun Reykja-
nesbæjar er einnig vakin athygli
gönguleiðum í Reykjanesbæ og á
Reykjanesskaganum öllum, einnig
þeim framkvæmdum sem unnar
hafa verið við tvöföldun Reykjanes-
brautar og þær sem stendur til að
gera, samkvæmt skipulagi. „Reykja-
nesbrautin fæðir lífæðina og því
skiptir máli hvernig framkvæmdum
er háttað,“ sagði Árni Sigfússon
bæjarstjóri í setningarræðu sinni en
í bás Vegagerðinnar eru myndir frá
framkvæmdunum sem ekki hafa
verið sýndar opinberlega áður.
Ekki var annað að heyra á gestum
sýningarinnar en almenn ánægja
væri með hugmyndirnar og þær
framkvæmdir sem unnar hafa verið
og sýndar eru bæði í formi mynda
og texta. Bjarni Marteinsson, arki-
tekt á Arkitektastofu Suðurnesja,
sem á veg og vanda að sýningunni
sagði við opnunina að það væri ótrú-
legt hvað bærinn hefði breyst mikið
á stuttum tíma. „Og hann á enn eftir
að breytast mikið,“ lagði Bjarni
áherslu á.
Sýningin verður opin út nóv-
ember.
Hönnunarsýningin Betri bær hefur verið opnuð í göngugötunni í Kjarna
Óskað eftir góðum hugmyndum
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Hugmyndir óskast: Íbúar Reykjanesbæjar eru hvattir til að koma með hugmyndir að nýtingu svæða.
Stútur við stýrið | Grunur er
um að ölvun við akstur hafi valdið
tveimur umferðaróhöppum í um-
dæmi lögreglunnar í Keflavík að-
faranótt laugardags. Þrír gistu
fangageymslur vegna þessara at-
vika.
Fram kemur í dagbók lögregl-
unnar að um klukkan eitt um nótt-
ina var tilkynnt um fólksbifreið á
hvolfi við gatnmót Flugvallarvegar
og Frekjunnar í Reykjanesbæ.
Þegar lögreglan kom á staðinn var
ökumaður á bak og burt, en að
sögn vitna hafði hann verið undir
áhrifum áfengis.
Eftir skamma leit hafði lögreglan
uppi á ökumanninum sem var
handtekinn og færður til lög-
reglustöðvar. Þar fékk hann að
sofa úr sér áfengisvímuna auk þess
sem taka þurfti skýrslu af honum
næsta morgun. Mildi þykir að hann
slapp án meiðsla en bifreiðin
skemmdist nokkuð.
Upp úr klukkan hálf fjögur um
nóttina var tilkynnt um grun-
samlegan akstursmáta ökumanns
bifreiðar við hesthúsahverfi Kefl-
víkinga á Mánagrund.
Lögreglumenn komu skömmu
síðar að bifreið sem var utan vegar
og voru þrjú ungmenni í næsta ná-
grenni hennar. Tvö þeirra, ölvaðir
18 og 20 ára gamlir menn, voru
teknir höndum og færðir í fanga-
klefa þar sem þeir fengu að sofa úr
sér áfengivímuna auk þess sem
ræða þurfti við þá næsta dag.
Með þeim í för var 14 ára stúlka.
Mennirnir voru grunaðir um að
hafa stolið bifreiðinni fyrr um nótt-
ina. Einhverjar skemmdir urðu á
bifreiðinni.
Jólaskrauti stolið | Lögreglan
fékk tilkynningu um það á sunnu-
dagsmorgun að jólaskrauti hafi
verið stolið úr húsagarði í Grinda-
vík.
Um var að ræða 40 kílóa þungan
sleða sem var þakinn jólaljósum og
á honum voru jólasveinar úr plasti.
Síðar sama dag tilkynnti eigandi
jólaskrautsins að því hafi verið skil-
að.
Hafnir | Eldur kviknaði í íbúðarhúsi
í Kirkjuvogshverfi í Höfnum í gær-
morgun. Skemmdir urðu á geymslu
og anddyri við húsið en íbúarnir
urðu varir við eldinn og komu sér
út.
Brunavarnir Suðurnesja fengu
tilkynningu klukkan rúmlega sex í
gærmorgun um eld í parhúsi í Höfn-
um. Slökkviliðið fór þegar á staðinn
og kallaði út aukamannskap. Sig-
mundur Eyþórsson slökkviliðsstjóri
segir að þegar slökkviliðsmenn
komu á vettvang hafi eldur staðið
upp úr anddyri og geymslu sem
byggð er við húsið. Rúður í glugg-
um milli geymslunnar og íbúðar-
innar hafi verið farnar að hitna og
litlu mátt muna að eldur bærist inn í
þvottahús og þaðan áfram um íbúð-
ina. Slökkviliðinu tókst að ráða nið-
urlögum eldsins á skömmum tíma.
Hjón sem voru í húsinu urðu elds-
ins vör og létu vita. Þau komu sér
sjálf út. Slökkviliðið lét í örygg-
isskyni einnig rýma hina íbúð par-
hússins.
Anddyrið og geymslan eyðilögð-
ust og það sem var í geymslunni.
Litlar skemmdir urðu á húsinu
sjálfu.
Eldsupptök eru í rannsókn hjá
lögreglu en Sigmundur segir að raf-
magn sé ekki í geymslunni þar sem
eldurinn virðist hafa komið upp og
því hafi vaknað grunur um íkveikju,
annaðhvort af mannavöldum eða
vegna sjálfsíkveikju.
Logaði upp úr
þaki anddyris
Bátar rákust saman | Tveir
bátar rákust saman í Grindavík-
urhöfn að morgni síðastliðins föstu-
dags. Gat kom á annan þeirra og
var lekinn svo mikill að nauðsyn-
legt reyndist að hífa hann upp á
bryggju. Engin meiðsli urðu á
mönnum.