Morgunblaðið - 25.11.2003, Blaðsíða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003 25
TVENNIR kórtónleikar voru haldnir síð-
astliðna helgi. Þeir mynda samfellu að því leyti
til, að Kór Langholtskirkju er að horfa yfir
farinn veg eftir langt og farsælt starf en nýr
kór Áskirkju er að hefja sína göngu og stofna
til átaka við stórverkefni kórsögunnar.
Messías eftir Handel
Um það leyti sem Handel vann við að semja
Messías hafði hann upplifað mikla erfiðleika
við að halda úti óperufyrirtæki sínu, svo að
þær sögur gengu í London, að hann væri
gjaldþrota, sem mun ekki hafa átt við rök að
styðjast, þótt flutningurinn á síðustu óperu
hans hafi fallið. Handel hafði áður átt gott
samstarf við tónleikahaldara í Dublin og þar
sem Lundúnabúar höfðu að nokkru snúið við
honum baki, og m.a. var því jafnvel haldið
fram í Daily Post að hann hygðist flytja til
Þýskalands, var Dublin besti kosturinn og er
skemmst frá því að segja, að þar hlaut Messías
frábærar viðtökur. Þegar verkið var fyrst flutt
í London, 23. mars 1743, auglýsti hann það
sem nýtt trúarlegt óratóríó, til að „móðga“
ekki neinn, nokkuð sem mistókst, því í dag-
blöðum, áður en verkið var frumflutt, var
flutningur þess í leikhúsi (Covent Garden)
kallaður guðlast. Baksvið þessa voru deilur
meðal manna um trúmál, evangalista, meþód-
ista og jafnvel púrítana, sem voru andsnúnir
allri „nautnahyggju“ í listum. Verkið féll og
það var ekki fyrr en 1750, sem Lundúnabúar
tóku þetta meistaraverk að fullu í sátt.
Það sem var sérstakt við flutning Messíasar
eftir Handel í Langholtskirkju sl. sunnudag er
að hér gat að heyra eins konar uppskeru-
tónleika, þar sem margir þeir sem frá upphafi
hafa starfað í Kór Langholtskirkju, undir
stjórn Jóns Stefánssonar, mættu til leiks, bæði
kórfélagar og þeir sem síðar leituðu sér fram-
haldsmenntunar á sviði sönglistar.
Kórinn taldi ríflega stórt hundraðið og með
sex einsöngvurum og 28 manna hljómsveit
náði hópurinn í heild alls vel hálfu öðru hundr-
aðinu. Þó er sagan ekki öll sögð, því flutning-
urinn var einstaklega glæsilegur og oft stór-
kostlega áhrifamikill og því mikill listasigur
fyrir Jón Stefánsson og flytjendur alla sem
einn.
Hljómsveitin lék mjög vel, strengirnir sam-
stilltir, þó á einstaka stað mætti heyra
áherslutónana stytta, líklega samkvæmt ósk
stjórnandans og úreltri gamalhyggju, svo sem
heyra mátti í upphafskaflanum (Grave), sem
gerði alvöruþrungið tónferlið höktandi. Þetta
eru að vísu smámunir á móti öðru góðu hjá
hljómsveitinni. Hljómsveitarrithátturinn er
nánast allur í strengjunum og óbóið og fagott-
inn tvöfalda að mestu kórraddirnar, eins og
strengirnir. Í Halelújakórnum bætast við
trompetraddir og pákur. Í aríunni The trum-
pet shall sound var trompeteinleikur Ásgeirs
Steingrímssonar sérlega glæsilegur. Þessi ein-
faldi ritháttur átti sinn þátt í að margir ágætir
tónlistarmenn, m.a. Mozart, reyndu að end-
urbæta hljómsveitarútfærsluna, en allar út-
færslurnar hafa verið dæmdar óhæfar, því hjá
Handel fer saman í hljómsveit, kór og ein-
söngsröddum nokkuð sem nefna mætti heil-
stæða tónræna hugsun, sem í engu verður
endurbætt.
Svona til að agnúast yfir smámunum, þá var
í efnisskrá (nema í texta Árna Heimis) hvergi,
hvorki á forsíðu né annars staðar, þess getið
að snilldarverkið Messías væri eftir George
Frideric Handel, eins og hann ritaði nafn sitt
(ekki Händel) eftir að hann gerðist enskur
borgari.
Kórinn var ótrúlega góður og þótt deila
megi um hraðaval og þar með stemmninguna í
einstaka þáttum féll allt í farveg glæsilegrar
hljómgunar, t.d. var Halelúja-þátturinn yfir-
þyrmandi tignarlegur.
