Morgunblaðið - 25.11.2003, Síða 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003 23
Hveragerði | Fimleikadeild Ham-
ars hélt fyrir skömmu mót í hóp-
fimleikum. Kallaðist mótið „Míní“
trompmót þar sem það var ætlað
þeim hópum sem eru að byrja að
æfa hópfimleika. Mót sem þetta er
ætlað sem undirbúningur fyrir
hópana áður en haldið er á stærri
mót.
Á mótinu var eingöngu keppt á
dýnu og trampolíni – en vanalega
er líka keppt í dansi. Tveir elstu
fimleikahóparnir í Hamri aðstoð-
uðu stjórn og þjálfara deildarinnar
við framkvæmd mótsins og stóðu
þeir sig með stakri prýði. Þátttak-
endur stóðu sig allir mjög vel og
var áberandi hvað allir voru prúðir
meðan á keppni stóð.
Keppendur voru á aldrinum 8 til
18 ára, en áttu það allir sammerkt
að vera byrjendur í hópfimleikum.
Ellefu hópar kepptu í yngri flokki
en fjórir hópar í þeim eldri. Liðin
samanstóðu af 6 - 12 keppendum
og voru keppendur um eitthundrað
og þrjátíu talsins. Þátttakendur
komu frá Flúðum, Selfossi, Bisk-
upstungum, Hafnarfirði, Laug-
arvatni, Akranesi og Hveragerði.
Úrslit mótsins urðu
í eldri flokki
Bjarkirnar – hópur I.2a í 1. sæti
Bjarkirnar – hópur I.2b í 2. sæti
Laugdælir – hópur T1 í 3. sæti
Laugdælir – hópur T2 í 4. sæti
Í yngri flokk
FIMA – hópur M í 1. sæti a
Björk – hópur J.1 í 1 sæti b
Hrunamenn – hópur T1 í 2. sæti
Selfoss – hópur D-11 í 3. sæti
Nokkrir aðilar styrktu mótið.
Þeir voru Kjörís sem gaf öllum
keppendum íspinna, Mjólk-
ursamsalan sem gaf öllum kepp-
endum safa, Plastmótun sem gaf
verðlaunapeningana, Ás – Dval-
arheimili sem gaf gjafir til dóm-
ara. Hverabakarí og Krónan sáu
um bakkelsi fyrir dómara og þjálf-
ara.
Fjölmennt fimleikamót
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Sumir tóku lukkudýrin með á mótið.
Góð frammistaða og þátttakendur einstaklega prúðir
Mi›vikudaginn 26. nóvember
Kl. 17 -18
Kennslustofunni á Landakoti (6. hæ›, lyfta)
Beinvernd býður þeim sem þjást af beinþynningu og
aðstandendum þeirra til opins umræðufundar miðvikudaginn
26. nóvember kl. 17 - 18 í kennslustofunni á Landakoti. Dr.
Björn Guðbjörnsson mun flytja erindi um lífsgæði og bein-
þynningu og að því loknu verða opnar umræður með þátttöku
sérfræðinga frá Beinvernd.
Beinvernd eru landssamtök áhugafólks um beinþynningu,
jafnt leikra sem lærðra. Þú getur gerst félagi með því að
hringja í síma 897 3119 eða skráð þig á www.beinvernd.is
www.beinvernd.is
Opi› hús
hjá Beinvernd