Fyrstur einsöngvara til að stíga á pall var
Björn Jónsson í tónlesinu Comfort ye og arí-
unni Every walley, sem hann söng mjög vel og
með töluverðum tilþrifum. Eitthvað gaf hann
eftir í seinni aríunum og átti m.a. í smáerf-
iðleikum með hæstu tónana. Þóra Einarsdóttir
söng mjög vel og sérstaklega var túlkun henn-
ar sterk í síðustu aríu verksins, If God is for
us. Ólöf Kolbrún Harðardóttir var sérlega yf-
irveguð og söng mjög vel, einkum í fyrstu aríu
þriðja hlutar, I know that my Redeemer li-
veth. Ung söngkona, Marta Hrafnsdóttir, hef-
ur mikla rödd og gerði margt fallega, t.d. í He
was despised, þó nokkuð ætti hún í vök að
verjast á móti sterkum hljómi hljómsveitar-
innar í seinni hluta aríunnar. Það sem hún á
eftir að ná valdi á varðar hljóðfræði, sem oft
vill vera vandamál hjá þeim sem hefur lagt sig
t.d. eftir þeirri hljóðfræði, sem er í gildi í
námslandinu. Viðar Gunnarsson söng vel,
bæði í tónlesinu Thus saith the Lord og arí-
unni But who may abide. Ein af frægustu arí-
um verksins er The Trumpet shall sound og
þar fór Bergþór Pálsson á kostum, stundum
þó nokkuð yfirdrifið en umfram allt með mikl-
um „bravúr“.
Það væri of langt mál að telja upp alla ein-
söngsþættina en einsöngvararnir áttu sinn
stóra þátt í glæsilegri uppfærslu verksins, sem
Jón Stefánsson stjórnaði af öryggi og festu, og
hvað sem líður afstöðu til einstakra atriða, er
varða tempó og stemmningar, þá vann Jón
Stefánsson stóran listasigur með þessari frá-
bæru uppfærslu á Messíasi eftir Handel.
Hátíðartónleikar
Kórverk eftir Saint-Saëns og Vivaldi voru
viðfangsefni á hátíðartónleikum kirkjukórs
Áskirkju, undir stjórn Kára Þormars, sl.
sunnudag, ásamt einsöngvurum og kammer-
sveitinni Aldavinum, en fyrir henni fór Rut
Ingólfsdóttir sem konsertmeistari.
Fyrra verkið var Oratorio de Noël op. 12.
nr. 2 eftir Camille Saint-Saëns, sem hann mun
hafa samið mjög ungur. Frá 13 ára aldri
stundaði Saint-Saëns píanónám við tónlistar-
skólann í París en 16 ára hóf hann nám í tón-
smíði hjá Halévy og Gounod við sama skóla.
Hann var innan við tvítugt er fyrsta sinfónía
hans op. 22. var uppfærð.
Það sem einkennir þessa litlu jólaóratóríu
er það sem vantar í tónmálið, þó að öðru leyti
búi það yfir áferðarfallegri sviplítilli hljóman.
Varðandi efnisskrá hefði verið til þæginda ef
tilgreint hefði verið hverjir sungu hina ýmsu
einsöngskafla en einsöngvararnir voru í felum
í kórnum. Þeir sem undirritaður sá eftir tölu-
verðar hálsteygjur og þekkti voru Elma Atla-
dóttir, Hallveig Rúnarsdóttir og Hrólfur Sæ-
mundsson, sem sungu af reisn, en aðrir voru
Jóhanna Ósk Valsdóttir, Oddný Sigurðardótt-
ir, Sibylle Köll og Björn Thorarensen, sem
einnig sungu með kórnum, sem var nokkuð
góður.
Seinna verkið var Gloría eftir Vivaldi. Það
er margt skemmtilegt stefjaefnið í þessu vin-
sæla verki, þótt Vivaldi væri skammaður fyrir
að nota hljóma ótæpilega í grunnstöðu og sí-
spila sömu bassanóturnar. Það er greinilegt að
Vivaldi hefur ætlað kaflaskilin á sumum köfl-
um þéttari en gert var á þessum tónleikum.
Hvað um það, þá söng kórinn oft nokkuð
hressilega aðalkafla verksins, en glaðlegt og
opinskátt tónmálið er einmitt aðalsmerki Vi-
valdis.
Það tekur langan tíma að búa til kór og
kenna fólki að syngja inn í sama tóninn og
einnig þarf að velja viðfangsefnin sem leið-
arsteina á þeirri vegferð. Með heilsteyptan
kór er nauðsynlegt að ráðast í flutning á
stórum og erfiðum verkum og er Kári Þormar
að því leyti til á réttri leið, þótt kórinn hafi ein-
um of borið merki samtínings þjálfaðra söngv-
ara, en kórinn sjálfur verið heldur veikburða
fyrir þessi viðfangsefni, sérstaklega Gloríuna,
sem að mörgu leyti var þokkalega flutt.
Glæsilegur flutningur á Messíasi
TÓNLIST
Langholtskirkja
ÓRATÓRÍAN MESSÍAS EFTIR HANDEL
Flytjendur voru Kór Langholtskirkju,
Sinfóníuhljómsveit Íslands, með Sigrúnu Eðvalds-
dóttur sem konsertmeistara, undir stjórn Jóns Stef-
ánssonar.
Einsöngvarar: Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Þóra Ein-
arsdóttir, Marta Hrafnsdóttir, Björn Jónsson, Berg-
þór Pálsson og Viðar Gunnarsson. Fimmtudagurinn
20. nóvember.
Áskirkja
KÓRTÓNLEIKAR
Flutt voru kórverk eftir Saint-Saëns og Vivaldi. Flytj-
endur; Kór Áskirkju og Kammersveit, konsertmeist-
ari Rut Ingólfsdóttir og einsöngvararnir Elma Atla-
dóttir, Hallveig Rúnarsdóttir, Jóhanna Ósk Valsdóttir,
Oddný Sigurðardóttir, Sibylle Köll, Björn Thor-
arensen og Hrólfur Sæmundsson. Stjórnandi Kári
Þormar. Sunnudagssíðdegi 23. nóvember.
Morgunblaðið/Jim Smart
Jón Stefánsson æfir Kór Langholtskirkju fyrir flutninginn á Messíasi eftir Handel.
Jón Ásgeirsson
Á SÍÐUSTU háskólatónleikum
þessa haustmisseris í Norræna
húsinu kl. 12.30 á morgun, mið-
vikudag, syngur Graduale nobili
undir stjórn Jóns Stefánssonar. Á
dagskránni eru verk eftir Báru
Grímsdóttur, Hildigunni Rúnars-
dóttur, Hjálmar H. Ragnarsson,
Jón Ásgeirsson (úts.), Javier Busto,
Matti Hyökki (úts.), Gustav Holst,
Robert Sund, Alice Tegner og
Giuseppe Verdi.
Graduale nobili var stofnaður
haustið 2000. Kórinn er skipaður
24 stúlkum á aldrinum 17–25 ára,
völdum úr hópi þeirra sem sungið
hafa með Gradualekór Langholts-
kirkju.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stúlknakór syngur
á hádegistónleikum
EPTA-píanókeppni fyrir unga pí-
anóleikara fer fram í Salnum í
Kópavogi dagana 26.-30. nóvember.
Það er Íslandsdeild EPTA, Evrópu-
sambands píanóleikara, sem stend-
ur fyrir keppninni sem er ætluð
efnilegum píanónemendum 25 ára
og yngri. Þetta er í annað sinn sem
keppnin er haldin í Salnum. Fyrst
fór hún fram árið 2000 en þá fór
Víkingur Heiðar Ólafsson með sig-
ur af hólmi.
Keppnin fer fram í þremur flokk-
um: miðnám (4-5 stig, ekki eldri en
15 ára), framhaldsnám (6-7 stig,
ekki eldri en 19 ára) og háskólanám
(ekki eldri en 25 ára). Forkeppni
fyrir mið- og háskólanám verður
haldin á morgun og fyrir fram-
haldsnám hinn daginn. Úr-
slitakeppni í öllum flokkum verður
á laugardag. Keppnin stendur yfir
frá kl. 9-17 miðvikudag og fimmtu-
dag og frá 10-16 á laugardeginum.
Keppnin er opin almenningi til
áheyrnar gegn gjaldi. Verðlaunaaf-
hending fer fram á sunnudag.
Keppendur velja verk samkvæmt
uppgefnum verkefnalistum fyrir
hvern flokk fyrir sig en þar er gefið
upp val á verkefnum frá ákveðnum
tímabilum tónlistarsögunnar.
Haukur Tómasson hefur samið
verkið Brotnir hljómar fyrir keppn-
ina en það skal leikið í úrslitum í
efsta flokki.
Dómnefnd keppninnar sam-
anstendur af fimm dómurum en
hana skipa: Anna Guðný Guð-
mundsdóttir, Anna Þorgrímsdóttir,
Halldór Haraldsson, Þorsteinn
Gauti Sigurðsson og formaður
dómnefndar, próf. Peter Topercz-
er, rektor Listaakademíunnar í
Prag. Sunnudaginn 30. nóvember
kl. 14 verða veitt verðlaun og við-
urkenningar fyrir 1., 2. og 3. sæti í
hverjum flokki. Sigurvegarar hvers
flokks munu koma fram og leika
fyrir áheyrendur.
Stjórn EPTA vill hvetja kennara,
nemendur þeirra og aðra sem
áhuga hafa til að mæta á keppnina.
Ungir píanóleikarar keppa
Morgunblaðið/Kristinn
Víkingur Heiðar Ólafsson bar sigur úr býtum í síðustu keppni.